Tíminn - 25.07.1986, Blaðsíða 15

Tíminn - 25.07.1986, Blaðsíða 15
Föstudagur 25. júlí 1986 Tíminn 19 HELGIN FRAMUNDAN Hlllil iiiiiiiiiiiii iiiiiiiiiiniiiiii Gerry andthe Pacemakers í Broadway í kvöld og annað kvöld halda Gerry and The Pacemakers tón- leika í Broadway, en þeir eiga langan og litríkan feril að baki. Hljómsveitin erfrá Liverpool, rétt eins og Bítlarnir, en voru fyrr á ferðinni en þeir. Og hún hefur unnið ýms afrek sem jafn- vel Bítlunum hefur ekki tekist að leika eftir. M.a. þutu 3 fyrstu plötur hljómsveitarinnar beint upp í efsta sæti breska vinsælda- listans og hafa ekki aðrir gert betur. Garry and The Pacemakers halda tvenna tónleika í Bro- adway um helgina. Torfhleðslu námskeið Nú um helgina kennirTryggvi Han- sen torfhleðslu, þ.e. að ristaoghlaða streng, í Vatnsmýrinni við Norræna húsið, en hann hefur undanfarin 5 ár haldið námskeið í grjót- og torf- hleðslu. Námskciðið nú um helgina kemur þeim að gagni er hyggjast kynna sér elstu iðn er ísland geymir og einnig þcim er vilja hlaða sér bæ eða skjólgarð úr efni jarðarinnar. Tryggvi hefur einnig þekkingu á að nýta efnið í skúlptúr. Námskeiðið stendur yfir laugardag og sunnudag og er opiö öllum áhugasömum. Björg fsaksdóttir sýnir á Ferstiklu og í Þrastarlundi Þessa dagana standa yfir sýningar á myndlistarverkum Bjargar Isaks- dóttur á Ferstiklu og í Þrastarlundi. í Þrastarlundi sýnir Björg 14 kol- teikningar og olíumálverk en 28 olíumálverk á Ferstiklu. Björg hefur haldið 3 einkasýning- ar á íslandi og tekið þátt í samsýning- um. Þá hefur hún haldið einkasýn- ingu í Svíþjóð og tekið þátt í samsýn- ingum í Svfþjóð, Finnlandi og á Kaprí. Björg er nýflutt til íslands frá New York og mikið af kolteikning- unum eru unnar í New York. Kristinn Guðbrandur í Slúnkaríki Nú stendur yfir sýning Kristins Guðbrands Harðarsonar á málverk- um og grafík, sem hann hefur unnið á undanförnum tveim árum, í Slúnkaríki, Aðalstræti 22, ísafirði. Sýningin stendur til 31. júlí og er opin alla virka daga frá kl. 14-16, en um helgar kl. 15-18. ■ i I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I Sumartónleikar I Skálholti Á Sumartónleikum í Skálholts- kirkju um helgina verður tvennskon- ar dagskrá eins og vant er. Klukkan 15 á laugardag flytur sönghópurinn Hljómeyki lög eftir Nystedt, Holm- boe, Speight, Báru Grímsdóttur, Byrd og Britten og Marteinn H. Friðriksson dómorganisti leikur þætti úr Fúgulistinni eftir J.S. Bach. Á laugardaginn kl. 17 og aftur á sunnudaginn kl. 15 flytur Hljómeyki eingöngu sönglög eftir Jón Nordal sem sextugur varð á þessu ári. Eitt þeirra er frumflutt enda spánýtt og nefnist Aldasöngur við texta sem fjalla um kaþólskan sið á Islandi. Messa er á sunnudeginum kl. 17, prestur sr. Guðmundur Óli Ólafs- son. Áætlunarferðir cru frá BSÍ báða dagana kl. 13 og til baka kl. 18.15. Ókcypis aðgangur I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I Hljómlist og hljóðfærasmíð í Norræna húsinu Sunnudaginn 27 júlí kl. 15-17 verður í gangi eins konar „workshop" í Norræna húsinu, þar sem kynnt verður sænsk alþýðutón- list og hvcrnig skal farið að við fiðlusmíð. Hér eru á ferð Richard Náslín, alþýðusöngvari og Astrid Pullar fiðlusmiður, sem hefur lært hljóðfærasmíð í fjögur ár við eina skólann á Norðurlöndunt, þar scm slíkt cr kennt. við lýðháskólann í Leksand í Svíþjóð. Til þess að kynna þennan skóla hafa þau sett upp sýningu á vegg- spjöldum í anddyri Norræna hússins og mun hún hanga uppi til 30. júlí, en auk þess ntunu þau Astrid og Richard syngja, spila og sýna lit- skyggnur frá skólanum á fyrrgreind- um tíma, kl. 15-17 á sunnudaginn. Aðgangur er ókeypis og þau von- asl til þess að fá sem flesta til að koma og kynnast því, sem þau hafa fram að færa. Alþýðu- leikhúsið og Hlað- varpinn í myndlistarsal Hlaðvarpans að Vesturgötu 3 getur nú að líta batik- sýningu sænsku listakonunnar Ednu Cers. Nú um helgina, laugardag og sunnudag, verða sett upp kaffihús þar sem boðið verður upp á gómsæt- ar veitingar. Gestum gefst að hlýða á tónleika gítarleikarans Kristins Árnasonar, sem flytur Pavana eftir Luis Milan, prelúdíu og fúgu úr Lútusvítu nr. 2 eftir J.S. Bach og að síðustu Drei Tentos eftir Hans Werner Henze. Að því loknu verður fluttur ein- þáttungurinn „Hin sterkari“ eftir August Strindberg í íslenskri þýð- ingu Einars Braga. Það eru þær Margrét Ákadóttir og Anna Sigríður Einarsdóttir sem fara með hlutverk tveggja hefðar- og leikkvenna sem hittast á kaffihúsi og gera upp sín hjartans mál. Elfa Gísladóttir leikuí þjónustustúlku, en leikstjóri er Inga Bjarnason. Djúsbarinn hefur veg og vanda af veitingum og miðasölu. Upplýsingar um miðasölu eru í síma 19560. Sýningar um helgina hefjast kl. 16.00. I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I Ásta Pálsdóttir myndlistarmaður sýnir í Leiru. Myndlistarsýning í Leiru Ásta Pálsdóttir myndlistarmaður í Keflavík opnaði málverkasýningu í nýja golfskáía'num í Leiru fimmtu- daginn 24. jú.lí sl. Ásta sýnir 35 vatnslitamyndir og sækir hún mynd- efni sitt að mestu leyti í Leiruna og aðra staði á Suðurnesjum. Þetta er önnur einkasýning Ástu. Fyrri sýn- ingin var á Sauðárkróki '82. Einnig hefur hún tekið þátt í nokkrum samsýningum bæði hér heima og erlendis. Sýning þessi stendur fram yfir Landsmótið í golfi, sem verður á Hólmsvelli í Leiru nú í ár. Sýningunni lýkur 5. ágúst. ÁRBÆJARSAFN Ólöf Sesselja Óskarsdóttir leikur á viola da gamba í Dillonshúsi laugardaginn 26. júlí kl. 15-17.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.