Tíminn - 23.12.1986, Síða 6
6 Tíminn •
FRÉTTAYFIRLIT
TEHERAN — Aö minnsta
kosti hundrað almennir borgar-
ar létu lífiö og fjöldi annarra
særöist í loftárásum (raka á
írönsku borgina Islamabad-e
Gharb.
MOSKVA — Andrei Sakhar-
ov, andlegur leiötogi sovéskra
andófsmanna, mun snúa aftur
til Moskvu eftir nærri sjö ára
útlegð í Gorkí. Það var Mikhail
Gorbatsjov Sovétleiötogi sem
persónulega hafði afskipti af
máli Sakharovs. Stjórn Hel-
muts Kohl kanslara í Vestur-
Þýskalandi hvatti austur-þýsku
stjórnina til að fara aö fordæmi
Sovétmanna og leysa úr haldi
einhverja af þeim tvö þúsund
stjórnarandstæðingum sem
talið er að gisti austur-þýsk
fangelsi.
NÝJA DELHI - Þjóðvarð-
liðar voru sendir til indversku
hafnarborgarinnar Gou til að
styrkja öryggissveitir á
staðnum. Ofbeldisaðgerðir í
borginni hafa þegar valdið
dauöa þriggja manna.
WASHINGTON — Sam-
kvæmt heimildum úr Hvíta
húsinu er Reagan Bandaríkja-
forseti óánægður með að al-
menningur virðist ekki trúa frá-
sögum hans af íransmálinu og
hyggst hann láta mikið að sér
kveða til að fá sannleikann
fram í þessu máli.
TÚNIS — Líklegt var talið að
fulltrúar Sýrlands og Frelsis-
samtaka Palestínumanna
ættu eftir að deila um tengsl
Sýrlendinga við búðastríðið
svokallaða í Líbanon er utan-
ríkisráðherrar Arababanda-
lagsins undirbjuggu sinn ann-
an neyðarfund átveimurvikum
í gær.
TEL AVIV — (sraelsk yfir-
völd leyfðu ekki birtingu greinar
þar sem Mordechai Vanunu
kjarnorkufræðingur skýrði frá
hvernig honum var komið frá
Bretlandi aftur til (sraels þar
sem biðu hans réttarhöld
vegna ákæru um að hafa sagt
bresku dagblaði frá ríkis-
leyndarmáli.
COLOMBO — Stjórnvöld á
Sri Lanka vilja eiga beinar
viðræður við skæruliða tamila
á eynni. Það var talsmaður
þjóðaröiyggisráðuneytisins
sem skýrði frá þessu eftir að
viðræður við indverska em-
bættismen höfðu ekki borið
tilætlaðan árangur.
Þriðjudagur 23. desember 1986
Forseti í vanda
Uppstokkun
Bandaríkin:
Almenningsálitiö hefur snúist gegn Reagan
Des Moines, Iowa - Reuter
Niðurstöður skoðanakönnunar'
sem birtar voru í gær sýna að 55%
fólks er óánægt með frammistöðu
Reagans Bandaríkjaforseta í emb-
ætti sínu. Hér er um 16% aukningu
að ræða á þremur mánuðum.
Skoðanakönnunin, sem gerð var
af Des Moines Register dagblaðinu
í Iowaríki, sýndi hinsvegar einnig að
aðeins 24% vildu að forsetinn segði
af sér vegna hneykslismálsins í sam-
bandi við vopnasöluna til írans.
Könnun þessi var gerð meðal íbúa
Iowaríkis frá áttunda til sextánda
desember o» kom þar í ljós að 34%
aðspurðra likaðí vel við störf forset-
ans en 11% höfðu enga skoðun.
Niðurstöðurnar sýna mikla breyt-
ingu á almenningsálitinu frá því í
september er blaðið framkvæmdi
svipaða könnun. Þá voru 46% að-
spurðra ánægð með forseta sinn og
aðeins 39% líkaði ekki við störf
hans.
Dagblaðið fór nokkuð náið út í
íransmálið í könnun sinni og kom í
ljós að 65% aðspurðra voru ekki
ánægð með frammistöðu forsetans í
því máli og 73% töldu að hann væri
að dylja vitneskju í sambandi við
það.
Skoðanir almennings eru oft eins og veðrið; síbreytilegar. Því fær Banda-
ríkjaforsctinn að kynnast nú
I----------------------------
Pakistan:
án umskipta
Islamabad - Reuter
Mohammad Zia-Ul-Haq forseti
Pakistans sór inn nýja ríkisstjórn í
gær. Engin veruleg umskipti áttu sér
stað með þessari uppstokkun nema
‘ í fjölda ráðherra. Stjórnin er aðeins
skipuð sextán ráðherrum en 36 voru
í þeirri stjórn sem sagði af sér á
laugardaginn.
Samkvæmt opinberum lista halda
sex ráðherrar sömu embættum
sínum, þar á meðal Mohammad
Aslam Khattak innanríkisráðherra
og Sahabzada Yaqub Khan utanrík-
isráðherra.
Innanríkisráðuneytið hefur verið
gagnrýnt mjög af stjórnarandstæð-
ingum og dagblöðum fyrir slælega
frammistöðu í að kveða niður ætt-
flokkaátökin í Karachi, stærstu borg
landsins, sem kostuðu 185 manns
lífið.
Ríkisstjórnin sagði af sér á laugar-
daginn eftir miklar umræður um lög
og reglu í kjölfar ættflokkaátakanna
í Karachi sem voru þau verstu í sögu
borgarinnar.
Talsmenn ríkisstjórnarinnar
sögðu hinsvegar eftir að afsögnin
varð ljós að hún hefði ekkert að gera
með ólætin í Karachi. Stjórnarand-
stæðingar hafa einnig tekið undir
þessar yfirlýsingar og segja
Ítalía:
Sjónvarp
með
kornfleksi
Róm - Reuter
Morgunverðardagskrá í sjón-
varpi var hrundið af stað á ftalíu
í gærmorgun. Landsmenn gátu
þá vaknað snemma og kveikt á
dagskrá sem stendur í fjóran og
hálfan klukkutíma og saman-
stcndur af fréttum, tónlist, viðtöl-
um ogsérstökumumfjöllunarefn-
um.
Þeirsem rannsakað hafa mögu-
leika á dagskrá svo snemma dags-
ins segja að um átján milljónir
manna séu í þeim hópi sem mest
komi til með að horfa á dagskrá
þessa. Það eru húsmæður, at-
vinnuleysingjar og fólk sem sest
er f helgan stein sem aðallega
myndar þann áhorfendahóp sem
dagskránni er ætlað að ná til.
Rannsóknir sýna að aðeins
1,6% ítala borðar morgunverð
sem fjölskylda. Flestir hinna full-
orðnu hella í sig kaffi á nálægum
bar á leið til vinnu.
Mohammad Khan Junejo forsæti-
sráðherra lengi hafa ætlað sér að
endurskipuleggja stjórn sína.
Það kom nokkuð á óvart að innan-
ríkisráðherrann Khattak skyldi hafa
haldið embætti sínu, bæði vegna
átakanna í Karachi og einnig þar
sem hann er ekki þekktur fyrir
dyggan stuðning við Múslimabanda-
lagið, flokkinn sem Junejo forsæti-
sráðherra stýrir. Hinsvegar bjuggust
flestir við að utanríkisráðherrann
Khan myndi halda embætti sínu þar
sem ferðir hans til annarra landa
höfðu þegar verið skipulagðar marg-
ar vikur fram í tímann.
Talsmaður ríkisstjórnarinnar
benti á að ráðherralistinn væri ekki
endanlega frágenginn og það gæti
vel svo farið að fleiri ráðherrar yrðu
skipaðir á næstunni.
Mohammad Zia-Ul-Haq forseti Pakistans: Enn sterki maðurinn á bak við
tjöldin og stjórnaruppstokkun breytir þar engu
Hækkandi olíuverðí
kjölfar samkomulags
- OPEC ríkin stefna að því að selja olíutunnuna á
átján dollara á næsta ári
Lundúnir - Reuter
Samkomulag Samtaka olíufram-
leiðsluríkja (OPEC) nú um helgina
þar sem kveðið var á um nýjan
samdrátt í framleiðslu olli hækkun á
heimsmarkaðsverði í gæren fjármál-
asérfræðingar drógu þó í efa að
. hækkunin myndi þýða að al-
menningur þyrfti að borga meira
fyrir olíu, a.m.k. lítur ekki út fyrir
það í bili.
Samkomulagið sem OPEC ríkin
gerðu með sér í Genf gerir ráð fyrir
að framleiðslukvóti þeirra verði;
minnkaður í heild um eina milljónj
tunna á dag á árinu 1987. Verður
framleiðslan þá um sextán milljónirj
olíutunna á dag.
Að venju hækkaði verð á Norður-
sjávarolíu á frjálsum markaði í kjölf-
ar þessara frétta og var nálægt átján
doílurum á tunnu. Möguleikar á enn
hækkandi olíuverði olli einnig hækk-
andi gullverði sem gerist ávalít þegar
fjárfestingaraðilar telja að verðbólga
geti aukist.
OPEC samtökin sögðust ætla að
selja alla sína olíu á 18 dollara á
tunnu frá og með 1. febrúar á næsta
ári. Slíkt fast verð kemur eflaust
skuldugu þjóðunum á borð við
Mexíkó, Nígeríu og Egyptaland til
góða og einnig eru þetta góðar
fréttir fyrir banka sem lánað hafa
olíuiðnaðinum. Hinsvegar hafa aðrir
litla ástæðu til að fagna þar sem
aukin verðbólga gæti fylgt í kjölfar-
ið.
Sérfræðingar í olíumálum voru þó
fullir efa að samkomulag OPEC yrði
haldið í heiðri af öllum ríkjunum og
raunar hefur eitt ríkjanna þrettán,
írak, ekki skrifað undir það.
Áhrif lækkandi olíuverðs eru enn
að koma í ljós á mörgum sviðum og
jafnvel þótt olíuverðið hækki upp í
átján dollara á tunnu er óvíst að hinn
venjulegi borgari eigi eftir að finna
áhrif þeirrar hækkunar. Hráolía var
seld á 30 dollara á tunnu fyrir rúmu
ári síðan og 18 dollarar eru þvf enn
langt frá því verði.