Tíminn - 02.12.1986, Síða 24

Tíminn - 02.12.1986, Síða 24
RESSA KÆIA 1 pSAM |3 BANDS FÓÐUR £ 0 glg m Oeceinber' SM T W T F S 123456 8 910 11 12 13 151612 18 19 20 23 DAGAR TIL JÓLA (II Ií ml iui Þriöjudagur 2. desember 1986 Framsóknarflokkurinn í Reykjavík: Guðmundur G. Þórarinsson sigurvegari prófkjörsins - Haraldur Ólafsson í 5. sæti og Finnur Ingólfsson í 2. sæti „Ég þakka þennan sigur fyrst og fremst mjög góðu skipulagi og þeim fjölmörgu stuðningsmönnum og vin- um sem unnu heils hugar mikið og fórnfúst starf,“ sagði Guðmundur G. Þórarinsson verkfræðingur við Tímann þegar hann var spurður hycrju hann þakkaði sigur sinn í prófkjöri Framsóknarflokksins uin helgina en Guðmundur hlaut flest atkvæði í I. sætið á framboðslista flokksins fyrir komandi þingkosn- ingar. Keppinautar Guðmundar um þetta sæti voru þeir Finnur Ingólfs- son og Haraldur Ólafsson. Finnur hafnaði í öðru sæti og Haraldur í því fimmta. Haraldur Ólafsson sagði í samtali við Tímann að það hefði komið sér á óvart hversu lítinn stuðning hann hefði fengið í prófkjörinu. „Ég tcl ástæðuna fyrir því vera þá að ég beitti ekki þeini aðferðum sem aðrir gerðu að smala inn fólki í stórum stíl. Ég treysti á það fólk sem var í flokknum fyrirog það mætti lakaren hinir, þó ég hafi fengið þar allan minn stuðning," sagði Haraldur. Varðandi stefnuágreining hans og þeirra afla sem urðu'ofan á í próf- kjörinu sagði Haraldur að hann legði meiri áhcrslu á velferð meðan áhersla hinna væri frekar á fjármagn. Finnur Ingólfsson sagði við Tím- ann að hann væri ósáttur við niður- stöðu prófkjörsins þar scm hann hafi ætlað sér stærri hlut en raunin varð. „Pó ég sé ekki sáttur við þessa niðurstöðu þá er ég mjög þakklátur því fólki sem studdi mig, og vil nota tækifærið til að koma þökkum til þess á framfæri, það er ekki því að kenna hvernig fór,“ sagði Finnur. Aðspurður um það hvort hann hygði á sérframboð sagði Finnur: „Ég hef nú sagt það áður að sérframboð komi ekki til greina. Að vísu er það rétt að menn hafa verið að hringja og orða þetta við mig. En það sem ég mun gera núna er að gefa mér tíma til að skoða mína stöðu og þegar þar að kemur mun ég svara því við fulltrúaráðið hvort ég tek þessu sæti ef þeir óska eftir svari.“ Háværar raddir hafa verið uppi um það meðal framsóknarmanna í Reykjavík að mikill fjöldi fólks, sem flokksbundið er í öðrum stjórnmála- flokkum hafi tekið þátt í prófkjörinu og að þctta fólk hafi stutt Guðmund G. Þórarinsson. Hvorki Haraldur né Finnur vildu gefa neitt út á þetta atriði en þegar þetta var borið undir Guðmund sagði hann: „Ég satt að segja kem af fiöllum og kannast ekkert við þetta. Eg held að þeir sem slíku halda fram ættu að rökstyðja sitt mái. Ég veit ekki betur en að þeir sem tóku þátt í prófkjörinu hafi skrifað undir að þeir væru ekki flokksbundnir í öðr- um stjórnmálaflokkum og ég hef enga ástæðu til að efast um að það sé rétt.“ Úrslitin í prófkjörinu urðu þessi: 1. Guðmundur G. Þórarinsson fékk samtals 1.654 atkv. þar af 1.295 í fyrsta sæti. 2. Finnur Ingólfsson fékk samtals 1.592 atkv. þar af 1.015 í fyrsta sæti. 3. Sigríður Hjartar fékk 1.711 atkv. og þar af 1.367 í 1.-3. sæ'ti. 4. Ásta Ragnheiður Jóhannes- dóttir fékk samtals 1.604 atkv. 5. Haraldur Ólafsson fékk samtals 1.407 atkv. (þar af 305 í fyrsta, 534 í annað, 320 í þriðja og 248 í fjórða). 6. Þór Jakobsson með 1.063 atkv. 7. Innflutningur neysluvara hefur aukist gífurlega á þessu ári, en á móti kemur verulegur samdráttur í innflutningi ýmissa rekstrar- og fjár- festingarvara. T.d. er athyglisvert að fólksbílainnflutningurinn er nú um 22% hærri liður en innflutningur alls efnis til bygginga og mannvirkja- gerðar, en frá 1980 hefur bílaliður- inn verið í kringum helmingur af byggingarcfninu. Af innflutnings- skýrslum verður tæpast annað ráðið en að góðærið hafi skilað sér til fólksins í landinu. Hlutfall neysluvara var tæplega 41% af heildarinnflutningi til lands- ins jan.-september í ár samanborið við tæplega 34% á sama tíma í fyrra. Aukningin er því um 20%. Sé inn- flutningurinn 1985 og 1986 reiknað- ur á sama gengi er neysluvöruinn- flutningurinn nú um 22% meiri en á sama tíma 1985. Aukningin er um 2.280 milljónir króna - þar af um 1.240 milljónir vegna aukinna neysluvara sem er um 10,5% aukn- ing. Neysluvöruinnflutningurinn í ár samsvarar um 197 þús. kr. á meðal- fjölskylduna, sem er um 33 þús. króna aukning frá sama tíma í fyrra, reiknað á sama gengi. Aukning heildarinnflutnings milli þessara tímabila var aðeins 0,7%, Helgi S. Guðmundsson með 777 atkv. 8. Valdimar K. Jónsson með 580 atkv. 9. Finnbogi Marínósson 342 atkv. þannig að á móti þessari stórauknu neyslu hefur komið samdráttur á mörgum liðum rekstrar- og fjárfest- ingarvara, sem fyrr segir. í grófum dráttum skiptist innflutningurinn í þrennt; neyslu-, rekstrar-, og fjár- festingarvörur. Frá 1980 til 1985 hafa neyslu- og rekstrarvörur verið svipað hlutfall af heildarinnflutningi. Hlutfall neysluvöru hefur þessi ár verið frá 32,6% og mest 35,6%. En gera má ráð fyrir að það verði í kringum 43% í ár, þar sem mesta neyslutímabilið vantar inn í framan- greindar tölur. Hin gífurlega aukning fólks- bílainnflutnings á þarna góðan hlut að máli. Cif verð innfluttra fólksbíla var komið í 2.089 millj. kr. í sept- emberlok, sem var 146% aukning reiknað á sama gengi bæði árin. Frá árinu 1980 hafa fólksbílarnir verið á milli 2,3% til 3,8% heildarinnflutn- ings, en eru um 6,5% það sem af er þessu ári. En innflutningur annarra neysluvara hefur einnig aukist um 10,5%. Aukningin er í kringum 10% í svonefndum óvaranlegum neysluvörum svo sem matvælum og fatnaði og álíka mikil í hrávörum til framleiðslu neysluvara. Mest, eða um 12%, er aukningin á svonefndum varanlegum neysluvörum svo sem Þátttökurétt í prófkjörinu höfðu 4.249 og af þeim neyttu 2.821 sér þann rétt. Gild atkvæði voru 2.685. húsgögnum, rafmagnstækjum og öðrum búshlutum. Á móti þessum 22% aukna neyslu- vöruinnflutningi hefur orðið 17,5% samdráttur í rekstrarvörum, eða hátt í 2 milljarða króna. Þar vegur um þriðjungi minni olíureikningur lang mest, en sömuleiðis er innflutningur til ísal nú um 26% minni, til Járn- blendifélagsins um 29% minni og um 12% samdráttur (um 90 millj.) í rekstrarvörum til landbúnaðar. Inn- flutningur rekstrarvara til fiskveiða hefur á móti aukist um tæp 17% (um 93 millj.) og smávegis aukning er hjá fiskiðnaðinum. í innflutningi fjárfestingarv'ara hefur orðið 0,7% samdráttur í heild. Stærsti liðurinn, vélar og verkfæri er nú um 4.401 milljónir, sem er 3% samdráttur. Skipainnflutningur hef- ur minnkað um 75% eða um 390 millj. Þá hefur innflutningur á bygg- ingarefni og efni til mannvirkjagerðar dregist saman um tæp 9% milli ára og var nú um 1.719 millj. kr. í lok september. Er athyglisvert að þessi liður er nú um 370 millj. króna lægri en fólksbílainnflutningurinn, en frá 1980 hefur byggingaefnið þvert á móti verið um tvöfalt hærri upphæð en fólksbílarnir. -HEI Jólabókin í ár: B0RGAR- SKRÁIN Verður dreift inn á öll heimili nú fyrir jólin Jóiabókin í ár verður tvímæla- laust Borgarskráin sem kom út í gær. Borgarskránni verður dreift inn á öll heimili á landinu nú fyrir jólin. Það er Svart á hvítu bókarfor- lagið sem gefur bókina út í sam- íslenska skáksveitin í Dubai: ísland í 5.-6. sæti < -á ólympíuskákmóti Með stórsigri yfir Spáni tókst íslensku skáksvcitinni að komast upp í 5.-6. sæti á ólympíuskák- mótinu sem haldið var í Dubai við Persaflóa. íslendingarsigruðu Spánverja mcö 3,5 vinningum gegn 0,5. Sovétmenn vörðu ólympíum- eistaratitilinn og hafðist það með stórum sigri yfir Búlgaríu fjögur- núll. Englendingar tryggðu sér annað sætið en Bandaríkjamenn náðu því fjórða. Stór sigur íslensku sveitarinnar vakti verðskuldaða athygli á mót- inu í gær, þar sem Spánverjar hafa staöið sig framar vonum og spádómum skáksérfræðinga víða um heim. Sigurinn tryggði ís- lcnsku sveitinni besta árangur frá því að ísland hóf þátttöku f keppninni. cn lræst höfðu íslend- ingar náð í cllefta sæti. Forráða- menn sveitarinnar höfðu tilkynnt það markmið sem sveitin stefndi að, en það var sjötta sætið. Það hefur nú tekist og gott betur. -ES -BG Aðstandendur Borgarskrárinnar sem dreift verður á öll heimili á landinu. vinnu við Afmælisnefnd Reykja- víkurborgar. Borgarskráin er við- skipta og þjónustuskrá sem er sérstaklega ætluð neytendum. Hún skiptist í þrjá hluta. í inn- gangi er ágrip af sögu Reykjavík- ur og gerð grein fyrir framtíðar- skipulagi borgarinnar. Að auki er þar að finna upplýsingar um ýmsar borgarstofnanir og stjórn- kerfi borgarinnar, ncyðarhjálp, söfn o.fl. í öðrum hluta Borgarskrárinn- areru kort í fjórum litum; leiðar- kort SVR, þjónustukort banka og bensínstöðva og 53 nákvæm götukort af Reykjavík, Garðabæ, Hafnarfirði, Kópavogi, Mosfells- sveit og Seltjarnarnesi. Aftan við er ítarleg götuskrá þar sem vísað er til staðsetningar á kortum. í þriðja hluta er sjálf viðskipta- bókin sem skiptist í þrjá hluta; skrá yfir fyrirtæki og stofnanir, þjónustuskrá og umboðaskrá. Það er skátahreyfingin sem mun sjá um dreifingu á bókinni og mun þóknun þeirra renna óskipt til sumardvalarheimilis fyrir vangefin börn að Úlfljót- svatni. Góðæriö virðist hafa skilað sér til fólksins: Um 22% aukning á inn flutningi neysluvara

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.