Tíminn - 16.09.1986, Qupperneq 3
Tíminn 3
Frá fundi Verslunarnefndar:
Afkomutengd launakerfi
fyrir verslunarstjóra á lokastigi
Verslunarnefnd Sambandsins og
kaupfélaganna hélt fyrsva fund
vetrarins nú fyrir helgina. í nefndinni
eiga sæti fimm fulltrúar frá kaupfél-
ögunum og þrír frá Verslunardeild
Sambandsins. Verkefni hennar eru
m.a. fólgin í því að samræma að-
gerðir þessara aðila í smásöluverslun
og hafa forgöngu um nýjungar.
Guðjónsson og Aðalsteinn Her-
mannsson. Þeir gerðu þar grein fyrir
þeirri nýskipan fræðslustarfs og
námskeiðahalds sem nú er að konra
til framkvæmda hjá skólanum.
Auk þess voru lagðar fyrir fundinn
tillögur að tilboðsvörum á vegum
kaupfclaganna og Verslunardeildar
fyrir næsta vetur. Ljóst er talið að nú
sé mikil gróska og kraftur í allri
smásöluverslun samvinnufclaganna,
og margar nýjungar framundan.
-esig
Á þessum fundi var m.a. rætt um
afkomutengd launakerfi fyrir versl-
unarstjóra. Að því máli hefur verið
unnið undanfarið á vegum Vinnu-
málasambands samvinnufélaganna. Á
fundinn kom Ólafur Guðlaugsson
frá Vinnumálasambandinu og gerði
grein fyrir stöðu þess. Þar kom fram
að undirbúningur er nú kominn á
lokastig, og fer slíkt kerfi af stað í
cinhverjum kaupfélögum nú á næst-
unni í tilraunaskyni. Síðar er stefnt
að því að sams konar kerfi geti náð
til alls starfsfólks í kaupfélagabúðun-
um.
Frá Samvinnuskólanum komu á
fund nefndarinnar þeir Þórir Páll
Nýjar fornritaútgáfur
Voluspáog
Njáls saga
Bókaútgáfan Svart á hvítu hefur
sent frá sér þrjár nýjar bækur. Allar
tengjast þær fornbókmenntum og
kennslu þeirra í framhaldsskólum.
Sígildar sögur I. ncfnist ein þeirra
og hefur að geyma fjórar íslendinga-
sögur og þrjá þætti. Þar fer mest
fyrir Njálu. en líka eru í bókinni
Bandamannasaga. Bárðar saga Snæ-
fellsáss og Bjarnar saga Hítdæla-
kappa. Þetta cr fyrsta bindi, en eftir
áramót er það næsta væntanlegt, og
verður Laxdæla saga í því meðal
annarra. Sögurnar í þessari bók eru
teknar beint út úr íslendingasagna-
útgáfu Svarts á hvítu, scm kom út í
tveimur bindum á þessu ári og því
síðasta, og er blaðsíðutölum úr
hcnni haldið.
Önnur bókin er Skýringar og fylgir
hinni fvrri. Þar er rækilegur formáli
um Islendingasögur. sérstakur inn-
gangur um hverja sögu í textaútgáf-
unni og rækilegar skýringar með
ættartölúm, kortum og skýringar-
myndum.
Þriðja bókin er Sígild kvæði I, og
er það skólaútgáfa af nokkrum
Eddukvæðum sem Gísli Sigurðsson
hel'ur búið til prentunar. í henni er
Völuspá,hluti Hávamála.Helgakviða
Hundingsbana II og Atlakviða. Af
Völuspá cr hér eingöngu prentaður
Konungsbókartexti, sem verður til
þess að áherslur í skýringum við
kvæðið eru með nokkuð nýjum
hætti.
í tengslum við þessa bók hefur
forlagið fengið Guðjón Ketilsson til
að gera veggmynd af atburöum og
persónum Völuspár. Sýnir hún goð-
heim og mannheim umkringda höf-
uðóvinum þeirra að trú ásatrúar-
manna. -esig
Pílagrímaflugi því sem Arnarflug
gcröi samninga um í Alsfr er nú
lokið, og að sögn Goöa Sveinssonar
gckk það í alla staði mjög vel. Sagði
hann aö allar áætlanir hefðu staðist
en samkvæmt því má reikna með að
nettó-hagnaður Arnarflugs vegna
pílagrfmaflugsins ncmi upphæð 20
til 30 milljónir króna.
Flugið hófst 20. júlí og lauk 7.
septcmber og á þessu tímabili flutti
fclagið samtals 52.000 farþega. Sá
félagið um alla pílagrímaflutninga
Alsírmanna þetta árið og notaði til
þcss 5 flugvélar af DC8-6I gerð.
Samningar Arnarflugs við Alsír-
mcnn var stærsti samningur þctta
árið, en að auki llaug félagið umtals-
vert áætlunarflug fyrir Air Algcric,
ntilli Alsir og borga t Frakklandi.
Um 170 starfsmcnn frá 15 þjóð-
löndurn störfuðu fyrir félagið í þcss-
um flutningum. Aö sögn Goða
Svcinssonar lýstu Alsírmcnn yfir
mikilli ánægju nieð alla framkvæmd
verkefnisins af hálfu Arnarflugs.
phh
DRATTARVELAR
TIL AFGREIÐSLU STRAX
Á EFTIRFARANDI VERÐUM
CASE IH
CASE IH
CASE IH
CASE IH
CASE IH
585XL 2x4 62 hö
685XL 2x4 72 hö
1394
1394
2x4 77 hö.
4x4 77 hö.
1494
4x4 85 hö.
610.000
625.000
680.000
820.000
875.000
Allar ofangreindar vélar hafa
Luxus hús með sléttu gólfi
Vökvaskiptingu
Lyftutengdan dráttarkrók
Allur fullkomnasti fáanlegur
búnaður
Væntanlegar
síðar í mánuðinum
CASE IH 485 L
2X4 54 hö.
Kr. 480.000
Greiðslukjör við allra hæfi
| ÞERTEKSTÞAÐMEÐ
¥
&
Járnhálsi 2 Sími 83266 110 Rvk.
Pósthólf 10180
Þriðjudagur 16. september 1986
Pílagrímaflugi í Alsír lokið:
Hagnaður Arnar-
flugs á bilinu
Frá fundi Verslunarnefndar, talið frá vinstri: Ólafur Sveinsson, Búðardal, Snorri Egilsson, Verslunardeild, Gísli
Haraldsson, Neskaupstað, Þórir Páll Guðjónsson, Samvinnuskólanum, Örn Ingólfsson, Hafnarfirðit formaður
nefndarinnar, Sigurður Jónsson forstöðumaður Verslunarráðgjafar Sambandsins, Aðalsteinn Hermannsson,
Samvinnuskólanuni, Hafsteinn Eiríksson, Verslunardeild, Pálmi Guðmundsson, Selfossi, og Ólafur Guðlaugsson,
Vinnumálasambandi samvinnufélaganna. Á myndina vantar Magnús Gauta Gautason frá KEA. liinamymi: Gísli Egílt
20*30 milljónir
Fluttu 52 þúsund farþega