Tíminn - 08.08.1986, Side 3

Tíminn - 08.08.1986, Side 3
Föstudagur 8. ágúst 1986 Tíminn 3 Aðeins 406 kærðir fyrir hraðakstur Var eldgosið ísjaki? Fjögurhundruð og sex ökumenn voru kærðir fyrir of hraðan akstur vikuna 1.-6. ágúst, og 2160 hlutu áminningu. Þar sem verslunar- mannahelgin er inni í þessu tímabili þykja þetta ekki háar tölur, en þess má geta að vikuna áður voru rúm- lega 600 ökumenn kærðir fyrir of hraðan akstur. Sá sem hraðast ók þessa viku var á mótorhjóli og hafði farþega aftan á hjólinu. Hann var á leiðinni til Vestmannaeyja á föstudagskvöldið og þegar komið var langleiðina á Þorlákshöfn uppgötvaðist að svefn- pokinn hafði gleymst heima. Þá var rokið af stað til Reykjavíkur og á leiðinni mældi lögregla mótorhjólið á 130 kílómetra hraða í Svínahrauni og dró þá sundur. Mótorhjólið var síðan stöðvað í Árbæ og ökumaður- inn sviptur ökuleyfinu á staðnum. Þess má geta að skipið sem átti að flytja manninn til Vestmannaeyja var þegar til kom 7 tímum á eftir áætlun. Sá sem ekið hefur hraðast, svo vitað sé, síðan umferðarátak lög- reglu og Umferðarráðs hófst, var ökumaður mótorhjóls sem mældist á 180 kílómetra hraða. GSH „Það sá þetta einhver Ólafsfirð- ingurinn úr Múlanum í gær, en þetta er tóm vitleysa. Mér skilst þeir hafi verið að tala við hann í útvarpinu áðan um þetta. Ég er nú staddur á símstöðinni og hér er jarðskjálftamælir og á honum sjást cngar hræringar. Svo liggur varð- skip hér vestur á víkinni og þeir væru þá væntanlega farnir að kanna málið ef þetta væri eitthvað. Það hljóta að hafa orðið eftir einhverjar leifar í bruggkútnum hjá þessum Ólafsfirðingi eftir versl- unarmannahelgina eða þá að það glampar á einhvern borgarísjak- ann, en það er svona einn og einn hér norð-vestur af eyjunni," sagði Sigurður Bjarnason í Grímsey þeg- ar Tíminn bar undir hann tíðindi um eldgos norður af Grímsey, sem fram komu í útvarpsþættinum „Á hringveginum" síðdegis í gær. -BG Farandskóburstari tekur til starfa „íslendingar í illa pússuðum skóm,“ segir Svava Stefánsdóttir Borgarráð veitti nýlega Svövu Stefánsdóttur tæplega tvítugum Reykvíkingi leyfi til að starfa við farandskóburstun í miðbæ Reykja- víkur. Tíminn hafði samband við Svövu og spurði hana hvað hefði orðið til þess að hún ákvað að fara útí að bursta skó fyrir vegfarendur í Reykjavík. „Mér datt þetta nú bara í hug einn daginn þegar ég var að labba niður í bæ og sá hvað íslendingar eru í illa pússuðum skóm. Svo finnst mér þetta alveg vanta í miðbæinn. Það er ekki nógu mikil tilbreyting þar því þar er flest fólkið að bjóða sömu vöruna til sölu eða því sent næst.“ Svava er ekki ákveðin hvenær hún byrjar þessa starfsemi. Hún hugðist nota sumarið til þess en leyfið hefði verið að koma fyrst núna eftir langan afgreiðslufrest, svo hún vissi ekki hvort hún byrjaði í haust eða ekki fyrr en næsta vor. Um verð fyrir burstun á einu skópari var ekki heldur hægt að fá upplýsingar að svo komnu máli, því eftir er að reikna það út. Hún bjóst þó varla við að geta lifað eingöngu á þessari at- vinnu, en vonaðist til að undirtektir yrðu góðar við þessari nýbreytni í bæjarlífinu. ABS Það slys átti sér stað í Hálsasveit að ungur drengur slasaðist talsvert er hann lenti í heyþyrlu í gær. Var hann fluttur á Heilsugæslustöðina í Borgarnesi og þaðan með þyrlu í Borgarspítalann. Ekki er Ijóst hversu alvarleg meiðsli hans eru en hann er ekki talinn í lífshættu. Tímamynd: Sverrir. REYKJAVÍK 1786-1986 ÍÞRÓTTADAGAR FÉLAGA 1986 DAGSKRÁ LAUGARDAGUR 9. ÁGÚST REYKJAVÍK 1786-1986 FYLKISDAGURINN Kl. 10.15 Hátíöin sett. - 11.00 ReykjavíkurhlaupFylkisáÁrbæjarvelli. Skráning hefstkl. 10.00. - 12.45 Lúðrasveit Verkalýösins leikur - 13.00 Knattspyrna: 5. flokkur: Fylkir-K. Siglufj. - 13.35 Knattspyma: 4. flokkur: Fylkir-K. Siglufj. - 14.30 Handknattleikur af léttari gerö áÁrbæjarskólavelli. - 15.00 Fimleikasýning í íþróttahúsi Árbæjarskóla - 15.45 Verölaunaafhending fyrir Reykjavíkurhlaupiö - 16.00 Jón Páll Sigmarsson, sterkasti maöur sem Fylkir hefur aliö, keppir viö unga Fylkissveina i bíldrætti - 16.20 Grín-knattspyma - 16.50 Knattspyrna: 3. flokkur: Fylkir-K. Siglufj. Félagsheimilið feröur til sýnis eftir gagngerðar endurbætur og það verður heitt á könnunni. Félagar og foreldrar ungu kynslóðarinnar i Fylki, mætum öll og styðjum börnin i hollum leik okkar og þeim til ánægju. Heilbrigð æska, Hornsteinn framtíðar. LEIKNISDAGURINN Kl. 13.00 Fjólskylduhlaup Leiknis Skráning á Leiknisvelli kl. 12.30 - 13.30 Lúðrasveit verkalýðsins leikur - 14.00 - 15.50 Landsmót4. deild: Leiknir-Bolungarvik Hefst hraðmót í 6. flokki (2x15 min.) 15.50 16.40 17.30 VöllurA: LeiknirB-FramB FramB-LeiknirC Fram B-KR C VöllurB: KRC-LeiknirC LeiknirB-KRC LeiknirC-LeiknirB T.B.R.-DAGURINN Kl. 14.00-17.00 Kynning á badmintoniþóttinni í T.B.R.- husinu við Gnoðarvog. Kaffiveitingar i félagsheimilinu. ÞRÓTTARDAGURINN Kl. 11.00 Hraðmót í 6. flokki (leiktimi 2x15 mín.) - 11.00 6.fl. Fram-Þróttur KR-Valur - 11.40 5. fl. Þróttur-Valur - 12.50 6. fl. Þróttur-KR Fram:Valur - 13.30 4. II. Þróttur-Fram - 14.15 Lúðrasveit verkalýðsins leikur - 14.20 6.fi. Þróttur-Valur Fram-KR - 15.00 Knattspyrna-Gamanleikur Þróttarkonur annast kaffíveitingar í Þróttheimum. SUNNUDAGUR 10. ÁGÚST ÁRMANNSDAGURINN Kl. 14.00 íþróttasýning íÁrmannshúsinu: Fimleikar, lyftingar, júdó, glirna. vítakastskeppni HLÉ: Kl. 15.30 íþróttasýningin endurtekin I hléi verða kaffiveitingar i félagsheimilinu. Þá gefst gestum kostur á að spreyta sig á áhöldum. FRAMDAGURINN Knattspyrna: Leikir yngstu flokka á grasvelli við Álftamýri: Kl. 13.00 6.flokkurAogB Fram-FH - 13.35 3. flokkur Fram-Stjarnan - 14.50 5-flokkur Fram-lR - 15.45 4.flokkur Fram-Afturelding Handknattleikur: Hraðmót 4. fl. á utivelli við iþróttahús Álftamýrarskóla: Kl. Fram-ÍR Stjarnan-Víkingur Víkingur-Fram ÍR-Stjarnan Víkingur-lR Fram-Stjarnan Aðalleikur Framdagsins verður á aðalleikvangi í Laugardal: Kl. 19.00 Islandsmótið 1. deild Fram-Valur Kaffiveitingar Framkvenna verða i nýbyggingu Framheimilis- insfrákl. 14.00. Lúðrasveit verkalýðsins frá kl. 13.45. 14.00 14.22 14.50 15.12 15.40 16.02 KR-DAGURINN Knattspyrnumót í 6. flokki (leiktími 2x15 min.) Kl. 13.30 Völlurl 6. fl. B KR-Þróttur Völlurll Fylkir-Valur - 14.10 6. fl. AKR-Stjarnan Fylkir-Afturelding 14.50 6. fl.BÞróttur-Valur KR-Fylkir - 15.30 6. fl. AKR-Afturelding Fylkir-Stjarnan - 16.10 6. fl. B Fylkir-Þróttur Valur-KR - 16.50 6. fl. A Stjarnan-Afturelding KR-Fylkir Kl. 13.30 Völlur III 5. flokkur KR-Fylkir - 14.40 5. flokkur KR-Stjarnan - 16.00 2.flokkurkvenna KR-Valur Kl. 14.30 Stærri íþróttasalur: Minni iþróttasalur: Fimleikar - 15.00 Handknattleikur: Borðtennis-Glíma _ 15.30 Mfl. karla - Eldri félagar Körfuknattleikur - 16.10 Badminton - 16.10 Pokahlaup milli deildarstjóra KR konur annast kaffiveitingar i félgsheimilinu. VÍKINGSDAGURINN Malarvðllur: Kl. 14.00 Landsmót2.fl.: Víkingur-Þór,Akureyri - 16.15 Knattþrautirog vítaspyrnukeppni—markverðir 2. fl. og Meistaraflokks verja markið fyrir gestum Grasvöllur: Kl. 14.00 Hraðmót5. fl.: Vikingur-Breiðablik-Fylkir - 15.10 Hraömót 7. fl.: Víkingur-Fram-FH-lK - 16.10 Hraömót 5. - 17.10 Hraðmót 7. fl.: Verðlaunaafhending - 18.00 HraðmótS.fl.: Verðlaunaafhending Handknattleiksvöllur: Kl. 14.15 Handknattleikurkarlaogkvenna ' Mfl.1975-Mfl.1985 Vikingsheimili: Kl. 13.30 Lúðrasveit verkalýðsins leikur - 14.30-18.00 Anddyri: Borðtennis-kennsla - 14.30-18.00 Kaffiveitingarog kynning áöörum íþrótt- um félgsins, svo sem badmintondeild, blakdeild, og skíðakennsla. Kynnt hug- mynd að stofnun tennisdeildar Ef veður leyfir útgrill og sölutjald.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.