Tíminn - 30.12.1986, Blaðsíða 4

Tíminn - 30.12.1986, Blaðsíða 4
4 Tíminn Þriðjudagur 30. desember 1986 Kisa og pakkinn Þessi mynd er af Rusty, en hann er 7 mánaða kettlingur, kátur og hress. Eigandi kettlingsins, Pam Tobey í Northridge t' Kaliforníu tók þessa mynd af Rusty og vann verðlaun fyrir. „Jólapakkinn" hans Rusty er reyndar pappírsþurrku-pakki, en myndin var tekin einmitt af því að eigandanum þótti það svo bráð- sniðugt að kettlingurinn settist við hliðina á Kleenex-pakkanum og hnerraði hvað eftir annað og var engu líkara en hann væri að bíða eftir að einhver hjálpaði upp á sakirnar og snýtti honum með pappírsþurrkunum úr pakkanum! Kettlingurinn Rusty að hnerra. Roger Moore (James Bond) - fyrir og eftir vörtu-aðgeröina Hér höfum við tvær myndir af leikaranum Roger Moore sem nú segist vera hættur að leika hetjuna James Bond. Það var því ekki fyrst og fremst fyrir útlitið, að leikarinn lét fjar- lægja vörtu af andliti sínu (sést á myndinni t.v.) heldur var það að áeggjan læknis hans. Roger Moore er nú orðinn 57 ára gamall, og segist ekki geta staðið í því erfiði sem fylgir Bond- myndunum. En hann hefur ekkert sagt um að hann sé hættur að leika. Roger hafði haft fæðingarblett, sem síðan stækkaði og varð að vörtu vinstra megin við nefið, og þegar læknir hans sá að vartan hafði stækkað sagði hann að sjálf- sagt væri að fjarlægja hana. Svo væri þetta líka upplagt tækifæri fyrir leikarann til að fá „smá-and- litslyftingu" um leið. Moore sló til, og svo voru teknar myndir - á undan og eftir - aðgerð- ina til að sjá muninn. Óneitanlega er eins og Roger Moore hafi yngst um 10 ár á ... og svo t.h. þegar vartan hans Rogers er horfin og húðfelling- arnar sömuleiðis! En er hann þá jafn „sjarmerandi"? á andlitinu og húðfellingarnar horfið. Þegar Samantha Fox lékjólasvein! Allir hermennirnir vilja fá áritaða mynd af Sam til minningar um heimsókn hennar Samantha er svolítið óvenjulegur jóla- sveinn. Hún er t.d. ekki með skegg! Hér er hún í flegnum rauðum jólakjól með skykkju yfir herðarnar, sem skreytt er hvítum loðkanti. Sam var reyndar með jólasveinahúfu, en hún hafði tekið hana af sér — hún kunni ekki við hana Roger Moore t.v. - með vörtu á kinn og húðf ellingar á vanga, - myndinni til hægri, en einhvern veginn er hann ekki „hinn eini sanni Bond“ þar þó teygt hafi verið Um þessar mundir eru margir jólasveinar á ferð, og þeir eru margir hverjir vel þekktir hér á landi og eiga sín nöfn, svo sem Ketkrókur, Kertasníkir og Hurða- skellir, svo einhverjir séu nefndir. En svo eru líka til „þykjustu- jólasveinar", sem klæða sig í jól- asveinabúning til þess að gleðja fólk á öllum aldri um jólin. Það var það sem hún Samantha Fox, hin fallega breska fatafella og söngkona, hafði í huga þegar hún fór í jólaheimsókn til breskra hermanna, sem voru í æfingabúð- um og fengu ekki að fara heim um jólin. Petta var á síðustu jólum, og sögðu ungu hermennirnir að þessi jólagestur þeirra myndi seint gleymast þeim. Vágestur á sjúkrahúsinu eftir Michael Palmer Komin er út hjá Iðunni spennandi saga eftir Michael Palmer, og nefnist hún Vágestir á sjúkrahúsinu. í kynningu forlagsins segir svo um efni bókarinnar: Ung og glæsileg kona deyr á sjúkrahúsi úr óþekktum sjúkdómi. Önnur deyr eftir lítilfjörlegt óhapp á heimili sínu. Engum kemur til hugar að tengja þessa atburði — nema Kate Bennett lækni. Henni tekst að finna þræðina sem tengja konurnar tvær saman — og þeir liggja inn á sjálft sjúkrahúsið. - En Kate veit ekki að hún á í höggi við voldugan andstæðing sem svífst einskis til að vernda hið ógnþrungna leyndarmál sitt, og gerir sér ekki ljóst að hún leggur ekki einungis frama sinn, hjónaband og mannorð í hættu, heldur lífið sjálft. Vágestur á sjúkrahúsinu er mögnuð saga eftir höfund sem sjálfur er læknir og þekkir af eigin raun það sögusvið sem hann hefur valið sér, nútíma sjúkrahús. Jón Á. Sigurðsson þýddi. Eyfirskur fróðleikur og gamanmál Kvæði og stökur I. Ingólfur Gunnarsson safnaði og bjó til prentunar. Hér er á ferð fyrsta bindi nýs bókaflokks, sem Skjaldborg hefur ýtt úr vör. Hugmyndin með útgáfunni er sú að bjarga frá glötun ýmsu þvi, sem til er í handritum af kvæðum, vísum, sögum og sögnum í byggðum við Eyjafjörð, sveitum og kaupstöðum. Með efni í þetta fyrsta bindi hefur verið leitað fanga hjá góðum hagyrðingum, og eiga eftirtaldir hér kvæði og lausavísur: Aðalbjörg Jónsdóttir frá Helgastöðum, Aðalsteinn Ólafsson, Friðbjörn Björnsson í Staðartungu, Hjalti Finnsson Ártúni, séra Jóhannes Pálmason, Jóhannes Þórðarson Miðhúsum, Laufey Sigurðardóttir frá Torfufelli, Sigurborg Björnsdóttir frá Barká, Torfi Guðlaugsson, Hjálmar Þorláksson frá Villingadal, Sigrún Hjálmarsdóttir og Angantýr Hjörvar Hjálmarsson frá Villingadal. — Ljósmynd á kápu tók Gunnlaugur P. Kristinsson.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.