Tíminn - 16.08.1986, Blaðsíða 5
Laugardagur 16. ágúst 1986
-llllllillllllHllllllllllll ÚTLÖND lllllllllllllllllllllllll
Tíminn 5
Tamilamir í Kanada:
Frásögnin ósönn
Lögreglan í Hamborg segir fullvíst að tamilarnir hafi komið
frá V-Þýskalandi en ekki Indlandi
Hamborg-Keuter
Lögreglan í Vestur-Þýskalandi
sagði í gær að tamilarnir sem bjargað
var undan ströndum Nýfundnalands
hefðu komið þangað á 425 tonna
strandferðaskipi sem skráð væri í
Hondúras en væri í eigu Vestur-
Þjóðverja. Skipið, Aurigae að nafni.
flutti 155 tamila frá Vestur-Þýska-
landi að ströndum Kanada.
Dieter Heering lögreglustjóri
sagði á blaðamannafundi að tveir
flóttamenn frá Sri Lanka, sem hand-
teknir voru í fyrradag, hefðu viður-
kennt að hafa skipulagt ferð tamil-
ana.
Tamilarnir 155 fundust fyrir utan
strönd Nýfundnalands þar sent þeir
húktu á opnum bátum. Þeir sögðust
hafa lagt upp í ferð sína frá Indlandi,
nánar tiltekið frá hafnarborginni
Madras og verið haldið neðan þilja
í ónefndu skipi áður en þeir hefðu
verið neyddir til að fara í opna
björgunarbáta og látnir sigla sinn
sjó.
Frásögn þessi þótti strax í upphafi
afar ósennileg og nú er komið á
daginn að tamilarnir komu í raun frá
Vestur-Þýskalandi. Heering lög-
reglustjóri sagði hvern og einn þeirra
hafa þurft að greiða sem svarar um
hundrað þúsund íslenskra króna fyr-
ir ferðina yfir hafið. Hann taldi að
skipstjórinn á Aurigae, 45 ára gamall
Vestur-Þjóðverji, hefði fengið sem
svarar tæpum fjórtán milljónum ís-
lenskra króna fvrir greiðann.
Tamilunum hefur verið veitt dvalar-
leyfi til bráðabirgða í Kanada. Marg-
ir þeirra hafa reyndar þegar flogið
frá St. John á Nýfundnalandi til
Toranto og Montreal til að hitta
tamila frá Sri Lanka sem þar eru
fyrir og hefja með þeim nýtt líf.
Kaddafi Líbýuleiðtogi:
VILL AÐ ZIA
LEYSIBHUTTO
Ungverjaland:
Pokavín
til
V-Evrópu
Lundúnir-Reuter
Muammar Kaddafi Líbýuleiðtogi
fór þess á leit í gær við Mohammad
Zia-Ul-Haq forseta Pakistan að
hann aflétti því sem hann kallaði
örþrifaráðum gegn Benazir Bhutto
leiðtoga stjórnarandstöðunnar. Það
var líbýska útvarpið sem skýrði frá
þessum skilaboðum Kaddafis.
Bhutto, leiðtogi Þjóðarflokksins í
Pakistan og dóttir Zulifikar Ali
Bhutto fyrrum forsætisráðherra sem
Zia lét taka af lífi árið 1979, var
handtekin í Karachi í fyrradag fyrir
að neita að hlýða banni á útisam-
komur.
Kaddafi sagði í bréfi sínu til Zia
að handtaka Bhutto væri „ólýðræðis-
leg“ og merki um „persónulegar
ofsóknir“ á hendur henni. Líbýu-
leiðtoginn sagðist vonast til að öllum
takmörkunum á starfsemi Þjóðar-
flokksins yrði aflétt.
Kaddafi sagði skilaboð sín til Zia
Kaddafi Líbýuleiðtogi stóð í bréfa-
skriftum í gær.
starfa af „siðferðislegum stuðningi
við fjölskyldu píslarvottsins Zulficar
Ali Bhuttos“.
Zia er um þessar mundir á píla-
grímsferðalagi um Saudi-Arabíu.
Budapest-Reuter
Ungverskt samvinnufyrirtæki
er flytur út vín hefur í hyggju að
selja vín í plastpokum til Vestur-
Þýskalands. Það var hin opinbera
fréttastofa MTI sem frá þessu
skýrði í gær.
Samvinnufélagið í Soltvadkert
ætlar að fá fyrirtæki í Stuttgart til
að hjálpa til við að koma Ezerjo
hvítvíninu, Kadarka rauðvíninu
og múskatvíni á markaðinn í
Vestur-Þýskalandi og verður
„plastpokavínið" m.a. notað í
þessu tilgangi.
Plastpokarnir verða styrktir
með alúmínfumþynnum og inni-
halda 10, 20, 30 og 200 lítra af
víni. Fyrir utan sölu til stór-
drykkjumanna verður að sjálf-
sögðu reynt að selja vínin til
veitingastaða til að byrja með í
V-Þýskalandi en síðan, ef vel
gengur, í Vestur-Evrópu allri.
Kína:
Kirkjuklukkum hringt
Pekíng-Reuter
Kirkjuklukkum var hringt í Pek-
Filippseyjar:
R0TTUR
FÓRUÁ
TRIPP
Manila-Reuter
Rottur í bænum Baguio á
norðanverðum Filippseyjum átu
í vikunni mikið magn af marijú-
ana sem nota átti sem sönnunar-
gagn í eiturlyfjamáli. Þetta var
haft eftir embættismönnum á Fil-
ippseyjum.
Rotturnar kusu frekar að éta
marijúanað heldur en skjöl sem
geymd voru í sama herbergi í
dómshúsinu í Baguio.
Atvik þetta uppgötvaðist
skömmu eftir að bæjarráðið hafði
samþykkt á fundi sínum að eyða
sem svarar um sex þúsund ís-
lenskum króna til að byggja rott-
uhelda réttargeymslu.
íng í gær eftir að hafa þagað í 28 ár.
Tilefni hringinganna voru bæna-
gjörðir rúmlega sex þúsund kaþól-
ikka í þremur kirkjum borgarinnar.
„Hljómar kirkjuklukknanna á
nýjan leik sýna styrk og einingu
þjóðarinnar og aukið trúarbragða-
frelsi", sagði Ying Mulan varafor-
maður Kaþólska félagsins í Pekíng í
samtali viðfréttastofuna Nýja Kína.
Hún sagði að trúræknum Peking-
búum hefði verið bannað að hringja
Verðbólguhraðinn í ísrael, en árs-
verðbólgan var þar um 400% þar til
á síðasta sumri. hefur svo sannarlega
hægt á sér. í síðasta mánuði var
verðbólga nánast engin samkvæmt
upplýsingum frá hagstofu landsins.
Verðbólgan var 27,5% í sama
mánuði á síðasta ári.
Ársverðbólgan hefur annars verið
í kringum 15% eftir að ríkisstjórnin
klukkum árið 1958 vegna áhrifa
vinstrisinnaðra stjórnmálastefnu
sem yfirvöld hefðu nú sagt skilið við.
Kirkjuklukkunum var hringt í gær
til að minnast Maríumessu hinnar
fyrri.
Ying sagði klukkunum verða
hringt fjórum sinnum á ári eftirleiðis
til að minnast fjögurra trúarhátíða
kaþólikka; páska, jóla, himnafarar
Maríu og hvítasunnu.
kom á lögum á síðasta sumri þar sem
laun og verðlag var sett fast til að
draga úr framfærslukostnaðinum.
Verðbólgan í síðasta mánuði var
reyndar sú lægsta fyrir júlímánuð
síðustu tíu árin.
Stjórnvöld í ísrael hafa að undan-
förnu linað dulítið tök sín á verðlagi
en hyggjast engu að síður ráða verði
á sumum vörum næstu mánuðina.
ísrael:
Verðbólgan nánast
engin í júlímánuði
Jerúsalem-Reuter
Fundarboð
Aðalfundur SÍL/Hagfeldar verður haldinn laugar-
daqinn 30. ágúst 1986 í Varmahlíð í Skagafirði og
hefst kl. 8.30.
Fundarefni lagabreytingar og venjuleg aðalfundar-
störf.
Stjórnin
Föstudaginn 29. ágúst verður haldinn búdagur
með heimsókn á loðdýrabúin á Syðra Skörðugili,
Sauðárkrók og Bændaskólanum að Hólum í
Hjaltadal.
Einnig verður fóður- og skinnaverkunarstöð Mel-
rakka hf. á Sauðárkróki skoðuð.
Búdagur hefst kl. 15.30 með miðdegiskaffi í
Varmahlíð.
Nauðsynlegt er að tilkynna þátttöku og panta
gistingu fyrir 20. ágúst nk. til skrifstofu SÍL,
Síðumúla 34, sími 91-688070.
Samband íslenskra loðdýraræktenda.
Kjötiðnaðarmaður
Kaupfélag V-Húnvetninga óskar eftir að ráða
kjötiðnaðarmann, til að veita forstöðu kjötvinnslu
kaupfélagsins.
Húsnæði fyrir hendi.
Umsóknir með upplýsingum um menntun og fyrri
störf sendist kaupfélagsstjóra, er veitir nánari
upplýsingar um starfið.
Kaupfélag Vestur-Húnvetninga
Hvammstanga
Frá Holtaskóla Keflavík
Við Holtaskóla Keflavík er laus ein kennarastaða
í líffræði og eðlisfræði. Skólinn er einsetinn. Öll
vinnuaðstaða bæði fyrir kennara og nemendur er
mjög góð.
Upplýsingar gefur Sigurður E. horkelsson skóla-
stjóri í síma 92-2597 og Ingvar Guðmundsson
yfirkennari í síma 92-1602.
Skóiastjóri.
Hagsýsluverkefni
Fjármálaráðuneytið, fjárlaga- og hagsýslustofnun,
óskar eftir að ráða starfsmann til að sinna ýmsum
hagsýsluverkefnum. Starfsmanninum er meðal
annars ætlað að stjórna slíkum verkefnum og er
menntun eða reynsla í stjórnun því æskileg.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri
störf sendist fjárlaga- og hagsýslustofnun, Arnar-
hvoli, fyrir 25. september nk.
Óskum eftir að ráða kjötiðnaðarmenn eða menn
vana kjötskurði. Einnig starfsfólk til almennra
starfa í kjötiðnaðarstöð.
nánari upplýsingar hjá verkstjóra í síma 28200.
Kjötiönaðarstöð
Sambandsins
Kirkjnsamli sími: 686366