Tíminn - 03.08.1986, Qupperneq 7

Tíminn - 03.08.1986, Qupperneq 7
Sunnudagur 3. ágúst 1986 Tíminn 7 KÓKAÍNFRAMLEIÐSLA SUÐURAMERÍKU er u.þ.b. 200 tonn á ári. Þar af kaupa Bandaríkin 100 tonn, en Evrópa og Kanada samtals um 50 tonn. Afganginn nota skrælingjarnir sjálfir, eða selja til lyfjaframleiðslu og rannsókna. Hver bóndi fram- leiðir ekki á stóru svæði, enda hefur hann úr krafsinu 300 Bandaríkjadali á hektara. Smápöddur skríða undir hörundinu Þegar eiturvíman fer að réna hjá neytandanum finnst honum alger nauðsyn að fá meira. Vím- an stendur vanalega í einn til tvo klukkutíma. Hugsun eituræt- unnar snýst nú ekki um annað en að ná sér í nýjan skammt. Kókaín dregur úr matarlyst og eiturætur megrast og missa þrótt. Þegar eitursins hefur verið neytt vikum eða mánuðum sam- an fara að koma fram geðveikis- einkenni. Þessir aumingjar hafa vakið athygli læknanna á hættu kók- aínsins því að alltaf fjölgar slík- PERÚ VILL KOMA í VEG FYRIR KÓKAÍN- FRAMLEIÐSLU. Með fjárstuðningi Bandaríkjanna greiðir stjórn Perú fyrir að ekrurnar verði ónýttar. En borgarherinn verður að vernda atvinnu starfsmannanna og bændanna. um sjúklingum á geðsjúkrahús- unum. Kókaínvíman veldur óhugn- anlegum ofsjónum og hræðslu- köstum. Algeng er sú meinloka að smápöddur séu að skríða undir hörundi sjúklingsins. Sumir verða alteknir ofsóknar- brjálæði og sjálfsmorð eru ekki sjaldgæf. Mjög erfitt er að lækna þetta, jafnvel örðugra en að fást við morfínsjúklinga. Ákaflega erfitt er að hjálpa þessu fólki, því að það vill heldur búa við eiturvím- una en að lifa í heilbrigðu á- standi. Kókaín veldur kynferðislegri fullnægju Kókaínið er notað á ýmsa •vegu. Algengast er að taka það í nefið. Líka er hægt að dæla því í æð og þá verkar eitrið á stundinni. Ef það er étið þá koma áhrifin ekki fyrr en eftir minnst hálftíma. Þegarkókaínið er tekið í nefið koma áhrifin svo til undireins. Neytandanum finnst hann verða ákaflega kátur og líði óskaplega vel, nokkurs- konar hrifningarástand. Honum finnst að hann sé öllum sterkari og gáfaðri og glatar allri dóm- greind um sjálfan sig. Kynferðisleg fróun fylgir oft vímunni, einkum ef eitrinu er spýtt í æð. Þegar víman er liðin hjá fylgir ástandinu þreyta og þunglyndi. Hafi eiturlyfjaneytandinn dælt kókaíni beint í æð þá standa áhrifin nálægt fimmtán mínút- um. Þá kemur löngunin í að fá meira til þess að halda áhrifun- um við. Þess finnast dæmi að eiturætan hafi lokað sig inni í herbergi sínu með dælu í æðinni og dælt stanslaust í sig í tvö dægur þangað til allur forðinn var búinn. Til viðbótar við sæluvímuna og hina kynferðislegu fullnægju verða neytendurnir oft eirðar- lausir, þreyta og svengdartilfinn- ing hverfa en eiturætan verður kjaftaglöð, sér ofsjónir og heyrir ofheyrnir. Þar við bætist of- sóknarbrjálæði meðan víman stendur. Sigmund Freud notaði kókaín Kókaínið á sér langa og merkilega sögu. Indíánarnir í Suður-Ameríku hafa tuggið kókablöð í um 1200 ár. Helgi- sagnir þeirra segja frá því þegar sólguðinn gaf þessa undrajurt fátækum og vesælum til þess að forða þeim frá sulti og þreytu og láta þá gleyma eymdarkjörum sínum. Prestar Inkanna notuðu kókaín í helgihaldi sínu. Jafnvel nú á dögum er talið að 20 millj. índíána í Andesfjöllum tyggi' kókablöð til þess að forðast svengd og þreytu. Blöðin eru tuggin með kalkdufti sem losar um eitrið í blöðunum. Maður er nefndur Albert Nie- mann. Hann var efnafræðingur og árið 1860 tókst honum að vinna hreint kókaín. Sigmund Freud, faðir sálkönnunarinnar, fékk áhuga fyrir efninu árið 1884. Hann notaði það til þess að lækna starfsbróður sinn sem var morfínisti. Lækningin tókst að því leyti að maðurinn losnaði við morfínið en varð í þess stað kókaínæta. Að lokum þjáðist hann af ofsóknarbrjálæði. Freud hafði þó mikið álit á kókaíni. Hann mælti með því í ritum sínum og notaði það stundum sjálfur þegar illa lá á honum. Freud ráðlagði lækninum Karli Koller að nota kókaín til stað- deyfingar við uppskurði á aug- um. Þaðanífrá hefur kókaín ver- ið stöðugt notað til staðdeyfing- ar við augna- og eyrnaskurði. Þetta hefur verið eina gagnið sem hægt hefur verið að hafa af kókaíni til lækninga en núna er notkun þess að mestu hætt og önnur efni komin í staðinn, sem ekki hafa eins slæmar aukaverk- anir. Á árunum kringum aldamótin síðustu var kókaín notað í hin og þessi skottulæknislyf og 1892 var það notað í Kóka kóla drykkinn. Eftir fyrri heimsstyrjöld jókst kókaínneysla meðal listamanna og í næturklúbbum en þess gætti lítt á Norðurlöndum fyrr en núna á síðustu árum sem notkun þessa eiturlyfs hefur aukist ískyggilega. I Perú eru um 30.000 kókaín- bændur. Ekki fá þeir mikið fyrir afurð sína, það eru aðrir sem græða. Samt gefur kókaínrækt- un meira af sér en annar búskap- ur á þessu svæði. Giskað er á að meira en 120.000 hektarar séu notaðir fyrir kókaínræktun. Blöðin eru unnin í litlum efna- rannsóknarstofum sem eru vandlega faldar. Afurðin er að mestu leyti flutt til Bandaríkj- anna. Þar er kókaínnotkun miklu algengari en á Norður- löndum. Skýrslur segja að í Bandaríkj- unum séu 15 milljónir eituræta, þar af 30% sem nota kókaín. Þessvegna hafa stjórnvöld í Bandaríkjunum hafið harða baráttu á móti kókaínræktun, enda virðist það vera eina ráðið til að stemma stigu við hinu ógnarlega kókaínsmygli inn í landið. Reynt hefur verið að koma bændunum til að rækta í staðinn kaffi eða kakó en það hefur ekki tekist. Bandaríkjamenn hafa þrýst á stjórnina i Perú að taka fastar á þessu vandamáli. Núna er kókaínökrunum eytt og hverjum bónda greitt 300 dollarar fyrir hvern eyddan hektara. Þó eru sterk öfl sem vinna á móti þess- ari viðleitni stjórnarinnar. Á aðeins þremur mánuðum voru 19 verkamenn drepnir þegar þeir voru að eyðileggja kókaín- akra. Þessvegna verður núna að láta verkamennina njóta her- verndar við vinnu sína. Ameríkumenn nota 10 millj- ónir dollara árlega til eyðingar kókaplöntunnar. Árlega er 600 hekturum af kókajurtinni eytt. Ekki dugir það þó mikið vegna hinna 120.000 hektara af kóka- ökrum sem eftir eru. Varla verður hægt að losna við kókaínræktun fyrr en bænd- unum finnst borga sig betur að rækta eitthvað annað. En á með- an kókaínið verður sífellt dýrara og eftirspurnin eykst þá eru ekki miklar líkur til að þessi vandi leysist í náinni framtíð. Kókaínið notað sem lengdareining Kókaínjurtin hefur latneska nafnið Erythroxylon coca. Hún vex í fjallahlíðum hitabeltis Suð- ur-Ameríku, einkum í Perú og Bólivíu. Jurtin getur orðið yfir tveir metrar á hæð og vex í 500-2000 metra hæð yfir sjávar- máli. í blöðunum er um 1% kókaín og uppskeran er 3-4 sinnum á ári. Þegar blöðin eru tuggin kemst eitrið í blóðið. Á þennan hátt standa áhrifin í um 40 mín. Indíánarnir nota orðið cocada sem tákn um þann vegar- spotta sem þeir geta gengið áður en áhrifin fjara út. Það pr um 2 km á fjallvegum en um 3 km á sléttlendi.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.