Tíminn - 29.08.1986, Síða 7
Föstudagur 29. ágúst 1986
Tíminn 7
VETTVANGUR
llllllllllllillll
Helgi Pétursson, blaðafulltrúi:
AÐ TAPA A ÞVI
AÐ TAKAST VEL
„Það er hallærislegt að vera
framsóknarniaður. Þetta lið er allt
í lopasokkuin". - „Sjáið þið fram-
sóknarganginn í honum þessum -
hann er vanur að hlaupa svona á
þúfunum". - „Nú er hann kominn
i framsóknarfötin sín - þessa fínu
Hckluúlpu utan yfir Gefjunarföt-
in“. - Framsóknarmenn eru ekki í
pólitík, þeir eru bara að sjá um sína
við skiptingu kökunnar" - „Fram-
sóknarmenn hafa enga skoðun -
réttara væri kannski að segja að
þeir hefðu margar skoðanir á öllu
milli himins og jarðar" - „Maður
getur ekki verið ungur maður og
líka framsóknarmaður" - „Þetta
lið er bara útidcild frá Samband-
inu“...
Einn ágætur maður úr innsta
hring stjórnenda Framsóknar-
flokksins sagði það eitt, sem mér
þótti gáfulegt á fundi framkvæmda-
stjórnar flokksins, sem ég sat eitt
sinn: „Það er svo sem ágætt, að
hér standi, að fjölga skuli félags-
mönnum í Framsóknarfélögunum
um land allt, - gallinn er bara sá,
að hér stendur ekkert um það,
hvernig það skuli gert, hvað eigi að
segja fólkinu."
Þetta ér einn grundvallarvanda
Framsóknarflokksins að mínu viti.
Fólk er alls ekki með það á hreinu,
fyrir hvað flokkurinn stendur í
mörgum mikilsverðum málum og
það sem meira er, það á því ekki
að venjast, að forystumenn flokks-
ins láti frá sér heyra um þau mál.
Forystumenn Framsóknar-
flokksins skrifa ekki í blöð. Þeir
halda ekki erindi í útvarp. Þing-
menn Framsóknarflokksins tala
minnst allra í málum á þingi. Sumir
svo sjaldan, að það heyrir til tíð-
inda meðal annarra þingmanna og
fréttamanna, þegar þeir taka til
máls.
Forgangsröðin
Framsóknarflokkurinn á nú að-
ild að ríkisstjórn með Sjálfstæðis-
flokknum, þeim flokki hérlendis,
sem hvað mestan aðgang á að
fjölmiðlum, bæði í eigu sjálfstæðis-
manna og ríkisins. Ráðherrar
Framsóknarflokksins fara með
forsætisráðuneyti, sjávarútvegs-
ráðuneyti, dóms- og kirkjumál og
félagsmál. Enginn dregur í efa
þýðingu og mikilvægi þessara em-
bætta.
En spyrjum okkur, góðir fram-
sóknarmenn, hvaða ávinning hefur
framsóknar- og samvinnustefna
haft af setu helstu ráðamanna
flokksins í embættum ráðherra?
Formaður og varaformaður
flokksins gegna tveim þýðingar-
mestu embættum í ríkisstjórninni.
Þeir hafa lítinn tíma haft til annars.
Allt er þetta þó spurning um
forgangsröð.
Ráðherrar Sjálfstæðisflokksins
sjá til þess, að þeirra sé getið af
minnsta tilefni. Raunar má segja,
að sumar gerðir þeirra séu frægar
af endemum og vissulega má um
það deila, hvort umfjöllun um þær
hafi verið Sjálfstæðisflokknum til
framdráttar.
Það breytir þó ekki því, að
framsóknarmenn í landinu hafa
ekki beint verið kaffærðir í grein-
um og ræðuhöldum forystumanna
Framsóknarflokksins.
Nýtist staðan nógu vel?
Mér er til efs , að Steingrímur
Hermannsson hafi nýtt sér stöðu
forsætisráðherra nægilcga vel,
stefnu flokksins til framdráttar.
Hann hefur margsinnis lýst því
yfir. að hann sé eins konar verk-
stjóri í stjórninni, sé þar til þcss að
sætta sjónarmið og konta málum
stjórnarinnar fram. Ég er svo sem
viss um, að Steingrímur vinnur
heill að þessu, en því miður hafa
andstæðingar okkar oft notfært sér
þá einlægni, sem rík er í fari
Steingríms. Mig uggir, að forsætis-
ráðherra úr röðum sjálfstæðis-
manna hefði haldið fastar á sjónar-
miðum Sjálfstæðisflokksins, hvað
sem það kostaði.
Ég hef spurt Steingrím, hvers
vegna hann efndi ekki til blaða-
mannafunda a.m.k. einu sinni í
mánuði til þess að greina frá því
helsta, sem unnið væri að í ríkis-
stjórn hans. Og þá þyrfti hann
ekkert að hafa Steina litla með,
hann er jú forsætisráðherra.
Nokkrir blaðamannafundir hafa
verið haldnir, en þá alltaf í ein-
hverju sérstöku tilefni og alltaf er
einhver ráðherra sjálfstæðismanna
viðstaddur. Oftast Þorsteinn. Það
held ég að sé bara fyrir einstök
karaktereinkenni Steingríms Her-
mannssonar, ekki það að sjálf-
stæðismenn, eða aðrir flokkar
myndu koma þannig fram við)
okkur. Og þetta kann að fara vel í
stjórnmálamenn og þá, sem
gleggst þekkja til, en ég efast um,
að þetta skili okkur atkvæðum.
Og nú vill svo til, að til þess að
flokkurinn eigi menn á þingi og
nái þannig fram sínum málum,
þarf hann að fá atkvæði kjósenda.
Áróðurinn gegn okkur
Og til þess, að við njótum at-
kvæða kjósenda, þurfa þeir að
vita. hver okkar staða er, hver
okkar þáttur er í stjórn og sögu
þessarar þjóðar. Andstæðingum
I okkar hefur tekist að snúa því
Itímabili sem flokkurinn hefur átt
aðild að ríkisstjórnum, - einu
mesta framfaratímabili í sögu
þjóðarinnar, upp í andhverfu sína
og kalla það Framsóknaráratuginn
með neikvæðum formerkjum.
Þeir komast upp með það.
Þeir hafa auðvitað ekki haldið
því á loft, að flokkurinn er eini
stjórnmálaflokkurinn sem hefur
þorað að takast á við þau vanda-
mál, sem við hafa blasað undanfar-
in ár. Þeir hafa miklu frekar reynt
að klína á Framsóknarflokkinn
öllu því sem miður hefur farið á
þessu tímabili, sem vissulega er
margt, enda hefur víða verið borið
niður. Þeir hafa hins vegar gert
lítið úr því, að Framsóknarflokkur-
inn hefur ekki starfað einn allan
þennan tíma, - allir stjórnmála-
flokkarnir hafa komið nærri ríkis-
stjórn undanfarin ár. Þar hefur
vissulega margt mátt betur fara, cn
þar er ekki við Framsóknarflokk-
inn einan að sakast.
Ungu fólki er gjarnan bent á það
núorðið, af andstæðingum okkar,
að Framsóknarflokkurinn sé aftur-
haldssamur og þröngsýnn.
Minna er látið með það, að í tíð
ríkisstjórnar Steingríms Hermanns-
sonar hafa orðið einhverjar þær
mestu breytingar í lífi þjóðarinnar,
sem orðið hafa undanfara áratugi,
svo miklar, að fólk áttar sig kannski
ekki á þeim.
Helgi Pétursson
nýsköpun í atvinnulífi hefur verið
sett á oddinn. Allt er þetta gert l'yrir
tilstilli Framsóknarflokksins í ríkis-
stjórn Stcingríms Hérmannssonar.
Það cr ekki von til þess, að
andstæðingar haldi þessu á lofti.
En það sem verra er, ekki gerum
við það.
Fjölmörg mál hafa að undan-
förnu verið til rækilegrar um-
fjöllunar nieðal almennings og í
fjölmiðlum í landinu. Stjórnmál og
aðgerðir ríkisstjórnarinnar Itafa
auðvitað borið hátt, en ennfremur
mörg önnur inál, sem fólk hefur
yfirleitt haft skoðun á. Hér cr
auglýst eftir skoðun leiötoga Fram-
sóknarflokksins á nokkrum
málum:
Félagshyggjufólk hefur mikið
velt fyrir sér möguleikum á því að
„...ég held að það sé eingöngu fyrir karaktereinkenni Steingríms að
einhver ráðherra Sjálfstæðisflokksins er alltaf hafður með á blaðamanna-
fundum, ekki það að sjálfstæðismenn eða aðrir flokkar myndu konia
þannig fram við okkur..."
í Sýn - blaöi ungra
framsóknarmanna
sem nýkomiö er út er
grein eftir Helga Pét-
ursson, blaðafulltrúa
Sambandsins og fyrr-
verandi ritstjóra NT.
Tíminn hefur fengið
leyfi til aö birta þessa
grein.
Vorum við nokkuð
með í þessu?
I stjórnartíð ríkisstjórnar Stein-
gríms Hermannssonar hefur verið
unninn sigur á einum mesta böl-
valdi sem sótt hefur að þjóðinni,
óðaverðbólgu. I stjórnartíð Stein-
gríms Hermannssonar, hefur öllu
fyrirkomulagi á sjávarútvegi verið
gjörbreytt. í tíð þessarar ríkis-
stjórnar hafa verið gerðar stórkost-
legar breytingar á ríkisrekstri, í
peningamálum, bankamálum og
hefja nánara samstarf í stjórnmál-
um og mcnn hafa rætt um mögu-
leika á samruna flokka á „vinstri"
kantinum.
Hvaða skoðun hefur formaður
Framsóknarflokksins og forsætis-
ráðherra á þessum umræðum og
hvaða möguleika telur hann vcra á
slíku samstarfi? Þetta eru spenn-
andi spurningar, sem hugsanlegir
stuðningsmenn Framsóknarflokks-
ins vildu án efa fá fyllri svör við.
Er um það að ræða að eiga
nánara samstarf við Alþýðuflokk-
inn, eins og hann er nú? Mikið
hcfur verið rætt um flokkana tvo,
Framsóknar- og Alþýðuflokk, sem
flokka „af sama meiði“ og allt það,
en tclur formaður Framsóknar-
flokksins, að hér sé um raunveru-
legan möguleika að ræða?
Ég hcf ekki heldur, frekar en
aðrir, séð á prenti hugrenningar
Steingríms Hcrmannssonar um
þau merkilegu skilaboð sem var að
finna í crindi Vals Arnþórssonar,
stjórnarformanns Sambands ís-
lenskra samvinnufélaga á aðal-
fundi Santbandsins í sumar. Þar
;sagði Valur m.a.: „Það er orðin
brýn nauðsyn fyrir pólitíska sam-
stöðu í landinu um lýðræöissinnaöa
félagshyggju, sem nái út yfir nú-
verandi flokksbönd.“
Nú er Valur Arnþórsson ekki
einhver maður út í bæ. Hann er,
auk þess að vera stjórnarformaður
Sambandsins, kaupfélagsstjóri
KEA og einn af framkvæmda-
stjórnarmönnum Framsóknar-
flokksins. Til samvinnuhreyfingar-
innar teljast nú um 47 þúsund
ntanns og ég veit það jafnvel og
Steingrímur, að það eru ekki allt
saman framsóknarmenn. Þá væru
menn í l'ullri vinnu við að fylla út
félagsskírteinin. En það væri án
efa fróðlegt fyrir samvinnumenn
að heyra, hvaða augum Steingrím-
ur Hermannsson lítur þessar hug-
renningar Vals Arnþórssonar, hver
að hans mati verði framtíð sam-
vinnuhreyfingarinnar í landinu og
samvinnustarfs. Samvinnuhreyf-
ingin hefur átt í vök að verjast og
það hefur Framsóknarflokkurinn
einnig. Hvernig skilgreinir formað-
ur Framsóknarflokksins það, telur
hann vera eðlilegt samhengi þar á
milli eða dregur annar hvor aöilinn
Itinn niður?
Þrjú mál hafa sett svip sinn á
samskipti Bandaríkjanna og Islands
undanfarin ntisseri: RainbowNavi-
gationmálið, kjötsölumál til varn-
arliðsins og nú síðast Hvalamálið.
Hver er raunveruleg afstaða
flokksins og formannsins til Banda-
ríkjanna cftir niðurstöðu þessara
mála? Auðvitaö felst eitthvað í
því. að „nú verði að taka samband
þjóðanna til skoðunar", en það
minnir svolítið á að málin séu „litin
alvarlegum augum". Hvaða skoð-
un hefur forsætisráðherra og for-
ntaður Framsóknarflokksins á af-
stöðu Bandaríkjastjórnar í ntálinu
og hverjar telur hann að lyktir
þessara mála verði?
Loks má ncfna eitt mál til viðbót-
ar, sem cr í brennidepli. Fram-
sóknarflokkurinn hcfur undanfarið
sótt rnest af fylgi sínu til lands-
byggðarinnar. Fyrir vikið hcfur
hann verið kallaður landsbyggðar-
flokkur af andstæðingunum, sem
lýsir þeirri fyrirlitningu á íbúum
landsbyggðarinnar, sent aðrir
flokkar virðast telja sig þrífast best
á. Hverja telur formaður Fram-
sóknarflokksins og aðrir ráðamenn
flokksins vera skýringuna á því, að
fylgi flokksins fer minnkandi á
þéttbýlissvæðinu við höfuðborg-
ina? Þetta cr brcnnandi spurning
fyrir alla nýja kjósendur, sem búið
er að innræta að Framsóknarflokk-
urinn sé afturhaldssamur lands-
byggðarflokkur. Steingrímur getur
svarað þessu, liann hefur starfað
lengi og vel í þéttbýli, en eins og
allir þingmenn flokksins, nema
cinn, sækir hann fylgi sitt í lands-
byggðarkjördæmi.
Nú má Steingrímur ckki halda
aö hann sé að verða eftirbátur
einhverra stórkostlegra ritsmllinga
úr röðum þingmanna og ráðherra
Framsóknarflokksins. Ollu. sem
hér hefur verið bcint til Steingríms
mætti eins beina til flestra þing-
manna og ráðherra flokksins. Hér
er tekið ofan lyrir mönnum eins og
Jóni Kristjánssyni, Haraldi Ólafs-
syni og Páli Péturssyni, sem þó
reyna að klóra í bakkann og skrifa
greinar af og til. Hinir geta allir
tekið efni greinarinnar til sín.
Hvenær hafa menn séð grein eða
heyrt erindi eftir Davíð Aðalsteins-
son? Hafa menn lcsiö ítarlegar
útskýringar um landbúnaðarmál
eftir Jón Helgason? Þar erhartsótt
að mönnum, en fátt til andsvara.
Stefán Guðntundsson hel'ur án ef
frá miklu að segja og er ekki
skoðanalaus - langt í frá. Vinsæl-
asti stjórnmálamaðurinn í dag á
íslandi og þótt víðar væri leitað,
Halldór Asgrímsson - það sakaði
nú ekki greinarstúfur um hvalamál
- um framtíðarskipan sjávarút-
vegs, skipan fiskeldismála, -
o.s.frv.
Verið þið sýnilegir. Ungt fólk er
að gera upp hug sinn í vetur og vor.
Þúsundum saman eru kjósendur
óákveðnir. Þeir vilja sá og heyra,
hvað Framsóknarflokkurinn hefur
til málanna að leggja. Flokkurinn
er í aðstöðu til þess, sem stjórnar-
flokkur með þýðingarmikil ráð-
herraembætti. Þingmenn flokksins
og ráðherrar eru i framhnðj
vegna þess, að þeir telja sig hafa
eitthvað fram að færa.
Látið þið fólk heyra, hvað það