Tíminn - 06.06.1986, Síða 15
Föstudagur 6. júní 1986
lilllllllllll HELGIN FRAMUNDAN
Tíminn 15
Listasafn ASÍ:
Tryggvi Magnússon
yfirlitssýning
Nú stendur yfir í Listasafni ASl
yfirlitssýning á verkum Tryggva
Magnússonar. Á sýningunni eru
frummyndir af á annað hundrað
teikningum sem birtust í Speglinum,
frummyndir af fornmannaspilum,
olíumálverk, teikningar og skúlptúr-
verk.
Sýningin stendur til 22. júnf og er
opin virka daga kl. 16.00-20.00 og
um helgar kl. 14.00-22.00.
Tryggvi Magnússon fæddist að Bæ á
Selströnd 6. júní 1900, en lést í
Reykjavík 7. sept. 1960.
Jón Sigurbjörnsson og Gísli Halldórsson.
Leikfélag Reykjavíkur:
Síðustu sýningar
á Land míns föður
Þrjár síðustu sýningar á stríðsára-
söngleik Kjartans Ragnarssonar
Land míns föður verða nú um helg-
ina, föstud. og laugardagskvöld kl.
20.30, - en athygli er vakin á síðdeg-
issýningu á sunnudag kl. 16.00. Sýn-
ingin á sunnudag er sú 140., en
áhorfendafjöldi á sýningunum er þá
orðinn rúm 30.000 manns.
Með helstu hlutverk fara: Helgi
Björnsson, Sigrún Edda Björnsdótt-
ir, Jón Sigurbjörnsson, Margrét
Helga Jóhannsdóttir, Steinunn Ól-
ma Þorsteinsdóttir, Aðalsteinn
Bergdal, Ragnheiður Arnardóttir
o.fl. en alls taka á milli 30-40 manns
þátt í sýningunni, leikarar, söngvar-
ar, tónlistarmenn og dansarar. Leik-
stjóri er Kjartan Ragnarsson, tónlist
eftir Atla Heimi Sveinsson, Jóhann
G. Jóhannsson annast tónlistar-
stjórn, Ólafía Bjarnleifsdóttir gerði
dansa, Steinþór Sigurðsson leik-
mynd, Gerla búninga, Daníel Will-
iamsen sá um lýsingu.
Árbæjar-
safn
Árbæjarsafn hefur verið opnað
aftur eftir vetrarlokun. Safnið er
opið um helgina föstud., laugar-
dag og sunnudag kl. 13.30-18.00.
Lokað verður á mánudag.
Tónleikar
í Hólma-
víkur-
kirkju
Næstkomandi laugardag 7. júní,
verða haldnir tónleikar í Hólmavík-
urkirkju til fjáröflunar vegna píanó-
kaupa í kirkjuna. Á tónleikunum
koma fram þrír nemendur úr Tón-
listarskóla Garðabæjar, þau Gróa
M. Þórðardóttir sópran, Sigmundur
Jónsson tenór og Gunnar Jónsson
baritón. Undirleikari verður David
Knowles.
Á efnisskrá tónleikanna verða
verk eftir íslensk og erlend tónskáld.
Tónleikarnir í Hólmavíkurkirkju
hefjast kl. 16 á laugardag.
Flóamarkaður
kaffisala
Uppeldis- og meðferðarheimilið
að Sólheimum 7, Reykjavík, er
heimili fyrir unglinga á aldrinum
12-16 ára, sem þurfa á aðstoð að
halda. Heimilið er arftaki Með-
ferðarheimilisins að Kópavogs-
braut 17 og tilheyrir það Unglinga-
heimili ríkisins.
Heimilið tók til starfa 1. sept-
ember 1985 og getur vistað allt að
7 unglinga. Það býður aðstandend-
um unglinganna upp á fjölskyldu-
meðferð.
Heimilið leggur mikla áherslu á
tómstundaiðkanir ýmiss konar og
skipa ferðalög þar stóran sess.
Nú hefur verið ákveðið að leggja
land undir fót og stefna til Hollands
í sumar. Fjáröflun er í fullum
gangi. Einn liður í henni er að
halda flóamarkað og kaffisölu
næstkomandi laugardag þ. 7. júní.
Flóamarkaðurinn verður haldinn í
safnaðarheimili Langholtskirkju á
milli kl. 14 og 19. Einnig tombólu-
borð og uppboð á góðum munum.
Frá Reykjavík 1909 eftir Ásgrím
Sýning í Asgrímssafni
á Reykjavíkurmyndum
I Ásgrímssafni hefur verið opnuð
sýning á Reykjavíkurmyndum Ás-
gríms Jónssonar í tilefni af Listahá-
tíð í Reykjavík og 200 ára afmæli
borgarinnar síðar í sumar.
Flestar myndirnar eru málaðar á
árunum 1910-1920, en 1909 snýr
Ásgrímur heim frá námi erlendis og
sest að í Reykjavík. Á þessum árum
bjó hann víða um borgina, m.a. í
Vinaminni í Grjótaþorpi.
í heimili Ásgríms á Bergstaðar-
stræti 74 eru á neðri hæð hússins
sýndar vatnslitamyndir, en uppi í
vinnustofunni hefur verið komið fyr-
ir olíumálverkum.
Ásgrímssafn verður í sumar opið
alla daga, nema laugardaga, milli kl.
13.30 og 16.00. Aðgangur er ókeyp-
is.
■P'
í ftíSSSS
:Áí\\ :
sllfl
Hólmavíkurkirkja.