Tíminn - 26.07.1986, Side 10
10 Tíminn
FERÐABLAÐ TÍMANS
FERÐABLAÐ TÍMANS
Tíminn 11
Saurbæjarkirkja i Eyjafirði. í Saurbæ bjó Einar Þveræingur er hann átti í deilum við Víga-Glúm.
GASGRILLIN
4l
komin
aftur
3
stæröir
&
wm fe%
Vönduð vara
á vægu verði
BÚSTOFtL
• Smiðjuvegi 6, Kópavogi símar 45670 — 44544.'
Norræn tru
í Eyjafirði
Um leið og við ætlum að
skyggnast eitt augnablik inn
Eyjafjörðinn, þá ætlum við
leiðinni að skyggnast ögn inn
trúarheim forfeðra okkar, þeirra
er aðhylltust norrænan átrúnað.
Okkur til leiðsagnar fengum við
Jón Hnefil Aðalsteinsson sem
nokkuð hefur rannsakað
norrænar leifar norræns átrún-
aðar er birtist í íslendinga-
sögunum. Við gefum Jóni því
orðið.
Landnáms-
■ ■■
jorðm
Kristnes
Þegar farið er frá Akureyri í
Eyjafjörðinn að vestanverðu, þá
verður fyrir hver sögustaðurinn
öðrum merkari. Fyrst er komið
að Kristnesi sem er landsnáms-
jörð Helga magra og fyrsti bær
sem sögur fara af í Eyjafirði.
Helgi magri nam Eyjafjörðinn
eins og kunnugt er reisti bæ
sinn og kallaði í Kristnesi, en
Helgi var með þeim undaríega
herki gerr, að hann var það sem
kallað er blendinn í trú, hann
trúði bæði á Krist og Þór. Hann
átti nú til þeirra að telja að hann
haföi alist upp við hvorntveggja
siðinn. Það er þó ekki svo að sjá
að kristni hafi haldist í ætt Helga,
enda er í Landnámubók greint
frá því að þeir kristnu landnáms-
menn sem hér settust að hafi
ekki nema sumir haidið trú sína
til dauðadags. Sumir þeirra hafi
reist hof og blótað „og land var
alheiðið nær hundruð vetra“
eins og segir í Landnámu.
Sonur Helga reisti bæ á Þverá
og sögur eru um að hann hafi
haft þar hof. Þetta var mjög
eðlileg þróun því að til þess að
geta tekið fullan þátt í stjórn
landsins og átt aðild að málum,
þá urðu menn að játa hin fornu
norrænu trúarbrögð. Þess
vegna virðist þessi litla kristni
sem hér kom með landnáms-
mönnunum hafa lagst niður.
Hrafnagil
Nú ef við höldum áfram inn
dalinn þá verður næst fyrir hinn
merkilegi sögustaður Hrafnagil
sem er fornt höfuðból. Þar var
Þorgils skarði veginn laust eftir
miðja 13. öld og á Hrafnagili
hafa setið margir merkis prestar
á síðari öldum. Jón Arason for-
faðir allra Islendinga, síðar
COMBI CAMP er lausnin að vel-
heppnuðu sumarleyfi, veiðiferð eða
heimsókn til fjarstaddra vina og
vandamanna.
COMBI CAMP er ein fljótlegasta
lausnin á tjöldun er býðst. Aðeins 15
sek.
COMBI CAMP hefur trégólf í svefn-
og íverurými er dregur úr jarðkulda
og raka.
COMBICAMP
biskup á Hólum, var þar prestur
um skeiö. Af merkisprestum í
seinni tíð er svo Jónas Jónas-
son, rithöfundur og fræðimaður.
Hann var upphafsmaður ís-
lenskra þjóðfræðirannsókna og
hefur með réttu verið kallaður
fyrsti þjóðfræðingur íslendinga.
Fjúka höfuð
Þegar komið er innar í dalinn
þá verður fyrir stórbýlið Grund,
sem er eitt mesta og sögurík-
asta höfuðból í Eyjafirði. Á Sturl-
ungaöld bjó Sighvatur Sturluson
á Grund og fleiri þeirra
Sturlunga. Sighvatur lagði upp
frá Grund er hann fór í sína
síðustu för þegar hann féll með
sonum sínum við Örlygsstaði í
Skagafirði árið 1238. Fleiri merk-
ismenn hafa gert garðinn fræg-
an að Grund.
Grundar-Helga var þar á 14.
öld. Það var hún sem bruggaði
Smiði Andréssyni hirðstjóra og
Jóni Guttormssyni skráveifu,
banaráð með Grundarbardaga.
Hún bauð þeim heim og veitti
þeim vel meðan hún safnaði fiði,
lét svö fara að þeim og drepa
þá. Það er nú sögn sem segirfrá
því að höfuðið af Smið hafi
hrokkið ofan í mjólkurtrog og
einhver griðkona hafi ætlað að
hella niður mjólkinni, þá hafi
Helga sagt: „Þaö er óþarfi, það
má altént nota þetta handa kálf-
unum.“
Af öðrum merkiskonufn sem
búið hafa á Grund, þá má nefna
sérstaklega Þórunni dóttur Jóns
Arasonar sem bjó þar við mikinn
skörungsskap. Frá hennar tíð
eru Grundarstólar, en annar
þeirra er nú í Þjóðminjasafninu.
Víga-Glúmur
Þegar kemur inn að Saurbæ,
þá rifjast upp fyrir okkur Víga-
Glúms saga. Þar bjó Einar
Þveræingur áður en hann gat
hrakið Víga-Glúm af Þverá. í
Saurbæ er torfkirkja sem var
byggð 1858 og er friðlýst. Þar
var einnig munka klaustur um
þrjátíu ára skeið nálægt 1200.
Víga-Glúms saga er ein af
merkustu Islendingasögunum,
ekki síst fyrir þá sök að í henni
er svo mikið af gömlu trúar-
sögulegu efni sem virðist vera
merkilega lítið mengað af við-
horfum og meðferð sagnaritara
eftir að kristni vartekin í landinu
En Víga-Glúmssaga fjallar um
Víga-Glúm sem var fæddur og
uppalinn á Þverá. Þótti nú ekki
mikill fyrir sér í æsku og var einn
af þessum svokölluðu kolbítum
og þótti ekki vænlegt mannsefni
framan af. En hann fór svo í
heimsókn til móðurafa síns sem
hét Vigfús og bjó í Voss í
Noregi. Þar rættist verulega úr
honum og sór hann sig í móð-
urættina með því að drepa einn
bersek mikinn og ójafnaðar-
mann. Segir skemmtilega frá
því hversu lítils viröi hann var
hjá afa sínum þangað til hann
drap berserkinn, en eftir það var
hann hærra settur.
Freysdýrkun
á Þverá
Á Þverá var hof sem var
helgað guðinum Frey, enda er
eðlilegt að það sé Freysdýrkun
í sveit eins og Eyjafirði. Þar er
frjósemin á hverjum bæ áber-
andi, gróður meiri en í öðrum
héruðum. Á Þverá var auk þess
akur sem var sérstök helgi á
Hann var kallaður Vitaznjafi sem
þýðir sá sem aldrei brenst, sá
sem gefur ákveðinn ávöxt.
En þó Glúmur hafi komið úr
samfélagi bænda og Freysdýrk-
enda, þá tók hann í Noregi upp
háttu skálda og vígamanna og
hóf að dýrka Oðinn. Hann lét
ekki þar við sitja, heldur tók að
óvirða Frey með ýmsu móti og
gera honum móti skapi, van-
helga helgidóma Freys. Hann
vegur mann á akrinum Vitaz-
gjafa, mann sem að vísu hafði
haft í frammi ofstopa í garö
hans og móður hans, en vígið
var samt sem áður rakin helgi-
spjöll á akri Freys. Þorkell faðir
Sigmundar þess er Glúmur vó,
þurfti síðan að hrökklast frá
Þverá, en áður en hann fór þá
gekk hann til hofs Freys og
ieiddí þangað uxa einn gamlan
og mælti svo? „Freyr, lengi hef
ég fulltrúi þinn verið og margar
gjafir af þér þegið,.nú gef ég þér
þennan uxa til þess að Glúmur
fari eigi ónauðgari frá Þverá en
ég fer nú, og láttu sjá þess
nokkrarjarteiknirhvortþú þiggur
eður eigi.“ En uxanum brá svo
við að hann kvað við og dettur
niður dauður. Þá var Þorkell
hughægara því honum þótti
niður dauöur. Þá var Þorkeii
fór svo til Mývatns og er úr
sögunni. Freyr varð þó eftir og
heldur áfram andæfinu gegn
Glúmi fyrir Þorkel.
Kaupfélag Austur-Skaftfellinga
velkomið í þjómistustöðvar sínar
á fegurstu áningarstöðum landsins
Þjonustumiðstöðina l Skaftaf zlli’. Verslun - Veitingar - Bensín, olíur o.fl.
Fagurholsmyri: Alhliða verslun - Bensín, olíur o.fl.
Nesjum: Alhliða verslun - Bensín, olíur o.fl.
' €S CP11! Q \T S111
.dllaifíllsa Y »111
Kaupfélag Austur-Skaftfellinga
Höfn - Skaftafelli - Fagurhólsmýri - Nesjum
Benco hf
Bolholti 4. Sími: 91 -21945.
f
%
Verðkr. 135.000
Staðgreitt
COMBI CAMP hefur góöa lokun á
öllum samskeytum vagns og tjalds
er eykur enn á notagildi við erfið
skilyrði.
COMBI CAMP er rúmur og þægilegur
fjölskylduvagn er hentar vel til ferða-
laga hvar sem er.
COMBI CAMP er á hagstæðu verði
og kjörum. Hafið samband. Sjón er
sögu ríkari.
COMBICAMP
Verð kr.
121.500
Staðgreitt