Tíminn - 30.12.1986, Side 1
q STOFNAÐUR1917
limirml
SFJALDHAGI
allar upplýsingar
á einum staó
l
SAMVINNUBANKI o
ÍSLANDS HF. *
ÞRIÐJUDAGUR 30. DESEMBER 1986 - 295. TBL. 70. ÁRG.
í STUnU MÁU...
HNÍFASAFNI og loftskamm-
byssu var stolið úr íbúð í Vesturbæn-
um um jólahelgina. Að sögn lögreglu
munu ekki vera tengsl milli þessa
þjófnaðar og árásarinnar við Sigtún
sem greint er frá á blaðsíðu fimm. Þá
var tvíhleyptri haglabyssu af Monte
Carlo gerð stolið á sunnudag úr íbúð
ásamt símatæki og riffli. Sagði rann-
sóknarlögreglan einnig að síðustu
daga hefði verið mikið um innbrot í
geymslur, sérstaklega í Breiðholti. Vill
rannsóknarlögreglan hvetja fólk til
þess að tryggja læsingar sínar á
geymsluhurðum.
NÝTT LEIKSVIÐ verðurtekið
í notkun, af Þjóðleikhúsinu í kvöld,
þegar frumsýnt verður leikritið í smásjá
eftir Þórunni Sigurðardóttur. Leiksviðið
er til húsa að Lindargötu 7 og hefur
hlotið nafnið Litla leiksviðið. Frumflutn-
ingur verksins hefst klukkan 20:30 en
áður en sýningin hefst munu íslenskir
leikarar og starfsmenn Þjóðleikhússins
fara blysför frá Þjóðleikhúsinu að Litla
leiksvioinu.
MAGNÚS THOFSODDSEN
hæstaréttardómari hefur verið kjörinn
forseti Hæstaréttar íslands frá fyrsta
janúar 1987 til tveggja ára og Halldór
Þorbjörnsson hæstaréttardómari var-
aforseti til sama tíma.
Breska tankskipið Syneta strandaði við Skrúð í mynni Fáskrúðsfjarðar og fórst öll áhöfnin eða tólf manns á jóladagskvöld. Lík sjö skipverja hafa
fundist en leit að félögum þeirra bar ekki árangur. Sjá frétt á baksíðu.
ÞAKKIR HAFA VERIÐ
færðar skipstjóra og skipshöfn varð-
skipsins Vædderen fyrir frækilega
björgun skipbrotsmanna af Suður-
landi. Steingrímur Hermannsson for-
sætisráðherra færði ofangreindum að-
ilum þakkirnar fyrir hönd ríkisstjórnar-
innar og þjóðarinnar. Einnig hefur
verið komið á framfæri þökkum til
Breta og Norðmanna fyrir þeirra þátt. t
í frétt frá forsætisráðuneytinu segir að f
Slysavarnafélag íslands, Landhelgis- £
gæslan og Flugmálastjórn eigi skilið p
þakkir fyrir þátttöku í leit og björgun.
VERÐLAGSRÁÐ sjávarút-
vegsins ákvað á fundi sínum í gær að
gefa loðnuverð áfram frjálst. Því munu
sömu ákvæði verða í gildi út þessa
vertíð og nú gilda, varðandi tilkynning-
ar og lágmarksgildistíma á verðum.
MEINATÆKNAFÉLAG
Islands hefur sent frá sér yfirlýsingu
þar sem lýst er yfir fullum stuðningi við
yfirstandandi kjaradeilu meinatækna á
Borgarspítalanum, en þeir hafa sagt
upp störfum og munu uppsagnir þeirra
taka gildi frá og með áramótunum. f
yfirlýsingu Meinatæknafélagsins segir
að aðrir meinatæknar muni ekki ganga
í störf meinatækna á Borgarspítalan-
um.
BJARNI THORARENSEN skáld,
yfirdómari og síðar amtmaður á
Möðruvöllum hefði orðið 200 ára í dag,
3Qdes. Af því tilefni hefur Hið íslenska
fræðafélag í Kaupmannahöfn gefið út
heildarútgáfu allra bréfa Bjarna, sem
kunnugt er um, í tveim bindum. Jón
Helgason prófessor sá um útgáfuna.
Fyrra bindi bréfanna var fyrst gefið út
í Kaupmannahöfn 1943 en er löngu
uppselt en seinna bindið kemur nú út
í fyrsta sinn.
KRUMMIS
„Hann
hefur ábyggilega
ætlað að taka frí-
merkjasafnið."
Fimm manns komust af þegar flutningaskipið Suðurland fórst:
VÆDDEREN K0M A
ELLEFTU STUNDU
Fimm manns komust lífs af þeg-
ar flutningaskipið Suðurland fórst
um 290 mílur ANA af Langanesi á
miðnætti á aðfangadag. Þrír menn
létust og þrír eru taldir af. Átta
skipverjar komust í björgunarbát
sem var illa farinn enda hafði hann
lamist við skipið og hangið utan á
síðu þess nokkurn tíma, eftir að
slagsíða kom á skipið.
Ekki er fyllilega ljóst hvað
gerðist, en líklegast er talið að sjór
hafi komist í skipið. Mjög greið-
lega gekk að staðsetja skipbrots-
menn eftir að skipið sökk. Hins-
vegar voru ýmis ljón á veginum
þegar farið var að huga að björgun
mannanna. Eins og fram hefur
komið var það djörf björgunarað-
gerð varðskipsmanna af Vædderen
sem varð til þcss að tókst að bjarga
mönnunum þegar tæpast stóð.
Veðurskipið „Metro“ var statt í
um 120 sjómílna fjarlægð frá slys-
staðnum. Ekki tókst að kalla upp
skipið þegar um miðnættið og sendi
það ekki frá sér veðurskeyti klukk-
an tólf. Metro var það skip sem
næst var slysstað. Metro svaraði
um klukkan 3 um nóttina og hafði
þá þegar tapast dýrmætur tími.
Varðskipið Týr var statt við Súða-
vík þegar kall barst til þess að
halda þegar af stað áleiðis til
slysstaðs.
Rétt eftir klukkan eitt á jólanótt
héldu varðskipin Vædderen og
Olav Helgi af stað frá Færeyjum.
Skömmu áður höfðu þær upplýs-
ingar borist frá Bodö í Noregi að
þar væru engar þyrlur eða skip til
- þegar skipsbrotsmenn voru orönir mjög þrekaöir
jafnvel lengur.
Fyrirhugað var að senda elds-
neytisvél frá Bretlandi og átti hún
að koma til móts við þyrlu frá
varnarliðinu á Keflavíkurflugvelli,
sem fara átti frá Egilsstöðum.
Fokkerflugvél Landhelgisgæslunn-
ar átti að fylgja þyrlunni til Egils-
staða. Allar þrjár vélarnar biluðu
og urðu gagnslausar fyrir vikið.
Þegar svo var komið var Ijóst að
varðskipið Vædderen var sá kostur
sem vænlegastur þótti til björgun-
ar. Djörf ákvörðun skipstjóra
Vædderen, um að senda þyrlu sína
af Lynxgerð af stað þegar útreikn-
að var að flugþol þyrlunnar myndi
duga nákvæmlega til að ná upp
mönnunum og fljúga til baka ef
skipið héldi sömu ferð í átt að
yfir björgunarbátnum klukkan eitt
á jóladag og skömmu síðar hafði
hún náð upp þeim fimm mönnum
sem á lífi voru og komust af. Þeir
sem lifðu af slysið voru: Jón Snæ-
björnsson fyrsti stýrimaður, Hall-
dór Gunnarsson fyrsti vélstjóri,
Kristinn Harðarson háseti, Júlíus
Guðnason háseti og Anton Sig-
þórsson viðgerðarmaður í vél.
Þeir aðilar sem Tíminn hefur
rætt við og tengdust á einhvern
hátt björgunaraðgerðum eru sam-
mála um að frammistaða varð-
skipsmanna af Vædderen hafi verið
hreint út sagt frábær.
En það er óhætt að segja að
samverkandi aðstæður hafi hjálpað
til við björgun þeirra skipbrots-
manna. Eftir að nýjum björgunar-
bát hafði verið kastað til þeirra úr
hafi orðið þeim til lífs. Höfðu
skipsbrotsmenn hafst við í lekum
og rifnum björgunarbát í ellefu
klukkustundir og voru orðnir þrek-
aðir af að standa í sjó sem náði
þeim hátt upp á læri. Orion þota
sem sveimaði yfir bátnum og leið-
beindi þyrlunni beint að bátnum
og sparaði þar með dýrmætar mín-
útur, því þyrlan átti ekki eftir
nema tólf mínútna flugþol þegar
hún kom til skips aftur.
Vædderen flutti skipbrotsmenn-
ina til Færeyja og þaðan fóru þeir
með flugi til Reykjavíkur þar sem
tekið var á móti þeim af ástvinum.
Suðurland var að flytja saltsíld
til Murmansk í Sovétríkjunum
þegar slysið varð.
Sjá ennfremur bls. 2, 3 og 8.