Tíminn - 05.07.1986, Síða 9
P&Ó/SÍA
Laugardagur 5. júlí 1986
Tíminn 9
Kcppendurnir á síðustu æfingunni i gærmorgun. Þau eru, í neðri röð, Sverrir
Þorvaldsson og Ari Kristinn Ólafsson. Fyrir ofan þá sitja, Fjóla Rún
Björnsdóttir og Geir Agnarsson. Með þeim er fararstjórinn Benedikt
Jóhannesson. Tímamynd G.E
27. Ólympíuleikar í stæröfræöi:
w
Island sendir fjóra
- fara utan í dag
Þau sitja fjögur og læra stærð-
fræði, á meðan aðrir eru lausir úr
skólanum. Fyrsta spurningin sem
vaknar, er hvort þetta séu tossar sem
hafa þurft að sitja eftir. Það er öðru
nær. Hér er á ferðinni keppnislið
íslands á Olympíuleikunum í stærð-
fræði sem haldnir verða í Varsjá í
Póllandi í næstu viku.
Síðasta æfingin fór fram í gær.
Þjálfari við þá æfingu var Benedikt
Jóhannesson og hann verður jafn-
framt fararstjóri fjórmenninganna
sem halda utan í dag. Keppnisliðið
skipa Ari K. Ólafsson, Fjóla R.
Björnsdóttir, Geir Agnarsson og
Sverrir Þorvaldsson.
Leikarnir sem haldnir verða í
Varsjá eru þeir 27. í röðinni. Ung-
lingar (undir 20 ára) frá fjörutíu
þjóðum úr öllum heimsálfum munu
leiða saman hesta sína og glíma við
stærðfræðiþrautir af ýmsu tagi. Þetta
er annað skiptið sem Island sendir
þátttakendur á leikana.
Reynir Axelsson er fulltrúi íslands
í dómnefndinni og hefur hann þegar
haldið til Póllands. - ES
LEIÐABÓK
Út er komin leiðabók fyrir áætlan-
ir sérleyfisbifreiða. Miðast leiðabók-
in við tímabilið 15. maí 1986 - 14.
maí 1987. Umferðarmáladeild gefur
bókina út.
í bókinni er getið viðkomustaða
og brottfarartíma og í hverri opnu er
kort af hverri leið sem farin er auk
ljósmynda frá einstökum stöðum.
Bókinni fylgir síðan stórt vegakort
með heildaryfirliti yfir sérleiðirnar
auk gjaldskrár um hópferðaakstur
og biðgjöld.
Illlllllllllllllllllll VEIÐIHORNIÐ' |||||||||||||Umsjón: Eggert Skúlason
Gulli Berg-
mannmeð27
Veiði er óðum að glæðast í Laxá
á Ásum. Veiðimenn sem voru við
veiðar frá hádegi í fyrradag og
fram að hádegi í gær fengu samtals
47 laxa úr ánni. Gulli Bergmann
veiðikóngur var með aðra stöngina
og veiddust 27 laxar á þá stöng.
Kristján Sigfússon bóndi á Húns-
stöðum við Láxá sagði í samtali
við Veiðihornið að lax væri vað-
andi um alla á. „Þetta gengur alveg
rosalega vel þessa dagana,“ sagði
Kristján. Alls hafa nú veiðst 317
laxar og verður það að teljast
frábær veiði, þegar haft er í huga
að einungis tvær stengur eru leyfð-
ar í ánni. Stærsti fiskurinn sem
dreginn hefur verið úr ánni í
sumar, vó átján pund og var það
Baldur Bergsteinsson sem dró
hann fyrir nokkru.
Stóra Laxá glæðist
Heldur er nú að rofa ti| í afla-
brögðum við Stóru Laxá. Eftir
fádæma dræma veiði er hann nú
farinn að gefa sig og eru fiskar sem
veiðst hafa farnir að nálgast fimmta
tuginn. Viðar Egilsson og félagi
hans tóku sjö væna laxa í Kálfhaga-
hyl í fyrradag, og var sá stærsti
fimmtán pund. I gær var það
Bergsnösin sem gaf vel, og strax í
byijun veiðidagsins veiddust þrír
vænir laxar þar. Þar voru að verki
Sigurður Finnsson og félagar.
SAXBLÁSARAR
EBERL Original saxblásarar
Með öflugu stálhnífahjóli og aðfærslubandi
fyrir 6 -14-40 og 80 mm söxun.
Þessir nýju saxblásarar eru með mjög ná-
kvæma söxun.
BÆNDUR!
Vinsamlega bókið pantanir
tímanlega
* LÁTTU 1 íniann EKKl FLJÚGA FRÁ ÞÉR
ÁSKRIFTARSÍMI 686300 ^
r
GÖTT KAST GEFUR FISK
5115TAR