Tíminn - 16.08.1986, Side 3

Tíminn - 16.08.1986, Side 3
Laugardagur 16. ágúst 1986 Tíminn 3 Guðmundur J. sendir 150 þúsund til þrotabús Hafskips: Guðmundur J. Guðmundsson al- þingismaður hefur sent ávísun að upphæð 152.250 kr. til þrotabús Hafskips. Ávísunin er endurgreiðsla á þeim 100.000 kr. sem Guðmundur fékk fyrir milligöngu Alberts Guð- mundssonar frá Hafskip og Eimskip til að fjármagna heilsubótarför til Flórída árið 1983, að viðbættum vöxtum. Guðmundur sendi skiptaráðanda Hafskips, Markúsi Sigurbjörnssyni, þessa greiðslu um miðjan júlí, eftir að Albert Guðntundsson hafði neit- að að taka við þessari upphæð og koma henni til þeirra aðila sem upphaflega lögðu féð til. Eins og komið hefur fram voru það Eimskipafélag íslands og Haf- skip sem lögðu franr féð í upphafi Nýbygging Alþingis: Hús á byggingar- svæði munu víkja Utanríkisráöherrafundur Noröurlanda: fyrir nrilligöngu Alberts Guðmunds- sonar og Björgólfs Guðmundssonar. Ekki fengust upplýsingar um það í gær frá Eimskipafélaginu hvort félagið hygðist gera kröfu til þrota- bús Hafskip um að fá helminginn af endurgreiðslu Guðmundar, en Hörður Sigurgestsson forstjóri lýsti því yfir á sínunt tíma að skipafélögin tvö hcfðu lagt fram 60 þúsund krón- ur hvort til að fjármagna för Guð- mundar. Hörður er nú erlendis og ekki væntanlegur fyrr en í næstu viku. Hjá borgarfógetaembættinu fengust þær upplýsingar í gær, að Eimskip gæti gert kröfu til fjárins, þó ekki væri Ijóst hvort þeir ættu rétt á að t'á það. -BG Gatnakort af Reykjavík Sérstök gatnakort af Reykjavík, af stærðinni 1x2 nietrar, er afmælisgjöf til borgarbúa á 200 ára afmælinu. Kortið sem búið er staðgreini, þannig að auðvelt er að fínna hvar hver gata í borginni liggur, verður sett upp á 8 stöðum til að byrja með. Kortin verða innandyra á afgreiðslustöðum Flugleiða og í Umferðar- miðstöðinni, en úti á Lækjartorgi, Hleinini, Laugardal, Mjóddinni og við Sundahöfn. Fyrsta kortið var afhent í gær á Hótel Loftleiðum og á niyndinni sjást Ingi U. Magnússon gatnamálastjóri og Sæmundur Guðvinsson blaðafull- trúi Flugleiða virða fyrir sér kortið. Tímamynd: Svcrrir. Mun Eimskip gera kröfu í helminginn? Þau hús við Kirkjustræti sem koma til með að víkja fyrir nýbygg- ingu Alþingis eru Kirkjustræti númer 8 og 10 en í þeim er m.a. Skóverslun Þórðar Péturssonar, Kirkjumunir og Skjaldbreið, en þar hefur Alþingi aðstöðu. Tvö hús við Tjarnargötu, þau sem AA- samtökin hafa haft aðstöðu í (Rauða og Græna húsið) þurfa einnig að víkja því þau eru á byggingarsvæði þeirrar tillögu sem hlaut 1. verðlaun dómnefndar um nýbyggingu Alþingis. Öll þessi hús eru í eigu Alþingis og að sögn Helga Bernódussonar, skrifstofustjóra Alþingis hefur ekki verið tekin ákvörðun um það ennþá, hvort húsin verða rifin, eða hvort þau verða varðveitt með einhverjum hætti, en húsin eru öll í fremur slæmu ástandi til að flytja burt. Forsetar deildanna og sam- einaðs þings munu taka ákvörðun um á næstunni, hvað gert verður við húsin, því nýbyggingin hefst svo fljótt sem fjárveiting fæst á fjárlögum til framkvæmdanna. Helgi sagðist vona að það yrði sem fyrst því aðstaða Alþingis væri orðin afar þröng, það jaðraði nán- ast við hneyksli. ABS Aukin framlög til framvarðaríkjanna Viöskiptabann á Suður Afríku íhugað Kjarnorkulaus Norðurlönd í salt LAUNIN FYLGJA VÍSITÖLUNNI Úrskurður launanefndar: Almenn launahækkun þann I. september verður 3,39%. Þetta er niðurstaða launanefndar ASÍ og vinnuveitenda sem birt var í gær. I kjarasamningunum frá febrúar sl. var miðað við að framfærsluvísitalan hækkaði einungis um 4,4% frá árs- byrjun til 1. ágúst, en vísitalan hefur hinsvegar hækkað um 5,37% á þessu tímabili, eða 0,93% umfrant það sem miðað var við. Þessari umfram- hækkun vísitölunnar hefur nú verið mætt mcð tveim „umframhækkun- um“ á launum, 0,55% í maíbyrjun og svo 0,38% fyrsta september. Launahækkunin sem kemur til fram- kvæmda nú unt mánaðamótin nemur því þessari umframhækkun að við- bættri 3% hækkun sem samið var um í kjarasamningunum. í greinargerð launanefndar með þessari niðurstöðu kemur m.a. fram að helsta orsökin fyrir því að fram- færsluvísitalan ferfram úrviðmiðun- armörkum er hækkun á gengi helstu innflutningsmynta okkar. Varðandi kaupmátt og verðlags- þróun segir í greinargerðinni að breyttar ytri aðstæður hafi hnikað áætlunum lítillega, en engu að síður hafi spár um kaupmátt og verðlag gengið eftir í meginatriðum. „Endurskoðaðar áætlanir benda til þess að hækkun framfærslukostnað- ar á árinu verði 8,5-9%... Að teknu tilliti til úrskurðar launanefndar um 3,39% hækkun launa frá 1. septem- ber, benda áætlanir til þess að á 3. ársfjórðungi verði kaupmáttur taxta- kaups svipaður eða lítið eitt lakari en gert var ráð fyrir í febrúar. Er þá miðað við almennar launabreytingar og ekki reiknað með áhrifum sér- kjarasamninga sem gerðir hafa verið síðar," segir ennfremur í greinar- gerð launanefndar. Samstaða varð uni þessa niður- stöðu. Nefnd skipuð fulltrúa BSRB og fjármálaráðuneytisins ásamt hag- stofustjóra, komst í gær að samskon- ar niðurstöðu og launanefnd ASÍ og vinnuveitenda og munu laun félaga í BSRB því einnig hækka um 3,39% 1. september. Fundi utanríkisráðherra Norður- landa lauk í Kaupmannahöfn nú á fimmtudaginn. Meðal mála á dagskrá var tillaga Dana um kjarn- orkuvopnalaus Norðurlönd, en eins og Matthías A. Mathiesen, utanrík- isráðherra, sagði fyrir um í Tíman- um sl. miðvikudag, var sú tillaga ekki tekin til afgreiðslu. Þess í stað var ákveðið að fela embættismönn- unt í utanríkisráðuneytum landanna að vinna að undirbúningi stofnunar embættismannanefndar sem síðan á að vinna að undirbúningi málsins, þannig að utanríkisráðherrarnir geti átt auðveldara með að taka afstöðu til málsins, á næsta utanríkisráð- herrafundi að ári! Mál Suður-Afríku voru einnig rædd og lýstu ráðherrarnir áhyggjum sínum yfir þróuninni þar í landi. Voru þeir sammála um að samþykkt- ir Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna væri áhrifaríkasta leiðin til að snúa þróuninni við, og í samræmi við það var samþykkt að Norðurlöndin skyldu einbeita sér að því að fá viðskiptaþvinganir gegn Suður- Afríku samþykktar á vettvangi Sam- einuðu þjóðanna. Jafnframt var Suður-Afríkunefndinni falið að meta frekari aðgerðir Norðurland- anna gegn Suður-Afríku og þar á meðal viðskiptabann. Þá var því lýst yfir að Norðurlönd- in muni auka framlögsín til mannúð- armála í suðurhluta Afríku, sem og til þróunarhjálpar við þau lönd sem liggja að Suður-Afríku, framvarða- ríkin svokölluðu. í framhaldi af þessu var lýst yfir að Norðurlöndin ætli að beita sér fyrir því innan Sameinuðu þjóðanna, að gerð verði neyðaráætlun fyrir framvarðaríkin, komi til þess að þau verði fyrir árásum eða þvingunum frá Suður- Afríku. BÆNDUR - JARDEIGENDUR: 0^ BYLTiNG í GIRDINGARIN/IÁLUIN/I! SILVA rafgirðingar eru ekki aðeins afbragðsgóðar girðingar, heidur er tiikoma þeirra nánast bylting í girðingarmálum, hér sem annars staðar. Þær sameina kosti venjulegrar girðingar og rafgirðingar og eru svar nútímans við kröfum um sterkari, öruggari og hagkvæmari girðingar. Helstu eiginleikar: • Lítið viðhald • Auðveld uppsetning • Má tengja jafnt við rafgeyma sem landsrafkerfið • Standa vel af sér snjó • Geta komið í stað venjulegrar girðingar og spara þá staura og annað girðingarefni STREKKJARI * Fjölmargir fylgihlutir • Odýr og hagkvæm lausn. Leitið nánari upplýsinga hjá okkur. ■Gbto LÁGMÚLI 5■ 108REYKJAVÍK-SÍMI 681555 RAFMAGNSTENGI í j Jeinangrunarrör

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.