Tíminn - 26.07.1986, Blaðsíða 19
FERÐABLAÐ TÍMANS
Tíminn 19
börnum sínum sámeiginlega
þungar átölur, sérstaklega þó
Jóni. Eftir hirtingarræöuna gekk
Jón til starfa sinna viö aö gæta
fjár, en kemur ekki heim framar,
hvorki þennan dag né annan.
Leit hófst aö honum en án
árangurs, þar sem fyrirliði
leitarmanna Bergþór að nafni
ákveður aö næsta dag skuli
leita í Tungulæk. Um nóttina
hrekkur Bergþór upp af fasta
svefni og sér þar Jón steyta aö
sér hnefa, ógnarlegan útlits.
Þegar Bergþór ávarpaði hann
hvarf Jón sjónum hans, en kom
ætíð aftur þegar Bergþór hugö-
ist taka á sig náöir.
Daginn eftir var leit haldiö
áfram, og var hani prestsins á
Borg haföur með í förinni. Kom
í Ijós að haninn gól á vissum
staö viö lækjarfljótiö. Þar var
líkiö slætt upp og var eins á sig
komið og Bergþór hafði séö um
nóttina.
Þegar kom að jarðarfarardegi
Jóns voru fengnir sex líkmenn
til aö reiöa kistuna í kirkju.
Gengu til skiptis tveir og tveir af
mönnunum, hvor undir sínum
enda á kistunni til aö létta undir
hestinum, enda yfir mýrarsund
aö fara, alldjúpt á klaka. Sóttist
ferðin því seint. Kom loks aö því
aö hesturinn sligaöist undan
kistunni og voru dagar hans þar
meö taldir. Varö þaö úr aö lík-
mennirnir sex báru kistuna þann
spöl er eftir var að Borg. Svo
undarlega bar til að kistan virtist
þyngjast eftir því sem nær dró
kirkjustaðnum. Því næst kom
aö jarðarförinni og báru sömu
menn kistuna til grafar. Þá gerö-
ist þaö undur aö kistan virtist
ekki þyngri en sem svaraði viön-
um sem í henni var.
Upp frá þessu fór Jón að
ganga Ijósum logum og var
oftast kallaður Lækjar-Jón, en
stundum Brekku-Jón. Aðal-
bækistöö draugsa er í kringum
hylinn sem hann drekkti sér í og
sáu ferðamenn og smalar hann
þar iðulega. Mest voru brögö aö
því þegar menn villtust vegar
og komu aö læknum. Mörgum
varö þá skyndilega illt og uröu
að leggjast fyrir. Leið þá venju-
lega ekki á löngu þangað til þeir
sáu draugsa greinilega. Varö
þaö þá fangaráð aö vísa honum
þangað sem hæfir, og leystist
hann þá upp fyrir augum þeirra,
oft í eldglæringar. Fyrir kom aö
menn heilsuðu Jóni í dimmu í
þeirri trú að lifandi maöur væri.
Ef menn tóku ofan höfuðfatið
átti Lækjar-Jón það til aö taka
ofan hausinn á móti.
Margar sögur fara af glettum
Jóns, en heldur hefur þeim
fækkaö á síðustu áratugum. Þó
vita menn ekki betur en aö hann
sé enn á sveimi í kring um
Tungulæk. Ef þið veröið vör viö
Jón á ferðalagi ykkar, þá má róa
ykkur meö því aö hann hefur
aldrei oröiö valdur aö manntjóni.
Ertu á ferðinni?
Hér á Húsavík er ýmislegt að sjá og skoða — kirkja,
safnahús, skrúðgarður, sjónskifa á Húsavíkurfjalli í 417 metra hæð
og svo iðandi mannlífið með trillum og togurum.
Þjónusta við ferðamenn:
Hótel, sundlaug, tjaldstæði og bifreiða- og hjólbarðaverkstæði.
Frá Húsavik er aðeins spölkorn til Mývatns, Ásbyrgis, Dettifoss,
Hljóðakletta, Goðafoss og annarra fagurra staða.
Á Húsavík er stærsta ferðamannaverslun í Þingeyjarsýslu, Naustagil.
í Naustagili færðu nestið:
öl, gosdrykki,
sælgæti
ávaxtasafa
brauð.kex,
pylsur
hamborgara
samlokur
harðfisk
mjólk, skyr
rjóma, smjör, jógúrt
dagblöð, filmur o.fl.
bensin
oliur
gas, gasfyllingar
grill, grillkol o.fl.
Úrval — gæði
Ath. ókeypis kort af Húsavík
— þjónusta, miðsvæðis í Þingeyjarsýslu
Olíusala K.Þ. Naustagil
Héðinsbraut 2, Húsavík, Simi: 96-41444
KAUPFELAG SAURBÆINGA
SKRIÐULANDI
veitir almenna verslunarþjónustu og hefur auk þess opna ferðamanna-
verslun á kvöldin og um helgar. Við seljum m.a. allskonar ferðavörur,
samlokur, sælgæti, öl og gosdrykki að ógleymdu brauði, mjólk og ís.
ESSO-þjónusta — Við erum í þjóðbraut — Hjólbarðar — Þvottaplan