Tíminn - 25.07.1986, Qupperneq 5
Föstudagur 25. júlí 1986
Tíminn 5
1
UTLOND
lllil'
llliili
Friðarsamningar fyrir botni Miðjarðarhafs:
Lykilatriðin eru
algjörlega óleyst
Fundur Hassans Marokkókonungs og Peresar forsætisráðherra
ísraels árangurslítill
Friðaráætlun sú sem samþykkt
var á fundi Arabaríkjanna árið 1982
og var lykilatriði í viðræðum Flass-
ans Marokkókonungs og Símonar
Peresar forsætisráðherra ísraels
gekk út á það að ísraelar leyfðu
Palestínuaröbum að stofna ríki en
yrðu þess í stað látnir óáreittir innan
landamæra Ísraelsríkis frá því fyrir
sex daga stríðið 1967.
Hassan konungur sagði í fyrra-
kvöld að viðræður sínar við ísraelska
forsætisráðherrann hefðu ekki borið
árangur vegna þess að ísraelsk
stjórnvöld neituðu að viðurkenna
Frelsissamtök Palestínuaraba
(PLO) og að flytja sig frá hernumd-
um svæðum.
Leiðtogar Arabaríkjanna sam-
þykktu þessa friðaráætlun á síðustu
heildarráðstefnu ríkjanna sem fram
fór í borginni Fez í Marokkó í
september árið 1982.
Samþykkt áætlunarinnar var á
þessum tíma álitinn mikill sigur fyrir
hófsöm Arabaríki og hún naut ein-
nig stuðnings Sýrlendinga og PLO.
Hassan konungur, gestgjafinn í
Fez, sagði eftir þessa ráðstefnu að
samþykktin hefði gert Arabaríkin
Noregur:
Hugað að viðskipta-
banni á S-Afríku
Osló-Reuter
Ríkisstjórn Verkamannaflokks-
ins í Noregi hefur tryggt sér meiri-
hluta á þingi til að koma í gegn
algjöru banni á viðskipti við Suður-
Afríku og eru þar meðtaldar um-
deildar ferðir norskra skipa til
landsins með olíu.
Haraldur Synnes, leiðtogi
þingmanna Kristilega þjóðar-
flokksins sem eru í stjórnarand-
stöðu, sagði í útvarpsviðtali í gær
að flokkur hans myndi styðja tillög-
ur minnihlutastjórnar Verka-
mannaflokksins um algjört við-
skiptabann á Suður-Afríku.
„Við getum ekki haft sérstaka
hagsmuni Norðmanna einungis í
huga þegar hið hörmulega og
versnandi ástand í Suður-Afríku
er skoðað,“ sagði Synnes.
Gro Harlem Brundtland sagði
fréttamönnum í fyrradag að ríkis-
stjórn landsins ynni nú að reglu-
gerð þar sem leitast væri við að
hætta öllum viðskiptatengslum við
Suður-Afríku. Tillaga um þetta
efni verður líklegast borin fram á
þingi í haust.
að einni þjóð sem byggð væri upp af
sama fólkinu.
Friðaráætlunin hlaut hinsvegar
engan hljómgrunn hjá ísraelskum
og bandarískum stjórnvöldum.
Stjórnir beggja þjóðanna hafa neitað
að ræða við leiðtoga PLO um friða-
rsamninga nema PLO viðurkenni
opinberlega rétt Ísraelsríkis til að
vera til í þessum héimshluta.
Lykilatriðin í friðarviðræðunum
fyrir botni Miðjarðarhafs eru því
enn óleyst. Viðræður Hassans og
Peresar breyttu ekki neinu þar um
en stjórnmálaskýrendur töldu þó
margir að þær hefðu virkað sálfræði-
lega hvetjandi á aðila í þessum
heimshluta um að ræða málin sín á
milli.
Sovéskur ráðherra:
Bretland:
Hundagjald
fellt niður
Lundúnir-Kcuter
Bresk stjórnvöld hafa ákveðið
að fella úr gildi gjald það sem
greiða þarf nteð hverjum hundi í
landinu og hefur verið í gildi síð-
ustu 108 árin. Raunar hafa fæstir
hundaeigendur hirt um að greiða
þetta gjald á undanförnum árum.
Nicholas Ridlcy umhverfismála-
ráðherra Bretlands sagði þinginu
frá þessari ákvörðun nýlega og lét
þess getið að lög um gildisfellingu
gjaldsins yrðu sett „þegar hentugt
tækifæri býðst". Stjórnvöld hafa
velt þessu máli nijög fyrir sér á
undanförnum mánuðum.
Gjaldið var sett á árið 1878 og
hefur ekki hækkað síðan, er sem
samsvarar um 25 krónur íslenskar.
Kostnaðurinn við að innheimta
gjaldið er mun meiri en upphæðin
sem kemur inn í ríkissjóð vegna
þess.
Að sögn embættismanna er ekki
Brcskum hundum er náttúrlega
alveg sama .hvort Ieyfisgjaldið
verður fellt niður eða ci. Ekki
borga þeir.
borgað fyrir rúmlega helming af
þcim scx milljónum hunda sem í
Bretlandi hafast við.
Nútímasósíalismi
nú í Sovétríkjunum
Vín-Reuter
Mikhail Gorbatsjov Sovétleiðtogi
hefur fært landsmönnum sínum nú-
tíma sósíalisma þar sem viðurkcnnt
er að hver og einn hafi rétt til að
vinna sér inn mikla peninga. Þetta
var haft eftir Anatolí Adamischin
aðstoðarutanríkisráðherra Sovét-
ríkjanna í blaðaviðtali í gær.
Pað var austurríska dagblaðið
Kurier sem viðtalið tók við ráðherr-
ann og sagði hann þar að sovésk
stjórnvöld hefðu á síðustu árum gert
mistök sem hefðu komið í veg fyrir
Irland:
Fólki fjölgar þótt
margirflytji brott
Allt kökaln hér (
í gegn og ekkert
múður!
" \
‘í®jKES
Dyflinni-Reuter
Fólksfjöldi á írlandi hefur aukist
og er nú kominn rétt yfir 3,5
milljónir þrátt fyrir að fólk flytjist
búferlum frá landinu í miklum
mæli á ári hverju.
Tölur um þetta efni sem gefnar
voru út í gær sýna að fólksfjöldinn
í apríl síðastliðnum var 3.537.000
manns. Það þýðir að í landinu búa
nú tæplega 94 þúsund fleiri ein-
staklingar en árið 1981 þegar síð-
asta manntal var tekið.
Tölur þessar sýndu einnig að um
75 þúsund fleiri manns hafa yfirgef-
ið landið en flutt inn í það á síðustu
fimm árum. Búferlaflutningar frá
írlandi eru þó minni núna en á
fimmta og sjötta áratugnum.
Aldrei hafa fleiri flust frá írlandi
en í lok fimrnta áratugsins þegar 42
þúsund einstaklingar fóru í burtu á
ári hverju.
að árangur næðist. Mistök þessi
sagði ráðherrann vera hugmynda-
fræðileg.
„I gamla daga var sá sem vildi
vinna scr inn mikla pcninga álitinn
vera að svíkja sósíalíska hugmynda-
fræði," sagði Adamischin cn bætti
við að nú til dags gæti sá sem ynni
fyrir sér á heiðarlegan hátt einnig
unnið sér inn mikla peninga.
Ráðherrann var spurður hvernig
þctta færi saman við lögmál sósía-
lismans um jafnræði. Hann svaraði:
„Jöfnun tekur í burtu alla sköpun!
Fólk vinnur hrcinlcga ekkert af viti
cf það svo cndar á sama plani eins
og allir aðrir."
Adamischin sagði þó að Gorbat-
sjov og stjórn hans ynni ekki að
minni sósíalisma heldur meiri," .. .en
í nútímamynd".
Bandaríkjaher á nú að hjálpa lögreglunni í að grípa eiturlyfjasmyglara við
suðurlandamærin. Suinir segja að það veiti ekki af.
Fréttaskýring:
Varahlutir í
dráttarbeisli
Herjað á eiturlyf
Washington-Reuter
Reagan Bandaríkjaforseti og
stjórn háns hafa lýst yfir stríði á
hendur þeim sem selja og neyta
kókaíns og annarra ólöglegra eitur-
lyfja. Stjórnin hefur einnig gefið í
skyn að hún sé reiðubúin til að senda
hernaðaraðstoð til erlendra ríkja til
hjálpar í baráttunni við eiturlyf.
Heimildarmenn innan varnar-
málaráðuneytisins bandaríska telja
þær sex þyrlur og 160 manna lið sem
sent var til Bólivíu í síðustu viku
vera einungis fyrstu aðstoðina í bar-
áttunni við eiturlyfjasmyglara og
sölumenn.
Bandaríska herliðinu í Bólivíu,
sem telur allt frá kokkum til vél-
byssuhernianna, hefur verið skipað
að nota ekki vopn af fyrra bragði í
þessu áður óþekkta samstarfi við
lögregluna í Bólivíu.
Stjórnvöld í Hvíta húsinu hafa
verið dugleg við að benda á að stjórn
Bólivíu hafi beðið um þessa aðstoð
og eftir að Reagan Bandaríkjaforseti
tilkynnti í síðasta mánuði um aukinn
þátt hersins í baráttunni gegn eitur-
lyfjum gæti svo farið að hersveitir
Bandaríkjamanna birtust innan
skamms í öðrum ríkjum rómönsku
Ameríku.
Reagan og stjórn hans hafa gert
eiturlyfjamálið að málefni er varðar
þjóðaröryggi. Það var gert vegna
mikils þrýstings frá Bandaríkjaþingi.
Alfonse D’Amato, öldungadeiidar-
þingmaður Repúblikana frá New
York ríki, leiddi hinn breiða hóp
þingmanna sem vildi fá herinn til
hjálpar gegn eiturlyfjasmyglinu inn í
landið og sölunni í landinu.
Stjórnin fór fram á við þingið í
síðasta mánuði að fá 200 milljón
dollara fjárveitingu til reksturs á
leitarflugvélum og öðrum tækjum
við suðurlandamærin en þar fara í
gegn mörg tonn af kókaíni og öðrum
eiturlyfjum á ári hverju.
Stjórnmálamenn í Bólivíu hafa
hinsvegar margir hverjir harðlega
gagnrýnt Bandaríkjastjórn og telja
hana vera að hlutast til um innanrík-
ismál í landinu. Þá ber þess að geta
að margir íbúar Bólivíu líta alls ekki
á ræktun kókalaufsins og sölu sem
glæpsamlegt lífsviðurværi heldur sé
hér um vandamál Bandaríkja-
manna að ræða þar sem eftirspurn
eftir kókaíni sé þar langmest.
Lítill samstarfsvilji íbúa landa á
borð við Bólivíu er þó ekki eini
Þrándur í Götu hernaðaraðstoðar
Bandaríkjamanna í baráttunni gegn
eiturlyfjasölu á þessu svæði. Það er
nefnilega nokkuð vel þekkt stað-
reynd að margar ríkisstjórnir ríkja
rómönsku Ameríku eru mjög flækt-
ar inn í eiturlyfjaútflutning frá svæð-
inu til Bandaríkjanna.
ágóðu verði
véWM&
^JOÍMIUSMHF
Jámhálsi 2 Simi 83266 TIORvk.
Pösthólf 10180