Tíminn - 25.07.1986, Blaðsíða 3
Föstudagur 25. júlí 1986
Tíminn 3
Kjúklinga- og svínabændur:
Vilja fá lækkun
kjarnfóðurgjalds
í kjölfar niðurgreiðslna á dilkakjöti
Kjúklinga- og svínabændur fund-
uðu í gærkvöldi um hinar auknu
niðurgreiðslur ríkisins á dilkakjöti.
Stjórnir þessara búgreina hyggjast
mótmæla þessum auknu niður-
greiðslum dilkakjöts á meðan svína-
bændur og kjúklingabændur „þurfa
að borga kjarnfóðurskatt til ríkisins
sem síðan er notað til þess að greiða
niður dilkakjötið," eins og Jónas
Halldórsson form. félags kjúklinga-
bænda sagði í samtali við Tímann í
gær fyrir fundinn. „Okkar mótmæli
munu að öllunt líkindum felast í ósk
unt að slegið verði af kjarnfóður-
gjaldinu," sagði Jónas.
Nú eru til um 250-280 tonn af
kjúklingakjöti og rúmlega 60 tonn af
svínakjöti í landinu, svo ekki er um
veruleg offramleiðsluvandamál að
ræða í þessum búgreinum. Að sögn
Jónasar lækkaði kjúklingakjöt um
20% í fyrrahaust unt leið og dilka-
kjöt lækkaði, en verð á kjúklingum
náðist ekki upp aftur, svo ólíklegt
veröur, að niðurgreiðslum dilka-
kjöts verði mætt með slíkum lækk-
unum eins og í fyrra. AIJS
Hér er komið með tvö hjólböruhlöss af þeim 1400 sem fóru í gerð
göngustígsins.
VEIÐIHORNIÐ
Umsjón: Eggert Skúlason
Grímsá komin í
þúsundlaxa
„Þetta hefur gengið alveg ljóm-
andi vel," sagði Þorbjörn Gíslason
leiðsögumaður í Gríntsá í samtali
við Veiðihornið í gær. Þegar veiði-
degi lauk í fyrrakvöld var kominn
á land 971 lax, og taldi Þorbjörn í
gær að þúsundið yrði fyllt innan
skamms. Stærsti laxinn sem komið
hefur á land í sumar veiddi Banda-
rtkjamaður og vó hann átján pund
og tók flugu.
Utlendingatímanum lýkur þann
þriðja ágúst og hafa flest öll leyfi í
ána verið seld eftir þann tíma. Sú
nýbrcytni var tekin upp í sumar að
veiðiréttareigendur við Grímsá
ákváðu sjálfir að selja leyfi í ána.
milliliðalaust, í stað þess að leigja
ána Stangaveiðifélagi Rcykjavík-
ur. Þorbjörn sagði að þetta hefði
gengið upp og sennilega hefðu
veiðileyfi ekki hækkað jafn mikið
og ella, þar sem einn milliliður er
felldur út.
„Reynum allt
í fluguboxinu“
Veiði í Selá í Vopnafirði hefur
verið ntjög góð það sem af er
veiðitímanum, ef miðað er við
síðustu ár, en illa hefur gengið um
nokkurn tíma.
Veiðimenn sem voru við veiðar
í Selá í gær sögðu að áin væri
bunkuð af fiski en erfitt væri að fá
hann til að taka. Guðmundur Sig-
tryggsson sagði í samtali við Veiði-
hornið að menn hefðu verið að
rcyna allt í fluguboxunum, frá
túpum og niður í flugur númer tíu.
Veður hjá Guðmundi og félögum
hans, sem eru m.a. Rafn Haffjörð
og Bragi Hannesson hefur verið
með eindæmunt gott og yfirleitt
unt fimmtán stiga hiti. Um miðjan
dag í gær sagði Guðmundur að
útlit væri fyrir að hann ætlaði að
þykkna upp, og „nú ætlum við að
fara að veiða," sagði Guðmundur
og var hvíldartíminn að verða úti
svo hann varð að rjúka út í á með
félögunum, sent voru ekki allt of
hressir með veiðina, sextán laxa á
tveimur dögum. Fiskurinn var um
fimmtán pund sá stærsti, og sumir
lúsugir. Alls liafa veiðst um 250
laxar í Selá.
Kvótinn ekki
alltaf til góðs
Þessi er sönn: Tveir veiðimenn
fóru í ónefnda laxveiðiá og átti nú
heldur betur að taka hann. Kvóti
var í ánni og ekki heimilt að landa
fleiri en átta löxum á dag á stönd.
Vinirnir fóru út snemma um morg-
uninn og þeir voru varla búnir að
kasta þegar lax er á. Þriggja punda
fiskur. Það er kastað aftur og hann
er á. Tveggja punda lax. Þriðja
kastið og enn er hann á. Þriggja
punda lax. Það renna tvær grímur
á félagana þegar sá fjórði tekur í
fjórða kasti og hann er tæp þrjú
pund. Allt vaðandi í smáfiski. Þeir
ákveða að sleppa þeim fjórða, og
vonast til að síðar taki heldur
stærri fiskur. Svona gengur þetta í
nokkurn tíma að þeir sleppa þó
nokkrum löxum frá að hádcgi,
þegar skipt er um svæði. Þeir
hugsuðu sér gott til glóðarinnar að
taka rrú heldur stærri fisk á efri
svæðum í ánni. þegar hann var í
svona brjáluðu tökustuði og tveir
og hálfur dagur eftir af hollinu. En
heldur kárnaði gamanið þegar leið
á daginn og dagana þar á eftir, því
þeir félagar komu heim með þrjá
laxa tvo þriggja punda og einn
tveggja punda eftir þriggja daga
veiði. Eins og þetta byrjaði nú
vel....
Margar hendur vinna létt verk. Hér er verið að vinna að brúarsmíð og komast greinilega færri að en vildu.
Tímamyndir: Pétur.
Dagur fjölskyldunnar:
Lagðir stígar
og byggðar brýr
Fjölmargir Kópavogsbúar tóku til
hendinni sl. miðvikudag, þegar hald-
inn var þar Dagur fjölskyldunnar.
Um 300 krakkar úr Vinnuskóla
Kópavogs og um 60 fullorðnir bæjar-
búar tóku höndum saman um að
leggja gangstíga og byggja göngu-
brýr í Fossvogsdalnum.
Að sögn Þórðar Guðmundssonar,
yfirverkstjóra hjá Vinnuskólanum,
var stígur lagður um 400 metra veg
milli Birkigrundarog Daltúns. Teng-
ist þessi stígur mörgum göngustígum
sem voru þarna fyrir og var um
100m3 af möl ekið í stíginn. Taldist
mönnum til að það samsvari 1400
hjólböruferðum, en ekki var unnt að
nota dráttarvélar við vinnuna vegna
mýrlendis.
Þá voru byggðar tvær göngubrýr
og gert við aðrar. Hópurinn vann að
verkinu frá kl. 14 til kvöldverðar, en
boðið var upp á grillaðar pylsur frá
félagsmiðstöðinni Agnarögn, um kl.
19.
Munu þessar framkvæmdir stuðla
að því að Fossvogsdalurinn færist
nær því að vera það útivistarsvæði
sem hann er kjörinn til.
phh
Lífeyrissjóður verslunarmanna:
Greiðir ekki 55% til
Húsnæðisstofnunar í ár
Mun tryggja félögum sínum hámarkslánsrétt eftir öðrum leiðum
Sem kunnugt er gera ný lög um
húsnæðislán ráð fyrir því að hver
einstakur lífeyrissjóður greiði 55%
af ráðstöfunarfé sínu til Húsnæðis-
stofnunar og tryggi þannig félögum
sínum hámarkslánsrétt.
Lífeyrissjóður verslunarmanna
tilkynnti hins vegar þegar í maíbyrj-
un að þeir ntuni ekki á þessu ári
greiða þessi 55%, heldur er ætlunin
að fara aðrar leiðir til að tryggja
félögum hámarksrétt.
„Þetta snýr þannig við á okkar bæ,
að þegar þessi lög voru samþykkt í
vor að þá lágu fyrir samþykkt láns-
loforð sem duga langt fram á haust-
ið. Ef sjóðurinn keypti fyrir 55% af
ráðstöfunarfé þessa árs er Ijóst að
sjóðurinn þarf að svíkja áður gefin
lánsloforð," sagði Þorgeir Eyjólfs-
son, forstjóri Lífeyrissjóðs versl-
unarmanna í viðtali við Tíntann.
Sagði Þorgeir að þeir umsækjend-
ur sem sæki um eftir gildistöku
laganna, þann 1. september nk., fái
væntanlega afgreiðslu á árinu 1987.
“Sú afgreiðsla mun þá miðast við
kaup og þann samning sem við
gerum vegna þess árs, en þegar er
frágengið að sjóður verslunarmanna
kaupi fyrir 55% af ráðstöfunarfénu
fyrir það árið. Hvað varðar þá sem
þegar eiga lánsbeiðnir inni í kerfinu,
að þá er ljóst að sjóðnum er gefinn
kostur á ákveðnum hlutfallskaupum
á bilinu 20-55%, og síðan getur
sjóðurinn keypt einstökum aðilum
þann mismun á lánsrétt sem
myndast. Stjórn sjóðsins hefur ekki
tekið endanlega ákvörðun í þessu
máli en líklegast er að þessi leið
verði farin. Þeim einstaklingum sem
þegar eiga inni umsóknir verður sem
sagt tryggður hámarkslánsréttur á
óafgreiddum lánshlutum."
Ekki er Ijóst á þessu stigi málsins
hversu margir félagar Lífevrissjóðs
verslunarmanna eiga í dag inni
lánsumsóknir hjá Húsnæðisstofnun
skv. gömlu lögunum og því er ekki
hægt að áætla hversu stóran hlut
ráðstöfunartekna sjóðurinn mun
greiða stofnuninni á þessu ári.
phh
Akureyri:
Sirkusinn
Arena á
íþrótta-
svæði Þórs
Um verslunarmannahelgina
2.-3. ágúst verða sirkussýningar á
íþróttasvæði Þórs í Glerárhverfi
á Akureyri. Þarna er á ferðinni
60 fjölleikamenn frá 10 þjóðum
sem kalla sig Cirkus Arena. Tvær
.sýningar verða hvorn dag og
hefjast þær kl. 16 og kl. 20 báða
dagana.
Cirkus Arena kemur til Akur-
eyrar eftir sýningaferðalag í Sví-
þjóð og Noregi. Eftir sýningar á
Akureyri, heldur hópurinn til
Reykjavíkur og verður með
nokkiar sýningar þar 6.-11.
ágúst, en að því loknu yfirgcfur
sirkusinn landið.
Sýningar Cirkus Arena ku vera
einkar glæsilegar, og komast um
2000 manns í sæti í tjaldinu hjá
þeim. Mikið er lagt upp úr því að
kitla hláturtaugar sýningargesta
þ.a. engum ætti að lciðast. Margir
norðanmenn ættu reyndar að
kannast við hópinn, því hann var
á ferðinni á Akureyri fyrir þrem-
ur árum síðan.
Hópurinn samanstendur af
fjölda trúða, töframanna, fim-
leikamanna, línudansara, keilu-
og knattakastara, átta manna
hljómsveit frá Póllandi, auk ann-
arra.
Nú þegar eru trúðar og ýmsar
fígúrur farnar að leggja leið sína
í miðbæ Akureyrar og víðar til að
kynna sýninguna. Forsala að-
göngumiða er hafin, og fer hún
fram í versluninni Kompan í
Skipagötu. Miðar verða einnig til
sölu við innganginn. Búist er við
miklum fjölda áhorfenda, bæði
Norðlendinga og ferðamanna á
sýningar Cirkus Arena, enda ekki á
hverjum degi sem íslendingar
berja slíkar uppákomur augum.
HIÁ