Tíminn - 25.07.1986, Blaðsíða 2
I Tíminn
Föstudagur 25. júlí 1986
Gullæði við Gullinbrú
Mikil laxveiöi í Grafarvoginum
Inn í Grafarvog hafa villst laxa-
torfur sem líklega hafa verið á leið
inn í Elliðaár. Undanfarið hefur
streymt þangað mikill fjöldi fólks
nteð hin ólíklegasta veiðibúnað til
að krækja sér í árkonunginn ódýrt.
íslendingar hafa eignast eigið
Klondyke, þar sem menn flykkjast
til að sækja gullið í greipar Ægis og
til þess er beitt öllum brögðum.
Meðal annars má benda á þríkrækj-
ur sem menn festa á girnið með
jöfnu millibili, og plægja svo botninn
undir brúnni nteð, til að húkka
laxinn upp. Af brúnni taldi blm. allt
upp í þrjátíu laxa sem lágu þar í
torfu í gær.
Ekki vildi hann bíta en menn voru
að reyta upp ufsa og marhnút.
Margvíslegar veiðisögur voru
sagðar við Gullinbrú. í næturskjóli
hafa menn stundað netaveiðar og
náðust upp 26 laxar með þeim hætti
í fyrrinótt. Um daginn var 16 punda
laxi landað á stöng. Þá sögðu menn
cinnig frá þremur hjálpfúsum lög-
rcgluþjónum sem hrifust af leiknunt
og aðstoðuðu menn við að landa laxi
í gríð og erg.
Þó svo iaxinn vildi ekki taka var
leikur í honum og stukku margir og
veltu sér í straumnum sem niyndað-
ist er fjaraði út. Það er ekki fjarri
lagi að þeir stærstu hafi verið um 18
eða 20 pund.
Að lokum fór svo að blaðamenn
áttu fótum sínum fjör að launa þar
sem tugir öngla, krækja og spúna
svifu ofan af brúnni og neðan af
bakka sem skapaði stórhættu. Harð-
fengir fiskimcnn voru þó ekki á þeim
buxunum að láta hrekja sig á brott,
þó svo girnið væri komið í eina
bendu og oftar var færi náungans við
hliöina dregið í land en vænn fiskur.
Þj
Albert Guðmundsson iðnaðarráö-
herra gengur út af ríkisstjórnarfundi
í gærmorgun eftir að hafa lagt frani
tillögur um breytingar á iðnaðarlög-
um. (Tímamynd Pétur)
Finnskir skátar:
„Félagsskapurinn
stærsti kosturinn“
- segja skátaforingjarnir Esa og Hannamaija
Tíminn hitti að máli tvo skáta frá
Finnlandi sem eru hingað komnir á
landsmótið. Þau heita Esa Utukka
og Hannamaija Helander og eru frá
hafnarborginni Turku. Esa kom með
félögum sínum í gær en Hannamaija
hefur dvalist hcr síðan á sunnudag.
Þau voru bæði ánægð með aðbúnaö
og móttökur scm þau hafa fengið og
sögðu að íslendingar væru einstak-
lega hjálpsamt og vingjarnlegt fólk.
Bæði hafa þau sótt sambærileg mót
víðsvcgar um Evrópu og sögðu að
stóri kosturinn viö svona mót væri
allur sá aragrúi af fólki sem þau
kynnast.
Skátaforingjarnir finnsku Hannam-
aija Helander og Esa Utukka.
Tímamynd: - Císli Kgill.
Ríkisstjórnarfundur í gær:
Breytingar á
iðnaðarlögum
- frumvarp þar að lútandi lagt fram. „Rætt
í þingflokkum“ segir forsætisráðherra
Albert Guðmundsson iðnaðarráð-
herra lagði fram frumvarp til laga
um breytingu á iðnaðarlögum fyrtr
ríkisstjórnarfund sem haldinn var í
gær. Frumvarpið er í meginatriðum
það sama og lagt var fyrir Alþingi í
vetur sem leið. um santa efni. Frum-
varpið verður rætt í þingflokkum
stjórnarflokkanna á næstunni.
Steingrímur Hermannsson for-
sætisráðherra sagði þegar hann var
spurður uni álit á frumvarpinu, að
hann hefði áður lýst skoðun sinni á
þessu máli og hann ætti ekki von á
því að hún breyttist.
Það eru einkum tvær breytingar
sem frumvarp Alberts felur í sér. I
fyrsta lagi að hann seni iðnaðarráð-
herra geti veitt undanþágu frá því
skilyrði til iðnrekstrar að meirihluti
hlutafjár skuli vera í cign manna
búsettra hér á landi.
í öðru lagi að erlendur aðili sent
fengi leyfi til iðnrekstrar öðlist sjálf-
krafa rétt til að eiga eða nota
fasteign hér á landi í þágu iðn-
rekstrarins.
Steingrímur Hermannsson sagði
að mcð þessu væri verið að ganga
inn á sviö dómsmálaráðuneytisins
sem hefur eitt veitt undanþágur,
þegar um eign útlendinga á fasteign-
um hefur verið að ræða, umfram
tuttugu prósent. „Dómsmálaráðu-
neytið hcfur verið nokkurs konar
öryggisventill í þessum ntálum og
það er að mínu mati slæmt að missa
þann öryggisventil," sagði Stein-
grímur.
Framkvæmdastjórn Alþýðu-
bandalagsins hefur sent frá sér
fréttatilkynningu þar sem tillögum
iðnaðarráðherra er mótmælt harð-
lega og jafnframt bent á að með
samþykkt þeirra verði úrslitavald
um hlutdeild erlendra fyrirtækja í
íslensku atvinnulífi fært úr höndum
Alþingis til eins ráðherra. -ES
Lýðveldi í Viðey:
Landsmót skáta
hefst um helgina
„Með stórhug og dug, þrjósku og
þor höfum við stofnað nýtt lýðveldi
í Viðey." Þessi orð er að finna í
ávarpi forsætisráðherra í hinu ný-
stofnaða lýðveldi í Viðey en stofn-
endur þess cru skátar hvarvetna af
landinu og reyndar víðar því að
lýðveldinu standa cinnig fjölmargir
skátar úr öllum heimshornum.
Tilcfni þcssa viðburðar er landsmót
skáta í Viðey sem verður haldið
dagana 27. júlí til 3. ágúst.
Dagskráin er fjölbreytt
Það verður boðið upp á fjölbreytta
dagskrá meðan mótið stendur yfir.
Þátttakendur geta valið um leiki og
þrautir, kcppni af ýmsu tagi, fræðslu
og ferðalög þar á meðal fjallaferðir í
Esju, flekaferðir um sundin blá og
götuleiki í Reykjavík. Einnig verða
útileguferðir í Heiðmörk, að Elliða-
vatni og Rauðavatnsskóg auk
íþróttamóts og varðelda.
Skátalýðveldi
Rammi mótsins er Nýtt lýðveldi
og ætla skátar að taka lýðveldisstofn-
unina alvarlega og gera Viðey að
fyrirmyndar lýðveldi þann tíma sem
mótið stendur yfir. Allir íbúar fá
sérstakt vegabréf, rnynduð verður
þjóðstjórn og þing, Iðnaðarbankinn
mun stofna útibú á eynni, símstöð
og sjúkrahús verður á staðnum.
fáni, skjaldarmerki, lög og sérstak-
ur þjóðsöngur. Ekki má gleynta
pósthúsinu en sérstakt pósthús verð-
ur á staönum og verður dagstimpill
í notkun alla daga mótsins.
Skipting
mótssvæðisins
Mótssvæðinu verður skipt í fjórar
sýslur Norður-, Suður-, Austur- og
Vestursýslu. Tvennar tjaldbúðir
verða á mótinu, skátatjaldbúðir og
fjölskyldutjaldbúðir. Skátatjaldbúð-
irnar eru fyrir alla starfandi skáta 11
ára og eldri. A mótssvæðinu verður
svo að finna sérstök svæði fyrir hin
ýntsu tilefni svo sem hátíðarsvæði,
varðeldasvæði og verslunarsvæði.
Matarsendingar
Eitt er það vandantál sent allir
eybúar sem ekki eru sjálfum sér
nógir verða að glíma við. Það er sú
blákalda staðreynd að ekki þrífast
2000 rnunnar af loftinu cinu saman,
ekki einu sinni skátamunnar. En
skátar eru ekki vanir að deyja ráða-
lausir. Hvern mótsdag verður listi
frá versluninni Miklagarði látinn
ganga og þar getur hver og einn
pantað sínar nauðþurftir.
geh