Tíminn - 06.06.1986, Page 12
^RARIK
RAFMAGNSVEITUR RlKISINS
Útboð
Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir tilboðum í eftirfar-
andi:
RARIK-86009: Þrífasa dreifispennar 800-1600 kVA.
Opnunardagur: Fimmtudagur 10. júlí 1986, kl. 14.00.
Tilboðum skal skila á skrifstofu Rafmagnsveitna ríkis-
ins, Laugavegi 118, 105 Reykjavík, fyrir opnunartíma
og verða þau opnuð á sama stað að viðstöddum þeim
bjóðendum er þess óska.
Útboðsgögn verða seld á skrifstofu Rafmagnsveitna
ríkisins, Laugavegi 118, 105 Reykjavík, frá og með
fimmtudegi 5. júní 1986 og kosta kr. 300,- hvert eintak.
Reykjavík 3. júní 1986
RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS
K3RARIK
^ RAFMAGNSVEITUR RlKISINS
Útboð
Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir tilboöum í eftirfarandi:
RARIK-86010: Einfasa einangrunarspennur 315-500 (800) kVA.
Opnunardagur: Föstudaginn 11. júlí 1986, kl. 14.00.
Tilboðum skal skila á skrifstofu Rafmagnsveitna ríkisins, Laugavegi
118, 105 Reykjavík, fyrir opnunartíma og veröa þau opnuð á sama
staö að viðstöddum þeim þjóðendum er þess óska.
Útboðsgögn verða seld á skrifstofu Rafmagnsveitna ríkisins,.Lauga-
vegi 118, 105 Reykjavík, frá og með föstudegi 6. júní 1986 og kosta
kr. 300.- hvert eintak.
Reykjavík 5. júní 1986.
Rafmagnsveitur ríkisins
MÝVATN
SKimiSTADAHREPFUR
Skútustaðahreppur auglýsir
stöðu umsjónarmanns vatns
og hitaveitu áhaldahúss og
véladeildar hreppsins
Starfið er stjórnunarstarf og krefst góðrar þekking-
ar og reynslu á sviði málmiðnaðar- og vélvirkjunar
eða vélgæslu.
Leitað er að traustum starfsmanni, starfsömum og
útsjónarsömum.
Starfinu fylgir einbýlishús í kyrrlátu og góðu
umhverfi í sveitarfélagi með góða félagslega
þjónustu, svo og góð starfsaðstaða.
Umsóknarfresturertil 4. júlí nk. Nánari upplýsingar
veitir sveitarstjóri í síma 96-44263 og heima í
síma 96-44158
Sveitarstjórinn í Mývatnssveit
Arnaldur Bjarnason
dalvíkurskdli Kennarar-kennarar
Að Dalvíkurskóla vantar kennara í eftirtaldar
kennslugreinar: íþróttir, tungumál, stærðfræði og
almenna kennslu. Þá vill skólinn ráða sérkennara
fyrir næsta skólaár.
Dalvíkurskóli er grunnskóli og við skólann er
starfrækt skipstjórnarbraut sem útskrifar nemend-
ur með fyrsta stigs skipstjórnarpróf. I skólanum
eru 300 nemendur.
Kennurum verður útvegað ódýrt leiguhúsnæði.
Upplýsingar veitir skólastjóri í síma (96)61380/
(96)61491.
Skólanefnd Dalvíkur
Notaðar búvélar
til sölu
Súgþurrkunarblásari H-12, TAARUP-sláttutætari,
vinnslubreidd 135 cm., TAARUP-sláttutætari,
vinnslubreidd 150 cm., PZ-sláttuþyrla, vinnslu-
breidd 150 cm., KUHN-stjörnumúgavél, BAN-
FORD-múgavél.
Upplýsingar í síma 99-1926.
12 Tíminn
Föstudagur 6. júní 1986
DAGBÓK
Helgarferðir F.í.
13-15. júní
Mýrdalur-Höfðabrekkuheiöi - Kerlingar-
dalur. Gist í svefnpokaplássi. Stórbrotið
landslag, forvitnilegar gönguleiðir.
Þórsmörk - Gist í Skagfjörðsskála.
Salernisaðstaða er á staðnum. Heimsækið
Ferðafélagið í Þórsmörk, það er ferðar-
innar virði.
Dagsferð F.í. á
laugardag á Esju
Á morgun, laugard. 7. júní, cr fyrsta
Esjugangan af fjórum, sem Ferðafélagið
efnir til í tilefni 200 ára afmælis Reykja-
víkur (hinar þrjár 14.. 17. og 21. júní).
Ferðirnar hefjast frá Umferðamiðstöð-
inni, austanmegin kl. 13.00 (nema síðasta
ferðin kl. 20.00). Fólk á eigin bílum er
velkomið með, en lagt er á fjallið frá
Esjubergi. Þátttakendur fá viðurkenning-
arskjal að göngu lokinni og einnig happ-
drættismiða og eru vinningar ferðir á
vegum félagsins.
Hana nú í Kópavogi
Vikuleg laugardagsganga Frístunda-
hópsins Hana nú í Kópavogi verður á
morgun, laugard. 7. júní. Lagt er af stað
frá Digranesvegi 12, kl. 10.00.
Allir Kópavogsbúar - ungir og aldnir -
eru velkomnir með í laugardagstrimmið.
Samvera, súrefni og hreyfing er markmið
göngunnar.
Hljómsveitin Upplyfting: f.v. Ingimar
Snorrason og Ingimar Jónsson.
Upplyfting á
Austfjórðum
Hljómsveitin Upplyfting verður á ferð-
inni í sumar á sveitaböllum. Það verður
byrjað um helgina á Austfjörðum: Á
Jónsson, Sigurður Dagbjartsson, Kristján
Djúpavogi á föstudagskvöldið, Egilsstöð-
um á laugardagskvöld og Eskifirði á
sunnudagskvöld.
Þær breytingar hafa orðið í hljómsveit-
inni, að Sigurður Dagbjartsson hefur
aftur gengið til liðs við hljómsveitina eftir
tveggja ára hlé.
„Úr Þingholtum" eftir Mattheu.
Sýning Mattheu Jónsdóttur
í Kópavogi
Á morgun, laugard. 7. júní opnar
Matthea Jónsdóttir málverkasýningu í
vinnustofu sinni Digranesvegi 71, Kópa-
vogi. Á sýningunni eru rúmlega60myndir
- flest olíumálverk og nokkrar vatnslita-
myndir. Verkin eru öll til sölu.
Sýningin er opin kl. 14.00-22.00 um
helgar og 16.00-22.00 virka daga. Athygli
skal vakin á því að aðgangseyrir er enginn
og allir eru velkomnir.
Árbæjarsafn
Þann 1. júní var opnað á ný Árbæjarsafn
og er það opið almenningi kl. 13.30-18.00
alla daga nema mánudaga en þá er lokað.
Listahátíð í Reykjavík
Sýning í Ásgrímssatni
í Ásgrímssafni hefur veriö opnuð sýn-
ing á Reykjavíkurmyndum Ásgríms Jóns-
sonar í tilefni af Listahátíð í Reykjavík
og 200 ára afmæli borgarinnar síðar í
sumar.
Flestar myndirnar eru málaðar á árun-
um 1910-1920 en 1909 snýr Ásgrímur
heim frá námi erlendis og sest að í
Reykjavík. Á þessum árum bjó hann
víða um borgina, m.a í Vinaminni í
Griótaþorpi.
I heimili Ásgríms á Bergstaðastræti 74,
eru á neðri hæð hússins sýndar vatnslita-
myndir, en uppi á vinnustofunni hefur
verið komið fyrir olíumálverkum.
Ásgrímssafn verður í sumar opið alla
daga, nema laugardaga, milli kl. 13.30 og
16.(X). Aðgangur er ókeypis.
Minningarkort Áskirkju
Minningarkort Safnaðarfélags
Áskirkju hafa cftirtaldir aðilar til sölu:
Þuríður Ágústsdóttir,
Austurbrún 37, sími 681742.
Ragna Jónsdóttir,
Kambsvegi 17, sími 82775.
Þjónustuíbúðir aldraða,
Dalbraut 27.
Helena Halldórsdóttir,
Norðurbrún 1.
Guðrún Jónsdóttir,
Kleifarvegi 5, sími 681984.
Holtsapótek,
Langholtsvegi 84.
Verslunin Kirkjuhúsið,
Klapparstíg 27.
Þá gefst þeim, sem ekki eiga heiman-
gengt, kostur á að hringja í Áskirkju, sími
84035 milli kl. 17.00 og 19.00 á daginn og
mun kirkjuvörður annast sendingu minn-
ingarkorta fyrir þá sem þess óska.
Verðlaunabókin Emil og Skundi
Bókaforlagið Vaka/Helgafell hefurgef-
ið út barna- og unglingabókina Emil og
Skundi eftir Guðmund Ólafsson, en
Guðmundur hlaut íslensku barna-
bókaverðlaunin fyrir þessa sögu. Verð-
launasjóður íslenskra barnabóka var
stofnaður á síðastliðnu ári í tilefni af
sjötugsafmæli barnabókahöfundarins vin-
sæla, Ármanns Kr. Einarssonar. Fjöl-
skylda Armanns og bókaútgáfan Vaka/
Helgafell lögðu fram stofnfé sjóðsins.
Dómnefnd valdi söguna af Emil og
hundinum hans Skunda úr 45 handritum
sem bárust. (áliti dómnefndar segir m.a.:
„Sagan er vel samin og skemmtileg.
Persónusköpun góð, söguhetjan trúverð-
ug og bregst við vandamálum á rökréttan
hátt. Söguþráður er spennandi og um-
hverfi allt rótfast í íslenskum veruleika."
Verðlaunabókin EMIL OG SKUNDI
er 120 síður, og unnin í Prentstofu
Guðmundar Benediktssonar í Kópavogi.
Verð 496 kr.
Hluti útskriftarnemenda ásamt skolameistara.
Skolaslit
Fjölbrautaskólans
á Akranesi
Níunda skólaári Fjölbrautaskólans á
Akranesi lauk með skólaslitum laugard.
24. maí s.l. Þá voru brautskráðir 168
nemendur frá skólanum, þar af 54
nemendur frá framhaldsskólanum, 114
nemendur luku grunnskólaprófi, 20
nemendur luku stúdentsprófi, 26 burtfar-
arprófum af tæknisviði, 5 luku verslun-
arprófi og 3 nemendur luku 2ja ára
aðfararnámsbrautum.
Bestum árangri á stúdentsprófi náði
Bjarni Jónsson, stúdent af málabraut.
Alls hlutu 13 nemendur viðurkenningu
frá skólanum fyrir góðan námsárangur.
Listaklúbbur skólans fékk listaverðlaun
Nemendafélags Fjölbrautaskólans á
Akranesi fyrir sýningu sína á leikritinu
Kitlur eftir Steinunni Jóhannesdóttur.
Hafdís Björg Hjálmarsdóttir fékk viður-
kenningu úr minningarsjóði Elínar írisar
Jónasdóttur fyrir íslenska ritgerð.
í ræðu Þóris Ólafssonar skólameistara
kom fram að undanfarna 3 vetur hefur
nemendum í 9. bekk grunnskóla, sem
verið hefur undir stjórn Fjölbrautaskól-
ans, gefist kostur á því að hefja fram-
haldsnám í kjarnagreinum á vorönn, hafi
þeir náð tilsettum árangri á haustönninni.
Hefur áfangakerfi skólans nýst vel til þess
að veita nemendum í 9. bekk viðfangsefni
í hverri námsgrein sem mest í samræmi
við getu hvers og eins. Heur starfið
undanfarin 3 ár staðfest að nokkur hluti
grunnskólanemenda getur uppfyllt náms-
kröfur grunnskólans fyrr en við lok
bekkjar og þar með hafið framhaldsná
fyrr en lög leyfa gefist þess kostur.
Bæjarstjórn Akraness hefur nú sar
þykkt að ganga til samkomulags v
önnur sveitarfélög á Vesturlandi u
rekstur sameiginlegs framhaldsskól
Fjölbrautaskóla Vesturlands. Með stof
un slíks skóla yrði brotið blað í söj
framhaldsmenntunar á Vesturlandi.
Mikil aðsókn nemenda frá svæðu
utan Akraness var að Fjölbrautaskólai
um á Akranesi s.l. vetur og sóttu t.a.n
150 nemendur um pláss á heimavi
skólans. Alls stunduðu 540 nemendi
reglulegt framhaldsnám við skólann s.
skólaár, 89 nemendur sóttu öldungadeil
og 114 stunduðu nám í 9. bekk. Kennari
skólans á haustönn voru alls 48 en 49
vorönn.