Tíminn - 03.08.1986, Qupperneq 19
Sunnudagur 3.ágúst1986
Tíminn 19
- komu eigendunum í klípu
Prjár konur og einn karlmað-
ur hafa verið sektuð um jafnvirði
2300 króna í Wellington á Nýja
Sjálandi, fyrir að kippa niður
unr sig buxunum og opinbera
sitjandann frammi fyrir Elísa-
betu Englandsdrottningu, er
hún var þar á ferð í marsmánuði
sl.
Fyrir rétti var atburðurinn
staðfestur, að Joseph Davies, 32
ára, Ruth Gravy, 21 árs, Su-
zanne Le Robins 21 árs og Rita
Simmonds, 33 ára, hefðu haft í
frammi ósiðsamlegt athæfi við
hátíðleg athöfn, er drottningin
ók fram hjá í heimsókn sinni.
Mótmælin, dæmigerð fyrir
Maori rauðskinna á eyjunni,
sáust ekki frá bifreið drottning-
ar, sagði í dagblaðinu Royal
Aides.
Vikuna þar áður fengu tvær
konur frá Auckland ekki sýkn-
un saka heldur voru dæmdar í
sex mánaða fangelsi fyrir að
henda eggjum í drottningu. Það
er þó huggun harmi stúlknanna
gegn, að þær misstu ekki marks.
ÞJÓFUR í GATI
Jack Bradley í Milwaukee í
Bandaríkjununt upplifði söguna
um músina sem át of mikið og
uppgötvaði sér til skelfingar að
hún kæmist ekki inn í músarhol-
una sína vegna offitu, þegar
kötturinn kom og vildi læsa í
hana klónuni.
Lögreglan, sem- kom aðvt'f-
andi er þjófabjallan í Kjötbúð
Billa hóf að bjalla, fann Bradley,
162 sentimetra háan en 101 kíló-
gram að þyngd, fastan í gati í
veggnum - höfuðið út og botn-
inn inn og komst hann hvergi,
hvorki fram né aftur fyrir sig.
Bradley, sem ekki aðeins er
þéttur á velli, er sjötugur að
aldri. Hann sagði lögreglunni að
hann hefði læðst inn í búðina
eftir lokun, eftir að hafa beðið
færis í tómri íbúð fyrir ofan
búðina. Honum hefði brugðið
við þegar bjallan hringdi og
reynt að þrýsta sér út um gatið í
átt til frelsis - sem, þegar á allt
er Iitið, leiddi í raun til helsis.
BLOÐIDRIFIÐ
BRÚÐKAUP
Brúðkaup í Chile hafði
hörmulegan endi. Gestur í sam-
kvæminu eftir kirkjuathöfnina
neitaði að hverfa á brott er því
var vikið til hans og hefndi sín
með skotárás og særði brúðhjón-
in og fjóra menn aðra, að sögn
nágranna.
Þeir sögðu að vandræðin
hefðu hafist þegar Luis Gonza-
les Perez (hér nafngreindur svo
enginn álpist til að bjóða honunt
í brúðkaupið sitt) ,’svaramaður
brúðhjónanna, neitaði að hverfa
úr samkvæminu eins og hús-
ráðendur óskuðu.
Honum var að lokum varpað
á dyr, en kom skömrnu síðar
aftur vopnaður skammbyssu,
braust inn um útidyrnar og hóf
að skjóta á samkvæmisgesti með
fyrrgreindum afleiðingum.
Talsmaður sjúkrahússins
sagði að brúðguminn og faðir
hans væru þungt haldnir.
Gonzales var handtekinn og
ákærður fyrir vopnaðar líkams-.
árás, - skyldi nokkurn undra.
Vandi í rússn-
eskri hjónasæng
Unglingablað í Moskvu vakti
nýverið athygli á þeim vanda
Rússa, að þeir kynnu lítið til
verka í kynlífi er þeir giftast og
hvernig skuli koma fram við
makann í hjónasænginni.
Moskovsky Konsomolets tel-
ur að ungt lolk hafi orðið fyrir
miklum áhrifum af ólöglegum
klámiðnaði og væri undir þrýst-
ingi vegna þeirrar trúar að það
hefði ekki afl til að standa sig
jafn vel og fyrirmyndirnar, sem
virðast ofurmenni á kynlífssvið-
inu.
„Mörg óþægileg atvik gerast
snemma á æviskeiðinu vegna
þess að drengir og stúlkur vita
ekki hvernig skuli haga sér gagn-
vart andstæðu kyni,“ segir enn-
fremur í unglingablaðinu.
„Jafnvel kemst fólk á gifting-
araldur og eignast fjölskyldu án
þess að vera undir kynlíf búið. “
Með fregninni fylgir sú full-
yrðing að rússneskir drengir geri
sér ekki grein fyrir að vodka
dragi úr kynlífsþrótti þeirra.
Blaðinu finnst kominn tími til
að þessum málum verði kippt í
liðinn.
TIL SÖLU
NOTAÐAR VÉLAR
Deutz Intrack 2004 ’83
M.F. 135 77
I.H. 585 78
Ford 7000 75
Ford 3000 75
Ford County 7704 ’83
Belarus 820 ’83
Höfum einnig á skrá heyvinnuvélar og tæki.
Vantar á skrá nýlegan 50 hestafla Zetor
BOÐI hf
KAPLAHRAUNI 18
220 HAFNARFIRÐI:
S-91.651800
BÆN D U R rr«£9"4
Á OCalfa-laval mjaltakerfum
Um 150 bændur hafa nú notið sérstakrar fyrirgreiðslu
með endurbætur á mjaitabúnaði undanfarna mánuði
MUELLER
ALLT FRÁ SPENA OG ÚT í TANK
EUROPA B. Vl
MJÓLKURKÆLITANKAR
Flestar stærðir fyrirliggjandi
á mjög hagstæðu verði.
VÉLBÚNAÐUR
í FÓÐRUN OG HIRÐINGU
Kjarnfóðurvagn HJÓLKVÍSLAR
VOTHEYSVAGNAR
FLÓRSKÖFUKERFIN
hafa létt mörgum
bóndanum verkin.
ÁRMULA3 REYKJAVIK SIMI 38900
OG KAUPFÉLÖGIN
UM LAND ALLT