Tíminn - 29.08.1986, Síða 4
4 Tíminn
Rokkarinn Bruce Springsteen er nú í hálfgerð-
um „ræflastiT' þarna á myndinni;skeggjaður
og í rifnum bol.
UPP-
STRILAÐUR
FYRIRMYNDAR
FADIR
ij
-M. JLéR er Bill Cosby (fyrir-
myndarfaðirinn) á ferðinni ogsýnir
hreykinn uppáhaldsflíkina sína -
handsaumaðan bútasaumsjakka,
sem vinur hans hannaði og gaf
honum. Vinurinn vissi sem var, að
Bill er hrifinn af fötum, sem eru
öðruvísi en gengur og gerist og
hann er viss um að sjá ekki næsta
mann í. Sérstaklega er hann hrifinn
af miklu mynstri. Því meira munst-
ur því betra.
Skeggbroddar
í tísku?
Ætlar Jacqueline Onassis
að gifta sig aftur?
Jacqueline Lee Bouvier Kennedy Onassis sést hér með vini sínum,
demantasalanum Maurice Tempelsman. Margir spá því að innan langs
tíma muni Tempelsmannafnið bætast við hjá henni er þau ganga í
hjónabandið.
S
JÍL bandarísku blaði var nýlega
sagt frá því, að nú hefði Jackie
Onassis sagt já við bónorði vinar
síns, Mauricc Tempelsman, og
hann yrði þannig þriöji eiginmaður
hennar. Petta átti að hafa skeð
þegar hann lá á spítala eftir hjarta-
kast sem hann fékk.
I fréttinni segir að þau Jacquel-
ine og Maurice, sem er demanta-
kaupmaður, hal'i verið góðir vinir
árum saman, og hann hafi mikið
gengið eftir henni að giftast sér, cn
hún hafi verið heldur treg til að
stofna á ný til hjónabands. Reynd-
ar hefur Tempélsman enn ekki
fengið fullnaðarskilnað frá fyrrver-
andi konu sinni, cn það stendur
víst til bóta.
Maurice Tempelsman er á svip-
uðum aldri og Jackie. eða 56 ára.
Hann er auðugur demantasali og
hefur verið fjármálalegur ráðu-
nautur hcqnar í mörg ár. Vinir
þeirra segja, að þau hafi þegar
tekið upp sambúð, og hann sé
meira í íbúð Jackie á Fifth Avenue
en í sinni eigin íbúð.
Þegar Maurice fékk hjartaáfallið
sat Jacqueline hjá honum eins og
hún fékk leyfi lækna til.
Sagt er að aðalmótbárur Jackie
gegn bónorði Tempelsmans hafi
verið, að börn hennar væru á móti
því að nokkur karlmaður tæki
aftur sæti föður þeirra. Þau eru nú
sögð sátt við að ntóðir þeirra giftist
í þriðja sinn, því þau hafa séð að
það væri einungis til góðs fyrir
hana. Einnig eru þau nú uppkomin
og standa á eigin fótum og eiga
með sig sjálf.
Y
AfIRLEITT hefur alltaf þótt sjálfsagt að
þeir karlmenn, sem vilja hugsa um útlitið, séu
vel rakaðir, - eða þá með vel hirt skegg. En
nú allt í einu eru mestu sjarmörarnir farnir að
láta mynda sig með nokkurra daga skegg-
brodda og það þykir ofsalega fínt! Það eru
meira að segja komnar á markað sérstakar
rakvélar, sem raka eða klippa skeggið þannig
að a.m.k. þriggja daga skeggbroddar verði
eftir í andlitinu.
í nýlegum blöðurn, sem birta myndir af
Hollywoodleikurum og ýmsar frcttir af þeim,
sáum við á annarri hvorri síðu myndir af
Harrison Ford er mörgum minnisstæður úr
myndinni „Vitninu hér er hann með nokk-
urra daga skegggróður í andlitinu.
leikurum, sem sýndu skeggbroddana, jafnvel
við hátíðleg tækifæri eins og t.d. verðlaunaveit-
ingar. Það er af sem áður var, að það þótti
„rónalegt" að láta sjá sig órakaðan!
Don Johnson (í Miami Vice) fékk verðlaun,
sem kallast „Golden Globe Awards“. Hér
sjáum við hann taka við verðlaununum og sýna
um leið tvennt sem hefur orðið til að hann er
kallaður „karla-kynbomban", það er gcislandi
brosið - og skeggbroddarnir, sem eru orðnir
nokkurs konar „vörumerki“ hjá Don.
Leikarinn Rob Lowe (St. Elmos Fire o.fl.
o.fl.) er varla sprottin grön, en þó hefur hann
hér safnað skeggi til að auka enn á sjarmann!
Föstudagur 29. ágúst 1986
IBllllll ÚTLÖND lllllllllllll
FRÉTTAYFIRLIT
FRANKFURT - Seðla-
bankinn í Þýskalandi lækkaði
ekki forvexti á reglubundnum
bankaráðsfundi sínum í dag,
og hunsaöi þar með kröfu
Bandaríkjastjórnar um að þeir
lækkuðu fjármagnskostnao til
að örva hagvöxt í heiminum.
Seðlabankinn lét 3,5% forvexti
halda sér - en forvextir eru þeir
vextir sem mestu ráða um
vaxtastig í viðkomandi hag-
kerfi.
LA PAZ — Ríkisstjórnin í
Bólivíu hefur komið á herlög-
um í landinu og fyrirskipaði
hernum að leysa upp mót-
mælaaðgerðir námuverka-
manna, sem hafa risið upp
gegn aðhaldsstefnu stjórnar-
innar í efnahagsmálum.
PRETORIA — Háttskrifaður
kaþólskur prestur sem verið
hefur í haldi undir ákvæðum
neyðarlaganna, hefur sakað
lögregluna um pyntingar, oa
sagði að hann hafi verið
neyddur til að standa með
bundið fyrir augu og handjárn-
aður meðan á 30 klukkustunda
niðurlægjandi yfirheyrslu stóð.
LISSABON — Kafteinn í
portúgalska hernum særðist
þegar sprengja sprakk í bíl
hans í úthverfi Lissabon. Lög-
realan og fulltrúar varnarmála-
ráouneytisins segja að þetta
sé ein af mjög sjaldgæfum
árásum á hermenn í Portúgal.
AMMAN — Forseti Egypta-
lands, Hosni Mubarak og
Hussein Jórdaníukonungur
hófu viðræðufund sinn í gær
og var talið að megin umræðu-
efnið hafi verið sú stöðnun
sem komin er í friðarumleitanir
fyrir botni Miðjarðarhafs.
SEOUL — Fellibylurinn Vera
hefu farið þvert yfir Kína og
Suður-Kóreu og skilið eftir í
slóð sinni 13 látna og þúsundir
heimilislausra.
LONDON — Milljónamær-
ingurinn og fyrrum knapinn,
Lester Pigott, hefur verið sekt-
aður um 1000 sterlingspund
fyrir að hafa í fórum sínum á
heimili sínu í Newmarket í
Austur-Englandi án nauðsyn-
legra leyfa, tvær byssur og
meira en 400 skotfærahylki.
HARARE — Eitt af meqin
umræðuefnum á þingi Sam-
taka óháðra ríkja, sem hefst í
Harare höfuðborg Zimbabwe
á mánudag, verður vandi þess-
ara þjóða vegna lágs verðs á
útflutningsvörum þeirra og gíf-
urlegar uppsafnaðar erlendar
skuldir.