Tíminn - 28.06.1986, Side 6

Tíminn - 28.06.1986, Side 6
6 Tíminn í Timinn MÁLSVARIFRJALSLYNDIS, SAMVINNU OG FÉLAGSHYGGJU Útgefandi: Framsóknarflokkurinn og Framsóknarfélögin í Reykjavík Framkvæmdastjóri Ritstjóri: Aðstoöarritstjóri: Fréttastjóri: Aðstoðarf réttastjóri: Auglýsingastjóri: Kristinn Finnbogason NíelsÁrniLund OddurÓlafsson Guðmundur Flermannsson EggertSkúlason SteingrímurGíslason Skrifstofur: Síðumúli 15, Reykjavik. Sími: 686300. Auglýsingasími: 18300. Kvöldsímar: Áskrift og dreifing 686300, ritstjórn 686392 og 686495, tæknideild 686538. Setning og umbrot: Tæknideild Tímans. Prentun: Blaðaprent h.f. Kvöldsímar: 686387 og 686306 Verð í lausasölu 45.- kr. og 50.- kr. um helgar. Áskrift 450.- Endurskoðun bankakerfisins. Stjórnarflokkarnir, Framsóknarflokkur og Sjálfstæö-' isflokkur eru sammála um að gera þurfi skipulagsbreyt- ingar á bankakerfinu sem hafi í för með sér fækkun og sameiningu viðskiptabankanna. Innan Framsóknarflokksins er mest fylgi við að sameina Búnaðarbankann og Útvegsbankann eða með öðrum hætti að fækka ríkisbönkunum í tvo. Sjálfstæðismenn leggja áherslu á það sem þeir kalla „öflugan einkabanka“ með þátttöku ríkisins. í ræðu sem viðskiptaráðherra, Matthías Bjarnason flutti á ársfundi Seðlabankans 6. maí sl. kom þessi skoðun Sjálfstæðisflokksins skýrt fram, eftirfarandi: „Það er mín skoðun að þessu markmiði skuli náð með fækkun ríkisviðskiptabankanna og hlutdeild ríkisins í stofnun öflugs hlutafélagsbanka þar sem stefnt verði að því að einkaaðilar eigi meirihluta fjár.“ Þessi stefna Sjálfstæðismanna að láta ríkið færa einkaaðilum fjármagn sem þeir síðan mega ráðskast með að eigin vild er ekki ný af nálinni. A stórhátíðum sínum fordæma þeir afskipti ríkisins og telja þeim flest til foráttu, ekki síst að þau hefti frelsi einstaklingsins til athafna. Þegar svo grannt er skoðað kemur í ljós að vilji þeirra er í raun sá að ríkið fjármagni framkvæmdir og gangi í ábyrgðir en eigi annars hvergi að koma nærri. Minna má á Þróunarfélagið í þessu sambandi. Ætlunin var að fjármagn til þess félags kæmi frá einkageiranum en þegar upp var staðið varð reyndin sú að ríkið eða ríkisstofnanir fjármögnuðu félagið að langstærstum hluta. Samt sem áður þótti það forkastan- legt að ríkið hefði nokkur afskipti af starfsemi þess. Sé aftur vikið að stefnu Sjálfstæðismanna í bankamál- um vekur það athygli nú, þegar þeir vilja að ríkið leggi fram verulegt fjármagn í einkabanka, að ekki eru nema fáeinir mánuðir síðan að Alþingi samþykki að selja hlut sinn í Iðnaðarbankanum. Pað var gert að forgöngu þáverandi iðnaðarráðherra Sverris Hermannssonar og þáverandi bankamálaráðherra Matthíasar Á Matthísen. Þá þótti ekki ástæða til að ríkið hefði nein afskipti af þeim banka. Nú er hins vegar óskað eftir fjármagni til stofnunar annars banka úr ríkissjóði. Fessu eru Framsóknarmenn algerlega andvígir. Þeir eru tilbúnir að skoða hugmyndir um einkabanka og sem hugsanlega gæti tekið að sér einhver af þeim verkefnum sem ríkisbankarnir annast nú, en þeir leggjast alfarið á móti því að ríkið JjfðÉað flækja sig í stofnun einkabanka með verulegum i||ipaágrisútlátum úr ríkissjóði. Þá hafa þeij^öpnig bent á þann möguleika að Iðnaðarbankinnílltyerslunarbankinn sameinist í einn öflugan hlutafél^píanka sem ríkið hefði ekki afskipti af. Auðvelt ætti^Jfvera fyrir sjálfstæðismejin að vinna að framgangi þesS' þar sem þeir hafa stjórnúb þessara banka að verulegu leyti á sínu valdi. Samruni þéSsara banka gæti leitt af sér öflugan einkabanka sem þéir mæna svo mjög á. Þessi mál hljótajað verða tekin til alvarlegrar umræðu milli stjórnarfloifekna innan tíðar. Laugardagur 28. júní 1986 lllllllllllllllllllllllll GARRI llllllllllllllllllllllllllllll Næsta stórverkefni íflugmáium í grein, sein Jón Kristjánsson alþin. birtir í Mbl. 25. þ.m. og IJalIar um flugmál, bcndir hann rcttilega á, að flugstöðvarbygging- unni á Keflavíkurflugvclli sé aö Ijúka og því sé oröið nauðsynlegt að hyggja að næstu stórátaki á sviði flugniáía, auk þess sem unnið er að bættum skilyrðum á minni flugvöll- uin víða um land. Jón Kristjánsson telur, að þar komi endurbygging flugvallar á Egilsstöðum fyrst til greina. Aust- urland sé meira háð flugsamgöng- um en aðrir landsfjórðungar og þar að auki sé Austurland næst flug- völlum nágrannalandanna. Egils- staðaflugvöllur er eini flugvöllur- inn utan Reykjavíkurflugvallar og Keflavíkurflugvallar þar sem reglu- legt millilandaflug sé stundað, þ.e. til Færeyja. Frá Egilsstaðaflugvelli haldi Flugfélag Austurlands uppi reglulegu áætlunarflugi til fimm minni flugvalla á Austurlandi. Egilsstaðaflugvöllur Jón Kristjánsson scgir ennfrem- ur: „Á árinu 1985 fóru um Egils- studaflugvöll 50.548 furþcgur og hefur verið jöfn ogsígundi uukning umferðar þur síðustu árin. Flug- völlurinn er miðpunktur flugsum- gungnu í fjórðungnum og lykilutr- iði er uð hunn sé öruggur og vel búinn. Völlurinn er bækistöð fyrir þxr sjókruvólur sem ávullt eru tiltiekurhjá Flugfélugi Austurlunds og flugu 319 flugtíniu í sjúkruflugi árið 1985. Ástnnd þessu flugvullur er ulger- Jcgu óviðunundi. Hunn er mulur- völlur á veiku undiriugi og verður ófær vegnu uurbleytu við viss skil- yrði, uuk þess sem legu huns býður ekki uppá bcstu uðflug. Vötturinn vur yfirkeyrður fyrir tveimur árum til þess uð vinnu bug á uurbleyt- unni, en brátt sækir í sumu furið uftur. Ég hef orðið vitni uð því uð ttugmenn Fokker-véla Flugleiðu hufn átt i erttðleikum vcgnu uur- bleytu, og þurft uð fá sér vutns- slöngu og skolu viðkvæmun hjólu- húnuð vélunnu fyrirflugtak á Egils- staðuflugvelli. Slíkt er ekki við hætt miðuð við þær kröfur sem nú eru gerður. Sumgöngumálaráðherru hefur margsinnis lýst því yfir uð endur- bygging Fgilsstuðuttugvullur verði næstu stórverkefni í ttugmálum hér. Þessum skilningi ber uð fugnu því EgilsstnðafíugvöJlur er mikil- vægur i innunlandssamgöngunum uuk þess sem Imnn hefur mögu- leiku sem millilanduvöllur og varu- völlur fyrir vélur uf miðlungsstærð sem notuður eru í millilunduttugi. Miðuð við þær áætlunir nin upp- byggingu vullurins sem til eru mundi /laim endurbyggður og mul- bikuður geta þjónað þotum uf gcrðinni Boeing 727 sem vuravöll- ur. “ Herflugvellir og varaflugvellir Jón Kristjánsson ræðir : síöan þær hugmyndir, sem nú eru uppi um herflugvelli og varaflugvelli. Hann segir: „Hinguð til hefur þuð verið svo að Bandaríkjamenn og Bretar hafa kostað stórframkvæmdir í flugmál- um hérlendisað mestu. Þetta hefur huft þau áhrif að vurnarmál bland- ustávulltí umræðuna um stórfram- kvæmdir við ttugvelli. Menn verða hér að áttu sig á þvigrundvulluratr- iði að NATO mun ekki undir neinum kringumstæðum leggja féí ttugvött nemu hunn verði notaður uð stuðaldri sem bækistöð, verði þar með herflugvöllur. Þuð er grundvallanitriði að menn viti að hverju er gengið í þessum efnum. Ýmsir aðilar reyna að þrýsta á framkvæmdir í flugvatturmálum meðþvíuð skírskota til þurfarinnur fyrir vuruvöll fyrir millilandattug. Vissulega er þörf fyrir varavött, vegna reglnu uin cldsncyti, en likumur fyrir þvi að völlurinn sé notaður uð murki eru ekki miklar, því hægt er uð lendu i Kettavík inær hvuðu veðri sem er. Endu hefur sunnust sugnu ekki verið þungur þrýstingur um vara- vött frá ttugrekstruruðilum. Með uppbyggingu Egilsstuða- ttugvullar eru slegnar tvær flugur í einu höggi. Einn mikilvægasti vött- ur innanlandsflugsins er byggður upp, og um leið hentur liunn sem varavöttur fyrir hluta mittilanda- ttotans, efþær vélar þurfa að lenda annars staðar en i Keflavík einu sinni til tvisvará ári. Þarna erstigið fyrsta skrefið í uppbyggingu vara- vullannu. Auðvitað verður síðar lialdið áfram þeirri uppbyggingu. Þessa framkvæmd ættum við ís- lcndingur uð ráðu við einir. “ Vissulega eru þessar hugmyndir Jóns Kristjánssonar hinar athygl- isverðustu. Garri Nú er lag, Sverrir olýsíttp armerkiasetmng»- 'gSn»>'''«'iireosi"S'en’bKllis80 íur »t 'HðsfÉ. Svo 2. K ,UNKT . i sér s'" , t há C'i"”- , etl"' , „nnuin Sverrir Hermannsson mennta- málaráðherra hefur vcrið óspar á stórorðar yfirlýsingar um vilja sinn til að standa vörð unt íslenska tungu. Síst af öllu skal út á það sett hér, enda á hann í því efni að eiga vísan stuðning allra góðra manna. Nú á seinni árum fer það heldur . ekki á milli mála að íslenskan á í < fjöldamörgum atriðum í viðnáms- baráttu gegn áhrifum frá ensku. Hér verður menntamálaráðherra - og öðrum - bent á lítið atriði þar sem hún er komin á undanhald í stríðinu gegn ensku áhrifunum og aðgerð af hendi ráðherra gæti orðið til bóta. Þetta er varðandi greinar- merkjasetningu í brotatölum. I ensku er skrifað t.d. „1.5“ og lesið úr því „one point five“. Með öðrum orðum notar enskan punkt bæði í tali og riti til að skilja á milli hcillar tölu og brots í tilvikum sem þessum. Hins vegar er í hærri tölum notuð komma í ensku til að skilja á milli þúsunda, t.d. „1,234.5“ sem lesið er úr „one thousand two hundred thirty-four point five“. Þetta er forn landssiður á Bretlandseyjum og hefur flust þaðan til Bandaríkjanna og ann- arra landa þangað sem enskan fluttist á sínum tíma með breskum nýlenduherrum. Yfir á meginlandinu, m.a. í Frakklandi, var hins vegar siður að nota kommu á undan brotatölum, og svo er gert á íslandi. Hér á að skrifa „1,5“ í samræmi við að við lesum „einn komma fimm“ en ekki „einn punkturfimm" líkt ogensku- mælandi fólk. Á sama hátt er í íslensku notaður punktur til að- greiningar í stórum tölum þar sem enskan notar kommu, t.d. „1.234,5“ sem við lesum úr „eitt þúsund tvö hundruð þrjátíu og fjórir komma fimm“. ^-Það er vakin athygli á þessu hér vegna þess að það er ótrúlega algengt að sjá enska háttinn hafðan á í þessu efni nú orðið í textum sem annars eiga að heita rammíslensk- ir. Þótt ýmis stórfyrirtæki og stofn- anir fari rétt með þetta, skýtur það hvað eftir annað upp kollinum, jafnvel frá hendi hámenntaðs fólks. Það er ekki annað að sjá en að fjöldi manns geri sér enga grein fyrir því hvað sé rétt íslenska í þessu efni. Þetta á sér vafalaust skýringu í því að þegar þáverandi mennta- málaráðherra gaf út Auglýsingu um greinarmerkjasetningu, hinn 3. maí 1974, sem er.n gildir, hefur láðst að setja ákvæði um þetta inn í hana. Þar er kyrfilega tekið fram að punktur eigi að vera á eftir raðtölustaf, nema hann sé í dag- setningu með skástriki eða í sviga, en um greinarmerki í brotatölum er þar ekkert að finna. Af þessum ástæðum er líklegt að í skólakerfinu hafi það fallið meira eða minna niður að kenna fólki um þetta og af því leiði vanþekkingin. Þetta er kannski lítið atriði, en íslensk tunga verður ekki varin gegn erlendri mengun nema varð- staðan sé hvarvetna öflug. Hér er þörf á að ráðherra láti bæta ákvæði um þetta inn í gildandi ráðuneytis- auglýsingu. Meðan það er ekki gert eru engar fastar reglur í gildi um þetta og gat á víglínum okkar gegn ensku áhrifunum. Hér er því aðgerða þörf. Vilji menn í alvöru verja íslenska tungu gegn erlendum áhrifum verður að nota hvert tækifæri. Og hér er lag til þess, Sverrir. -esig

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.