Tíminn - 03.08.1986, Page 6

Tíminn - 03.08.1986, Page 6
6 Tíminn SKRÆLINGJAR TUGGÐU COCALAUFIN. Hungur og þorsti hverfa við neyslu kókaíns og eifið- isvinna verður mönnum létt- bærari. I laufblöðunum eru kalk, fosfór, A, B og E víta- mín. Sunnudagur 3. ágúst 1986 Kókaín Grasið sem í Perú lifa 30.000 fjölskyldur á ræktun kókajurtarinnar. Á Vesturlöndum verða hundruð þúsunda að aumingjum eða deyja vegna neyslu þessarar sömu jurtar. Lífshættulegt kók- aínið streymir inn í löndin og læknarnir eru farnir að óttast að þetta eiturlyf verði mesti vandi næstu áratuga. Þar sem fyrir 10 árum voru gerð upptæk fáein grömm þar finnur nú lögreglan eitrið í kílóa- tali hjá eiturlyfjaneytendum og sölumönnum kókaínsins. Efnið er rándýrt, nálægt 15 þús. ísl. kr. grammið. Ekki láta neytendur þess það á sig fá. Áhrif eitursins valda því að neytandanum finnst hann. vera öllum snjallari. Einstakir hópar fólks lifa í þessari blekkingu þangað til hið óraunverulega ástand verður fastur þáttur í daglegu lífi þeirra. Einkum er það efnað fólk sem byrjar á að reyna eitrið. í þess- um hópum eru gjarnan þeir ungu, fallegu og ríku, sem skemmta sér á diskótekum og telja sig meðal listamanna. En kókaínið er á engan hátt meinlaust heldur er það hræði- lega vanabindandi. Læknar hafa miklar áhyggjur vegna hins sí- vaxandi fjölda sem er orðinn geðveikur vegna ofnotkunar kókaíns. í>ó hefur þetta eitur ýmsa kosti, ef kosti má kalla, sem eru þekktir meðal fólks sem ekki er í hinum venjulegu ræfla- hópum þeirra sem eru orðnir eiturætur. Kókaínið hefur ekki sömu annmarka og t.d. morfín og heróín. Kókaín er hægt að taka í nefið, þar þarf ekki dælur sem spýta beint í æð. Kókaín er hvítt duft úr litlum kristöllum. Þessvegna kalla eit- urætur efnið sín á milli snjó. Það er lyktarlaust en beiskt á bragðið. Kókaíninu er oft smyglað frá Bólivíu, Cólumbíu og Perú til Amsterdam. Þaðan er eitrinu dreift um allt. Mesta hætta sem fylgir kókaíni er hve vanabindandi það er, þó þess hafi ekki verið neytt nema skamman tíma. Vanabindandi þýðir að neyt- andinn þykist alls ekki geta án eitursins verið og áhrif þess verða honum lífsnauðsyn sem hann svífst einskis við að full- nægja. Honum finnst víman vera hið eina sem er nokkurs virði. BÆNDUR í PERÚ VIÐ „SNJÓUPPSKERU. Perú, Bólivía og Kólumbía anna allri eftirspurn Bandaríkj- anna eftir kókaíni. í Perú er uppskera coca-laufanna mest.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.