Tíminn - 24.05.1986, Blaðsíða 24
meÓVISA
ææsSSBESSSKsðíSI
ALFREÐ ÞORSTEINSSON
skipar 2. sæti á lista Framsóknarflokksins
við borgarstjornarkosningarnar 31. maí
1986.
AUKUM STUÐNING VIÐ ÍÞRÓTTAFÉLÖGIN í
BORGINNI.
X-B
Laugardagur 24. mai 1986
Ung nu i Nord fær aö liggja og rykfalla í kjallara Norræna hússins í Reykjavík því Norræna félagiö neitar aö dreifa
bókinni. Tímamynd Pétur.
Danska æskulýössambandið gaf út bókina „Ung nu i Nord“:
Stálu kaf la úr bók-
inni „Ekkert mál“
Norræna félagiö vill ekki dreifa bókinni
Danskur ráögjafi einbeitir sér að íslandsmarkaðinum:
SELUR MÖRGUM
SÖMU HUGMYND
Sumt vonlaust en annað hefur reynst ágætlega
Iðntæknistofnun hefur sent sveit-
arstjórnum bréf þar sem hún óskar
eftir því að þær gefi upplýsingar um
hvort þær hafi átt viðskipti við
Danann Knut Gravab og hvers eðlis
þessi viðskipti hafi verið. Þetta er
gert vegna gruns um að Daninn, sem
er sölumaður hjá danska ráðgjafa-
fyrirtækinu Scankey, hafi selt mörg-
um sveitarstjórnum sömu hugmynd-
ina til að bæta atvinnuástand í sveit-
arfélögunum.
Knut þessi Gravab hefur starfað
hérlendis til margra ára eða allt frá
því að tók að harðna á dalnum í
verktakaiðnaðinum og Scankey
sneri sér að ráðgjafaþjónustu fyrir
þróunarlönd. Hann hefur ferðast á
milli byggðarlaga og boðið mönnum
úrval af áætlunum, s.s. að bleiu-,
gardínustanga- og kertaverksmiðj-
um, og þegar menn hafa fundið
eitthvað sem þeim líst vel á selur
Gravab þeim ráðgjöf, finnur vélar,
lcitar tilboða og gerir markaðsáætl-
anir. Sumt hefur tekist vel, eins og
límtrésverksmiðjan að Flúðum,
kertaverksmiðjan í Vestmannaeyj-
um og álpönnuverksmiðjan á Eyrar-
bakka, en annað hefur farið ver,
eins og gardínustangaverksmiðjan á
Stokkseyri og Búðardalsleir í Búð-
ardal. Einnig hefur Gravab orðið vís
að því að selja mörgum aðilum sömu
hugmyndina. Útreikningar hans
þykja heldur ekki vera ábyggilegir
og hann gengur oft út frá forsendum
sem ekki eru til staðar. Hann reiknar
oftast með mjög góðri markaðshlut-
deild og gerir þá ráð fyrir að stjórn-
völd muni setja einhverjar hömlur á
innflutning samskonar vöru. En þó
svo það eigi vel við í flestum þróun-
arlöndum, stenst það illa í landi sem
er í fríverslunarsambandi Evrópu.
Iðntæknistofnun hefur gengið illa
að afla sér upplýsinga unt ferðir
Danans þar sem þeir sem keypt hafa
af honum hugmyndir sitja sem fast-
ast á þeirri gullkistu og vilja helst
engum segja frá.
-gse.
Þúsund eintök af bókinni „Ung nu
r Nord“, sem danska ; æskulýðsam-
bandið gaf út liggja og rykfalla í
kjallara Norræna hússins í Reykja-
vík. Bókin var gefin út í tilefni af ári
æskunnar í fyrra og inniheldur efni
frá öllum Norðurlöndunum. Bók-
inni var aldrei dreift á íslandi vegna
þess að birtur var kafli í bókinni, úr
bók Njarðar P. Njarðvík ög sonar
hans Freys, „Ekkert mál“ án sam-
þykkis höfunda.
„Æskulýðssambandið danska var
seint á ferðinni, að huga að íslensku
efni og birtu kafla úr bókinni „Ekk-
ert mál“ án samráðs og leyfis höf-
undanna. Með kaflanum var birt
kynning sem er röng. Þegar við
vissum af þessu hjá Norræna félag-
inu þá höfðum við strax samband við
höfundinn og höfum verið í nánu
sambandi við hann síðan. Við tókum
þá ákvörðun að dreifa ekki bókinni
fyrr en næðist fullt samkomulag milli
danska æskulýðssambandsins og
höfundanna," sagði Sighvatur
Björgvinsson framkvæmdastjóri
Norræna félagsins í samtali við
Tímann.
Ekki hefur enn náðst samkomulag
milli höfunda og danska æskulýðs-
sambandsins. Sighvatur Björgvins-
son vildi taka það skýrt fram að
ástæðan fyrir því að Norræna félagið
dreifi ekki bókinni, er sú að félagið
telur sig ekki hafa heimild fyrir því
að dreifa henni, þar sem ekki liggur
fyrir samþykki höfunda um birtingu
á kaflanum úr bókinni „Ekkert
mál“.
Hætt var við dreifingu á bókinni á
Álandseyjum, Færeyjum og að hluta
til í Finnlandi. Önnur félög á
Norðurlöndum dreifðu bókinni.
Um framgang danska æskulýðs-
sambandsins sagði Sighvatur. „Ég
tel danska æskulýðssambandið hafa
staðið sig mjög illa í þessu máli.“
-ES.
Verður Byggðastofnun flutt til Akureyrar?
w
Akvörðun verður
tekin fljótlega
HÍÁ-Akureyri
Fljótlega verður tekin ákvörðun
um það hvort Byggðastofnun, sem
nú er staðsett í Reykjavík, verður
flutt norður til Akureyrar. Yfirmenn
stofnunarinnar eru nú að vega og
meta skýrslu sem Hagvangur vann
um „kosti og galla staðsetningar
stofnunarinnar á Akureyri".
Skýrslan hefur verið kynnt bæjar-
ráði Akureyrar, og í kjölfar þess
skoraði ráðið á stjórn Byggðastofn-
unar, að taka ákvörðun um að flytja
stofnunina til Akureyrar, og stíga
þar með stórt skref í byggðamálum.
Að sögn Helga M. Bergs bæjarstjóra
á Akureyri var það samdóma álit
bæjarráðs, að ekkert kæmi frant í
skýrslunni sem benti til þess að
Byggðastofnun þurfi að starfa á
höfuðborgarsvæðinu. Hi ns vegar eru
fjölmörg atriði, sem frant koma í
skýrslunni er beinlínis mæla með því
að Byggðastofnun verði staðsett á
Akureyri, og undir þau tökum við
heilshugar. Það hlýtur að vera aug-
ljós kostur að stofnun sem þessi
verði staðsett úti á landsbyggðinni,
þ.a. við þurfum ekki að sækja alla
þjónustu til Reykjavíkur, auk þess
sem þetta skapar ný atvinnutækifæri.
Gervihnettir og mönnuð geimför
hafa verið send út í geiminn, og
þeim náð þaðan aftur, þ.a. ég sé ekki
að það sé neitt stórmál að staðsetja
stofnun þessa hér á Akureyri. Þetta
flokkast miklu fremur undir fram-
þróun og stuðlar að jafnvægi í byggð
landsins, sagði Helgi að lokum.
LHVRl’UegH^
Þæreru meiriháttargóðarnýju Goðapylsumar á grillið eð’í pottinn og svo
líka í veislumar
og bragðið þaðhrífur já minnamánúsjá.
'Xl'K
iSM&xl'
(~wAB l'