Tíminn - 24.05.1986, Blaðsíða 20
20 Tíminn
- .. —Flokksstarf
Kosningaskrifstofur
Framsoknarflokksins
í Reykjaneskjördæmi
Framsóknarfólk sem vill taka þátt í kosningastarfi, hafið samband við
viðkomandi kosningaskrifstofur.
Kopavogur
Hamraborg 5, opin daglega frá kl. 10-12 og 14-22. Sími 41590.
Garðabær - Goðatúni
Kosningaskrifstofan er opin virka daga kl. 17.00-19.00 um helgar kl.
14.00-16.00 og öll kvöld. Sími 46000.
Frambjóðendur eru til viðtals á opnunartíma.
Hafnarfjörður
Hverfisgötu 25, verður opin virka daga kl. 14.00 til 18.00 og 20.30 til
22.00, SÍmi 51819 og 651958.
Grindavík
Suðurvör 13.
Kosningasímar 8410 og 8211.
Kosningastjórar: Kristinn Þórhallsson, sími 8022 og Svavar Svavars-
son, sími 8211.
Keflavík
Austurgötu 26. Opin mánudaga til laugardaga frá kl. 16.00-18.00 og
frá kl. 20.00 til 22.00 en þá verða frambjóðendur flokksins til viðtals.
Miðnes
Hjallagötu 7, sími 7420. Skrifstofan er opin öll kvöld frá kl. 20.00 og
á kjördag frá kl. 8.00. Frambjóðendur og sveitarstjórnarfulltrúi
B-listans eru til viðtals á skrifstofunni.
Kosningastjórar: Óskar Guðjónsson og Jón Frímannsson.
Seltjarnarnes
Eiðistorgi 17 2. haeð símar 615214, 615441 og 616380.
Skrifstofan erfyrst um sinnopin kl. 71.00 til 19.00 virka daga og 15.00
til 19.00 laugardaga og sunnudaga.
Njarðvík
Holtsgötu 49, alla virka daga frá kl. 18.00 til 22.00 og 14.00 til 18.00
laugardag og sunnudag. Sími 4634 og 4435.
Stuðningsmenn eru beðnir að athuga hvort þeir séu á kjörskrá.
Heitt á könnunni. - Lítið inn.
Kosningaskrifstofa
Framsóknarflokksins Akranesi
Kosningaskrifstofa Framsóknarfélaganna á Akranesi opin daglega
frá kl. 14.00 til 22.00.
Heitt á könnunni. Komið og fylgist með kosningastarfinu. Símar 2050
og 3248.
KosniQgaskrifstofa
B-listans á Seyðisfirði
Öldugötu 11 efri hæð opið öll kvöld frá kl. 20.00 til 23.00 og 16.00 til
19.00 um helgar sími 2107.
Kosningastjóri Gunnar Sigurðsson - heimasími 2478.
Framsóknarflokkurinn á Seyðisfirði.
Kosningaskrifstofa
B-listans ísafirði
Opið daglega frá kl. 13.00 til 18.00 og á kvöldin, sími 4316 og 3890.
Alltaf heitt á könnunni.
Framsóknarflokkurinn Isafirði.
Kosningastofa
Framsóknaflokksins Suðurlandi
Kosningaskrifstofa fyrir allt kjördæmið verður opin að Eyrarvegi 15
Selfossi allan maí mánuð frá kl. 15.00-19.00 virka daga sími 99-2547
og hafið samband.
Allir velkomnir.
Kosningaskrifstofa Framsóknar-
flokksins Hornafirði
Opnuð hefur verið kosningaskrifstofa í húsi Slysavarnafélagsins. Hún
er opin öll kvöld og um helgar sími 97-8135. Kosningastjórar
Aðalsteinn Aðalsteinsson, Sverrir Aðalsteinsson og Sverrir Guðna-
son.
Framsóknarfélag Hornafjarðar
Selfossbúar
Opið hús á þriðjudögum og fimmtudögum milli kl. 18.00 og 19.00 að
Eyrarvegi 15.
Komið og ræðið málin.
Allir velkomnir.
Framsóknarfélag Selfoss
Laugardagur 24. maí 1986
Kosningaútvarp frá Akranesi
Á mánudagskvöld kl. 20.30 verður
kosningaútvarp frá Akranesi í Svæðisút-
varpi Reykjavíkur og nágrennis, á sendi-
tíðni 90.1 MHz á FM-bylgju.
Útvarpað verður beint frá opnum fundi
í Fjölbrautaskólanum á Akranesi.
Kvikmyndsýning MÍR
Síðasta kvikmyndasýning MÍR á þessu
vori verður í húsi félagsins að Vatnsstíg
10, sunnud. 25. maí kl. 16.00. Sýndar
verða stuttar frétta- og fræðslumyndir frá
Sovétríkjunum, m.a. frá Síberíu. Að-
gangur er öllum heimill.
Leiðrétting vegna tilkynningar
um Sumarferðir Neskirkju
í blaðinu í gær, föstud. 23. maí (Helgin
framundan) er tilkynning frá Ncskirkju
, um sumarferðir til Skotlands og ferð
norður í land um Sprengisand.
í tilkynningunni misritaðist dagsetning
Skotlandsferðarinnar í prentun (var sögð
21. maí í stað 31. maí).
Tilkynningin er því birt aftur, og beðist
afsökunar á mistökunum. Rétt er tif-
kynningin þanníg:
Ákveðið hefur verið að utanlandsferð-
in í ár verði til Skotlands 31. maí. Flogið
verður til Glasgow og ekið þaðan til
Edinborgar þar sem dvalið verður í
nokkra daga. Þá liggur leiðin til Aberdeen
en þaðan er ætlunin að fara í skoðunar-
ferðir upp f skosku Hálöndin, sem eru
margrómuð fyrir einstæða náttúrufegurð.
Síðustu dagana er dvalið í Glasgow.
Ferðin kostar 34.200 kr. Þeir sem áhuga
hafa á að skella sér með, verða að skrá sig
í síðasta lagi mánudaginn 26. á milli kl.
5-6 í síma 11144.
Ferðaáætlunin í innanlandsferðina um
miðjan júlímánuð er í stórum dráttum
þessi: 1. dagur: Ekið sem leið liggur
austur fyrir fjall að Sigöldu og Þórisvatni.
Hádegisverður snæddur í Nýja-dal. Af
Sprengisandi er komið í Bárðardal. Gist-
ing á Eddu hótelinu á Stóru-Tjörnum. 2.
dagur: Haldið gegnum Vaglaskóg yfir
Vaðlaheiði til Akureyrar, þar sem merkir
staðir verða skoðaðir. Áfram er svo
haldið yfir Öxnadalsheiði til Skagafjarð-
ar. Gisting og kvöldverður á hótel Mæli-
felli á Sauðárkrók. 3. og 4. dagur: Farið
fyrir Skaga til Skagastrandar og Blöndu-
óss. Gisting á Edduhótelinu á Húnavöll-
um í tvær nætur. Á meðan dvalist er í
Húnavatnssýslu verður víða komið við.
Ekið um Svínadal, Vatnsdal og um Vest-
urhóp út Vatnsnes til Hvammstanga,
farið út á Heggstaðanes og að Reykjum í
Hrútafirði. 5. dagur: Ekið um Blönduda!
suður Kjöl. Hádegisverður á Hveravöll-
um. Komið að Gullfossi og Geysi og
Lyngdalsheiðin farin til Þingvalla í leið-
inni til baka til Reykjavíkur. Ferðin
kostar 12.800 kr. og er allt innifalið:
akstur, gisting á hótelum, matur og kaffi.
Skráning hjá kirkjuverði í síma 16783 á
milli kl. 5-6 alla virka daga. Frank M.
Halldórsson, sóknarprestur.
Vísnavinir á Borginni
á mánudagskvóld
Næstkomandi mánudagskvöld, þann
26. maí, halda Vísnavinir síðasta vísna-
kvöld fyrir sumarleyfi. Það verður að
vanda haldið á Hótel Borg. Þctta kvöld
verður með all sérstæðu sniði, þar sem
fram fer hæfileikakeppni og verður valinn
vísnasöngvari kvöldsins. Til keppninnar
er efnt í tilefni tíu ára afmæli félagsins
Vísnavina síðar á þessu ári. Að auki
verður boðið upp á önnur dagskráratriði,
Vísnakvöldið hefst kl. 20.30.
Frá Hinu íslenska
náttúrufræðifélagi
Fjöruferð
Veist þú að fyrir aðeins 400 kr. kemst
þú í fjöruferð með Hinu íslenska náttúru-
fræðifélagi, getur fræðst heilmikið um
lífið í fjörunni, gengið um Kjalarnesið í
góða veðrinu og, síðast en ekki síst,
safnað þínum eigin kræklingi í forrétt
handa fjölskyldunni á sunnudagskvöldið?
Sunnudaginn 25. maí verður fjöruferð
á vegum Hins íslenska náttúrufræðifé-
lags. Haldið verður upp á Kjalarnes, en
þar eru skemmtilegar og lífríkar fjörur
sem verða skoðaðar undir leiðsögn Karls
Gunnarssonar þörungafræðings. Hann
mun einnig leiðbeina fólki um tínslu á
kræklingi og öðru ætilegu sem í fjörunni
er að finna.
Lagt verður af stað frá Umferðarmið-
stöðinni í Reykjavík kl. 11. Allir vel-
komnir. Mætið í stígvélum með fötur eða
önnur ílát.
Tilkynning um hjólaskoðun
í Reykjavík 1986
Lögreglan mun framkvæma hjólaskoðun
dagana 26., 27., 28. maí nk við skóla
borgarinnar. Allt hjólreiðafólk er livatt
til að mæta með hjól sín til skoðunar.
Skoðun verður framkvæmd sem hér
segir:
26. maí
Fellaskóli - Vogaskóli, 10.30-11.30
Hlíðaskóli - Seljaskóli, 13.30-14.30
Austurbæjarskóli - Hvassaleitisskóli,
15.00-16.00
27. maí
Álftamýrarskóli - Vesturbæjarskóli,
10.30- 11.30.
Breiðagerðisskóli - Hólabrekkuskóli,
13.30- 14.30
Árbæjarskóli - Laugarnesskóli, 15.00-
16.00
28. maí
Breiðholtsskóli - Fossvogsskóli, 10.30-
11.30
Melaskóli - Foldaskóli, 13.30-14.30
Langholtsskóli - Ölduselsskóli, 15.00-
16.00
Munið að reiðhjól eru ökutæki og því
nauðsynlegt að þau séu í góðu ástandi.
Öryggi þitt er undir því komið.
Bætum reiðhjólamenninguna - höfum
hjólin í lagi.
Samtök kvenna á
vinnumarkaðinum
Samtök kvenna á vinnumarkaði hafa
opna skrifstofu á þriðjudögum kl. 17.00-
19.00 í Kvennahúsinu, Hótel Vík, efstu
hæð.
Minningarkort Hjálparsveita
skáta Kópavogi.
Minningarkortin fást á eftirtöldum
stöðum: Skrifstofu Landssambands
Hjálparsveita skáta, Snorrabraut 60,
Reykjavík. Bókabúðinni Vedu, Hamra-
borg, Kópavogi. Sigurði Konráðssyni,
Hlíðarvegi 34, Kópavogi, sími 45031.
Sunndagsferðir Útivistar
Sunnud. 25. maí kl. 10. 30 - Haugs-
vörðugjá - Sýrfell - Reykjanes. Gengið
frá Stapafelli suðvestur á Reykjanestá.
Skoðuð stórkostleg misgengi og gjár.
Kl. 13.00 - Utilegumannakofamir -
Eldvörp. Skoðaðar merkar fornminjar.
gígaraðir, útilegumannahellir og háhita-
svæði. Tilvalin fjölskylduferð. Frítt fyrir
börn með fullorðnum. Brottför úr Gróf-
inni (bílastæðinu hjá Vesturg. 4) og BSÍ,
bensínsölu.
í Fíladelfíu
í tilefni af 50 ára afmæli Fíladelfíusafn-
aðarins í Reykjavtk um þessar mundir
verður efnt til sérstakrar söng- og hljóm-
listarsamkomu í kirkju Fíladelfíusafnað-
arins að Hátúni 2, sunnudagskvöldið 25.
maí kl. 20.00.
Á dagskrá verður fjölbreytt tónlist
bæði í hljóðfæraleik og söng. Fíladelfíu-
kórinn syngur undir stjórn Hafliða Krist-
inssonar. Þá verður einsöngur og tvfsöng-
ur og hljóðfæraleikur í umsjá ungs fólks.
Allir eru hjartanlega velkomnir.
Guðsþjónustur í Reykjavíkur-
prófastsdæmi sunnudaginn
25. maí 1986.
Árbæjarkirkja
Messa í safnaðarheimili Árbæjarsóknar
kl. 11. Organisti Jón Mýrdal. Sr. Guð-
mundur Örn Ragnarsson.
Áskirkja
Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Árni Bergur
Sigurbjörnsson.
Breiðholtsprestakall
Sameiginleg guðsþjónusta Breiðholts- og
Bústaðasafnaða í Bústaðakirkju kl. 11.
Organisti Daníel Jónasson. Sr. Lárus
Halldórsson.
Bústaðakirkja
Sameiginleg guðsþjónusta Breiðholts- og
Bústaðasafnaðar kl. 11. (Vinsamlegast
ath. breyttan messutíma). Örganisti Dan-
íel Jónasson. Prestur sr. Lárus Halldórs-
son. Sóknarnefndin. Félagsstarf aldraðra
miðvikudagseftirmiðdag. Lagt verður af
stað í vorferðina kl. 14.00 frá kirkjunni
Dómkirkjan
Trinitatis. Messa kl. 11. Dómkórinn
syngur. Organleikari Marteinn H. Friðr-
iksson. Sr. Þórir Stephensen.
Elliheimilið Grund
Messa kl. 10. Sr. Árelíus Níelsson.
Fella- og Hólakirkja
Guðsþjónusta kl. 11. Organisti Guðný
Margrét Magnúsdóttir. Sr. Hreinn Hjart-
arson.
Grensáskirkja
Safnaðarferð um Suöurnes. Lagt af stað
frá Grensáskirkju kl. 09.30. Messa í
Grindavíkurkirkju kl. 11 með sr. Erni B.
Jónssyni. Skoðunarferð um Reykjanesið.
Góðir leiðsögumenn verða með í ferð-
inni. Komið aftur kl. 17. Þriðjudag 27.
maí: Biblíulestur kl. 2Ö.‘3Ö7 SrTHalldór
S. Gröndal.
Hallgrímskirkja
Messa kl. 11. Sr. Karl Sigurbjörnsson.
Kaffisala kvenfélagsins í Domus Medica
kl. 3. Þriðjudag: Fyrirbænaguðsþjónusta
kl. 10.30.
Landspítalinn:
Guðsþjónusta kl. 10. Sr. Ragnar Fjalar
Lárusson.
Háteigskirkja
Messa kl. 11. Organleikari Orthulf
Prunner. Sr. Arngrímur Jónsson.
Kópavogskirkja
Guðsþjónusta i Kópavogskirkju kl. 11
árdegis. Sr. Árni Pálsson.
Langholtskirkja
Guðsþjónusta kl. II. (Athugið breyttan
messutíma). Hestamenn koma á gæðing-
um sínum til kirkju og úr röðum þeirra
munu aðstoða við messuflutninginn:
Hljóðfæraleikararnir: Ásgeir Steingríms-
son, Sveinn Birgisson og Þorkell Jóels-
son. Leikararnir: Gunnar Eyjólfsson og
Klemens Jónsson. Söngvarinn: Guð-
mundur Þ. Gíslason. Kór Langhotls-
kirkju syngur og organisti er Jón Stefáns-
son. Prestur sr. Sigurður Haukur Guð-
jónsson. Sóknarnefndin.
Laugarnesprestakall
Laugardag 24. maí: Guðsþjónusta í Há-
túni 10B 9. hæð kl. 11. Hr. Pétur
Sigurgeirsson biskup prédikar.
Sunnudag 25. maí: Messa kl. 11 í Laug-
arneskirkju. Altarisganga.
Þriðjudag 27. maí: Bænaguðsþjónusta kl.
18. Sóknarprestur.
Neskirkja
Guðsþjónusta kl. 11 árdegis. Sr. Frank
M. Halldórsson
Þriðjudag og rimmtudag: Opið hús fvrir
aldraða kl. 13-17.
Miðvikudag: Fyrirbænamessa kl. 18.20.
Sr. Guðmundur Óskar Ólafsson.
Seljasókn
Guðsþjónusta í Ölduselsskólanum kl. 11.
Altarisganga. Skaftfellingakórinn í
Reykjavík syngur við guðsþjónustuna.
Þriðjudag 27. maí: Fyrirbænasamvera kl.
18.30 í Tindaseli 3. Sóknarprestur.
Fríkirkjan í Reykjavík
Guðsþjónusta kl. 14. Ræðuefni: Er trú-
maðurinn vangefinn. Frikirkjukórinn
syngur. Söngstjóri og organisti Pavel
Smid. Sr. Gunnar Björnsson.
Kvennaráðgjöfin
Kvennahúsið við Hallærisplan
Opið á þriðjudagskvöldum kl. 20.00-
22.00. Sími 21500.
Kópavogur
Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra kemur á fund hjá okkur
mánudaginn 26. maí i Hamraborg 5, þriðju hæð kl. 20.30.
Allir velkomnir.
B-listinn.
Sandgerðingar
Suðurnesjamenn
Opinn fundur um sjávarútvegsmál verður haldinn í slysavarnarhúsinu
Sandgerði sunnudaginn 25. maí kl. 20.30. Halldór Ásgrímsson
sjávarútvegsráðherra mætiráfundinn. Fjölmennum og ræðum stöðu
sjávarútvegsins.
Framsóknarfélag Miðneshrepps.
Utankjörstaðakosning
Opnuð hefur verið skrifstofa vegna utankjörstaðakosningar að
Rauðarárstig 18, sími 24480.
Beinir símar fyrir kjördæmin eru:
15467 fyrir Austurland - Norðurland eystra - Norðurland vestra og
Vestfirði.
15788 fyrir Vesturland - Suðurland - Reykjanes og Reykjavík.
Hafið samband við skrifstofuna.
-Framsóknarflokkurinn.