Tíminn - 08.07.1986, Side 2
2 Tíminn
Þriðjudagur 8. júlí 1986
Erlendir hestaáhugamenn funda á íslandi:
Auknar vinsældir
íslenska hestsins
„Markmið félagsins er að vinna að
því að varðveita íslenska hestinn í
sinni upprunalegu mynd,“ sagði Sig-
urður Ragnarsson, stjórnarmeðlim-
ur í FEIF, sem er félag erlendra
áhugamanna og eigenda íslenska
hestsins. Aðilar að samtökunum eru
tólf Evrópulönd auk Kanada. Áhugi
fyrir íslenska hestinum, erlendis,
virðist fara vaxandi og nýtur hann
sívaxandi vinsælda í Evrópu og
Bandaríkjunum. Því til marks má
benda á þann fjölda erlendra hesta-
áhugamanna sem sóttu landsmótið á
Hellu nú um helgina.
Félagið hélt í gær fund og sátu
hann fulltrúar frá aðildarlöndunum.
Aðalmál fundarins var umsókn
Bandaríkjamanna um aðild að sam-
tökunum. Erfiðlega gekk að sam-
þykkja þessa tillögu því lög í Banda-
ríkjunum stangast á við lög um
kynbætur í Evrópu. Félagið leggur
mikla áherslu á að aðildarlönd upp-
fylli þau skilyrði sem félagið setur
Frá fundinum í Fáksheimilinu í gær.
þeim og lítur illum augum á allar
tilraunir til kynblöndunar sem fara
fram erlendis. Félagið vinnur einnig
Tímamynd: - Gísli Egill.
mikið starf í sölumálum íslenskra
hesta og er milligönguaðili í þeim
viðskiptum.
Tómas Árnason bíður eftir að komast til að taka í hönd sendiherra Bandaríkjanna, Nicolas Ruwe ogMaureen Reagan
Dóttir Reagans heimsótti Island
- áhuginn kviknaði í Nairobi
Maureen Reagan, sem er dóttir
Ronalds Reagan, Bandaríkjaforseta
og leikkonunnar Jane Wyman, sem
kunn er fyrir leik sinn í Falcon
Crest-þáttaröðinni, er stödd hér á
landi í einkaerindum. Mun áhugi
hennar á íslandsferð hafa kviknað í
Nairobi í Kenya, en þar var sem
kunnugt er haldin alþjóðleg kvenna-
ráðstefna. Sendinefnd Bandaríkj-
anna, sem Maureen var í forsvari
fyrir, lagði fram tillögu þar sem
reynt var að koma í veg fyrir að
einstakar ályktanir yrðu bornar und-
ir atkvæði. ísland var eina vestræna
landið sem stóð með Bandaríkjun-
um í þessu máli og þótti Maureen
mikið til koma.
í gær bauð Matthías Mathiesen
utanríkisráðherra Maureen til há-
degisverðar, Vigdís Finnbogadóttir,
forseti bauð henni í eftirmiðdags-
kaffi og Davíð Oddsson, borgar-
stjóri bauð henni til kvöldverðar.
Heldur hún því væntanlega vel
mett og ánægð heim á leið í dag, eftir
að hafa kynnst landi og þjóð ögn
betur.
phh
FLUGLEIÐIR AÐ HEFJA
BYGGINGU FLUGELDHÚSS
Flugleiðir eru um þessar mundir
að hefja byggingu sérstaks flugeld-
húss, við flugstöðvarbygginguna
nýju. Flugeldhús þetta á að fram-
leiða mat ofan í flugfarþega. Upp-
haflega var ráð fyrir gert að eldhúsið
yrði til húsa í flugstöðvarbygging-
unni en á síðasta ári ákváðu Flug-
leiðir að hefja sjálfir framkvæmdir.
Að sögn Leifs Magnússonar hjá
Flugleiðum var álitið að flugstöðin
væri allt of dýrt húsnæði undir þessa
framleiðslu og hentaði ekki nægilega
vel. Framleiðslan á mat fyrir flugvél-
arnar væri verksmiðjuframleiðsla og
væri flugeldhúsið tengt við birgðar-
geymslu, verkstæði og vörugeymslu.
Upphaflega var gert ráð fyrir að
flugeldhúsið deildi um ÍOOOm2
húsnæði til u.þ.b. helminga með
aðaleldhúsi flugstöðvarinnar. Að
sögn Sverris Hauks Gunnlaugsson-
ar, formanns byggingarnefndar, er
nú ráðgert að nýta þetta húsnæði að
mestu undir biðsal. Mun aðaleldhús-
ið þjóna þremur veitingastöðum í
húsinu, veitingasal á jarðhæð í
glersalnum, Veitingaaðstöðu í bið-
sal og að lokum skyndibitastað sem
komið verður upp í sértökum útsýn-
issal sem snýr að flugbraut. Þar á að
vera hægt að fylgjast með flugvélum
koma og fara sem og annarri starf-
semi á vellinum.
Að sögn Sverris ganga byggingar-
framkvæmdir eðlilega og verður
flugstöðin opnuð í apríl á næsta ári.
phh
Landsmót hestamanna á
Gaddas taöaf lötum:
Úrslit í
keppnisgreinum
Unglingakeppni 13-15 ára:
Hörður Á. Haraldsson frá Fáki
sigraði á Háfi og hlaut einkunnina
8,54.
Unglingakeppni 12 ára og yngri:
Edda Rún Ragnarsdóttir 10 ára
frá Fáki sigraði á Silfra og hlaut
einkunnina 8,44. Edda hlaut einnig
ásetuskeifu félags tamningamanna.
Kynbótagripir: Stóðhestar:
Heiðursverðlaunastóðhestur
með afkvæmum varð Ófeigur 818
frá Hvanneyri. Hann hlaut meðal-
einkunnina 8,16 fyrir afkvæmin.
Stóðhestur með afkvæmi án heið-
ursverðlauna varð efstur Dreyri
834 frá Álfsnesi með einkunnina
8,04 að meðaltali. Sex vetra stóð-
hestar og eldri: Viðar 979 frá
Viðvík í Skagafirði með einkunn-
ina 8,31.
Fimm vetra: Kjarval 1025 frá Sauð-
árkróki með 8,32. Fjögurra vetra:
Otur 1050 frá Sauðárkróki með
8,04.
Kynbótagripir: Hryssur:
Heiðursverðlaunahryssa varð
Hrafnhetta 3791 frá Sauðárkróki
og hlaut hún meðaleinkunnina 8,16
íyrir afkvæmi. Hryssa með af-
kvæmi án heiðursverðlauna: Sif
4035 frá Laugarvatni með 8,07.
Sex vetra og eldri: Krafla 5649 frá
Sauðárkróki með 8,26. Fimm
vetra: Blökk 6183 frá Efri-Brú með
8,22. Fjögurra vetra: Ör 6477 með
7,93.
Nýtt hótel í Bárðardal:
Hótel Kiðagil við
Sprengisandsveg
Kappreiðar:
150 metra skeið: Sigurvegari var
Linsa á 14,8 sek. Eigandi og knapi
var Sigurbjörn Bárðarson.
250 metra skeið: Efstir og jafnir
voru Litli-Jarpur og Spói á 22,0
sek. Eigandi Spóa er Embla
Guðmundsd. en knapi var Reynir
Aðalsteinsson. Eigandi Litla-Jarps
er Elías Guðmundsson en knapi
var Ragnar Hinriksson.
250 metra stökk: Þota á 18,3
sek. Eigandi er Guðni Kristinsson
en knapi var Róbert Jónsson.
350 metra stökk: Valsi á 25,0
sek. Eigandi er Lóa Melax en
knapi var Linda Ósk Jónsdóttir.
800 metra stökk: Lýsingur á 61,0
sek. Eigandi erFjóla Runólfsdóttir
en knapi var Jón Ó. Jóhannesson.
300 metra brokk: Neisti á 30,2
sek. Eigandi og knapi var Guð-
mundur Jónsson.
Töltkeppni:
Olil Ámble sigraði á Snjalli frá
Geysi. Snjall halut 100,8 stig. Eig -
andi er Guðni Kristinsson.
A-flokkur gæðinga:
Júní frá Sleipni með einkunnina
8,60. Eigandi er Björn Eiríksson
en Einar Öder Magnússon sýndi.
B-flokkur gæðinga:
Kristall frá Létti með einkunnina
8,69. Eigandi sýndi og var það
Gylfi Gunnarsson.
Við akveginn í Bárðardal, svo-
nefndan Sprengisandsveg, er skilti
með áletruninni: Velkomin í Kiða-
gil. Rifjuðust upp fyrir blaðamanni
ljóðlínur Gríms Thomsen ... vænst-
an klárinn vildi ég gefa til, / að vera
kominn ofan í Kiðagil.
Ekkert gil sést í nágrenninu, hins
vegar reisuleg bygging sem reyndist
vera Barnaskóli Bárðdæla. Þar voru
2 ungar konur sem voru í óða önn
að þrífa og mála og höfðu greinilega
í nógu að snúast. Þær stöllur kváðust
heita Sigurlaug Svavarsdóttir og
Sigrún Hringsdóttir og eru þær að
hefja rekstur sumarhótels í samráði
við hreppinn. „Okkur þótti við hæfi
að nefna hótelið Kiðagil, þar sem
það stendur við Sprengisandsveg.
Héðan er um 20 km að Mýri, sem er
innsti bær í Bárðardal, það eru
reyndar um 20 km niður að verslun-
inni á Fosshóli sem stendur rétt við
Goðafoss.
Á hótel Kiðagili eru 22 rúm, og
annar eins fjöldi rúmast í svefn-
pokaplássum, auk þess er tjaldsvæði
á staðnum. Hótelgestir geta komist
í gufubað, og boðið er upp á morg-
unverð, ýmsa létta rétti, kaffi, kökur
og kvöldverð ef hann er pantaður
með fyrirvara."
Þetta er f fyrsta sinn sem hótel er
rekið á þessum stað, og verður það
opið a.m.k. til loka ágústmánaðar.
Verðlagning er svona mitt á milli
þess sem tíðkast í bændagistingu og
á Edduhótelunum. Þær stöllur sögð-
ust vonast til að sjá sem flesta gesti
í sumar. Það væru margir fallegir
staðir að skoða í Bárðardal, auk
þess sem Engidalsvegur, 10 km veg-
arspotti liggur úr Bárðardal, og yfir í
Mývatnssveit. Þær sögðust geta tek-
ið á móti hópum, og alveg tilvalið
væri að halda ættarmót á Kiðagili.
Þess má að lokum geta að síma-
númer á Kiðagili er 96-43290, svona
ef fólk vildi drífa í að panta áður en
allt fyllist.
HIA
F.v. Sigurlaug Svavarsdóttir, Sigurður Jónasson og Sigrún Hringsdóttir.
Mynd: HIA