Tíminn - 30.12.1986, Page 3
Þriðjudagur 30. desember 1986
Tíminn 3
Síldarverksmiðjur ríkisins Siglufirði:
Meiri loðna á land
nú en nokkru sinni
Alls komin 140 þusund tonn
Frá frcttaritara Tímans, Emi Þórarinssyni í
Fljótum:
Meiri loðnu hefur nú verið landað
á Siglufirði á yfirstandandi haust-
vertíð en á nokkurri vertíð áður og
raunar er Siglufjörður langhæsti
löndunarstaður á öllu landinu.
Alls hefur verið landað tæpum
140 þúsund tonnum hjá Síldarverk-
smiðjum ríkisins og hefur verið brætt
nær stanslaust í fjóra mánuði. Óvíst
er hvort tekst að bræða alla þá loðnu
sem til er í þrónum, fyrir jól.
„Við fengum fyrstu loðnuna 11.
ágúst og byrjuðum bræðslu um miðj-
an ágúst“ sagði Gísli Elíasson, verk-
smiðjustjóri SR á Siglufirði.
„Bræðslan hefur gengið ágætlega,
það fara í gegn 12-1500 tonn á
sólarhring. Við bræðsluna vinna 36
menn á tvískiptum vöktum, hver
vakt er átta klukkustundir. í>ví er
ekki að leyna að eftir fjögurra mán-
aða törn fara menn að verða dálítið
þreyttir á vaktavinnunni. Þó gæti
svo farið nú, að haust og vetrarver-
tíðin næðu alveg saman. Petta fyrir-
tæki skapar mikla vinnu fyrir bæjar-
félagið og það er mikil gjaldeyrir
sem verksmiðjurnar skapa, þó verð-
ið á lýsinu hafi stórlækkað að undan-
förnu“ sagði Gísli.
Síldarverksmiðjurnar á Siglufirði
voru byggðar árið 1946. Síðustu ár
hefur verksmiðjunum verið breytt
verulega auk þess sem húsnæðið var
stækkað árið 1985, en þá var byggt
nýtt hús sem soðstöðin er nú í.
Nú hefur allur tækjabúnaður verið
endurnýjaður að undanskildum
mjölþurrkurunum, þeireru frá 1946,
að vísu orðnir úreltir. Þá hafa húsa-
kynni SR verið endurbætt mjög
mikið og öll aðstaða starfsmanna
bætt til muna.
Auk verksmiðjunnar rekur SR
vélaverkstæði á Siglufirði, en alls
starfa um sextíu manns hjá fyrirtæk-
inu á Siglufirði.
-ÖÞ
Frá stjórnstöð Síldarverksmiðju ríkisins á Siglufírði. Frá vinstri, Stefán
Sigmarsson og Þórður Andersen. Tímamynd örn
Símanúmerahappdrætti lamaðra og fatlaðra:
Húsnæðisstofnun
varð af
happdrættisbíl
Húsnæðisstofnun ríkisins virðist
hafa misst af happdrættisvinningi -
nýjum bíl - nú um jólin vegna
þeirrar reglu að ríkisstofnunum er
ekki heimilt að greiða happdrættis-
miða. En einn af bílavinningunum í
Símahappdrætti Styrktarfélags lam-
aðra og fatlaðra kom upp á síma-
númer Húsnæðisstofnunar 91-
28500.
Sigurður Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri kvaðst á sínum tíma
hafa spurst fyrir um það hjá ríkisend-
urskoðun hvort stofnunin mætti
kaupa happdrættismiða til stuðnings
góðgerðar- eða líknarfélögum og
fengið þau svör að svo væri ekki. Sé
því mjög ólíklegt að þessi miði hafi
verið greiddur af stofnuninni og
sömuleiðis ólíklegt að nokkur starfs-
mannanna hafi tekið sig til og greitt
þennan miða úr eigin vasa.
Hjá Styrktarfélagi lamaðra ogfatl-
aðra hafði í gær ekki verið kannað
hvort happdrættismiðinn með núm-
eri Húsnæðisstofnunar hafði verið
greiddur eða ekki. Ríkisstofnanir
endursendi oft miðana með síma-
númerum sínum með þeirri athuga-
semd að það megi selja þá öðrum,
og það sé stundum gert. Hvort svo
hafi verið í þessu tilviki eða ekki,
hafi ekki verið kannað, sem fyrr
segir. Happdrættismiðar Símahapp-
drættisins eru gefnir út á öll síma-
númer nema leyninúmer. -HEI
Framkvæmdastjóri Nesskips:
BJÖRGUNARKERFIÐ
GEKK EKKIUPP
„Þegar varðskipið Vædderen fór
af stað frá Færeyjum, hélt maður
að það væri meira til öryggis en að
varðskipsmenn myndu bjarga
mönnunum úr bátunum því átti ég
ekki von á,“ sagði Guðmundur
Ásgeirsson framkvæmdastjóri
Nesskips sem átti Suðurland, í
samtali við Tímann í gær. „Mér
virðist sem björgunarkerfið hafi
brugðist. Þyríurnar frá Noregi
komust ekki svona langt. Eldsneyt-
isvélin sem var í Bretlandi bilaði.
Ég tel að eðlilegast hefði verið, ef
við höfum á annað borð aðgang að
þessu björgunarneti að þyrla og
eldsneytisflugvél hefðu verið send-
ar til Noregs, Álasunds, og hefðu
þaðan lagt upp til slysstaðarins. Þá
hefðu þær sennilega komist á
slysstað um klukkan 7 um morgun-
inn.“ sagði Guðmundur.
Hafsteinn Böðvarsson
Hlöðver Einarsson
Sigurður Ölvir Bragason
Sigurður Sigurjónsson Sigurður L. Þorgeirsson Svanur Rögnvaldsson
Sex menn fórust með Suðurlandi
Þeir sem fórust hétu :
Hafsteinn Böðvarsson, mat-
sveinn, til heimilis að Langholts-
vegi 178, Reykjavík. Hann var
fæddur 25. júlí 1930. Hafsteinn
lætur eftir sig sambýliskonu, aldr-
aða móður og sex börn.
Hlöðver Einarsson yfirvélstjóri,
Flúðaseli 90, Reykjavík. Hlöðver
var fæddur 11. nóvember 1945.
Hann lætur eftir sig eiginkonu og
tvö börn.
Sigurður Ölvir Bragason háseti,
Fornósi 1, Sauðárkróki. Hann var
fæddur 7. janúar 1965, ókvæntur
og barnlaus.
Sigurður Sigurjónsson skip-
stjóri, Breiðvangi 32, Hafnarfirði.
Sigurður fæddist 7. ágúst 1924 og
lætur eftir sig eiginkonu og þrjú
börn.
Sigurður L. Þorgeirsson, 2. stýri-
maður, Grenilundi 33, Akureyri.
Hann var fæddur 15. ágúst 1941 og
lætur eftir sig eiginkonu og fjögur
börn.
Svanur Rögnvaldsson, bátsmað-
ur, Ferjubakka 8, Reykjavík.
Svanur fæddist 14. desember 1929.
Hann lætur eftir sig eiginkonu og
fimnt börn.
Búmannsbók er annað tveggja „geymslubók"
eða „söfnunarbók“.
Vextir eru reiknaðir mánaðarlega.
Þeir leggjast við höfuðstólinn 1. hvers mánaðar og bera vexti
frá þeim degi.
„Geymslubók“
er stofnuð með einu innleggi, sem laust er til útborgunar
með jöf num mánaðarlegum úttektum á næstu 12 mánuð-
um auk áfallinna vaxta hverju sinni
Vextir 12 sinnum á ári
„Söfnunarbók“
er samningur um ákveðið innlegg mánaðarlega í
12 mánuði. Hún er bundin allan söfnunartímann,
en einum mánuði eftir tólfta innlegg er öll innistæðan
laus til útborgunar.
Búmannsbók heidur „búmannskjörum"
eftir að samningstíma lýkur þar til innistæða er hreyfð.
Vextir eru háðir ákvörðun Alþýðubankans hf. hverju sinni.
Frá 1. jan. 1987. Nafnvextir 16,0%
Ársávöxtun 17,25%
við gerum vel við okkar fólk
Alþyóubankinn hf