Tíminn - 02.12.1986, Blaðsíða 7
Þriðjudagur 2. desember 1986
Tíminn 7
UTLOND
Suöur-Kórea:
Seoul - Reuter
Lögreglan í Suður-Kóreu sendi í
gær 24 einstaklinga til óformbund-
inna réttarhalda og gaf út kærur á
27 aðra. Þessar aðgerðir lögregl-
unnar fylgdu í kjölfar bannaðrar
mótmælagöngu um helgina.
Talsmaður lögreglunnarsagði að
áðurnefndir 51 einstaklingur
hefðu verið meðal 2255 mótmæl-
enda sem handteknir voru á laugar-
daginn eftir að bardagar brutust út
á strætum Seoul, höfuðborgar
landsins.
Helsti stjórnarandstöðuflokkur
landsins, Lýðræðisflokkur Nýju
Kóreu, skipulagði kröfugönguna á
laugardaginn og vonuðust ráða-
menn flokksins til að milljón
mannstækjuþátt íhenni. Gönguna
átti að fara til að „krefjast beinna
forsetakosninga og koma í veg
fyrir ráðagerð ríkisstjórnarinnar
um að sitja óslitið að völdum“.
Stjórn Chun Doo Hwans forseta
bannaði hinsvegar gönguna í síð-
ustu viku og handtók fjölmarga
stjórnarandstæðinga til að minnka
móðinn í andstæðingum yfirvalda.
Gangan var bönnuð á þeim for-
sendum að kommúnistar gætu ráð-
ið alltof mikið ferðinni og efnt til
óláta.
Mótmælin fóru engu að síður
fram á laugardaginn en tóku á sig
ljótan svip eftir að lögregla byrjaði
að dreifa táragasi á mannfjöldann
sem svaraði með bensínsprengju-
kasti.
Helstu leiðtogar stjórnarand-
stöðunnar, þeir Kim Dae-Jung og
Kim Young-Sam hafa þegar lýst
yfir stuðningi við áform um aðra
mótmælagöngu þar sem reynt yrði
að fá fleiri lýðræðisöfl til þátttöku.
Stjórnarandstaðan krefst beinna
forsetakosninga árið 1988 en þá á
Chun forseti að láta af völdum.
Stjórnarflokkurinn, Lýðræðislegi
réttlætisflokkurinn, hyggst hins-
vegar koma á ráðuneyti með sterk-
an forsætisráðherra við stjórnvöl-
inn og Chun gæti því orðið forseti
áfram þó völd hans myndu, í orði
að minnsta kosti, minnka.
Yasuhiro Nakasone forsætisráðherra Japans og kona hans Tsutako snæddu
að kínverskum hætti með Hu Yaobang aðalritara er Nakasonehjónin komu
í stutta heimsókn til Kína í síðasta mánuði
Kína/Japan:
Bætt samskipti
báðum til góðs
Yasuhiro Nakasone forsætisráð-
herra Japans kom í síðasta mánuði í
stutta heimsókn til Kína ásamt konu
sinni. Formlegur tilgangur ferðar
Nakasone var að leggja lokadrögin
að hönnun miðstöðvar í úthverfi
Pekíngborgar þar sem ungmenni
beggja landa munu fá tækifæri til að
hittast og kynnast siðum og háttum
þjóðanna.
Ríkisstjórnir Kína og Japans hafa
unnið nokkuð ötullega að því undan-
farin ár að efla tengslin milli ung-
menna í ríkjunum tveimur. Kín-
versk stjórnvöld buðu t.d. um þrjú
þúsund japönskum ungmennum til
Kína árið 1984 og Nakasone til-
ÚTLÖND
kynnti í þessari ferð sinni að japönsk
stjórnvöld myndu bjóða hundrað
kínverskum unglingum að heim-
sækja Japan ár hvert næstu fimm
árin.
Nakasone ræddi þó ekki eingöngu
um ungmennasamskipti. Hann hitti
Hu Yaobang, aðalritara kínverska
kommúnistaflokksins, að máli og
ræddi einnig við Zhao Ziyang forseta
og sjálfan Deng Xiaoping, helsta
ráðamann landsins, um samskipti
ríkjanna tveggja.
Deng og Nakasone ræddu meðal
annars tillögu þess síðarnefnda um
vináttusamning milli ríkjanna er
standa myndi fram á næstu öld.
Deng sagði þessa uppástungu hafa
„..mikilvæg og varanleg áhrif“.
Víst er að Kínverjum er í mun að
efla samskipti sín við Japana þótt
hér sé um forna fjendur að ræða.
Efnahagslega eru góð samskipti
nefnilega báðum til framdráttar.
Kínverjar reyna nú að auka útflutn-
ing sinn og fá erlenda fjárfestingar-
aðila inn í landið og Japanar hafa
verið að endurskipuleggja efnahags-
kerfi sitt í því skyni að auka innan-
landsneyslu og auka fjárfestingar
erlendis.
(Byggt á Beijing Review)
I áragas og bensínsprengjur settu svip sinn á stræti Seoulborgar um helgina er efnt var til kröfugöngu um aukið
lýðræði
SAMBANDSIN9
ARMÚLA3 REYKJAVÍK SlMl 38900
Síðumúla 15
S 68 63
Hlíðarvegur 31-62
Hrauntunga 31 og út
Vogatunga
Hamraborg
Álfhólsvegur 1-50
Fannborg
Hávegur
Traðir
Bræðratunga
Hrauntunga 1-31
Karfavogur
Skeiðarvogur
Drápuhlíð
Eskihlíð
Tímiim
DJÓÐVILJINN
S. 686300
S.681866
S.681333
Blaðburður er