Tíminn - 29.08.1986, Side 8
8 Tíminn
Föstudagur 29. ágúst 1986
Fjárvogir
Nákvæmar - Hljóðlátar
Til afgreiðslu strax.
DANVÆGT FJÁRVOGIR
Áralöng reynslatryggirgæðin.
Hafið samband við sölumenn
3
Auglýsingadeild hannar
auglýsinguna fyrir þig
........ ........■■■■..
Qkeypis þjónusta
Mjólkurkýr til sölu
Kýr og haustbærar kvígur til sölu nú þegar.
Uppl. í síma 99-1926 á kvöldin.
+
Útför
Guðmundar Bjarnasonar
frá Mosfelli
fer fram frá Mosfellskirkju laugardaginn 30. ágúst kl. 14.00
Sigrún Þóra Magnúsdóttir
Aðalbjörg S. Guðmundsdóttir Bjarni Sigurðsson
Þórunn Bjarnadóttir Sif Bjarnadóttir
Þóra Sigurþórsdóttir Bjarki Bjarnason
Ýr Þórðardóttir
+
Eiginmaður minn
Ingvar Indriðason
Engjavegi 1,
Selfossi
er andaðist 25. þessa mánaðar verður jarðsunginn frá Skálholtskirkju
laugardaginn 30. ágúst kl. 14.00. Jarðsett verður að Torfastöðum,
bifreið verður frá B.S.Í kl. 12.00 og frá afgreiðslu sérleyfisbíla Selfoss
kl. 12.45. Þeim sem vildu minnast hans er bent á að láta
Torfastaðakirkju njóta þess. Fyrir hönd vandamanna.
Halldóra Jósefsdóttir
Batnandi rekstur
hjá Iðnaðardeild
Vonast eftir auknum viðskiptum við Sovétmenn
Rekstur Iðnaðardeildar Sam-
bandsins á Akureyri hcfur gengið
betur það sem af cr þcssu ári heldur
en oft á undanförnuni árum. Við
lcituðum frétta af þessu hjá Jóni
Sigurðarsyni framkvæmdastjóra, og
sagði hann mcðal annarsaðafkoman
í Ullariðnaði væri bctri hjá jieim
núna á fyrra helmingi þessa árs
heldur en hún hefði verið sama
tímabil á mörgum undanförnum
árum.
Jón sagði að rckstur Iðnaðardeild-
ar hcfði gengið allsæmilega undan-
farið, þótt það væri vissulcga nokkuð
þungur róöur að rcka þessi iðnfyrir-
tæki við fastgcngisstefnu og hækk-
andi kostnað innanlands. Á móti
kæmi að þeir hefðu náð söluaukn-
ingu hæöi í Skinna- og Ullariðnaði.
„Afkoman það scm af cr árinu er
hetri cn oft áður á þessum tíma,“
Jón Sigurðarson frkvstj. Iðnaðar-
deildar.
sagði Jón. „og við erum að vona það
að við náum að haida áfram uppi
dampinum meðauknum samningum
við Sovétmenn og áframhaldandi
góðri sölu á vesturmarkaði. Við
erum nú þegar búnir að semja um
sölu á verulegu magni til Sovétríkj-
anna, og við vonumst svo sannarlega
tii að það eigi eftir að aukast. Þessi
viðskipti eru mjög þýðingarmikil fyrir
okkur, og ég trúi því ekki fyrr en í
fulla hnefana að úr þcim dragi. Ég
tel að við eigum eftir að selja meiri
ullarvörur í Sovétríkjunum, og ég
vil gjarnan að það komi fram að ég
tel að svo eigi eftir að verða. Við
höfum ákaflega góða reynslu af
viðskiptunum viö Sovétmenn, og í
raun og vcru hefur enginn markaður
reynst okkur betri en sá sovéski."
- ‘-'sig
Samband Industries
Incorporated
Samband Industries lncorporat-
ed. sölufyrirtæki Iðnaðardeildar
Sambandsins í Bandaríkjunum. var
flult nú í vor lrá New York til
Columhus i Oliio. Jafnframt var starf-
semi fyrirtækisins hreytt töluvert og
ráðinn nýr framkvæmdastjóri, Ólaf-
ur Ólafsson.
Það sem hér gerðist var að fyrir-
tækið Árhlik hf. í Reykjavík, scm
starfar að ullarútflutningi, átti starf-
semi í Bandaríkjunum sem rekin var
undir nafninu lccwarc. I’cssa starf-
semi keypti Sambandið og samcin-
aði rekstri Samband Industrics Inc.
Ólafur Ólafsson er einn eigenda
Árbliks, og réöist hann jafnfrámt til
Samband Industries sem fram-
kvæmdastjóri. Hann tók viðstarfinu
í maí í vor, og á sama tínia var
starfsemin flutt til Ohio.
Hjá fyrirtækinu eru núna þrír
starfsmenn, auk þcss sent talsverður
fjöldi sölufólks vinnur fyrir það á
umboðslaunagrundvelli. Starfið
miðast fyrst og fremst að því að selja
ullarfatnað og teppi l'rá Iðnaðar-
deildinni á Akureyri. Tii þessa hefur
það fyrst og fremst falist í jiví að
byggja þarna upp dreifikerfi, halda
tengsium við markaðinn, hafa áhrif
á það hvað hannað er fyrir hann hér
heima og fleira af því tagi.
Markaðurinn enn
hagstæður
Aðalsteinn Helgason forstöðu-
maður Ullariðnaðar Iðnaðardeildar
á Akureyri sagði að Bandaríkja-
markaður yrði enn að teljast hag-
stæður íyrir ullarvörur. Að vísu
hefur verðlag þar staðið nokkurn
vcginn óbrcytt í dollurum í sl. tvö ár.
á sama tíma og hækkanir á tilkostn-
aði hér heima hafa orðið 30-35%, ef
allt er talið. Af þeim sökum er þessi
markaður núna ekki eins hagstæður
og hann var fyrir um það bil tveimur
árum. Það breytir því hiris vegar
ekki að hann er enn vcl samkeppnis-
fær um verð nriðað viö aðra þá
markaði senr íslenskar ullarvörur
cru seldar til.
Um árangurinn af þessu nýja átaki
vestanhafs er lítið hægt að segja enn
sem komið cr. Sölutími íslensku
uilarvaranna er á haustin og ncyt-
endur kaupa þær frá því í september
og fram að jólum. Það þýðir að
eigendur verslana kaupa þær inn á
tímubilinu frá því um áramót og
fram í apríl fyrir söluna á komandi
hausti. Það verður því ekki fyrren í
apríl á næsta ári sem f ijós kemur
hvernig til hefur tekist.
- es'g
MINNING
ílillllllli
Kurt Juuranto
aðalræöismaöur
Mánudaginn 18. ágúst síðastliðinn
fór bifreið út af veginum rétt vestan
við Helsinki. Ökumaður hennar var
Kurt Juuranto, aðalræðismaður
íslands, og lést hann í sjúkrahúsi
skömmu síðar. Þannig gerðist það í
annað sinn. að ísland missti sviplega
og fyrir aldur fram aðalræðismann í
Hclsink^ Hinn fyrri var faðir Kurts,
Erik Juuranto, sem lést sextugur á
sjúkrabeði.
Síðan hcimsstyrjöldinni lauk fyrir
fjórum áratugum hafa opinber tengsl
íslands við Finnland mjög tengst
nafninu Juuranto. Þeir feðgar voru
aðalræðismenn, og um árabil hefur
yngri bróðirinn Kai verið ræðismað-
ur í Helsinki. Hófust þessi tengsl, er
sendiherra íslands í Stokkhólmi á
stríðsárunum, Vilhjálmur Finsen,
kynntist finnskum kaupmanni, Erik
Juuranto. Hafði hann keypt síld og
fleiri vörur frá íslandi, og varð
hugfanginn af landinu. Varð hann
áhugasamur fulltrúi fyrir ísland í
Finnlandi, ekki síður í menningar-
málum en viðskiptum, virtur og
kunnugur fyrirmönnum beggja
ríkja.
Juuranto stofnaði um tvítugt Le-
jos Oy, sem er eitt stærsta innflutn-
ingsfyrirtæki Finna. Synir hans hófu
háðir störf við það og tóku við stjórn
þess að honum látnum. Kurt varð
ræðismaður 1960 og aðalræðismaður
et'tir lát föður síns. Gegndi hann því
starfi hátt á þriðja áratug með reisn
og virðuleik. Hann hafði og tekið
ástfóstri við ísland og íslendinga, fór
þangað margar ferðir og hafði ætlað
sér að vera í Reykjavík nú um
mánaðamótin. Islendingar standa í
mikilli þakkarskuld við Kurt Juur-
anto fyrir allt það, sem hann gerði
fyrir þá.
Kurt var hvers manns hugljúfi í
persónulegum kynnum, hógvær og
vinfastur. Hann stýrði fjölskyldufyr-
irtækinu af dugnaði, en utan við-
skiptaheimsins átti hann sér áhuga-
mál í listum og bókum. Um það, svo
og tengslin við ísland, ber hið fagra
heimili í Helsinki glöggt vitni.
Kona hans, Leena, er glæsileg
athafnakona, sem rekur annað fyrir-
tæki á öðru sviði af miklum þrótti.
Þau eiga einn son, Juha.
Kurt Paul Erik Juuranto fæddist
21. júní 1927 í Helsinki. Hann var
því 59 ára gamall, er hann lést svo
sviplega.
Við hið óvænta fráfall Kurts syrgi
ég góðan vin og félaga, og horfi á
bak traustum og fórnfúsum aðal-
ræðismanni, sem vann mikið ævi-
starf fyrir samband íslendinga og
Finna. báðum þjóðum til gagns.
íslendingar munu lengi geyma
minningu hans.
Benedikt Gröndal, sendihcrra.