Tíminn - 03.08.1986, Síða 17
Sértu íleitaðhinu
ÓVENJULEGA
Ertu búinn að fá þig fullsaddan af því að eyða sumarorlofinu á
sólarströnd eða að skoða borgir í gegn um skítugar rútubílarúður?
Langi þig til að gera eitthvað sem ekki heyrir til hins venjubundna, eru
það góðar fréttir sem Helgar-Tíminn hefur að færa þér. Frændum okkar
í Skandinavíu hefur nefnilega tekist að þyrla upp nokkrum nýjum
áhugaverðum verkefnum fyrir ferðamenn, sem leita hins óvenjulega.
Einna skemmtilegustu orlofsferðirnar eru farnar til auðra túndra í
villihéruðum Lapplands, norður um heimskautsbaug, þar sem Noregur,
Svíþjóð og Finnland yddast.
GULL!
Hvað segirðii um að leita
gulls? Pað er frjálst í fjallasölum
Tankavaara og í Lemmenjoki
þjóðgarðinum í Finnlandi og
meðfram Karasjak ánni í Nor-
egi. Gullleitarpakkinn hefur að
geyma allan nauðsynlegan bún-
að og sérstakan fatnað (m.a.
tjald, klofstígvél o.fl.) og einnig
leyfi til að nota fljótabát eða
eikju. Leiðsögumenn aðstoða
óvana og ókunnuga við að kom-
ast niður flúðirnar að gullleitar-
búðunum.
Ferðamenn sem nú þegar hafa
reist sér ímyndaðar borgir úr
gulli mega samt gera sér grein
fyrir því að hér er ekki á ferðinni
nýtt Klondike. Fundirnir eru
yfirleitt fáar og örsmáar gullflís-
ar, en þó verðlaun fyrir þann
sem vill leggja á sig skemmtilega
ferð út í óbyggðir. Þannig borgar
ferðin sig í öðru en gulli, þar
sem náttúruna má ekki meta til
fjár.
Og þar að auki, - takist ekki
að finna neitt gull - má altént
líta inn á gullsafnið í Tankava-
ara, sem er borg 230 kílómetra
norður um heimskautsbaug. Þar
er alþjóðleg heimsmeistara-
keppni gullleitarmanna haldin
árhvert í byrjun ágústmánaðar.
Finnar hafa einnig komið á
fót hreindýraskoðunarferðum.
Leiðsögumenn eru Samar og
liggur leiðin um óbyggðar sveit-
ir. Þar lærist manni að stjórna
hreindýraeyki og að því námi
loknu fá menn ökuskírteini og
leyfi til að aka sleða eða kerru
með hreindýrum fyrir hvar í
heimi sem vera kann!
ÆVINTÝRI
VID HVERT FÓTMÁL
Fyrir þann sem gjarnan vill
fara áður ótroðna stigu má
benda á að kynna sér Spitzberg-
en, eyju sem liggur miðju vegar
milli Noregs og norðurpólsins.
Um sumrin eru skipulagðar bak-
pokaferðir um jökla, fjöll og
stórkostlega firði eyjunnar, en
það var fyrst árið 1982 sem
ferðamannastraumurinn hófst
að marki þangað. Mörgum vex
ferð þessi í augum, sem þó mun
vera óþarfi, megi trúa ferða-
skrifstofum, - hún líti mun erfið-
ari út á blaði en hún er í raun.
Og ávallt er skip til reiðu til að
flytja menn „í land“ þegar þeir’
óska, eða vilja flýja af eyjunni
eftir fund við hvítabjörn.
í sænska héraðinu Vármlandi
gefst manni kostur á að smíða
sér sinn eigin fleka, líkt og Tom
Sawyer í sögunni, og sigla hon-
um niður Klarelfi, en verkfæri
og timbur útvegar ferðamanna-
þjónustan á staðnum (að sjálf-
sögðu við gjaldi). Sé maður ekki
alveg svo háttstemmdur ævin-
týramaður má eins leigja bát í
Kristjánshöfn í litskrúðugasta
hverfi Kaupmannahafnar.
Helsti skipaskurðurinn þar hef-
ur verið nefndur lengsti bar í
heimi vegna þess að á sumrin
Gullleitarmenn í Finnlandsauðn handan
við heimskautsbaug.
situr venjulega fólk eftir
skurðinum endilöngum beggja
vegna við og teygar bjór.
VEIDIÚTUM
HÓTELGLUGGANN
í Skandinavíu er úr miklu
fleiri gististöðum að velja en
aðeins fjögurra-stjörnu hótel-
um. Lofoten eyjarnar við Noreg
eru fyrir margt spennandi og
skemmtilegar, hrikalegar fjalla-
borgir en mikil náttúrufegurð.
Þar má leigja sér rorbu - veiði-
mannaskála sem hvílir á stultum
yfir vatninu - og kvöldverðinn
má því veiða ferskan út um
gluggann úr hafi. Einnig er hægt
að leigja sér herbergi á bænda-
býlum á Norðurlöndum eða í
kastala eða hefðarsetri. Fjölda
slíkra er að finna í Danmörku
og í Svíþjóð.
Eða kannski langar þig til að
eyða nótt með 15 munkum í 800
gömlu Valamo klaustrinu í
vatnahéraði Finnlands (reyndar
er Finnland kallað þúsund vatna
landið og hví ekki að sigla um
sveitir, hafi menn ráð og dug
til?)
En hámark allra möguleika
ferðamannsins sem leitar hins
óvenjulega er sjálfsagt steinald-
arbærinn í Frostavallen á Skáni
í suðvesturhluta Svíþjóðar. Þar
nærast menn á kosti, svo sem
steinaldarmenn lögðu sér til
munns og þótti ljúfmeti glóðar-
steikt, - þar er leikin steinaldar-
tónlist og sofið í hellum á sama
hátt og forfeður okkar, áður én
vasadiskóin urðu til, fyrir um
4000 árum.
Hvers annars má æskja?
á meðal sjónvarpsstöðvanna til
að gera USFL lífið leitt og reyna
að beina þeim frá því að spila
fótbolta að hausti og vetri til.
Þetta tókst að hluta og þá reidd-
ust forráðamenn USFL og
kærðu NFL til dómstóla fyrir
einokun og yfirgang.
USFL fór fram á að NFL
greiddi þeim 1,6 milljarð, jú,
milljarð dollara, fyrir að eyði-
leggja komandi keppnistímabil
og vildi útskurð réttarkerfisins í
þessu máli.
Til að gera langa sögu stutta
þá komst kviðdómur í New
York að því í gær eftir margra
mánaða yfirheyrslur og mála-
rekstur að það væri rétt hjá
USFL-mönnum að NFL hefði
reynt að koma í veg fyrir að þeir
kæmust inná markaðinn. En í
viðskiptum er það talið ekki
meira en svo óheiðarlegt að
kviðdómurinn dæmdi NFL til að
greiða USFL einn dollar í skaða-
bætur. Þar með er framtíð USFL
í mikilli hættu og alls ekki víst
að deildin spili sína leiki í haust
og reyndar líklegt að hún leggi
upp laupana.
„Þetta var ekkert mál. Ég.
borgaði sjálfur þennan eina doll-
ar og líður vel á eftir,“ sagði
Frank Rothman lögfræðingur
NFL eftir að málaferlunum var
lokið. Það lítur því út fyrir að
allt verði óbreytt í bandaríska
sportheiminum í bili. Fótbolti á
sínum stað og hornabolti á
sínum.
Það er ekki ofsögum sagt af
sambandi viðskipta og íþrótta
hjá Bandaríkjamönnum. Hjá
þeim fer þetta tvennt oft vel
saman. Þannig er það í ameríska
fótboltanum. Liðin sem keppa
eru í eigu ákveðinna manna eða
fjölskyldna og þau eru rekin
sem hvert annað fyrirtæki. At-
vinnumannaliðin hafa hingað til
spilað öll í einni deild sem er
nánast einráða um fótboltann
þar í landi. Þessi deild (National
Football League) ákveður
hvaða lið fái að taka þátt í
keppninni innan deildarinnar.
Þannig hefur deildin verið
stækkuð nokkrum sinnum og nú
eru 28 lið sem spila í NFL. Þau
koma frá rúmlega 20 borgum en
eins og skiljanlegt er þá hafa
mun fleiri borgir og einstakling-
ar haft áhuga á að taka þátt í
þessari deild - enda miklir pen-
ingar í spilinu.
Árið 1983 tóku nokkrir eig-
endur liða ásamt nokkrum borg-
um sig til og stofnuðu aðra fót-
boltadeild í Bandaríkjunum sem
heitir Bandaríska fótboltadeild-
in (United States Football
League). Þessir kappar, undir
forystu Donalds Trump sem er
eigandi New Jersey Generals-
liðsins, ákváðu að spila leikina í
sinni deild að vori til en ekki að
hausti og vetri eins og NFL
gerir. Þannig ætluðu þeir að
koma í veg fyrir að deildirnar
rækjust á og vitandi það að NFL
var mun sterkari deild þá hefðu
þeir fengið mun færri áhorfend-
ur á sína leiki. Það sem átti þó
stærstan þátt í þessari ákvörðun
var sjónvarpið. Þegar NFL-
keppnistímabilið stendur fyrir
sýna allar þrjár stóru sjónvarps-
stöðvarnar leiki úr NFL. Það
var því ekki pláss fyrir USFL.
USFL náði að gera samning
við ABC-sjónvarpsstöðina um
sýningu á leikjum úr deildinni
en þrátt fyrir þann samning fór
fljótlega að halla undan fæti hjá
deildinni. Áhorfendurvoruekki
ýkja margir og nokkur lið gáfust
upp. Ástæðan var einföld. í
Bandaríkjunum er hornabolta-
tímabilið á vorin og sumrin.
Hornabolti (baseball) hefur ver-
ið þarna svo lengi sem Ameríka
man eftir sér og ekkert fær
hróflað við honum. Þetta var
einfaldlega ekki sá tími ársins
sem fótbolti átti að vera á dag-
skránni. Forráðamenn USFL
reyndu að klóra í bakkann m.a.
með því að kaupa bestu leik-
mennina úr háskólunum og
fjárfesta í nokkrum toppleik-
mönnum frá NFL-deildinni.
Ekkert gekk og á síðasta ári
ákváðu forráðamenn USFL að
hella sér útí keppni við NFL
með því að færa keppnistímabil
sitt á sama tíma og NFL þ.e. að
hausti til og vetri.
Eins og sönnum viðskiptajöfr-
um sæmir þá kunnu forráða-
menn NFL ekki við það að „litli
bróðir“ færi að ryðjast inná
markaðinn sem þeir höfðu. NFL
nýtti sér öll þau sambönd sem
deildin hafði í viðskiptalífinu og
Úr leik Generals og Stars í
USFL fótboltanum. Hart bar-
ist þar sem í NFL.
Donaid Trump (tv) ásamt
þjálfara Generals. Trump er
óhemju ríkur og ekki áaðiáta
sinn hlut. Hvað verður úr
USFL er að miklu leytií hans
höndum.
Sunnudagur 3. ágúst 1986
Tíminn 17
GULUBETRI
Umsjón: Þórmundur Bergsson, Heimir Bergsson:
Viðskipti og íþróttir í Bandaríkjunum:
FÓTBOLTAÍRAFÁR