Tíminn - 03.08.1986, Side 12

Tíminn - 03.08.1986, Side 12
12 Tíminn Sunnudagur 3. ágúst 1986 Velflestir sem eitthvað þekkja til italíu kannast við borgina Verona og er hún þá qjarnan tengd sögninni um Rómeó og Júlíu, sem Shakespeare gerði ódauðlega með samnefndu leikriti sínu. Borqin er þó ekki eingöngu fræg fyrir að vera sögusvið Rómeó og Júlíu heldurog fyrir hinafrægu óperuhátíð sem fram fer I hringleikahúsinu Arena di Verona. ARENA °l VERONA. LA FANCIULLA DEL WEST eftir Puccini. Söngvurum var annað hvort hampað ogurlega eða píptir niður fyrir smámuni. ANDREA CHÉNIER eftir Puccini í hringleika- húsinu í Verona. Áhorfendur klöppuðu þess- ari sviðsmynd lof í lófa, en töldu sér ofboðið í lok óperunnar, er gosbrunnar hófu að gjósa í harmrænasta þættinum. Arenan sém byggð var af Rómverjum á seinni hluta fyrstu aldar e.kr. var í upphafi notuð til íþróttaiðkana Rómverja, svo sem bardagaleika ásamt frum- skógaleikum og jafnvel leika þar sem Arenan var fyllt af vatni og skip látin berjast. Grimmdin var mikil og þar var barist til síðasta manns undir villtum skrílslátum æsts múgsins. Seinna þegar Rómaveldi fór hnignandi og germanskar þjóðir flæddu yfir Norður-Ítalíu lögðust þessir leikar af og var hringleikahúsið því ónotað um aldaraðir. Friður með Arenunni í frumkristni þótti Arenan henta mjög vel til að krossfesta kristna menn og á miðöldum tóku kirkjufeðurnir svo hring- leikahúsið í notkun til galdra- brenna og annarra nauðsynlegra hluta. Líkt og með Coloseum í Róm varð Arena di Verona fyrir miklum skemmdum á þessum árhundruðum og er þá helst um að kenna hversu miklu var stolið af marmara úr Arenunni. Marmaranum var stolið til að byggja hallir og allskyns minn- isvarða og má þekkja hann í mörgum af merkustu minjum borgarmnar. A miðöldum fór hringleikahúsið einnig mjög illa út úr jarðskjálfta og hrundi þá meginhluti ytri hrings hússins og einnig nokkuð af þeim innri. Gert var við innri hringinn en ytri hringurinn var svo illa farinn að ekki var hægt að gera við hann. Á nítjándu öld byrjaði ferðamannastraumurinn að auk- ast til Ítalíu og vildu ferða- mennirnir gjarna hafa með sér eitthvað til minja. Brutu þeir þá gjarnan smástein af hringleika- húsinu og höfðu með til síns heima. Fólk fór að gera sér grein fyrir mikilvægi Arenunnar og þá aðallega með tilliti til þess hvað ferðamönnum þótti hún merki- leg. Fór svo að lokum að hún var friðlýst. „Celeste Aida“ Árið 1913 fékk tenórinn Gi- ovanni Zenatello frá Verona þá stórkostlegu hugmynd að prófa hljómburðinn í hringleikahús- inu með tilliti til óperuflutnings. Tenórinn sem var nýkominn frá Bandaríkjunum eftir glæstan söngferil hóf upp rödd sína og söng aríuna „Celeste Aida“. Röddin magnaðist í þessari feiknastóru höll sem áður hafði fengið að heyra sársaukavein skylmingarþræla og angistaróp krossfestra og galdrabrenndra. ■1 I

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.