Tíminn - 02.12.1986, Blaðsíða 4

Tíminn - 02.12.1986, Blaðsíða 4
4 Tíminn I þáttunum „The Fall Guy“ lék Heather stúlku sem hét Jody, sem var ákveðin í því að verða besti staðgengill í hættulegum atriðum í kvikmyndum,(„stuntwoman“), en nú vill hún fara að stjórna öðrum heita „The Fall Guy“, en var hætt að leika í þeim er þetta gerðist. Hún segist hafa mestan áhuga á að skrifa fyrir kvikmyndir og stjórna sjálf. „Ég hef verið fyrir framan mynd- avélarnar, en nú langar mig til að vera bak við vélarnar og stjórna sjálf,“ sagði hún í viðtali þegar hún kom út af spítalanu. llllllllllllllllllllll SPEGILL í Tarzan leik „Hann Tarzan, ég Joan, - og allt gengur vel í frumskóginum okkar“, eru orðin sem lögð eru í munn leikkonunnar Joan Collins í fyrirsögn hjá “leikarablaði" Þ AR var verið að segja frá tildrögum hjónabands þeirra Joan og Peters Holm og er framtíðarhorfur þess ekki hátt skrifaðar. Svo er tínt til margt sem skrifaran- um þykir neikvætt. Byrjað er að segja frá að Joan hafi sjálf þurft að kaupa leyfisbréfið á 22 dollara og við það tækifæri logið sig mörgum árum yngri en hún er, en aldursmun- urinn er sagður vera um 14 ár. Svo hafi þau gift sig í Las Vegas, leynilega eins og flóttafólk. Svo koma „vinirnir“ með upplýsingar til blaða- mannsins og segja m.a.: ..að Holm komi illa saman við Katy, dóttur Joan, sem slasaðist mikið í bílslysi og hefur ekki náð sér til fulls, ... að Joan hugsi aðeins um Dynasty og frama sinn við kvikmyndirnar,... að Holm sé stundum dónalegur í partíum og Joan setji ofan í við hann,... að Joan hafi verið á móti því að giftast, en hann talað hana til,_að Peter Holm sé ofsalega afbrýðisamur og hafi alveg sleppt sér þegar Joan lék á móti George Hamilton í nýrri sjónvarpsmynd, Monte Carlo. Svo láta fyrrverandi vinkonur Peters ekki á sér standa að gefa honum einkunn. „Blautasti bjáninn í Hollywood," sagði Pauline von Gaffke greifynja. „Verður alltaf að hafa ríka konu til að sjá fyrir sér,“ sagði önnur, og svo mætti lengi telja. Svo koma aðrir og benda á það jákvæða í sambandi þessara umtöluðu hjóna. T.d. er sagt að þau vinni mjög vel saman. Og þau hafa látið taka tvo stutta framhaldsþætti fyrir sjónvarp síðan þau fóru að vera saman, þar sem hún hefur Ieikið aðalhlutverk, en hann séð um fjármálin. Það eru „Sins“ (Syndir) og „Monte Carlo“. Og í framhaldi af þessu starfi sínu hefur Peter smátt og smátt tekið að sér að sjá um fjármál leikkonunnar og útréttingar. Annars er það faðir Joan sjálfrar sem er harðasti gagnrýnandi á tengdasoninn: "Hann er óttalegur glaumgosi og ég get varla ímyndað mér hvað hún Joan hefur hugsað að fara að giftast svona manni!" Joan Collins sá Peter fyrst við sundlaug í Hollywood, þar sem liann var klædd- ur „Tarzan-sundskýlu“ og hún féll fyrir honuni á stundinni! Leikkonan Heather Thomas lærir að ganga á ný eftir fótbrot á báðum fótum jytir sig, - cn 1 byrjun september s.l. varð hin unga leikkona Heather Thomas fyrir því, að ekið var á hana á gangi og hún fótbrotnaði á báðum fótum. Hún hefur þurft að gangast undir fjórar skurðaðgerðir, því að annarfóturinn var svo illa farinn, að það var tvísýnt um hvort hægt væri að bjarga honum. Nú hefur Hether verið útskrifuð af spítala og er að byrja að læra að ganga á ný. Heather Thomas hefur verið í framhaldsþáttum í sjónvarpi sem Þriðjudagur 2. desember 1986 SVEITARSTJÓRNARMÁL Akranes Jöfnunarsjóður sveitarfélaga Á fundi bæjarstjórnar Akraness sem haldinn var fyrir stuttu var m.a. fjallað um framlög ríkisins til Jöfnun- arsjóðs sveitarfélaga. Fundurinn samþykkti eftirfarandi ályktun, sem eflaust fleiri sveitarfélög gætu tekið heilshugar undir: „Bæjarstjórn Akraness mótmælir harðlega þeirri skiptingu á lög- bundnum tekjum Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga, sem ráð er fyrir gert í frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 1987. Bent er á, að skerðing á framlagi til Jöfnunarsjóðs lendir harðast á fámennari og tekjulægri sveitarfé- lögum í landinu, sem eiga við vax- andi fjárhagsvanda að stríða. Bæjarstjórn Akraness skorar á Alþingi að samþykkja ekki þær tillög- ur, sem fyrir liggja um skerðingu á tekjum Jöfnunarsjóðs og þar með tekjum sveitarfélaganna." Atvinnuþróunar- sjóður Atvinnumálanefnd hefur skorað á bæjarstjórn Akraness, að stofnaður verður sérstakur atvinnuþróunar- sjóður á vegum bæjarins. Sjóðnum verði ætlað það hlutverk að treysta atvinnulíf á Akranesi. Atvinnumálanefndin hefur bent bæjarstjórninni á þann fjáröflunar- möguleika að selja eignarhluta bæjarins í hinum ýmsu fyrirtækjum sem hann á hlut í og andvirðið verði látið ganga til atvinnuþróunarsjóðs Akraness. Atvinnumálanefndin fór einnig þess á leit við bæjarstjórn að hún athugaði hversu mikið Akranesbær á raunverulega í þeim fyrirtækjum, sem hann er aðili að. Bæjarritari hefur tekið saman lista yfir þessi fyrirtæki, en þau eru átta. Fyrirtækin eru: Verkfræði og teiknistofan sf. 75% eignarhluti, Akropolis hf. 25%, Krossvík hf., 25%, Skagaferðir hf. 22,06%, Nótastöðin hf. 9,23%, Síld- ar- og fiskimjölsverksmiðjan þar sem hlutur bæjarins og hafnarsjóðs er samtals 23,98% og Vélsmiðjan hf. 5% eignarhlutur. Þá vill atvinnumálanefnd að bæjarstjórn ræði við aðra eigendur fyrirtækjanna með það fyrir augum að kanna áhuga þeirra á að kaupa hlut bæjarins í fyrirtækjunum og leggur hún til að þessum málum verði hraðað sem mest. Byggðasafnið Görðum Byggðasafn Akraness og nær- sveita að Görðum heyrir undir bæjarstjórn Akraness. Á fundi stjórnar byggðasafnsins fyrir nokkru var flutt yfirlit um rekstur safnsins síðustu mánuðina. Kom þarfram að greiðslustaða bæjarins og hrepp- anna við safnið er nú verri en oftast áður. Ríkissjóður hefur á hinn bóg- inn fyllilega staðið við sínar greiðsl- ur. Fjármál Sigurfarasjóðs, sem ætl- aður er til viðhalds Kútter Sigurfara eru í mjög góðu lagi og aldrei betri, og má m.a. þakka það gjöf sjávarút- vegsráðuneytisins. Fjárveitingar til Garðahússins hafa hins vegar orðið minni en reiknað hefur verið með. Til að vega upp á móti því hefur stjórn Menningarsjóðs samþykkt að styrkja endurbætur gamla Garða- hússins með 100.000 króna fram- lagi, en nú er verið að breyta húsinu í sem upprunalegast form að utan. Réttindi aldraðra Stjórn dvalarheimilisins Höfða hefur samþykkt að óska eftir því við þjónustuhóp aldraðra að þeir láti útbúa bækling með upplýsingum fyrir aldraða á Akranesi og nágrenni um ýmis réttindi þeirra og möguleika á þjónustu. -HM Dálkur um svcitarstjórnarrnál mun birtast hér á síðunni af og til í vetur. Efni frá sveitarfélögunum er vel þegið. Sendist til ritstjórnar Tímans, Síðumúla 15, 108 Reykja- vík.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.