Tíminn - 25.07.1986, Blaðsíða 4

Tíminn - 25.07.1986, Blaðsíða 4
4 Tíminn s VAR tíðin að Barbara Cartland sagði við syni sína tvo, að ef hún lifði það að verða 85 ára gömul, ósjálfbjarga og gæti ekki skrifað lengur, skyldu þeir grípa til sinna ráða og „ieggja kodda að vitum hennar!" Hún tók það fram að hún hefði engan áhuga á því að draga fram lífið „elliær öryrki sem yrði að gefa næringu í æð“. En nú er Barbara, „drottning rómantíkurinnar" eins og hún er gjarna kölluð, orðin 85 ára og ber lítil ellimerki, þrátt fyrir háan aldur. Hún er enn að skrifa, bæk- urnar hennar eru orðnar 435, og þykir ung í anda. Upp á afmælið hélt hún með því að fara á veitinga- stað í London með sonunum, sem hún hafði fengið verkcfnið að koma henni fyrir kattarnef, og enginn koddi var innan seilingar. Daginn eftir tók hún til við að lesa ritara sínum fyrir síðasta kafl- ann í nýrri bók. Enda segist hún sjaldan hafa verið í betra formi. í fyrra samdi hún alls 26 bækur og geri aðrir rithöfundar betur! Enda segir hún að hún hafi ekki hugsað sér að gera nokkrum öfundsjúkum sálum það til geðs að hrökkva upp af enn sem komiö er. Bækur Barböru þykja hálfgerð tímaskekkja. Hún leggur þar alla áherslu á rómantík og andlega ást. Hún leggur mikla áherslu á hrcin- leika ungra meyja þegar þær ganga í hjónaband, því að þegar allt komi til alls sé það öruggt að góðir eiginmenn vilji endilega giftast hreinum mcyjum. Hún heldur því fram að stúlka sem stundar kynlíf fyrir tvítugsaldurinn beri þess merki alla ævi! Bækur sínar segist hún skrifa sem leiðarvísi fyrir ung- ar stúlkur, þær sem séu orðnar hálfþrítugar eigi að geta séð um sig sjálfar, enda hafi þær farið að ráðleggingum Barböru til þcss tíma. „Satt best að segja hef ég það Barbara Cartland lætur ekki deigan síga þó að hún sé oröin 85 ára. Barbara Cartland 85 ára og síung fyrir sið að lesa síðustu blaðsíðurn- ar í skáldsögu cftir Barböru Cart- land þegar mér líður illa eða er þreytt. Og það bregst ekki, ég sofna sæl og ánægð í örmum hetj- og halda góðri heilsu. Því hvað unnar minnar, þegar ég er búin að sem um Barbara Cartland má því,“ segir Barbara og kannski er . segja, er hún óvenju hress af konu þetta gott ráð til að ná háum aldri á svona háum aldri að vcra. bergi geymir hann loðfeldi sína. í öðru herbergi eru sólgleraugun hans o.s.frv.", segir hann. Ogéin- hvers staðar geymir Elton dýrgrip sem á engan sinn líka og skraddar- inn á heiðurinn af. Það er sérsaum- aður frakki, útbróderaður með smáljósaperum, sem Elton getur kveikt og slökkt á að vild mcð rofa í einum vasa. Eins og nærri má geta þykir klæðskeranum í meira lagi vænt urn þennan góða viðskiptavin, enda hafa viðskipti þeirra staðið í 9 ár og gefið skraddaranum vel í aðra hönd. En Elton John er ekki eini frægi viðskiptavinur hans. Rod Stcwart er ekki síðri kúnni og pantar fötin sín alla leið frá Kali- forníu. Og fleiri frægum nöfnum romsar John Kaye upp úr sér: Mick Jagger, Ringo Starr, David Bowie, Rick Parfitt í Status Quo, Paul Young, Simon Le Bon og John Taylor í Duran Duran. Pað kemur fyrir að venjulegt fólk rekur nefið inn í búð Johns, en flestir komast fljótlega að því að verðlagið er ekki í samræmi við pyngjuna hjá almenningi. Enda er John ekkert að sælast eftir slíkum viðskiptum. Honum nægir alveg að sauma á poppstjörnurnar og verðleggur vörur sínar líka sam- kvæmt því. Það líður þess vegna ekki á löngu þar til hann verður orðinn eins ríkur og viðskiptavinir hans! -segirskraddarinn hans geti talist. Nú hefur skraddarinn hans, John Kaye, staðfest að futauella Eltons nái út yfir öll takmörk. Hann segir mörg herbcrgi á heimili Eltons alveg sneisafull af hinum og þess- um klæðisplöggum. „I kældu her- Elton John er með fatadellu John Kaye skraddari hefur sér- stakt dálæti á Ringo Starr og Barböru Bach. „Það var mikill heiður fyrir mig þegar Ringo kom í búðina til mín. Ég var mikill aðdáandi Bítlanna," segir hann. Það er haft lyrir satt að Elton John eigi meira af fötum en Díana prinsessa, Joan Collins og Boy Gcorge samanlagt, cn samt sem áður fær hann sig aldrei til að henda einni cinustu flík. Því er meira segja haldið fram að fata- söfnunaráráttan, svo að ekki sé talað urn fræga söfnun hans á sólgleraugum, sé meiri en heilbrigð Elton John er með fatadellu og ólæknandi söfnunaráráttu Föstudagur 25. júlí 1986 UTLÖND FRÉTTAYFIRLIT JERÚSALEM — Símon Peres forsætisráðherra ísraels og Hassan Marokkókonungur gáfu út sameiginlega yfirlýs- ingu að afloknum viðræðum þeirra í Marokkó og kom þar greinilega fram að þeir höfðu ekki komist að neinu sam- komulagi um leiðir tii að ná friði í Mið-Austurlöndum. m&i i JÓHANNESARBORG — Sir Geoffrey Howe utanríkis- ráðherra Bretlands átti viðræð- ur við ýmsa áhrifamikla við- skiptamenn í Suður-Afríku og einnig við hvíta andstæðinga stjórnarinnar. Honum var tjáð aó kraftaverk þyrfti til ætti för hans til landsins að bera ein- hvern árangur. MADRÍD -FelipeGonzalez sór embættiseið sem forsætis- ráðherra Spánar næstu fjögur árin. Hann leiddi hjá sér gagn- rýni stjórnarandstöðunnar á leiðir hans til að sporna við ofbeldi baskneskra skæruliða í landinu. COLOMBO — Sprengja sprakk f rútu á Sri Lanka í gær oa jétust 28 manns og fjörutíu aorir slösuðust. Sprengjunni var komið fyrir af aoskilnaðar- sinnum tamila að því er tals- maður hersins sagoi. TEL AVIV — Palestínskir skæruliðar hentu hand- sprengju að aðalstöðvum lög- reglunnar í bænum Jeríkó á Vesturbakkanum og slösuðust tólf Israelar og einn arabi. Þessi atburður átti sér stað aðeins fáeinum klukkustund- um eftir að Símon Peres for- sætisráðherra Israels snéri heim frá fundi sínum við Hass- an Marokkókonung. MADRÍD — Stjórnvöld í Mið- I baugs-Guineu (áður spænsku Guineu) komu upp um fyrir- hugaða byltingartilraun um síðustu helgi er beindist gegn Teodoro Obiang Nguema for- seta. Að sögn spænskra em- bættismanna var byltingartil- raun þessi leidd af ráðherrum, herforingjum og borgurum sem óánægðir voru með ástand efnahagsmála og laun í þessu litla ríki í Vestur-Afríku sem var spænskt yfirráðasvæði fram til ársins 1968. CAGAYAN DE ORO, Filippseyjar - Hermenn stjórnar Corazonar Aquino fundu fjöldagröf þar sem lík að minnsta kosti tuttugu fórnar- lamba dauðasveita skæruliða kommúnista lágu. Þetta var haft eftir höfuðsmanni hersins á Suður-Filippseyjum. NAIRÓBÍ — Stjórnarherinn í Súdan rak á flótta liðsmenn sudanska alþýðuhersins frá hlíðunum kringum flugvöllinn í Juba í Suður-Súdan. PRAIA DA VITORIA - Andrés Bretaprins og Sara kona hans eyddu fyrsta degi brúðkaupsferoar sinnar um borð í snekkju er siglir um Azóreyjar.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.