Tíminn - 02.12.1986, Qupperneq 17
Laugardagur 29. nóvember 1986
lllllllllllllllllll■íll NEYTENDUR IHIIHI.................. .................. TMÍÍP
- eftir Svanfríði Hagvaag
Grænmeti lífgar
upp matinn
Litríkt grænmeti lífgar upp á matinn og getur breytt venjulegri
máltíð í aðra mcira aðlaðandi og bragðbetri. Það þarf aðeins dálítið
hugmyndaflug. Prófið til dæmis að steikja gulrætur og rófur með lauk
og hvítlauk.
Smj örsteiktar gulrætur
og rófur
2 bollar rófur í aflöngum bitum
2 bollar gulrætur í þunnum s.neiðum
2 msk. smjör
1 lítill laukur í þunnum sneiðum
1 stór hvítlauksbátur, saxaður
'A bolli kjúklingasoð eða vatn
salt og pipar
2 msk. söxuð steinselja.
Steikið rófurnar og gulræturnar í smjörinu á stórri þykkbotna
pönnu eða potti við meðalhita í 5 mínútur. Bætið út í lauk og hvítlauk
og haldið áfram að steikja þangað til laukurinn er orðinn mjúkur eða
í 7-8 mínútur. Hrærið oft í á meðan svo grænmetið brenni ekki við.
Látið út í kjúklingasoðið ásamt salti og pipar. Sjóðið án loks þangað
til grænmetið er orðið meyrt eða í um það bil 5 mínútur. Stráið saxaðri
steinselju yfir.
Öðruvísi rófustappa
750 gr rófur
2 msk. smjör
1 msk. sherry
2 msk. rjómi eða mjólk
salt, pipar, múskat
'A bolli möndluflögur
1 msk. smjör.
Afhýðið rófurnar og skerið í litla bita. Sjóðið þær í söltuðu vatni
þangað til þær eru meyrar, látið renna af þeim. Merjið í blandara.
Hrærið síðan út í 2 msk. af smjöri, sherry, rjóma og salt ef með þarf,
síðan pipar og múskati eftir smekk. Ausið stöppunni í 1 lítra ofnfast
mót. Steikið möndlurnar í afganginum af smjörinu þangað til þær eru
gulbrúnar og stráið þeim svo yfir stöppuna. Bakið án loks við 170°C
í 15 mínútur eða þangað til allt er gegnheitt.
Mais og brokkálsbúðingur
300 gr frosið saxað brokkál
1 lítil dós mais
2 þeytt egg
Vs tsk múskat
salt og pipar
rasp
Látið brokkálið þiðna þangað til hægt er að aðskilja það. Saxið það
niður ef með þarf. Blandið öllu saman nema raspinu. Hellið í smurt
ofnfast mót um það bil 1 lítra stórt. Stráið raspinu yfir. Bakið án loks
við 170°C í 55-60 mínútur eða þangað til allt er vel hlaupið saman.
Létt hnetusteik
2 laukar
2 msk fnatarolía
170 gr malaðar hnetur
85 gr brauðrasp
1 tsk grænmetiskraftur
1 tsk sage (krydd)
2egg
Afhýðið laukinn, skerið hann í litla bita og sjóðió í olíunni við
lágan hita í 15-20 inínútur. Bætið út í möluðum hnetunum,
brauðraspinu, grænmetiskraftinum, kryddi og þeyttum eggjun-
um. Hrærið vel saman. Hellið farsinu í smurt ofnfast mót og bakið
við 190°C í 30-40 mínútur. Með þessu er mjög gott að hafa osta-
og kartöflupott og gott salat.
Tíminn 17
lllllllllllllllllillillllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll
Nokkrir leikir
með barninu
Það getur stundum verið erfitt, að
vera bundin of lengi inni yfir litlu
barni. Pað getur farið aðeins í fínu
taugarnar og þá er öruggt að barnið
verður órólegt líka. Hér koma
nokkrir einfaldir leikir sem geta stytt
barninu og þér stundirnar.
- Sápukúlur. Takið drykkjarrör.
Fyllið skál með vatni og blandið þar
saman við um það bil 2 msk af
uppþvottalegi. Blásið ofan í vatnið
með rörinu og búið til sápukúlur.
Fimm mánaða og eldri, þau hafa
gaman af að gripa sápukúlurnar.
- Hlaupleikur. Búið til skammt af
þéttu jellóhlaupi og skerið það sfðan
í teninga. Hrúgið nokkrum upp á
disk og setjið fyrir framan barnið.
Það leikur sér síðan að hlaupinu og
borðar kannski eitthvað af því. Það
er vissara að setja gott stykki framan
á barnið því annars sóðar það sig út.
Fyrir fimm mánaða og eldri.
- Ljósalcikur. Liggið á rúminu í
dimmu herbergi og haldið á kveiktu
vasaljósi. Beinið því í allar áttir og
látið geislann mynda munstur.
Þriggja mánaða og eldri.
- Sögublöðrur. Teiknið andlit á
blöðrur með tússpenna. Segið ein-
falda sögu um hverja blöðru. Sex
mánaða og eldri.
-Glasa xylófónn. Fyllið nokkur
glös með mismunandi miklu vatni og
notaðu penna til að spila á glösin
með.
Fjögurra mánaða og eldri.
-Bað fyrir tvo. Taktu barnið með
í bað. Það er afslappandi bæði fyrir
þig og barnið og fullnægir þörfum
barnsins fyrir snertingu og nálægð.
Fyrir þriggja mánaða og eldri.
Hvernig á að gera
órómantískan mann
rómantískari?
Þig dreymir kannski um mat við
kertaljós og borð skreytt fallegum
blómum á rómantískum veitinga-
stað, en þá segir hann; „Horfum á
myndina í sjónvarpinu, við getum
fengið okkur hamborgara eða
pizzu."
Auðvitað elskar þú hann, en þér
finnst að það gæti verið gaman að
hann væri svolítið rómantískari. Það
eru kannski mjög litlar líkur á að
það sé hægt að breyta honum í
rómantíkus, en hér koma samt
nokkur ráð sem kannski geta hjálpað
dálítið upp á sakirnar.
- Kannaðu hvað honum finnst
„rómantík". Segðu til dæmis: „Væri
það ekki dásamlegt ef við gætum
farið til Mexíco og elskast á sólgull-
inni ströndinni?" Og ef hann svar-
aði: „Ég vildi nú fara upp á hálendið
í alminnilega útilegu." Það sem þú
hefur nú uppgötvað er að það sem
honum finnst rómantískt er útilega.
Ef hann gefur þér svo svefnpoka í
afmælisgjöf, þá er það hans hug-
mynd um rómantík og þú þarft að
virða hana.
- Láttu hann verða varan við hvað
þér líkar. Því fyrr sem þú gerir það
í sambandi ykkar, því meiri líkur á
UPP-
BLÁSINN
PÚDI
Nýlega kom á markaðinn ný teg-
und af uppblásnum svefn og hvíld-
arpúða. Púðinn er dönsk uppfinning
sem ber nafnið „SleepOver“.
Utsöluverð púðans er á bilinu 380
til 400 kr. og fæst hann í öllum
apótekum og flestum bensínstöðv-
um. Það er hægt að fá púðann í
fjórum mismunandi litum: gráum,
ljósbláum, ísbláum og ljósbrúnum.
að hann virði það. Þú getur látið
hann vita hvað þú vilt, svona óbeint.
Þú getur til dæmis sagt þegar þið
gangið fram hjá blómabúð: „Eg hef
svo gaman af að fá blóm frá þér.“
Eða þú gætir farið með honum á
rómantíska kvikmynd og hvíslað að
honum hverjum þú vildir að hann
líktist. Sumir menn þurfa meiri örv-
un en aðrir.
- Settu gott fordæmi. Ef þú kemur
honum á óvart með rómantískum
uppátækjum, þá gæti verið að hann
tæki við sér. Sendu honum ástarbréf,
færðu honum morgunmat í rúmið,
sendu honum blóm, eða nuddaðu á
honunt bakið. Þá er gott tækifæri til
að láta athugasemd í Ijós, svona
alveg óvart: „Eg elska óvæntar uppá-
komur.“ Mundu að lokum að ef þú
gerir ekkert eða lítið fyrir hann,
getur þú ekki vænst þess að hann
geri mikið fyrir þig.
- Hrósaðu honum í hvert skifti
sem hann er rómantískur. Jákvæð
viðbrögð borga sig alltaf. Margir
menn eru rómantfskir innst inni, en
þeir hika við að sýna það, vegna þess
að þeir eru hræddir við að þeir
virðist kjánalegir. Það er kannski
ekki fyrr en hann veit að þú hendir
ekki gaman að því eða stríðir honum
á rómantísku hliðinni að hún kemur
alveg í ljós.