Tíminn - 26.08.1986, Qupperneq 5
Tíminn 5
Þriðjudagur 26. ágúst 1986
UTLÖND
11
Tilraunabann Sovétríkjanna:
„Gefur Bandaríkjamönnum
hernaðarlegt forskot“
segir Akhromeyeu marskálkur, yfirmaður sovéska herráðsins
Yfirmaður sovéska herráðsins,
Sergei Akhromeyeu marskálkur
sagði á fréttamannafundi í Moskvu í
gær, að einhliða bann Sovétríkjanna
við tilraunum með kjarnorkuvopn,
heföi gefið Bandaríkjamönnum
nokkurt forskot í vopnakapphlaup-
inu, en hernaðarjafnvæginu í heirn-
inum væri þó ekki ógnað. Hann
sagði að pólitískir og hernaðarlegir
leiðtogar hefðu orðið ásáttir um að
framlengja tilraunabannið til 1.
janúar þar sem pólitískir ávinningar
yrðu að þeirra mati mikilvægari, en
sá skaði sem bannið ylli kjarnorku-
vopnaáætlunum landsins. „Ef málin
eru skoðuö út frá hreinu hernaðar-
legu sjónarmiði. þá gefa kjarnorku-
vopnatilraunir Bandaríkjanranna -
þ.e. 18 tilraunasprcngingar á cinu
ári - þeini óneitanlega forskot. En
við verðum að horfast í augu við
slíkt,1' sagði Akhromeycu marskálk-
ur við fréttamenn.
Eins og áður hefur verið greint
frá. þá hafa Bandaríkjamenn hafnað
þátttöku í tilraunabanninu og sagt
að ekki sé unnt að koma við eftirliti
með slíku tilraunabanni, auk þess
sem kjarnorkuvopnatilraunir séu
nauðsynlegar ef þeir eigi að geta
haldið uppi raunhæfum fælingar-
mætti kjarnorkuvopna sinna.
Á fréttamannafundinum í
Moskvu í gær svaraði Yuli Voront-
sov aðstoðarutánríkisráðhcrra þess-
um viðbrögðum Reaganstjörnarinn-
ar og kallaði áhyggjur þeirra af
eftirliti, tilraun til að þyrla upp
moldviðri, „til þess eins að geta í
skjóli þess byggt upp geimvopnaá-
ætlun sína." Benti hann í því sam-
bandi á, að í Sovétríkjunum liafi
leiðangur óháðra bandarískra vís-
indamanna fengið að setja upp mæli-
tæki sín í grennd við aðaltilrauna-
svæðið í Kazakhstan, og sagði að
Reaganstjórnin hefði ekki enn sýnt
vilja sinn í þcssum efnum með
sambærilegum hætti.
V-þýskir jafnaðarmenn:
Flokksþingid sameinast
að baki Johannesi Rau
- í upphafi kosningabaráttunnar
Vestur-þýskir jafnaðarmenn sitja
nú fimm daga flokksþing. þar sem
mcginviðfangsefnið er kosningar til
sambandsþingsins, sem eiga að fara
fram 25. janúar á næsta ári. Flokks-
þing þetta markar jafnframt upphaf
kosningabaráttu jafnaðarmanna.
Flokksþingið var sett í gær af
formanni þingflokks jafnaðar-
manna, Hans-Jochen Vogel, og
ávarpaði hann í ræðu sinni hinn nýja
leiðtoga flokksins Johannes Rau og
sagði: „Þú einn og sér getur ekki náð
því að sigra í kosningunum, en ef við
tökum öll höndum saman þá munum
við ná því markmiði okkar."
Flokksþingið virðist leggja mikla
áherslu á að flokksmenn sameinist
að baki leiðtoga sínum í þessari
kosningabaráttu, svo takast megi að
velta samsteypustjórn Kristilegra
demókrata og Frjálsra demókrata úr
valdastóli.
Willy Brandt, forinaður jafnað-
armanna og fyrrum kanslari ávarp-
aði flokksþingið í gær og skoraði á
fiokksmcnn að setja niður ágrein-
ingsmál sín og styðja við bakið á
Johannesi Rau. Brandt skoraði jafn-
framt á vinstrisinnaða þingmenn að
forðast þá stefnu í umræðum á þingi,
sem gæti leitt til þcss að þeir yrðu
Átökin við Persaflóa:
íranir ógna öllum
olíuútflutningi
Ali Akbar Hashemi Rafsanjani,
forseti íranska þingins hvatti til þess
í Teheran um helgina, að íranir geri
allsherjar árás á Irak, áður en Irak
fengi tækifæri til þess að endurskipu-
leggja herafla sinn, sem nokkur
óreiða er á um þessar mundir. Yfirlýs-
ing Rafsanjanis kemur í kjölfar svip-
aðrar yfirlýsingar frá forseta íran,
Ali Khamenei, fyrir helgina um að
íran búi nú yfir herafla til að ráðast
af fullum krafti gegn því „samsæri
Persaflóaríkjanna", að ráðast á olíu-
vinnslustöðvar Irana.
Forsetin sagði, að árás Iraka á
olíuvinnslustöð írana á Sirri eyju
fyrir skömmu myndi ekki veikja
írani heldur þvert á móti gæti hún þýtt
að stríðið myndi nú magnast upp.
Olíuvinnslustöðin á Sirri, hefur
hingað til verið talin utan þess svæðis
sem írakar hafa bolmagn til að
ráðast á úr lofti, og hafa íranir
ásakað önnur Arabaríki við Persa-
flóann um að hafa veitt Irökum
aðstoð við loftárásirnar á Sirri eyju,
Ali Khamenei forseti hefur hótað
því, að í nýrri sókn írana muni þeir
jafnframt beina athygli sinni að þess-
um Arabaríkjum, sem flest eru vin-
veitt írökum og þetta geti þýtt það
að öll olíuvinnsla við Persaflóa
stöðvist.
Utanríkisráðherrar og olíumála-
ráðherrar sex ríkja við Persaflóann
munu hittast í dag til að ræða þróun
mála á svæðinu og þá vaxandi ógn
sem olíuverslun þeirra stendur af
stigmögnun stríðsins milli fraka og
Irana. Ekki er þó búist við að á
þessum tveggja daga fundi ráðherr-
anna verði gerð tilraun til að finna
nýjar leiðir til sátta, heldur beðið
eftir sáttaumleitunum sem fyrirhug-
aðar eru á þingi Samtaka óháðra
ríkja sem hefst um mánaðamótin í
Harrare höfuðborg Zimbabwe.
Johannes Rau, kanslaraefni þýskra
jafnaðarmanna í kosningununi í
janúar.
sakaðir um að vera fjandsamlegir
Bandaríkjunum.
Johannes Rau, sem nú er í forsæti
landsstjórnarinnar í Rín-Westfalíu
mun í dag kynna stefnuskrá flokks-
ins fyrir kosningarnar. Stefnuskráin,
sem mun vera í 15 liðum, kveður
m.a. á um að kjarnorkuvcr verði
lögð niður í áföngum á næstu tíu
árunt, brottflutning bandarískra
stýriflauga frá Þýskalandi, og minnk-
un atvinnuleysis með því að stytta
vinnuvikuna og fjárfesta í nýjum
atvinnugreinum.
---------------f-
Akhromeyeu marskálkur sagði á
fréttamannafundinum að ef nauðsyn
krefói. myndu Sovétríkin finna við-
eigandi svar við geimvopnaáætlun
Bandaríkjanna og ítrekaði það sem
Gorbachev sagði í sjðustu viku, að
það svar yrði ckki það svar sem
Bandaríkjamenn reiknuðu með.
Svíþjóö:
Nýr
leiðtogi
íhaldsmanna
Sænski íhaldsflokkurinn, Mod-
erata samlingspartiet kaus sér
nýjan flokksformann á Iaugar-
dag, og fyrir valinu varð Carl
Bildt, sem hefur verið sérfræðing-
ur flokksins í utanríkis- og varn-
armálum. Bildt er 37 ára gamall
og yngstur sænskra flokksfor-
manna. Hann á ættir sínar að
rekja til sænskra góðborgara í
margar kynslóðir og var t.d.
langa-langafi hans, Gills Bildt
forsætisráðherra í Svíþjóð 1888-
1889.
íhaldsmenn vonast til, að undir
leiðsögn hins nýja leiðtoga takist
flokknum að endurheimta það
fylgistap sem varð í síðustu kosn-
ingum þegar flokkurinn fékk
21,3% atkvæða, en hafði fengið í
kosningunum 1982 23,6%.
Carl Bildt tekur við for-
mennsku af Ulf Adelsohn, sem
sagði starfinu lausu af persónu-
legum ástæðum í júní sl.
Bildt hefur orð á sér fyrir að
vera hvass og harður stjórnmála-
maður og hefur stíl hans stundum
verið líkt við stíl fyrrum lciðtoga
sænskra jafnaðarmanna, Olof
Palme, enda er félagslegur upp-
runi þeirra ekki ósvipaður og
Bildt hefur brennandi áhuga á
utanríkismálum eins og Palme
hafði. Pessir tveir menn deildu
þó oft harðlega og kunnu illa
hvor við annan. Pað var Palme
sjálfur sem gerði Bildt á sínum
tíma að þjóðkunnum manni því
hann lét alla ríkisstjórn sína
skrifa undir yfirlýsingu þar sem
sagði að Bildt, sem á sæti í
Utanríkismálaráði Svíþjóðar,
hefði stefnt hlutleysi landsins í
voða í viðræðum sem hann átti
við embættismenn bandaríska
varnarmálaráðuneytisins árið
1983. Reutersfréttastofan hefur
það eftir ýmsum sænskum stjórn-
málamönnum að Olof Palme hafi
staðið stuggur af Bildt ekki hvað
síst vegna þess að hann hafi séð í
honum stjórnmálamann, sem
líktist að mörgu leyti hægrisinn-
aðri útgáfu af honum sjálfum.
r,W
A timabilinu 1. mai til 30. sept.
A timabilinu 1. jum til 31. agust
Manudaga: Frá Stykkisholmi kl 09.00 Frá Brjánslæk kl. 14.00 Til Stykkishólms kl. 18.00 fyrir brottför rutu til Rvk Þriðjudaga Fra Stykkishólmi kl 14.00 eftir komu rutu Fra Brjánslæk kl 18 00 Til Stykkishólms kl. 21.30
Fimmtudaga Fostudaga: Sama timataflaog mánudaga Frá Stykkishólmi kl 14 00. eftir komu rutu Laugardaga Frá Stykkisholmi kl 09.00 Sigling um suðureyjar Fra Brjánslæk kl 15.00 Til Stykkishólms kl. 19 00
Viðkoma i inneyjum A timabilinu 1. júli til 31. aqúst
Frá Brjanslæk kl 19 30 Til Stykkishólms kl. 23.00 Miðvikudaga: Frá Stykkishólmi kl 09 00 Fra Brjánslæk kl 14.00 Til Stykkishólms kl. 18 00. fynr brottför rútu
Viðkoma er avallt i Flatey a báðum leiðum.
Bilallutninga er nauðsynlegt aft panta með fyrirvara.
Fra Stykkishólmi:
Hjá afgreiðslu Baldurs
Stykkisholmi, s.: 93-8120
Fra Brjánslæk:
Hjá Ragnari Guðmundssyni
Brjanslæk, s.: 94-2020.
Brú yfir
Eyrarsund?
Samgönguráðherrar Svíþjóðar
og Danmerkur ræddu í gær um
möguleikann á að brúa eða gera
neðansjávargöng yfir Eyrarsund,
og tengja þannig samgöngukerfi
landanna tveggja. í sameiginlegri
yfirlýsingu sem ráðherrarnir
sendu frá sér eftir fundinn segir
að engar ákvarðanir hafi verið
teknar í þessu sambandi og að
nauðsynlegt sé að afla frekari
upplýsinga um hvaða áhrif slík
„samgöngubrú" myndi hafa á
umhverfið áður en frekari skref
yrðu stigin. Það sem einkum er
verið að skoða er gerð vega- og
járnbrautartengingar milli Hels-
ingborgar og Elsinore annars veg-
ar eða frá Kaupmannahöfn til
Málmeyjar hins vegar.
coopecr
Síur í
f lestar vélar
á góðu verði
¥ÍimiR&
TOMPSmHF
Jámhálsi 2 Sími 83266 TlORvk.
Pósthólf 10180
BÍLALflGA
Útibú í kringum landið
REYKJAVÍK:. 91-31815/686915
AKUREYRI:...... 96-21715/23515
BORGARNES:............ 93-7618
BLÖNDUÓS:........ 95-4350/4568
SAUÐÁRKRÓKUR: ....95-5913/5969
SIGLUFJÖRÐUR:.........96-71489
HÚSAVÍK:........96-41940/41594
EGILSSTAÐIR: ..........97-1550
VOPNAFJÖRÐUR: ...97-3145/3121
FÁSKRÚÐSFJÖRÐUR: .97-5366/5166
HÖFN HORNAFIRÐI: ..... 97-8303
irrterRent
¥ÍS#M&
NWöimHF
Járnhálsi 2 Sími 83266 110 Rvk.
Pósthólf 10180