Tíminn - 28.06.1986, Blaðsíða 4
4 Tíminn
Laugardagur 28. júní 1986
SPEGILL
Sophia Loren á ferðalagi
- fórnarlamb ljósmyndara
Sophia Loren er búin að vera augnayndi blaða-
lesenda áratugum saman, enda alltaf vel til höfð
og hress þegar hún verður á vegi ljósmyndara,
virðist vera.
Um daginn brá þó aðeins út af venjunni. Sophia
var stödd á Heathrowflugvelli í London og varð að
hagnýta sér ferðaþjónustuna þar innan vallar,
sem fer fram með rafmangsknúnum farþegasæt-
um. Sophia átti sér einskis ills von, þegar farar-
tækið beygði allt í einu snögglega og færðist skelf-
ingarsvipur yfir andlit hennar. Auðvitað var ljós-
myndari nærstaddur.
leikkonunni þegar hún hafði jafnað sig og komið
sér fyrir í hefðbundar stellingar kvikmynda-
stjörnu á ferðalagi!
Svona er hin hefðbundna stellin^ kvik-
myndastjörnunnar fyrir framan ljós-
myndara.
ÚTLÖND llllllllllll
FRÉTTAYFIRLIT
RÓM — Bettino Craxi for-
sætisráöherra Italíu yfirgaf
ráöstefnu Evrópubandalags-
ríkjanna í skyndi og hélttil síns
heima. Búist var viö afsögn
Craxi í gær eftir aö stjórnin
beið ósigur á þingi í fyrrakvöld.
Valdaferill Craxi hefur veriö
lengri en nokkurs annars for-
sætisráðherra á Ítalíu eftir
stríö.
HAAG — Ráöstefnu Evrópu-
bandalagsríkjanna lauk í gær
án þess að ákveðið samkomu-
lag tækist urrv efnahaaslegar
refsiaögeröir gegn Suour-Afr-
íkustjórn. Hinsvegar var fallist
á tillögur þar sem viöskipta-
þvingunum var hótaö ef ástand
lagast. ekki innan tveggja
mánaöa.
MANAGUA — Hin vinstri-
sinnaöa ríkisstjórn í Nicaragua
lét loka ritstjórnarskrifstofum
helsta stjórnarandstöðublaös-
ins La Prensa. Stjórnvöld
landsins hafa ákveöið aö fylgja
fastar eftir neyöarástands-
lögunum sem í gildi eru.
TEL AVIV — Samkvæmt
heimildum innan stjórnmála-
heimsins hefur hneyksliö í
sambandi viö uppsögn yfir-
manns ísraelsku leyniþjónust-
unnar skaöaö ímynd Símonar
Peres forsætisráöherra og
Yitzhak Shamir utanríkisráö-
herra. Ekki er þó haldið aö
samsteyþustjórn sú sem fer
meö völd í landinu riðlist vegna
þessa máls.
BEIRUT — Hernaöarsinnar
lokuðu mörgum skrifstofa
sinna í Vestur-Beirút en þar
tóku gildi nýjar reglur sem
miöa að því að binda endi á
stjórnleysi í þessum borgar-
hluta múhameöstrúarmanna.
Það voru sýrlensk stjórnvöld
sem aö nýju reglunum stóðu.
WASHINGTON - Banda-
ríska jpingiö samþykkti ný fjár-
lög fyrir fjármálaáriö 1987. Þar
eru fjárlög til hernaöarupp-
byggingar lækkuð svo og fjár-
magn til margra félagslegra
þátta.
JÓHANNESARBORG
— Stjómvöld í Suður-Afríku
sögöu sex manns hafa látiö
lífiö í óeiröum sem urðu í
hverfum svartra. Einn mann-
anna sem lést var svartur lög-
reglumaður.
BELGRAD — BrankoMikul-
ic forsætisráðherra Júgóslavíu
lofaði í ræðu sem hann hélt á
þingi kommúnistaflokks lands-
ins aö koma á verulegum
endurbótum í hinu ört versn-
andi efnahagslífi Júgóslavíu.
BRIONI, Júgóslavía -
Olíumálaráöherrar OPEC ríkj-
anna héldu áfram ráðstefnu
sinni í gær og ræddu fram-
leiðslukvóta sinn í smáatrið-
um. Olíumálaráðherra írans
sagöi stjórnvöld síns lands enn
vilja reyna aö ná olíuverði upp
í 28 dali á tunnu innan tveggja
mánaða.