Tíminn - 02.12.1986, Blaðsíða 1

Tíminn - 02.12.1986, Blaðsíða 1
f ^ ^ STOFNAÐUR1917 lirmrm SPÍALDHAGI SAMVINNUBANKI ÍSLANDS HF. A FUNDI stjórnar SVR í dag ’j;; verður tekin ákvöröun um breytt fyrir- í komulag vagnaaksturs um Laugaveg í desembermánuði. Vegna mikils um- ferðarþunga er lagt til að þeir vagnar, sem nú aka niður Laugaveg, aki fljót- farnari leiðir f rá Hlemmi til Lækjartorgs, en þess í stað gangi sérstök hringleið frá Hlemmi, niður Laugaveg, Lækjar- götu, Vonarstræti, Suðurgötu, Aðal- stræti, Hafnarstræti og upp Hverfis- götu að Hlemmi. Gert er ráð fyrir 10 mínútna tíðni. Ef tilraunin tekst vel í desembermánuði eru líkur til að þessi háttur verði á til frambúóar. ÞANN 6. DESEMBER eru 50 ár liðin frá því Árni Hafstað frá Vík í Skagafirði gekkst fyrir stofnun Skag- firðingafélagsins í Reykjavík. Afmælisins verður minnst með ýmsu móti og þá helst í formi sæluviku sem byrjar í dag með málverkasýningu 10 Skagfirðinga í félagsheimilinu Drang- ey. Að sögn Gests Pálssonar formanns félagsins mun sæluvikan endurspegla starfsemi félagsins sem staðið hefur í miklum blóma. Á mörgun sunnudag verður gestaboð fyrir eldri félaga þar sem dr. Jakob Benediktsson spjallar við gesti og félagar úr Skagfirsku söngsveitinni taka lagið. Boðið hefst kl 14.00. FJÓRTÁN ÁRA gamall „patti“ eins og lögreglan í Keflavík orðaði það var staðinn að verki á innbrotsstað um helgina. Lögreglan kom að honum þar sem hann var búinn að brjótast inn í bát og stela þaðan farsíma. Pattinn var færður á varðstofuna og átti að sitja þar meðan lögreglumaðurinn brá sér frá. Hann var síðan horfinn þegar lögreglumað- urinn sneri aftur. Lögreglan sendi þeg- ar út lið til þess leita pattans. Fyrir tilviljun kom einn lögregluþjónninn auga á hann á gangi og stöðvaði bifreið sína og hljóp af stað vitandi að hann væri í góðu formi þar sem hann á sæti í einu af knattleiksliðum íslands. Pattinn gerði sér lítið fyrir og stakk landsliðsmanninn af á hlaupum. Sam- kvæmt upplýsingum frá Keflavíkurlög- reglunni var málið í gær komið í réttan farveg. HÓPUPPSAGNIR hjúkrun- arfræðinga í Reykjavík virðast nú vera í uppsiglinu. Hjúkrunarfræðingar á stærri stofnunum á höfuðborgarsvæð- inu hafa lýst því yfir að þeir væru ; reiðubúnir að segja upp störfum sínum ef það mætti verða til þess að þrýsta á um bætt kjör. Ennfremur telja þeir að rétt sé að láta reyna á breytta samn- ingsstöðu félagsins í komandi kjara- samningum því allt útlit sé nú fyrir að drög að lögum um breyttan samnings- rétt nái fram að ganga. SKAFTÁRHLAUPIÐ náði hámarki á sunnudag þegar árrennslið náði 1600 teningsmetrum á sekúndu. Til samanburðar má geta þess að á j þessum árstíma er meðalrennsli; venjulega um 70 teningsmetrar. Þetta hlaup er eitt af þremur stærstu hlaup- um sem komið hafa í Skaftá, en nú eru rúm 2 ár síðan síðasta hlaup varð. Að þessu sinni kemur vatnið úr elstá ketilsiginu austast við Grímsvötn. PRÓFKJÖR Alþýðuflokksins á Vestfjörðum fór fram um sl. helgi en talning fer ekki fram fyrr en um næstu helgi. Það kemur því ekki í Ijós fyrr en þá hvort Sighvatur Björgvinsson eða Karvel Pálmason verður í fyrsta sæti iistans. Kosið var á (safirði, Bolungar- vík, Patreksfirði, Flateyri, Þingeyri, Súðavík, Bíldudal og Suðureyri. KRUMMI „Já, hann ÓliS. virðist svo sannar- lega búa að Spar- seminni! “ Óli Kr. Sigurösson kaupir 74% hlutafjár í OLÍS: Óli fyrir bankastjórn Landsbankansí dag í dag gengur Óli Kr. Sigurðsson, nýorðinn aðaleigandi í OLÍS, á fund bankastjórnar Landsbankans og mun þar leggja spilin á borðið, en hann keypti meirihluta hlutafjár í Olíuverslun íslands um helgina. Keypti Óli 74% hlutafjár félagsins en ekki hefur tekist að fá uppgefið kaupverðið. Heimildir Tímans segja að ekki hafi verið greiddar nema þrjár milljónir króna við undirskrift og frágang samningsins. ÓIi neitaði þessum tölum þegar Tíminn bar þær undir hann. Skeljungur átti nýlega í viðræð- um vegna samruna OLÍS og Skelj- ungs en ekki varð af þeirri samein- ingu þegar Skeljungur hafði kann- að málið til hlítar. Slæm staða Á stjórnarfundi Dagsbrúnar í gær var ákveðið að fclagið dragi sig út úr samningaviðræðum og hæfi þegar vinnu að kröfugerð fyrir félagið. Lýsti Guðmundur J. Guðmunds- son, formaður Dagsbrúnar því yfir að ástæðan væri að kröfur ÁSÍ væru þokukenndar hugmyndir. Minnti hann á að ekki lægju fyrir af hendi ríkisins, neinar tryggingar um að reynt yrði að halda verðlagi stöðugu. Úrbætur í skattamálum væru ágætar, en félagið Jeldi útséð um að þær kæmust til framkvæmda fyrr en um áramótin 1987-1988. Verkamannasambandtð og aðrir aðilar hafa hins vegar ákveðið að halda viðræðum áfram. OLÍS vóg þar þyngst á mctunum, en heimildir Tímans segja að skuldir félagsins séu um 1,3 milij- arðar króna, séu taldar með gjald- fallnar bankaábyrgðir, og þær sem enn eru í gildi fyrir olíuförmum sem skipta hundruðum milljóna. Óli Kr. Sigurðsson hefur verið umfangsmikill á viðskiptasviðinu síðustu daga. Fyrirtæki hans Sund hf. keypti nýlega Vörumarkaðinn á Eiðistorgi og einnig er hann að rcisa kaffibrennslu við Hellu en hún verður tekin í gagnið um áramót. Skeljungur guggnaði á kaupum á hlutabréfum OLÍS, meðal annars vegna slæmrar skuldastöðu OLÍS. Tíminn sneri sér til Jónasar Haralz Ásmundur Stefánsson, forseti ASÍ sagði það efnislega hárrétt að hugmyndir þær sem fram hefðu komið væru þokukenndar. Dagsbrún hefði hins vegar verið sammála öðrum að reyna ætti að festa leiðir frekar en tölur, á þessu stigi málsins. Menn hefði hins veg- ar greint á um leiðir sem héldu til að tryggja hækkun lægstu launanna og endurskoðun á flokkakcrfinu. Ásmundur lýsti því yfir að hug- myndir ASÍ gengju lengra en nefndar tölur um 25 þús. kr. lág- marks mánaðarlaun, svo það væri skýrt. Þórarinn V. Þórarinsson frkvst. VSÍ sagði að afstaða Dagsbrúnar kæmi sér á óvart og hingað til hefði I landsbankastjóra og spurði hvort i bankinn væri ekki uggandi þegar heildsali út í bæ keypti meirihluta í fyrirtæki sem er annar stærsti skuldari bankans. „Eru ykkar hagsmunir nægilega vel tryggðir?" „Við höfum ekki áhyggjur af því að ekki séu til næg veð fyrir skuldum. Eiginfjárstaðan er þokkaleg miðað við það sem hér tíðkast þó hún mætti vera betri. Áframhaldandi rekstur félagsins' er hinsvegar gcysilega mikið mál, og hvort þessi maður hafi einhver tök á því getum við ekki sagt til um. Við munum tala við Óla Kr. í dag og ekki þarf að lýsa þvt' fyrir fólki hvað það er sem bankinn ekkert komið fram sem benti til að þeir væru ósammála þeirri aðferða- fræði sem hér hefði verið rædd. Sagði Þórarinn að ef samningar dragist fram yfir áramót, þá sé ljóst að mikil óvissa komi til með ríkja á næsta ári um framvindu efnahags- mála. VSÍ óttist að það kunni að hleypa af stað verðhækkanaskriðu, sem geri erfitt að ná fram kjara- samningum. „Forsendur þess að okkur vegni vel á næsta ári eru þær að vinnufriður verði tryggður og efnahagsforsendur tryggar." Samningaviðræður héidu áfram í gærkvöldi. Þá ætlaði launanefnd- in að hefja störf í gærkvöldi, og sagðist Ásmundur eiga von á að hún lyki störfum mjög fljótlega. -phh Jónas. Óli mun nú taka sæti forstjóra OLÍS samhliða Þórði Ásgeirssyni. En hvernig mun Óli reka OLÍS og grynnka á skuldunum? „Það er hagnaður á þessu fyrir- tæki á þessu ári. Ég mun herða allar innheimtuaðgerðir, það segir sig sjálft. Við erum ekki banki. Eg skulda Landsbankanum ekki eitt eða peitt og skulda OLÍS ekki neitt sjálfur. Vissulega eiga menn að borga sínar skuldir og er ekki hagur útgerðar betri í dag og eigum við ekki að vonast til þess að þetta komist í innheimtu?" sagði Óli Kr. ES/PHH Stefán ætlar í sérframboð „Það hafa skorað á mig rúm- lega 1()(K) manns að gefa kost á mér í að vera í fyrsta sætinu,“ sagði Stefán Valgeirsson al- þingismaður í samtali við Tím- ann í gær, en Itann hefur ákvcð- ið að fara í sérframboð í Norðurlandskjördæmi vestra, eftir að hafa beðið lægri hlut í fyrir Guðmundi Bjarnasyni á víðfrægum fundi á Húsavík á dögunum. Stefán tilkynnti Steingrími Hcrmannssyni þessa ákvörðun sína í gær og tilkynnti hana síðan opinber- lega. „Það er ekki ég sem er að bjóða fram.'“ sagði Stefán í gær, „það er misskilningur. Það er margt framsóknarfólk í Norðurlandskjördæmi eystra." Aðspurður um hvort hann teldi að samþykkt yrði að sérfram- boðið yrði svokallað BB fram- \ boð sagði Stefán: „Ég efast ekki um það, og ef svo verður ekki er málið orðið mjög alvar- legt, vegna þess að þá væru sum framsóknaVfélögin 'ekki lengur til og í öðru lagi þá væri kjördæmasambandið sennilega líka klofið. Þetta eru fram- sóknarmenn sem að þessu standa.“ ' Stefán sagði að cf þetta gengi svona langt og BB framboð yrði ekki samþyLkt kæmi til éreina að stefna að víðtækara framboði í öllum kjördæmum sem byggði á svipuðum grund- velli og Samtök um jafnrétti landshluta.þó ckki myndi vera um formleg tengsl milli slíks framboðs og þeirra samtaka sem nú starfa. Stefán taldi að hann þyrfti unt 1700-atkvæði í Norðurlandi eystra til að kom- ast örugglega inn, en hann sagði að ekki væri búið að taka neinar ákvarðanir um hverjir yrðu á listtinum með honum. ' -BG hefur áhuga á að fá að vita,“ sagði Landlæknisembættið hefur gcngist fyrir því að með h verri sprautu sem nú er seld ■ apótekum fylgir aðvörunarmiði þar sem m.a.er tekið fram að hættulegt sé að endurnota sprautur og þeim beri að farga að notkun lokinni. IVlun þetta vera liður í þeirri herferð sem nú er hafin gegn útbreiðslu eyðnissjúkdómsins. límamynd Sverrir. Samningarnir: Dagsbrún gekk f rá viðræðunum - ASÍ, VSÍ og VMS halda áfram

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.