Tíminn - 03.08.1986, Blaðsíða 8

Tíminn - 03.08.1986, Blaðsíða 8
8 Tíminn Sunnudagur 3. ágúst 1986 Eftir David Keys, fréttaritara Tímans í Bretlandi ROMVERSKAR RÚSTIR Á BRESKA RUSLAHAUGA Borgin týnda, sem hefur verið vettvangur róm- verskra stríða og árása víkinga, hefur loksins beðið lægri hlut í viðskiptum sínum við tímans tönn. Hinn rómverski hermaður fellur í valinn fyrir verkfræð- ingunum ■f • S IÐSKIPTAHEIMUR Lundúnaborgar í Bretlandi veit nú ekki í hvorn fótinn skal stíga varðandi ævafornt samfélag sem lagði upp laupana fyrir rúm- um 1500 árum. Bankakerfi höfuðborgarinnar og fjármálastofnanir aðrar víkka nú stórum starfssvið sitt og stækka við sig, en um leið rísa Hugmynd Richards Emb- leton, listmálara, um bygg- ingaframkvæmdir róm- versku hafnarinnar í Lundúnum á þriðju öld. Leif- um hafnarinnarsem nú hafa fundist hefur verið ekið á ruslahauga utan við borg- Uppgröftur á mósaikgólfum á heimilum manna í róm- versku stórveldisborginni Lundúnum. Þetta gólf hafði greinilega verið skemmt af Söxum og síðar meir öðrum þjóðflokkum sem hafa hertekið borgina í aldanna rás. tugir nýrra skrifstofubygginga og skýjakljúfa, en aðrar eldri byggingar láta í minni pokann. I kjölfar koma í ljós leyfar og rústir löngu horfinnar borgar í leðjunni úr byggingargrunnum inni í miðri Lundúnaborg. Hin forna stórborg rómverska heimsveldisins, Lundúnir, var einna stærst rómverskra borga á sínum tíma og er grafin í jörð um 4 til 7 metrum neðan hinnar nýju borgar. Næstu fimm árin munu leifar um 200 rómverskra bygginga verða uppgötvaðar að mati fornleifafræðinga. Það er sorgleg staðreynd að 99% þessara endurfundnu bygg- inga - allar rústir rómversks stórveldistíma - verða skemmd-

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.