Tíminn - 26.08.1986, Side 1
DAUÐSFALL í íbúö kvikmynda-
leikarans Dustin Hoffmans er nú taliö
hafa verið slys, en á laugardag fannst 43
ára gömul kona drukknuð í baðkeri í
sveitasetri Hoff-
mans í Connecti-
cut. Talið er að
konan hafi sofnað í
baðinu og drukkn-
að. Dustin Hoffman
var í Los Angeles
þegarkonanfannst
en ekki er talið að
konan tengist hon-
um á neinn hátt
heldur var hún vin-
kona ráðskonunn-
ar.
ÞINGMENN frá Irlandi eru staddir
hér á landi í boði Alþingis, meðal þeirra
er forseti irska þjóðþingsins, Tom Fitz-
patrick. Þingmennirnir komu á föstudag-
inn og fara aftur á miðvikudag. Fyrstu
þrem dögunum eyddu þingmennirnir í að
skoða markverða staði á landinu en í dag
munu þeirm.a. ræða viö forsætisráðherra
og fjármálaráðherra og forseta íslands.
NORRÆNIR bæjarstarfsmenn
hafa skorað á ríkisstjórnir Norðurland-
anna að samþykkja ekki neinar þær
aðgerðir sem þrengja eða skerða rétt
samtaka launafólks til að semja um kjör
félagsmanna sinna í frjálsum samning-
um, og er þarna verið að vísa til þess að
lög ógilda oft frjálsa samninga. Aðalfund-
ur samtaka norrænna bæjarstarfsmanna
var haldinn í Reykjavík um helgina og
sóttu hann 60 fulltrúar frá öllum Norður-
löndunum.
FREIGATA frá Bandaríkjunum,
U.S. Doyle, verður í Reykjavík dagana
27.-30. ágúst og er viðkoman vegna
heræfinga Atlantshafsbandalagsins í
Norðurhöfum. Doyle mun liggja í Sunda-
höfn og verður til sýnis fyrir almenning frá
klukkan 13-16.00. Doyle er 138,2 metra
löng, ristir 9 metra, og áhöfnin telur 250
manns.
ÍSFIRÐINGAR hafa fengið nýtt
rækjuskip, Sigrúnu ÍS, sem smíðað var í
Finnlandi 1979 en hefur aðeins verið
notað í eitt ár. Fyrirhugaðar eru breytinaar
á skipinu, m.a. á að setja í það búriao til
rækjufrystingar, endurnýja siglingatæki
og lagfæra íbúðir.
PETER C. BAXTER höfuðs-
maður hefur tekið við yfirstjórn herstöðv-
arinnar á Keflavíkurflugvelli af George T.
Loyd höfuðsmanni. Baxter var síðast við
skyldustörf í London.
HEIMSMET í maraþonvélritun var
sett í gær af Shambhoo Anbhawane,
indverskum vélritara, sem vélritaði sam-
fleytt í 123 klukkutíma og bætti gamla
metið um 3 tíma. Til að byrja með var
vélritunarhraðinn 60 orð á mínútu en
undir lokin var hraðinn aðeins 15 orð á
mínútu. Anbhawane vélritaði sömu
ræðuna aftur og aftur og skaut inní
ritningargreinum hindúa til að auka sér
kraft og bægja frá illum öndum. Hann sló
ritvélarlyklana 906.000 sinnum á meðan.
HÖRKUÁREKSTUR varð á
Kotárbrú við Silfrastaði í Skagafirði um kl.
hálf sex á sunnudagskvöld. Volvo bifreið
keyrði aftan á Mercedes Benz sem var að
fara yfir brúna en hafði hægt á sér.
Volvoinn kastaði Benzinum inn á brúna
og við það skemmdust báðir bílarnir mjög
mikið. Ökumaðurinn var einn ( Volvo
bifreiðinni en þrír farþegar auk ökumanns
í Benzinum en engan sakaði í árekstrin-
um.
KRUMMI
...ég hélt að það
væri hvort eð er ekki
hægt að skulda í
Ríkinu...
Afleiðingin af stöðvun sölu á ríkisskuldabréfum:
Skuldabréfavextir
munu lækka um 1 -2%
- að mati Kaupþings
„Við reiknum með því að vextir vextir á bankatryggðu bréfunum
lækkium 1-2% á öllum skuldabréf- iækkj úr 10-12% eins og þeir eru
um eftir 1. september, þannig að nú kannski niður í 9-10% og vextir
á öðrunt skuldabréfum lækki síðan
sarrisvarandi," sagði Davíð Björns-
son hjá Kaupþingi, spurður um
START
MáfiA
áhrif þess á verðbréfamarkaðinn
að ríkissjöður hættir sölu á spari-
skírteinum sínum.
Þessa vaxtalækkun sagði Davíð
koma til af tvennu: í fyrsta lagi hafi
vextir spariskírtcina vcrið svokall-
aður botn á vaxtalínunni. Þegar
botninn detti úr, þá dctti öll línan
með. 1 öðru lagi verði svo minna
• frantboð af verðbréfum á markað-
inum, þar sem spariskírteinin verði
ckki seld hverjum sem cr. Þcirsem
hefðu keiypt þau murii nú leita
cftir kaupum á öðrum tegundum
skuldabréfa og þá líkast til banka-
tryggðra bréfa. Það leiði af sér
aukna eftirspurn eftir þeint bréfum
og þar með vaxtalækkun á þeim,
þ.c. þegar framboðið á peningum
verður kannski meira cn á bréfum
til sölu.
En gæti þetta cinnig aukið fram-
boð á bréfum? Ef vextir lækka um
t.d. 2% sagði Davíð það að vísu
geta hal't áhrif á fyrirtæki, sem hafi
veigrað sér við því að selja bréf til
þessa, en telji vextina þá kannski
komna í það horf að þeir væru
viðunandi. Þannig gæti vaxtalækk-
unin hugsanlcga einnig aukið
eitthvað framboð á markaðinum.
En það eigi eftir að koma í Ijós.
HEI
Maraþon-
hlaupmed
farþega!
Reykjavíkurmaraþonið var
hlaupið nieð ponipi og prakt á
sunnudaginn og tóku rúmlcga
1000 manns þátt í hlaupinu
þrátt fyrir rigningu og slabb.
Flestum fannst nóg að draga
sjálfa sig áfram rúma 42 kíló-
metra en þessi kunnuglegi
keppandi var svo þróttmikill
að hann tók með sér farþega,
a.m.k. fyrsta spölinn. Nánar er
sagt frá Reykjavíkurniaraþon-
inu á íþróttasíðu i 'íinamynd Pétur
Cameroon:
Eldfjallagas banar 1200 manns
Að minnsta kosti 1200 manns
hafa nú látist af völdum citurgass
sem losnaði úr læðingi eftir eldsum-
brot djúpt undirstöðuvatninu Nios
í suðausturhluta Cameroon um
helgina. Þrjúhundruð manns til
viðbótar liggja nú á sjúkrahúsi, að
sögn forseta landsins Paul Biya.
Hann sagði ennfremur að citurgas-
ið hefði mengað svæði í 10 kíló-
metra radíus í kringum vatnið sem
er um 400 knt norður af höfuðborg-
inni Yaounde.
fsrael, Frakkland, Bandaríkin
og V-Þýskaland hafa veitt Camer-
oon aðstoð vegna þessa slyss og
sent hjálparsveitir, lyfjabirgðir
og læknisgögn á staðinn, en ein-
kenni eitrunarinnar lýsa sér í
brennandi sviða í augunt ogeyrum,
hósta og köfnunartilfinningu.
Biya forseti sagði í gær að hann
myndi fagna alþjóðlegri hjálp til
þcss að reyna að fyrirbyggja slys af
þessu tagi með einhvers konar
varnarkerfi, en svipað atvik átti sér
stað fyrir tveimur árum í Camer-
oon og létust þá 35 manns.
Guðmundur E. Sigvaldason hjá
Norrænu eldfjallastöðinni er for-
maður Alþjóðasamtaka eldfjalla-
stöðva, og fékk hann í gær erindi
frá UNESCO um að gera tillögu
um lista sérfræðinga sem UN-
ESCO gæti sent til Cameroon ef
formleg beiðni kæmi frá þeim um
slíkt. Guðmundur sagði í samtafi
við Tímann að Alþjóðasamtök eld-
fjallastöðva hefðu hér á landi upp-
lýsingabanka um sérfræðinga á hin-
um ýmsu sviðum eldfjallafræða og
í neyðartilfellum sem þessum leit-
aði UNESCO til þcirra um tillögur
um hverja stofnunin ætti að senda
á staðinn ef þess yrði óskað. „Það
var spurning af þcssu tagi sem kom
fram í dag og ég er þessa stundina
að finna út hvaða menn ég á að
leggja til að fari suður til Cameroon
ef til þess kemur,“ sagði Guð-
mundur. Aðspurður sagði Guð-
mundur að Ijóst væri að einn
Islendingur yrði á þeint lista, Nícls
Óskarsson hjá Norrænu eldfjalla-
stöðinni, en hann er einn fremsti
maður á sviði gasefnafræði í heint-
inum.
-BG