Tíminn - 24.05.1986, Blaðsíða 5
Laugardagur 24. maí 1986
Tíminn 5
ÚTLÖND
llll!
III
INDLAND:
ROSTURSAMTI
PUNJABHÉRAÐI
Spennan milli sí
hefndaraðgerðir
Nýja Delhi-Reutcr
Átökin í Punjabhéraði á Indlandi
mögnuðust í gær þegar átta síkhar
voru særðir með hnífstungum og
ungir hindúar gengu berserksgang í
helgustu borg síkha.
Atvik þessi áttu sér stað í Amritsar
þar sem samtök hindúa höfðu boðað
til verkfalls til að mótmæla drápun-
um á níu hindúum og tveimur síkh-
um síðastliðinn miðvikudag. Pað
voru öfgasinnaðir síkhar sem að
morðunum stóðu.
Drápin hafa enn aukið á spennuna
milli síkha og hindúa, sem er minni-
hlutahópur í þessu héraði á Norður-
Indlandi, og er nú aukið lið lögreglu
og öryggisvarða á vakt í Amritsar til
að koma í veg fyrir átök milli
hópanna tveggja.
Ekki gat þó lögreglan komið í veg
fyrir hnífabardagann í gærmorgun
þar sem fórnarlömbin voru meðal
annarra flutningaverkamenn á leið
heim úr vinnu og mjólkurpóstur að
sinna störfum sínum snemma dags.
íbúar í Amritsar sögðu árásirnar í
gær sýna að sumir hindúar hefðu
misst þolinmæðina gagnvart ofbeld-
isaðgerðum síkha og hefðu nú í
fyrsta skipti svarað fyrir sig. Morðin
síðasta miðvikudag sem öfgasinnað-
ir síkhar stóðu fyrir voru ein þau
verstu í ofbeldisaðgerðum þeirra er
kostað hafa 230 mannslíf í Punj-
abhéraði síðustu 12 vikurnar.
Annað atvik sem sýndi reiði
minnihlutahóps hindúa var þegar
ungir hindúar gengu berserksgang
um stræti Amritsar, eyðilögðu bíla
og brutu rúður í verslunum. Lögregl-
unni tókst þó fljótlega að dreifa
hópnum.
kha og hindúa magnaðist eftir
hindúa í gær
Síkhar við Gullna hofið, sinn helgasta
haft sig í frammi að undanförnu.
Ofgasinnaðir síkhar hafa mjög
hert aðgerðir sínar eftir að yfirvöld
héraðsins, sem í eru hófsamari menn
úr hópi síkha, sendu lögreglu inn í
Gullna hofið til að handtaka leiðtoga
aðskilnaðarsinna er lýst höfðu yfir
sjálfstæðu síkharíki, Khalistan, í
Norður-Indlandi.
Mörg fórnarlamba öfgasinnaðra
síkha, sem berjast fyrir sjálfstæðu
síkharíki, hafa verið hindúar og hafa
margir þeirra flúið Punjabhérað á
undanförnum vikum. Ekki er þó
aðeins óttast um hindúa í Punjabhér-
aði heldur hafa indversk stjórnvöld
einnig áhyggjur af því að síkhar sem
búsettir eru annars staðar á Indlandi
en í Punjabhéraði verði beittir of-
beldi af reiðum hindúum.
Slíkt ofbeldi gæti valdið því að
síkhar á Indlandi flykktust til Punj-
stað. Öfgasinnaðir síkhar hafa mjög
abhéraðs á meðan hindúar hyrfu
þaðan, einmitt það sem öfgasinnaðir
síkhar í Punjab hafa í huga.
Livingstone í Afríku:
Samskipti Kúbu og
Nicaragua:
Mikil og
blómleg
Hundruð kúbanskra
hernaðarsérfræðinga
þjálfa her Sandinis
Lima-Reutcr
Nú eru alls um 800 kúbanskir
hernaðarsérfræðingar í Nicarag-
ua og einir 600 tækniráðgjafar til
að aðstoða við varnir og uppbygg-
ingu landsins. Þetta var haft eftir
Rafael Rodriguez varaforseta
Kúbu sem nú er á ferðalagi um
lönd Suður-Ameríku.
Rodriguez sagði fréttamönn-
um í Lima, höfuðborg Perú, að
hernaðarsérfræðingarnir kú-
bönsku þjálfuðu hermenn hinnar
vinstrisinnuðu Nicaraguastjórnar
aðallega í vopnanotkun. Peir gefa
einnig ráð hvað varðar almennt
þjóðaröryggi.
Að sögn Rodriguez eru kú-
bönsk stjórnvöld reiðubúin til að
kalla hernaðarsérfræðingana
heim ef stjórnin í Managua fer
fram á slíkt og ef það auðveldar
samningaviðræður í Mið-Amer-
íku.
Á tímabili voru alls um þrjú
þúsund skólakennarar, frá Kúbu,
aðallega konur, í Nicaragua.
Nokkurra vikna
viðskiptabann
af hálfu stórveldanna og stjórnin
í Suður-Afríku fellur
AMNESTY INTERNATIONAL:
Mannréttindi fótum
troðin í Ekvador
Lundúnir-Reuter.
Mannréttindasamtökin Amnesty
International segjast hafa sannanir
fyrir því að yfirvöld í Ekvador séu á
nýjan leik farin að notast við pynd-
ingar á föngum í stórum stíl.
Samtökin, sem aðsetur hafa í
Lundúnum, birtu fréttabréf í gær
þar sem segir að enn á ný væru
mannréttindi ekki virt í landinu.
Eftir að hernaðaryfirvöld létu af
stjórn landsins árið 1979 og ný
borgaraleg stjórn tók við varð nokk-
ur breyting til batnaðar í mannrétt-
indamálum í þessu Suður-Ameríku-
ríki.
Fórnarlömb pyndinganna voru
sögð vera allt frá smáþjófum til
stúdenta sem grunaðir hafa verið um
:samvinnu við skæruliða í landinu.
Amnesty skýrði sérstaklega frá
tveimur mönnum sem handteknir
voru í fyrra og pyndaðir. Annar var
barinn, brenndur með sígarettum,
dreginn upp úr köldu vatni og gefið .
rafmagnsstuð. Hinn fékk að finna
fyrir svipuðum óskemmtilegheitum
og mannvonsku.
Stjórnvöld í Ekvador hafa neitað
ásökunum Amnesty og segja að í
tveim fyrrnefndum málum hafi
rannsókn farið fram samkvæmt
lögum.
Harare-Reuter
Með viðskiptabanni á Suður-Afr-
íku gætu Bretland, Bandaríkin og
Vestur-Þýskaland knésett stjórn
Suður-Afríku á nokkrum vikum.
Þetta var haft eftir einum helsta
vinstrisinnaða stjórnmálamanninum
í Bretlandi í gær.
Ken Livingstone, fyrrum leiðtogi
bæjarráðs Stór-Lundúnasvæðisins,
en það ráð hefur nú verið lagt niður,
sagði fréttamönnum í gær að Mar-
grét Thatcher forsætisráðherra Bret-
lands og Ronald Reagan Banda-
ríkjaforseti stæðu í vegi fyrir að af
slíku viðskiptabanni gæti orðið.
Bretland, Bandaríkin og V-Pýska-
land eru helstu viðskiptalönd Suður-
Afríku og fjárfestingar þeirra þar
nema nokkrum milljörðum dollara.
Livingstone sagði að ef flokkur
sinn, Verkamannaflokkurinn, ynni
næstu kosningar í Bretlandi yrði
algjöru viðskiptabanni á Suður-Áfr-
íku komið á hið snarasta.
„Rauði Ken„ eins og hann er oft
nefndur er nú í Zimbabwe og sækir
KINA:
Bolasala bönnuð
Peking-Reuter.
Sala á mest selda skyrtubolnum
í Shanghai, sem lítur út eins og
bandaríska þjóðflaggið, hefur ver-
ið bönnuð af borgaryfirvöldum er
segja bolina ekki hæfa þjóðernis-
sinnuðum Kínverjum.
Dagblað eitt í Shanghai skýrði
frá þessu og sagði embættismenn
hafa lagt bann við sölunni eftir að
30 þúsund bolir höfðu verið seldir.
Að sögn embættismannanna var
sölubannið lagt á vegna þess að
bolirnir „höfðu slæm áhrif á þjóð-
félagið".
Blaðið bætti við að skyrturnar
hefðu verið bannaðar vegna þess
:að mörgum finnst þeir sem þær
keyptu vera að dýrka vestræna
menningu á ódýran hátt og vera
þjóð sinni til skammar.
þar ráðstefnu sem haldin er í tilefni
Afríkudagsins sem er á morgun.
Botham hinn breski
reykti gras:
Þetta er alls
ekki krikket
- segja yfirvöld leiksins
og hafa ákært þennan
frægasta og umdeild-
asta íþróttamann
þeirra Breta
Lundúnir-Reuter
Breska Krikketsambandið setti
fram fjórar ákværur gegn stjörnu-
leikmanninum Ian Botham nú í
vikunni eftir að hann hafði viður-
kennt að hafa reykt marijúana oftar
en einu sinni.
I tilkynningu yfirvalda þjóðarleiks
þeirra Breta var Botham sagður
hafa sett svartan blett á íþróttina
eftir að hafa skrifað grein í blaðið
„Sunnudagspóstinn" (Mail on Sund-
ay). Þar sagðist Botham hafa notað
marijúana í nokkur skipti.
Krikketsambandið ákærði
Botham, einn frægasta og umdeild-
asta íþróttamann Breta, fyrir að
hafa notað marijúana, fyrir að hafa
játað það, fyrir að hafa neitað því
áður og fyrir að hafa skrifað greinina
án þess að ráðfæra sig við yfirvöld
leiksins.
Botham er óumdeilanlega einn
besti krikketleikari heims en svo
getur farið að hann verði settur í
Imigt keppnisbann verði hann fund-
inn sekur.
Boddíhlutir-
bretti
Mazda 323 ’80, vérð 3.600,
Mazda323 ’81, verð 3.800,
Datsun 120Y 78, verð 4.400,
Datsun 180 78, verð 6.200,
Volvo 144, verð 4.500,
Volvo 244 '80, verö 6.400,
Honda Civic 79, verð 3.400,
Honda Civic '80—’82, verð 5.100,
Honda Civic ’82—'84, verð 5.100,
Honda Accord 77—'80, verð 4.600,
Alfa Sud '80, verð 3.900,
Colt '80—’82, verö 4.800,
Cherry 79— '81, verð 4.900,
Corolla 20, verð 4.700,
Corolla 30, verð 4.900,
Corolla 70, verð 5.300,
Carina 79— '81, verð 5.500,
Citroén GS, verð 3.900,
Citroén CX, verö 4.700,
Fiat 127, verð 1.240,
Fiat 128, verð 1.780,
Fiat 131, verð 2.200,
Fiat 132, verð 4.500,
Fiatl25P, verð 4.400,
Fiat Ritmo, verð 2.400,
Fiat Uno, verð 2.300,
Lada 1200, verð 2.200,
Simca 1100, verö 2.600,
Simca 1508, verð 3.300,
Saab96, verö 3.200,'
Saab 99, verð 3.600,
BMW 316, verð 5.100,
Peugeot 504, verð 4.600,
Peugeot 505, verö 5.800,
Autobianchi 112, verð 2.800,
Escort 75, verö 3.900,
Golf’77-’83,verö 3.700,
Jetta ’80-’83,verö 4.100,
Renault4,veröl.640,
Renault5,verðl.750,
Opel Rekord, verð 4.800,
Opel Kadett, verö 4.000,
Mercedes Benz 230, verð 8.600
o.fl. gerðir. Geriö verösamanburð.
Ath. Þessir hlutir eru framleiddir
á Italiu.
G%varahlutir
Simar 36510 og S3744
Vélaeigendur:
TAKIÐ EFTIR!!!
Eigum fyrirliggjandi eöa útvegum
meö stuttum fyrirvara eftirfarandi
x Alla helstu varahluti fyrir
Caterpillar og Komatsu
vinnuvélar.
x Beltakeöjur og aöra
undirvagnshluti í állar gerðir •
beltavéla.
x Slitstál, skerablöö og
tannarhorn fyrir jaröýtur og
veghefla.
x Riftannaodda fyrir jaröýtur.
x Spyrnubolta og skerabolta
allar stæröir.
x Stjórnventla og vökvadælur
fyrir 12/24 volta kerfi.
x Slitplötur og aöra varahluti í
mulningsvélar.
x Hörpunet allar stærðir fyrir
malarhörpur.
x Færibönd og varahluti í
færibönd.
x Drifkeöjurogfæribandakeöjur
fyrir verksmiöjur og
landbúnaöarvélar. Einnig fyrir
lyftara, vökvakrana, rafstöövar,
loftpressur, götusópa,
dráttarvélar og flutningatæki.
ALLT Á EINUM STAÐ:
Og við teljum niður
veröbólguna hraðar en margir
aðrir.
VÉLAKAUP HA=
Sími 641045
Góða
skapið má
ekki gleymast
heima undir
nokkrum kring- B|UlylFEmw,
umstæðum. Urád