Tíminn - 26.07.1986, Blaðsíða 14

Tíminn - 26.07.1986, Blaðsíða 14
14 Tíminn FERÐABLAÐ TÍMANS Kýrin Drangey og Kerlingin. Eitt sinn skal hver deyja Einn af örlagaríkustu bardög- um íslandssögunnar var háöur að Örlygsstööum í Blönduhlíö 21. ágúst árið 1293 þegar Ás- birningar og Haukdælir unnu sigur á Sturlungum. Þar féllu rúmlega fimmtíu manns. Þá kvað Þórir jökull á dauðastund- inni hin fleygu orð: Upp skaltu á kjöl klífa, köld er sjávardrífa. Kostaðu huginn að herða, hér muntu lífit verða. Skafl beygjattu, skalli þó at skúr á þik falli. Ást hafðir þú meyja. Eitt sinn skal hver deyja. Auðvelt er að finna þennan sögufrægastað. Hanneraðeins um fimm mínútna gang frá þjóð- veginum, en við hann skammt frá Víðivöllum er vegvísir er sýnir leiðina. Grettir Ásmundarson Drangey er þó í raun mynduð úr móbergi og stendur hún u.þ.b. 180 metra þverhnípt upp úr Skagafirðinum. Aðeins er hægt að klífa hana á einum stað, þar heitir Uppganga. Fræg er dvöl Grettis Ásmundarsonar í Drangey. Þar dvaldi hann með llluga bróður sínum í þrjú ár þar til hann var veginn. Eitt mesta afrek Grettis var Drangeyjar- sundið, en hann synti í land eftir eldi, eins og frægt er. Um Gretti má lesa í Grettissögu. Upphaf Drangeyjar I Þórðarhöfða í Skagafirði sem hefir 150 faðma háa sjóar- hamra bjuggu forðum kall og kelling sem voru nátttröll, og áttu þau eina kú sér til bjargar. Eitt sinn bar það til eina nótt að kýrin var að yxna, en þá var ekki naut við hennar hæfi nær en í Tindastól hinum megin fjarðar- ins. Fóru þau þá á stað með kúna og óðu skemmstu leið yfir fjöröinn, en það er um fjórar vikur sjóar, og héldu henni undir bolann úr Tindastól. Héldu þau svo sömu leið til baka. En þegar þau voru valla komin á miðjan fjörð dagaði þau uppi, og urðu þau þá að steini á firðinum og kýrin með og sjást þau þar enn í dag. Kýrin er Drangey, en kallinn stendur norðan til, en kellingin sunnan og vestan til. Svo hljóðar þjóðsagan um tilurð Drangeyjar. Að vísu er karlinn nú fallinn í hafið, en kýrin Drangey og Kerlingin standa enn á sínum stað og munu gera það um ókomna framtíð. Einhvers staðar verða vondir að vera Frá örófi hafa Skagfirðingar haldið út í Drangey að vorinu og ALLT FYRIR VEIÐIMANNINN Daiwa Eigum fyrirliggjandi stangir og veiðihiól frá I ° b J Daiwa Sports Ltd. Einnig allar aðrar veiðivörur: Spúna — flugur — h'nur — veiðivesti — vöðlur — bússur — flugnanet — veiðihatta. ALLT í ÚTILEGUNA Tjöld 3,4,5 og 6 manna. Tjaldhimnar — svefnpokar — borð — stólar — útigrill — grillkol og m.fl. Opið laugardaga frá9-12. EYFJÖRÐ Hjatteyrargötu 4, ami 96-22275. sigið þar í björgin eftir eggjum. En hún hefur tekið sinn toll, fjöldi manns hefur farist þar við eggja- töku. Svo mikið bar á því á dögum Guðmundar biskups góða, að hann hélt út í eyna til að vígja björgin. Sagt er að hann hafi haldið messu á kletta- stalli sem er við rætur Upp- göngu. Heitir þar síðan Gvend- araltari og hafa menn ætíð hald- ið þann sið að biðja þar bænar áður en haldið er upp á eyna. Guðmundur seig víða í bjargið og vígði það, en er hann var langt kominn kom loppa ein stór bæði grá og loðin með rauða ermi út úr berginu og heldur á stórri skálm og biturlegri er hún bregður á festina sem biskup var í og tekur hún þegar í sundur tvo þætti festarinnar; en það vildi biskupi til lífs að skálm- in beit ekki á þriðja þáttinn því hann var þaulvígður. (því heyrir biskup rödd úr berginu segja: „Vígðu nú ekki meira Gvendur biskup; einhversstaðar verða vondir að vera“. Biskup hætti þá að vígja og hefur þessi hluti bjargsins verið óvígður æ síðan. Heitir hann Heiðnaberg og er aldrei sigið í þann hluta Drang- eyjar. Á Örlygsstöðum fór fram ein örlagaríkasta orrusta íslands- sögunnar. Þar voru vegnir yfir fimmtíu menn. Fáir kunna í góðu veðri heiman að búa - örfá minnisatriði fyrir ferðalagið Hér í eina tíð lögðu menn upp í langferðir með nesti og nýja skó. Nú á tímum er það fleira sem þarf að huga að. Ef farið er á einkabílnum þá þarf að fullvissa sig um að blessað- ur skrjóðurinn sé í góðu standi. Athuga þarf olíu og kælivatn, ganga úr skugga um að vara- dekkið sé með, auka viftureim1 þarf að vera í skottinu og fleiri nauðsynlegir varahlutir. Hvað viöleguútbúnað varðar, þá er gott að yfirfara hann, kannski haföi tjaldið lekið í fyrra, því þarf að kippa í lag, tjaldhælar þurfa að vera með, nægt gas á gastækinu o.s.frv. Gamalt spakmæli segir - fáir kunna sig í góðu veðri heiman að búa - og þótt sól skíni í heiði þá er ekki úr vegi að taka með sér skjólgóðar flíkur og stígvél. Þá er gamla góða föðurlandið ómissandi í öll ferðalög, sérstaklega ef halda á í lengri gönguferðir. Þá þarf skófatnaðurinn að vera góður. Það má svo að lokum minna menn á hinar fjölmörgu sundlaugar um allt land - fátt er meira hressandi á ferðalög- um en að fá sér sundsprett og skola af sér ferðarykið. Takið því sundfötin með!

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.