Tíminn - 24.05.1986, Page 15
Laugardagur 24. maí 1986
lllllllllllll POPP
Tíminn 15
lllllllllllllllllllllllllllllllllllll
Dægurlagasöngvarinn Megas.
Tímamynd: Sverrir
Nú er Megas allur
- í einum kassa!
Nú er sannarlega ástæða fyrir
aðdáendur Megasar að gleðjast. Út
eru komnar tvær nýjar plötur með
meistaranum og gömiu plöturnar sjö
hafa verið endurútgefnar. Herleg-
heitunum hefur verið komið fyrir í
smekklegum kassa, sem ber heitið
„Megast allur“. í bónus er 40 blað-
síðna textabók, sem hefur að geyma
alla texta platnanna auk þess sem
úrklippur stikla á stóru á ferli Megas-
ar.
Ekki er víst að allir aðdáendur
Megasar, og þá sérstaklega þeir
yngstu, þekki allar plöturnar og
verða þær og útgáfuár þeirra talin
hér upp. Fyrsta plata Megasar kom
út fyrir áeggjan íslenskra náms-
manna í Osló (við eigum þeim
greinilega mikið að þakka!) árið
1971. Platan heitir einfaldlega
Megas og hefur að geyma 12 lög.
Megas sótti yrkisefni sín til fslend-
ingasagnanna á þessari plötu og hélt
þeim sið við. síðar á ferli sínum. Á
plötunni eru auk sagnakvæðanna
perlur sem allir kannast við, „Gamli
sorrý Gráni“ og „Spáðu í mig“.
Svo liðu fjögur ár þar til Megas lét
heyra í sér að nýju. Þá kvaddi hann
til hljómsveitina Júdas og hljóðritaði
plötu sem út kom árið 1975, undir
nafninu Millilending.
Ári síðar, eða 1976 sendi hann frá
sér plötuna Fram og aftur blindgöt-
una. Megas hafði þá þegar skapað
sér ákveðinn sess í íslensku tónlistar-
lífi, en var vissulega umdeildur og af
mörgum talinn lítill hæfileikamaður.
En þau stórmerki gerðust árið 1976
að Megas fékk listamannalaun, ann-
ar dægurtónlistarmaðurinn sem varð
þess heiðurs aðnjótandi (Gunnar
Þórðarson hafði áður fengið sams-
konar úthlutun). í þessari úthlutun,
sem reyndar fór fyrir brjóstið á
mörgum, fólst viðurkenning og ekki
var hægt að efast um listamannsnafn-
bótina.
Megas hélt ótrauður áfram og gaf
út plötuna Á bleikum náttkjólum
árið 1977, í samvinnu við Spilverk
þjóðanna. Þessi plata er ein þeirra
merkustu í íslenskri rokksögu. Hin
umdeilda barnaplata Megasar, Nú
er ég klæddur og kominn á ról, kom
út árið 1978. Þar söng hann gamlar
íslenskar barnagælur við undirleik
Guðnýjar Guðmundsdóttur og Scott
Gleckers.
Þá hafði Megas sent frá sér þrjár
plötur á þremur árum. Hann var
áberandi í menningarlífinu, umtal-
aður og misskilinn af mörgum. Árið
1979 framdi Megas tónlistarlegt
sjálfsmorð í sal Menntaskólans við
Hamrahlíð. Sjálfsmorðið var gefið
út á tveimur plötum sem áttu að
verða svanasöngur meistarans. En
Megas var ekki lengi í myrkrinu.
Hann tók að syngja á konsertum að
nýju, hljóðritaði lög með Bubba og
Ikarus flokknum, flutti Passíusálm-
ana fyrir fullu húsi tvö ár í röð og
vonandi verður framhald á þeim
flutningi í framtíðinni.
Nú er hægt að njóta Passíusálm-
anna í flutningi Megasar heima í
stofu, því tónleikarnir 1985 eru á
sérstakri plötu í kassanum góða, svo
og gamlar lummur og lög frá Ikarus
tímanum.
Kassinn, Megas allur, er hinn
smekklegasti og gömlu umslög
Megasar eru endurprentuð á nær-
buxur platnanna, þannig að kaup-
andi í dag fær nákvæmlega það sama
í hendurnar og sá sem keypti upp-
runalegu útgáfurnar á sínum tíma.
En það versta við þessa útgáfu er hið
takmarkaða upplag. Kassinn er ein-
ungis gefinn út í 1000 eintökum svo
það þýðir ekkert að vera með droll
á þessum krepputímum. ÞGG
Það væri ekki amalegt að eldast eins
og Phil Collins. Hann cr virkilega
sætur. Hárið er reyndar allt að
hverfa, en hann hefur orkuna og
hana í ríkum mæli.
Myndir af frægum
Það er ekki tekið út með sældinni að vera frægur. Slúðrið er mikið og
misjafnlega merkilegt, en núna er farið að gera skopbrúður af frægu
fólki, stjórnmálamönnum, leikurum og rokkstjörnum. Hér eru myndir
af nokkrum poppurum og listamennirnir heita Roger Law og Peter Fluck.
Handbragðið er býsna gott, eða hvað finnst ykkur?
Þetta er Paul McCartney, sá ríkasti
í bransanum í dag. Reyndar er hann
eitthvað niðurdreginn á myndinni,
vonandi eru það ekki
peningaáhyggjumar sem eru að fara
með hann.
Nei, þetta er ekki Sylvester Stallone
heldur Andrew Ridgeley, annar
ungu manna sem skipaði dúettinn
Whaml...
...og hér er hinn helmingurínn,
George Michael. Það mætti halda að
hann hafi fengið varimar lánaðar hjá
Mick Jagger.
Til upplýsingar fyrir ^
tóbaksneytendur
Skrá um nokkur efni í sígarettum á íslenskum
markaði. Miðað er við milligrömm í reyk hverrar
sígarettu.
Birt án ábyrgðar samkvæmt upplýs. umboðsm-
anna tóbaks til tóbaksvarnarnefndar.
Tjara Níkótír Kolsýrl-
Camel (án síu) .... 21,2 1,5 ingur 13,5
Camel 17,6 1,3 16,9
Camel Lights 8,9 0,7 11,8
Craven A 16,4 1,3 —
Dunhill 15,5 1,2 —
Duncap 12,0 1,2 -
Duncap Lights .... 8,4 0,8 -
Gauloises (án síu) . 22,8 1,4 —
Gauloises 13,9 0,8 —
Gitanes 12,2 0,8 —
Gold Coast 15,0 11,1 14,0
GoldCoastMenthol . 15,0 1,1 14,0
Gold Coast Lights . . 11,0 0,8 12,0
HB Crown 15,0 0,9 -
Kent 13,0 1,0 14,0
Kent Lights 8,5 0,8 8,5
Kim Mentol 12,0 0,6 —
Kim Mild 12,0 0,7 —
Kool 16,0 1,3 16,0
Lucky Strike 15,0 1,2 15,0
Merit Menthol 7,9 0,6 10,2
More 17,4 1,4 20,1
More Menthol 17,1 1,4 19,5
Pall Mall (án síu) . . 19,0 1,2 13,0
Prince 20,0 1,7 20,0
Prince Lights 14,0 1,3 14,0
Rothmans 16,5 1,3 -
Royale 14,9 1,2 15,3
Royale Menthol . . . 14,9 1,0 15,9
Royale Lights 4,9 0,5 7,7
Salem 16,7 1,3 16,3
Salem Lights 9,0 0,8 10,8
S.G. Export 14,0 1,0 13,5
S.G. Lights 14,1 1,0 -
Stanton 12,8 1,0 13,5
Vantage 9,4 0,7 12,4
Viceroy 15,5 1,2 13,5
Viceroy Lights 9,0 0,8 11,0
Vitory 18,5 1,3 18,0
Welcome Blue .... 18,6 1,4 16,0
Welcome Red 18,8 1,3 16,2
Winston 19,0 1,4 17,7
Winston 100’s 18,6 1,3 19,2
Winston Lights .... 10,8 0,8 12,0
v/'/m
''EGAGERÐIN Rennismiður
Óskum að ráða rennismið hið fyrsta. Upplýsingar
veitir Magnús Nikulásson verkstæðisformaður.
Vegagerð ríkisins
Borgartúni 5
105 Reykjavík
Útboð
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar fyrir hönd
byggingadeildaróskareftirtilboðum í háþrýstiþvott
og málun á Sævarhöfða 6-12.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkju-
vegi 3, Reykjavík, gegn kr. 5.000 skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað, þriðjudaginn 3.
júní n.k. kl. 14.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKIAVÍKURBORGAR
Fr(kirkjuv«gi 3 — Síffli 25800