Tíminn - 08.07.1986, Síða 15
Tíminn 15
Þriðjudagur 8. júli 1986
ÚTVARP/SJÓNVARP
Á hringveginum:
ÍPapey
ídag
Ferð útvarpsmanna á hringveg-
inum hefur gengið að óskum til
þessa og samkvæmt áætlun. Nú er
hafið ferðalag á Austurlandi og er
Inga Rósa Þórðardóttir fararstjóri
en aðstoðarmaður hennar er Örn
Ragnarsson, kennari á Eiðum.
Daglegar útsendingar eru eins og
kunnugt er kl. 15.20.
I gær höfðu þau viðkomu í
Stafafelli í Lóni en í dag er ferðinni
heitið til Djúpavogs og út í Papey
ef veðurguðir hindra ekki för, en
þeir hafa verið einkar blíðir þar á
manninn undanfarið. í þessari viku
verður líka farið til Fáskrúðsfjarð-
ar og Eskifjarðar.
Leitað verður efnis úr sögu og
Ævar R. Kvaran segir frá dular-
fullri nunnu í útvarpinu í kvöid kl
20.40.
Útvarpsbíllinn er á hringferð um
landið með útvarpsfólk innan
borðs. Það lætur heyra í sér dag-
lega kl. 15.20 frá þeim stað sem
það er statt á þá stundina og nú er
það einmitt statt á Austurlandi.
(Tímamynd: Sverrir)
umhverfi Austurlands og ræðst það
af fólki og aðstæðum á hverjum
stað. Þann 25. júlí lýkur útsending-
um Ingu Rósu frá Austurlandi á
Bakkafirði, en þá tekur við fulltrúi
Norðurlands sem er Örn Ingi frá
Akureyri.
Sjónvarp kl. 21.25:
M-hátíð á Akureyri
Dagana 12.-16. júní sl. var svo-
nefnd M(enningar)-hátíö haldin á
Akureyri og verða svipmyndir frá
henni sýndar í sjónvarpi í kvöld kl.
21.25.
Menntamálaráðuneytið stóð að
þessum menningardögum í sam-
vinnu við Akureyrarbæ og sá Indr-
iði G. Þorsteinsson únt skipulag
þeirra f.h. ráðuneytisins, en af
hálfu Akureyrarbæjar annaðist
fjögurra manna nefnd undirbúning
þeirra og framkvæmd. Á M-hátíð-
inni var ntikið um að vera, listsýn-
ingar, tónlistarflutningur og upp-
lestur og koma þar við sögu lista-
menn sem tengjast Akureyri og
Norðurlandi, bæði lifandi oglátnir.
I Sjónvarpinu í kvöld verður
brugðið upp svipmyndum frá há-
tíðinni eins og fyrr segir og talað
við hátíðargesti. Umsjónarmaður
er Ólafur H. Torfason.
Ólafur H. Torfason hefur uinsjón
með sjónvarpsdagskrá frá M-hátíð
á Akureyri kl. 21.25 í kvöld.
Dularfulla
nunnan
miskunnsama
Ævar Kvaran segir frá
í kvöld kl. 20.40 flytttr Ævar R.
Kvaran frásögu í útvarpi sent heitir
Dularfulla nunnan miskunnsama.
Þar segir frá lítilli telpu úr fá-
tækrahverfi í New York, sem verð-
ur mjög veik og batnar ekki, en
kemst síðan fyrir tilstilli félagsráð-
gjafa burt úr mengun og örbirgð og
upp í sveil. Hún dvelst um skeið á
munaðarleysingjahæli sem nunnur
reka og fær þar fullan bata. Þar er
einkunt ein nunna sent oft kemur
til hennar og hjálpar henni mikið,
en telpan sér hana þó aldrei í fylgd
með hinunt nunnununt. í ljós kem-
ur síðan að hér er um að ræða
barngóða nunnu, setn kölluð var
hin miskunnsama, en hún hafði
áður dvalið á hælinu og verið þar
börnum sérlega góð...
Þriðjudagur
8. júlí
7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn.
7.15 Morgunvaktin.
7.30 Fréttir. Tilkynningar.
8.00 Fréttir. Tilkynningar.
8.15 Veðurfregnir.
8.30 Fréttir á ensku
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna: „Pétur
Pan og Vanda“ eftir J. M. Barrie
Sigríður Thorlacius þýddi. Heiödis Norð-
fjörö les (10).
9.20 Morguntrimm. Tilkynningar. Tónleik-
ar, þulur velur og kynnir.
9.45 Lesið úr forustugreinum dagblað-
anna.
10.00 Fréttir.
10.10 Veðurfregnir.
10.30 „Ég man þá tíð“ Hermann Ragnar
Stefánsson kynnir lög frá liönum árum.
11.00 Fréttir.
11.03 Samhljómur. Umsjón: Þórarinn
Stefánsson.
12.00 Dagskrá. Tilkynningar.
12.20 Fréttir.
12.45 Veðurfregnir. Tilkynningar. Tónleikar.
13.301 dagsins önn - Heilsuvernd.
Umsjón: Jón Gunnar Grétarsson.
14.00 Miðdegissagan: „Katrin“ saga frá
Álandseyjum eftir Sally Salminen Jón
Helgason þýddi. Steinunn S. Sigurðar-
dóttir les (6).
14.30 Tónlistarmaður vikunnar Pálmi
Gunnarsson
15.00 Fréttir. Tilkynningar. Tónleikar.
15.20 Á hringveginum - Austurland
Umsjón: Inga Rósa Þórðardóttir, Örn
Ragnarsson og Ásta R. Jóhannesdóttir
16.00 Fréttir. Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Divertimenti a. Divertimento i C-dúr
eftir Joseph Haydn. Ton Koopman, Rein-
hard Goebel, Alda Stuurop leika á fiðlur,
selló og sembal. b. Divertimento í D-dúr
eftir Johann Conrad Schlick. Elfriede
Kunschak, Vinzenz Hladky og Maria
Hinterleitner leika á mandólín og sembal.
c. Divertimento nr. 1 í Es-dúr K.113 eftir
Wolfgang Amadeus Mozart. Mozarteum-
hljómsveitin í Salzburg leikur; Bernhard
Paumgartner stj.
17.00 Fréttir.
17.03 Barnaútvarpið. Stjórnandi: Kristín
Helgadóttir. Aðstoðarmaður: Sigurlaug
M. Jónasdóttir.
17.45 I loftinu Hallgrimur.Thorsteinssonog
Guðlaug Maria Bjarnadóttir. Tilkynningar
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Fréttir.
19.40 Tilkynningar.
19.45 Daglegt mál Guömundur Sæmunds-
son flytur þáttinn.
19.50 Fjölmiðlarabb Ólafur Þ. Harðarson
talar.
20.00 Ekkert mál Sigurður Blöndal stjórnar
þætti fyrir ungt fólk. Aðstoðarmaður:
Bryndis Jónsdóttir.
20.40 Dularfulla nunnan miskunnsama
Ævar R. Kvaran flytur erindi.
21.00Perlur Alfreö Clausen og Sigrún
Jónsdóttir.
21.30 lltvarpssagan: „Njáls saga“ Einar
Ólafur Sveinsson les (21).
22.00 Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Orð
kvöldsins
22.15 Veðurfregnir.
22.20 Leikrit: „Elsku María" eftir Odd
Björnsson Leikstjóri: Oddur Björnsson.
Leikendur: Árni Tryggvason, Inga Hildur
Haraldsdóttir, Þóra Friðriksdóttir, Kristinn
Hallsson, Steindór Hjörleifsson, Rúrik
Haraldsson og Róbert Arnfinnsson.
(Endurtekiö frá fimmtudagskvöldi).
23.35 Martin Giinther Förstemann leikur
orgelverk eftir Johann Pachelbel, Dietrich
Buxtehude og Johann Sebastian Bach.
24.00 Fréttir. Dagskrárlok.
9.00 Morgunþáttur Stjórnendur: Ásgeir
Tómasson, Kristján Sigurjónsson og
Gunnlaugur Helgason. Inn í þáttinn flétt-
ast u.þ.b. fimmtán mínútna barnaefni kl.
10.05 sem Guðríður Haraldsdóttir
annast.
12.00 Hlé
14.00 Blöndun á staðnum. Sigurður Þór
Salvarsson.
16.00 Hringiðan Þáttur i umsjá Ólafs Más
Björnssonar.
17.00 í gegnum tíðina Jón Ólafsson stjórn-
ar þætti um íslenska dægurtónlist.
18.00 Dagskrárlok.
Fréttir eru sagðar í þrjár mínútur kl. 9.00,
10.00,11.00, 15.00,16.00 og 17.00.
Svæðisútvarp virka daga vikunnar frá
mánudegi til föstudags.
17.03-18.15 Svæðisutvarp fyrir Reykjavík
og nágrenni - FM 90,1 MHz.
17.03-18.30 Svæðisútvarp fyrir Akureyri
og nágrenni - FM 96,5 MHz.
Þriðjudagur
8. júlí
19.00 Á framabraut (Fame 11-18) Banda-
rískur myndaflokkur. Þýðandi Kristin
Þórðardóttir.
19.50 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Auglýsingar og dagskrá.
20.35 Daginn sem veröldin breyttist (The
Day the Universe Changed) 9. Bylgju-
hreyfingar. Breskur heimildamynda-
flokkur í tiu þáttum. Umsjónarmaður Jam-
es Burke. I þessum þætti er fjallað um
uppgötvanir á sviði rafmagnsfræði, hljóö-
bylgjur og Ijósöldur. Þekkingu vísinda-
manna á veröldinni og eðli hennar fleygir
fram en um leið eykst óvissan. Þýðandi
Jón O. Edvald. Þulur Sigurður Jónsson.
21.25 M-hátiðin á Akureyri. Svipmyndir
frá menningardögum á Akureyri 12.-16.
júni siðastliðinn ásamt viðtölum við há-
tíðargesti. Á málverkasýningu i íþrótta-
skemmunni voru sýnd verk norðlenskra
myndlistarmanna en megin viðfangsefni
hátíðarinnar var íslensk tunga. Á dagskrá
voru ávörp, erindi, upplestur, söngur og
tónlist. Umsjónarmaður Ólafur H. Torfa-
son.
22.05 Kolkrabbinn (La Piovra II) Fimmti
þáttur. ítalskur sakamálamyndaflokkur i
sex þáttum. Þýðandi Steinar V.Árnason.
23.10 Fréttir í dagskrárlok.
Laus staða
Staða fulltrúa hjá Veðurstofu íslands er laus til
umsóknar. Kunnátta í ensku og einu norðurlanda-
máli æskileg.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um aldur, menntun
og fyrri störf sendist Samgönguráðuneytinu fyrir
21. júlí 1986.
Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Veður-
stofu íslands.
Veðurstofa íslands.
Sveitarstjóri
Staða sveitarstjóra í Kjalarneshreppi er laus til
umsóknar.
Umsóknarfrestur er til 20. júlí nk.
Upplýsingar gefur Jón Ólafsson oddviti sími
666044.
Sveitarstjórn Kjalarneshrepps
Sveitarstjóri
Staða sveitarstjóra Stokkseyrarhrepps er laus til
umsóknar. Nánari upplýsingar veita sveitarstjóri í
síma 99-3267 og oddviti í síma 99-3244. Umsókn-
arfrestur er til 15. júlí n.k.
Hreppsnefnd Stokkseyrarhrepps
Hjálparkokkurinn
sem þreytist aldrei
á því að hafa hreint og fínt í kringum sig
bara nothæf í eldhúsinu. Notaðu
hana til að þrífa bílinn, bátinn eða
taktu hana með þér í ferðalagið.
Það er vissara að hafa Effco
þurrkuna við hendina.
Effco þurrkan er ómissandi viö
eldhússtörfin. Hún hjálpar þér að
halda eldhúsinu hreinu og fínu,
sama á hverju gengur. Effco þurrk-
an gerir öll leiðinlegustu eldhús-
störfin að léttum og skemmti-
legum leik. Það verður ekkert mál
að ganga frá í eldhúsinu’eTfir elda-
mennskuna, borðhaldið og upp-
vaskið. En Effco þurrkan er ekki
Effco-þurrkan fæst á betri bensínstöðvum
og verslunum.
Pemx>-purrlcan
ftUUK 1 STERK
FRAMTÆKNI s/f Skemmuveg 34 N
Vélsmiðja 200 Kópavogur lceland
Járnsmíði - Viðgerðir Tel. 91-641055
Vélaviðgerðir - Nýsmíði
t
Innilegar þakkir tærum við öllum sem sýnt hafa móður okkar
tengdamóður, ömmu og langömmu
Ragnhildi Jónsdóttur
Leifsgötu 10
virðingu og okkur hlýhug vegna andláts hennar og útfarar.
Sérstakar þakkir færum við læknum og öðru starfsfólki Landakots-
spítala.
Elísabet Ólafsdóttir Jón Stefánsson
Jón Ólafsson
Kjartan Olafsson Jóhanna Bjarnadóttir
barnabörn og barnabarnabörn