Tíminn - 23.09.1986, Síða 19

Tíminn - 23.09.1986, Síða 19
ivrr' Þriðjudagur 23. september 1986 Tíminn 19 llllllillllllllllllllll ÚTVARP/SJÓNVARP llllillllllllllllllllllllillllllllllllllllllllllillllllllllll Sjónvarp kl. 21.40: Vitni deyr - Dalgliesh tekinn til starfa á ný Adam Dalgliesh rannsóknarlög- regluforingi (Roy Marsden), vinur íslenskra sjónvarpsáhorfenda, er mættur til leiks enn á ný til að leysa dularfulla morðgátu. Og gátan sem hann fæst við að þessu sinni er mörgum kunn hér á landi. VITNI DEYR heitir sagan og er eftir P.D. James. Hún er meðal þeirra bóka sem komið hafa út í Ugluflokki Máls og menningar. Fyrsti þátturinn er í kvöld kl. 21.40. Þýðandi er Kristrún Þórðar- dóttir. Utvarps Rás 1 kl. 20.40: Nornin í Ijósi sögunnar - fyrsti þáttur af þrem f kvöld kl. 20.40 verður í útvarpi Rás 1 fyrsta erindið af þrem eftir Lisu von Schmalensee um nornina í ljósi sögunnar. Það er Auður Leifsdóttir sem les þýðingu sína. Lisa von Schmalensee lektor í dönsku við Háskóla íslands tekur ýmsar spurningar varðandi nornir og galdur þeirra til athugunar í þessum erindum. Þátturinn í kvöld fjallar um tíma galdraofsóknanna í Evrópu og því lýst hvernig þær fylgdu í kjölfar ofsókna á hendur trúvillingum og útkomu hinnar frægu handbókar í nornaofsóknum „Nornahamarsins." Sjónvarp kl. 19. HETJAN HENNAR - dagdraumar 14 ára stelpu í kvöld kl. 19 sýnir sjónvarpið norsku unglingamyndina Hetjan hennar (Drömmehelten). Hún er 14 ára og eins og hjá öðrum jafnöldrum hennar fer mestur tíminn í að hugsa um stráka og bíða eftir að eitthvað gerist. Hún er beðin umaðtakaþátt í viðræðuþætti í útvarpinu og fær þá að vita að þar verður annar þátttak- andi, - strákur. Þar með fær ímyndunaraflið vængi. Hvernig strákur ætli þetta sé? Getur verið að þarna sé draumaprinsinn hennar kominn? Dagdraumarnir taka völdin.______ Sjónvarp kl. 20.40: Svitnar sól og tárast tungl: FALIN FRAMTÍD f kvöld kl. 20.40 verður sýndur lokaþáttur ástralska heimilda- myndaflokksins Svitnar sól og tár- ast tungl og nefnist hann Falin framtíð. Nú ferðast Jack Pizzey um Kól- umbíu og ræðir við Belisario Beta- ncur, forseta landsins sem alinn er af bóndafólki. Betancur berst harðvítugri baráttu gegn hinum sfgildu vandamálum Suður-Amer- íku. Áhorfendur þáttanna hafa þegar kynnst ólæsi, misrétti og arðráni ríkra þjóða í þessum heimshluta og nú fá þeir að kynnast hugmyndum Betancursum hvernig megi berjast gegn því sem stendur þjóðum Suður-Ameríku fyrir þrifum. Jack Pizzey slæst í för með forsetanum um land hans og kynn- ist ýmsu, allt frá hanaati til lífsins á kaffiekrunum, frá fílahaldi maf- íunnar til skæruliða í frumskógin- um. I Reykjavík síðdegis Það er mikið hlustað á útvarp á tímanum kl. 17-19 síðdegis, enda eru þá margir lausir úr vinnu og jafnvel í bílnum á leiðinni heim í notalegheit frítímans. Hlustendur á útsendingarsvæði Bylgjunnar eiga kost á þrem út- varpsstöðvum svo að allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Þeir sem hafa stillt á Bylgjuna á þessum tíma hafa samfylgd Hall- gríms Thorsteinssonar þar sem hann talar við „fólk í fréttum" og leikur tónlist, „síðdegistónlist" segir hann. Hún er að því leyti frábrugðin þeirri tónlist sem leikin er á öðrum tímum dagsins að hún er rólegheita- og þægindamúsík. Viðtöl Hallgríms við fólk í fréttum eru oft forvitnileg og segist hann hreint ekki eiga í neinum vandræðum með að finna merkis- fréttir eða viðmælendur. „Þetta er svo fjölbreytt og skemmtilegt sam- félag sem við lifum í að það er alltaf nóg að gerast og um að gera að taka það sem heitast," segir hann. Hann tekur það fram að fólk sé ákaflega viljugt að spjalla við Bylgjuna og tilbúið að taka þátt í því nána sambandi sem Bylgjunni hefur tekist að koma á við hlust- endur. Bæði hringir það sjálft og er tilbúið að svara þegar í það er hringt. Hallgrímur Thorsteinsson kemur víða við í þáttum sínum í Reykja- vík síðdegis á Bylgjunni daglega kl. 17-19. (Tímamynd Pjetur) tJRARIK N RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS ríkisins óska eftir tilboðum í RARIK 86104 raflínuvír 300 km. RARIK 86015 þverslár 1714 stk. Opnunardgur: Þriðjudagur 21. október 1986 kl. 14.00. Tilboðum skal skila á skrifstofu Rafmagnsveitna ríkisins, Laugavegi 118, 105 Reykjavík, fyrir opnunartíma og verða þau opnuð á sama stað að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska. Útboðsgögn verða seld á skrifstofu Rafmagns- veitna ríkisins, Laugavegi 118, 105 Reykjavík, frá og með mánudeginum 22. september 1986 og kosta kr. 200.00 hvert eintak. Rafmagnsveitur ríkisins, Laugavegi 118, 105 Reykjavík. Styrkir tii sérfræðiþjálfunar í Bretlandi Samtök breskra iðnrekenda, Confederation of British Industry, veita áriega nokkra styrki til þjálfunar á vegum iðnfyrirtækja í Bretlandi. íslendingum gefst kostur á að sækja um slíka styrki fyrir tímabilið 1987-88, en ekki er vitað fyrirfram hvort styrkur kemur í hlut íslands að þessu sinni. Umsækjendur skulu hafa lokið fullnaðarprófi í verkfræði eða tæknifræði og hafa næga kunnáttu í enskri tungu. Þeir skulu að jafnaði ekki vera eldri en 35 ára. Um er að ræða tvenns konar styrki: Annars vegar fyrir menn sem hafa starfað 1 -4 ár að loknu prófi en hafa hug á að afla sér hagnýtrar starfsreynslu í Bretlandi. Eru þeir styrkir veittir til 1-1V2 árs og eiga að nægja fyrir eðlilegum dvalarkostnaði einstaklings, auk þess sem að öðru jöfnu er greiddur ferðakostnaður til og frá Bretlandi. Hins vegar eru styrkir ætlaðir mönnum, sem ekki hafa minna en 5 ára starfsreynslu að loknu prófi og hafa hug á að afla sér þrjálfunar á sérgreindu taeknisviði. Þeir styrkir eru veittir til 4-12 mánaða og er ætlað að nægja fyrir dvalarkostnaði einstaklings en ferðakostnaður er ekki greiddur. - Umsóknir á tilskildum eyðublöðum skulu hafa borist menntamálar- áðuneytinu, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík, fyrir 1. nóvember n.k. Umsóknareyðublöð, ásamt nánari upplýsingum fást í ráðuneytinu. Menntamálaráðuneytið, 17. september 1986. ÖÖÖÖ SJÓEFNAVINNSLAN HF Aðalfundur Sjóefnavinnslunnar hf. verður haldinn laugardaginn 4. okt. n.k. í golfskála Golfklúbbs Suðurnesja og hefst kl. 16.00. Útboð Rafmagnsveitur eftirfarandi: Þriðjudagur 23. september 7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn. 7.15 Morgunvaktin. 7.30 Fréttir. Tilkynningar. 8.00 Fréttir. Tilkynningar. 8.15 Veðurfregnir. 8.30 Fréttir á ensku 9.00 Fréttir. 9.05 Morgunstund barnanna: „Hús 60 feðra" eftir Meindert Dejong, Guðrún Jónsdóttir les þýðingu sína (19). 9.20 Morguntrimm. Tilkynningar. Tónleik- ar, þulur velur og kynnir. 9.45 Lesið ur forustugreinum dagblað- anna. 10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir. 10.30 „Ég man þá tíð“ Hermann Ragnar Stefánsson kynnir lög frá liðnum árum. 11.00 Fréttir. 11.03 Samhljómur. Umsjón: Þórarinn Stef- ánsson. 12.00 Dagskrá. Tilkynningar. 12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Tilkynningar. Tónleikar. 13.301 dagsins önn - Heilsuvernd. Umsjón: Jón Gunnar Grétarsson. 14.00 Miðdegissagan: „Mahatma Gandhi og lærisveinar hans“ eftir Ved Mehta. Haukur Sigurðsson les þýðingu sina (19). 14.30 Tónlistarmaður vikunnar Gunnar Ormslev. 15.00 Fréttir. Tilkynningar. Tónleikar. 15.20 Landpósturinn. Á Vestfjarðahringn- um. Umsjón: Finnbogi Hermannsson 16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir. 16.20 Divertimenti Divertimento í D-dúr eftir Joseph Haydn. Kammersveit Sinfón- iuhljómsveitarinnar i Vancouver leikur. b. Divertimento í h-moll eftir Jean Bapt- iste Leillet. Poul de Winter og Maurice van Gijsel leika á flautu og óbó með Belgísku kammersveitinni; Georges Maes stjórnar. c. Divertimento nr. 1 í Des-dúr K. 136 eftir Wolfgang Amadeus Mozart. Kammersveitin i Stuttgart leikur; Karl Munchinger stjórnar. 17.00 Fréttir. 17.03 Barnaútvarpið. Umsjón: Vernharður Linnet og Sigurlaug M. Jónasdóttir. 17.45 Torgið. - Bjarni Sigtryggsson og Adolf H.E. Petersen. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. 19.40 Tilkynningar. 19.45 Daglegt mál Guðmundur Sæmunds- son flytur þáttinn. 19.50 Fjölmiðlarabb. Guðmundur Sæm- undsson flytur þáttinn. 20.00 Ekkert mál. Halldór N. Lárusson og Bryndis Jónsdóttir sjá um þátt fyrir ungt fólk. 20.40 Nornin í Ijósi sögunnar Fyrsta erindi af þremur eftir Lisu Schmalensee. Þýð- andi og lesari: Auður Leifsdóttir. 21.05 Perlur. Ella Fitzgerald syngur. 21.30 Útvarpssagan: „Frásögur af Þögla“ eftir Cecil Bödker Nína Björk Árnadóttir les þýðingu sína (8). 22.00 Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Orð kvöldsins. 22.15 Veðurfregnir. 22.20 Kvöldtónleikar Sinfónia nr. 7 í E-dúr eftir Anton Bruckner í raddsetningu fyrir kammersveit eftir Anton Schönberg og Hanns Eisler. Kammersveit Reykjavíkur leikur; Paul Zukofsky stjórnar. 23.15 Á tónskáldaþingi Þorkell Sigur- björnsson kynnir. 24.00 Fréttir. Dagskrárlok. árr Þriðjudagur 23. september 9.00 Morgunþáttur i umsjá Gunnlaugs Helgasonar, Kolbrúnar Halldórsdóttur og Sigurðar Þórs Salvarssonar. Elisabet Brekkan sér um barnaefni kl. 10.05. 12.00 Hlé 14.00 Skammtað úr hnefa. Stjórnandi: Jónatan Garöarsson. 16.00 Hringiðan Þáttur í umsjá Ólafs Más Björnssonar. 17.00 (gegnum tíðina Ragnheiður Davíðs- dóttir stjórnar þætti um íslenska dægur- tónlist. 18.00 Dagskrárlok. Fréttir eru sagðar í þrjár mfnútur kl. 9.00, 10.00,11.00,15.00,16.00 og 17.00. Svaeðisútvarp virka daga vikunnar frá mánudegi til föstudags. 17.03-18.00 Svæðisútvarp fyrir Reykjavík og nágrenni - FM 90,1 MHz. 17.03-18.30 Svæðisútvarp fyrir Akureyri og nágrenni - FM 96,5 MHz. Þriðjudagur 23. september 19.00Hetjan hennar (Drömmehelten) Norsk unglingamynd um 14 ára stúlku og dagdrauma hennar. Þýðandi Steinar V. Árnason (Nordvision - Norska sjónvarp- ið) 19.20 Baddi tígrisdýr (Tiger Badiger) Dönski barnamynd um litla telpu og lukkudýrið hennar. Þýðandi Vilborg Sig- urðardóttir. (Nordvision-Danska sjón- varpið). 19.50 Fréttaágrip á táknmáli 20.00 Fréttir og veður 20.30 Auglýsingar og dagskrá 20.40 Svitnar sól og tárast tungl (Sweat of the Sun, Tears of the Moon) 8. Falin framtíð. Ástralskur heimildamyndaflokk- ur í átta þáttum um Suður-Ameríku og þjóðirnar sem álfuna byggja. [ þessum lokaþætti ferðast Jack Pizzey um Kól- umbíu og ræðir við Belisario Betancur, forseta landsins. Drepið verður á helstu vandamál þjóða Suður-Ameriku og vonir um bjartari framtíð. Þýðandi og þulur: Óskar Ingimarsson. 21.40 Vitni deyr (Death of an Expert Witness) Nýr flokkur - Fyrsti þáttur Breskur framhaldsmyndaflokkur i sex þáttum, gerður eftir samnefndri saka- málasögu eftir P.D. James sem komið hefur út í íslenskri þýðingu. Leikendur: Roy Marsden, Barry Foster, Geoffrey Palmer, Ray Brooks, Meg Davies, Brenda Blethyn og John Vine. Adam Dalgliesh rannsóknarlögregluforingi er áhorfendum að góðu kunnur úr sögum P. D. James sem áöur hafa verið kvikmynd- aðar og sýndar hér í sjónvarpi. I „Vitni deyr“ grefst hann fyrir um morð sem framiö er á stofnun þar sem læknar og líffræðingar stunda rannsóknir í þágu lögreglunnar. Þýðandi Kristrún Þórðar- dóttir. 22.35 Islensk fjölmiðlun á tímamótum. Umræöuþáttur í beinni útsendingu. Umsjón: Magnús Bjarnfreösson og Björn Vignir Sigurpálsson. 23.50 Fréttir í dagskrárlok. ÞEGAR SKYGGJA TEKUR ERHÆPINN SPARNAÐUR ... að kvelkja ekki ökuljósin. ÞAU KOSTA LlTIÐ. 969 'BYL GJANi Þriðjudagur 23. september 6.00- 7.00 Tónlist í morgunsárið. Fréttir kl. 7.00. 7.00- 9.00 Á fætur með Sigurði G. Tóm- assyni. Létt tónlist meö morgunkaffinu. Sigurður litur yfir blöðin, og spjallar við hlustendur og gesti. Fréttir kl. 8.00 og 9.00. 9.00-12.00 Páll Þorsteinsson á léttum nótum. Palli leikur öll uppáhaldslögin og ræðir við hlustendur til hádegis. Fréttir kl. 10.00 og 12.00. 12.00-14.00 Á hádegismarkaði með Jó- hönnu Harðardóttur. Jóha- a leikur létta tónlist, spjallar um neytenuamál og stýrir flóamarkaði kl. 13.20. Fréttir kl. 13.00 og 14.00. 14.00-17.00 Pétur Steinn á réttri bylgju- lengd. Pétur spilar og spjallar við hlust- endur og tónlistarmenn. Fréttirkl. 15.00, 16.00 og 17.00. 17.00-19.00 Hallgrímur Thorsteinsson í Reykjavík síðdegis. Hallgrímur leikur tónlist, lítur yfir fréttirnar og spjallar við fólk sem kemur við sögu. Fréttir kl. 18.00 og 19.00. 19.00-20.00 Tónlist með léttum takti. 20.00-21.00 Vinsældalisti Bylgjunnar. Helgi Rúnar Óskarsson kynnir 10 vinsæl- ustu lögin. 21.00-22.00 Vilborg Halldórsdóttir spilar og spjallar. Vilborg sniður dagskrána við hæfi unglinga á öllum áldri. Tónlistin er í góðu lagi og gestirnir lika. 23.00-24.00 Vökulok. Fréttamenn Bylgj- unnar Ijúka dagskráni með fréttatengdu efni og Ijúfri tónlist.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.