Tíminn - 30.12.1986, Side 7

Tíminn - 30.12.1986, Side 7
Þriðjudagur 30. desember 1986 UTLOND Tíminn 7 Time valdi Corazon Aquino „Konu ársins“ Manila - Reuter Corazon Aquino forseti Filipps- eyja sagði í gær að útnefning tíma- ritsins Time á henni sem „Konu ársins“ væri viðburður sem hún hefði ekki getað látið sig dreyma um en bætti við að heiðurinn félli öllum Filippseyingum í skaut. „Það sem ég er að upplifa núna er eitthvað sem ég hefði ekki getað látið mig dreyma um,“ sagði í yfirlýs- ingu Aquino sem blaðafulltrúi ríkis- stjórnar hennar, Teodoro Bengino, las upp. Time tilnefndi Aquino sem konu ársins og sagði hana hafa haft mestu áhrifin á heimsviðburðina á þessu ári fyrir að endurvekja traust Filipps- eyinga á ríkisstjórn sinni. Aquino komst til valda í febrúarmánuði eftir friðsama byltingu hersins sem studd var af almennum borgurum. Aquino sagði um útnefningu tíma- ritsins virta: „Ég er að sjálfsögðu mjög ánægð með útnefninguna og þigg hana fyrir hönd allra Filippsey- inga sem gerðu þetta mögulegt". Time sagði hina 53 ára gömlu Corazon Aquino hafa sýnt ákefð og hugrekki í að leiða þjóð sína aftur á braut lýðræðis og hefði með því endurvakið stolt og samkennd Fil- ippseyinga. Aquino sagði í samtali við Time, í tilefni útnefningarinnar, að það sem hún vonaðist eftir væri að Fil- ippseyingar gætu sem flestir lifað við þokkaleg kjör og í friði. Flún sagði það vera helsta verkefni stjórnar sinnar að skapa fleiri störf í landinu. Elísabet Englandsdrottning og Wallis Simpson, konan sem Edward VIII tók fram fyrir bresku krúnuna, eru einu konurnar auk Aquino sem Time hefur útnefnt sem persónu ársins. Að vísu heiðraði tímaritið konur um allan heim sérstaklega árið 1975. Mikhail Gorbatsjov Sovétleiðtogi var meðal þeirra sem einnig kom til greina er tímaritið valdi þá persónu sem rnest áhrif hefði haft á heimsvið- burði ársins. Kona ársins: Corazon Aquino forseti Filippseyja Norður-Kórea: Kim endur- kjörinn Moskva - Reuter Kim Il-Sung leiðtogi komrnún- istaflokksins í Norður-Kóreu var endurkjörinn sem forseti landsins í gær. Það var sovéska fréttastof- an Tass sem frá þessu skýrði. Fréttastofan sagði Kim hafa verið endurkjörinn á fundi Æðsta ráðsins f höfuðborginni Pyong- yang. Hinn 74 ára gamli Kim stofnaði kommúnistaflokkinn árið 1945 og var fremstur í flokki þegar nýja lýðveldið Norður-Kórea var stofnað árið 1948. Hann var for- sætisráðherra landsins fram til ársins 1972 þegar hann kom á forsetaembættinu og settist í það sjálfur. ERLENT YFIRLIT Gorbatsjov og Raisa veifa í kveðjuskyni við brottförina frá Reykjavík. ganga lengra. Það kom líka í ljós, þegar heim kom, að margir töldu hann hafa gengið of langt til móts við Sovétríkin varðandi fækkun og gereyðingu kjarnavopna. Svipaður tónn hefur heyrst frá hernaðarsinn- um í Natóríkjunum. Sennilega hefur ekki ósvipað gilt um Gorbatsjov. Hann hefur varð- andi stjörnustríðsáætlunina gengið eins langt og honum hefur verið frekast fært, jafnt af hernaðarleg- um og stjórnmálalegum ástæðum. Yfirmenn hersins hefðu ekki fagn- að því, ef Gorbatsjov hefði fallist á útrýmingu kjarnavopna á sama tíma og Bandaríkjunum væri heimilt að þróa geimvopn sín hömlulaust. Vafalítið á Gorbatsjov einnig sína pólitísku andstæðinga eða keppinauta innan valdakerfisins. Hann er langt frá því að vera einvaldur. Það getur orðið honum að falli, ef hann misstígur sig. Þótt ekki sé beinlínis sjáanleg sam- keppni við Gorbatsjov urn for- ingjastöðuna, er vafalítið þegar farið að keppa um hver skuli vera krónprins hans, ef hann forfallaðist skyndilega af einhverjum ástæð- um. í Moskvu er háð valdakeppni á hæstu stöðum ekki síður en í öðrum höfuðborgum. Þótt óumdeilanlega næðist mikill árangur á Reykjavíkurfundinum og svo litlu munaði, að menn gátu verið bjartsýnir um áframhaldið, er erfitt um allar framtíðarspár nú. íransmálið eða Irangate, eins og það er stundum nefnt, hefur orðið Reagan forseta mikið áfall og á þó ef til vill eftir að reynast honum meira. Meðan staða hans batnar ekki, verður hann ekki fær um alvarlega þátttöku í örlagamiklum viðræðum. Þvert á’ m'óti horfir nú á margan hátt verr en fyrir Reykjavíkurfund- inn. Haukarnir hafa styrkt stöðu sína meðan forsetinn hefur verið f lamasessi. Bandaríkin hafa lýst yfir því, að þau framfylgi ekki lengur Salt 2,-samningnum. Tillög- ur hafa verið lagðar fyrir þingið um stórfjölgun langdrægra eldflauga. Andi Reykjavíkurfundarins hefur a.m.k. um skeið fjarlægst Was- hington. EF IRANGATE hefði ekki komið til sögunnar, hefði verið álitamál hvort heldur ætti að telja Reagan eða Gorbatsjov mann árs- ins 1986. Reagan hefði mjög komið til greina, því að framganga hans á Reykjavíkurfundinum benti til þess, að honum væri það full alvara að Ijúka stjórnmálaferli sínum sem friðarforseti. Nú býr hann við minnkandi traust þjóðar sinnar, ef marka má skoðanakannanir, og ekki er séð fyrir hvernig Irangate- málinu lýkur. Gorbatsjov dæmist því tvímæla- laust vera maður ársins 1986. Því veldur ekki aðeins framganga hans á Reykjavíkurfundinum og róttæk- ar tillögur hans um útrýmingu ^kjarnavopna fyrir aldamót. Þessu veldur ekki síður framganga hans heima fyrir. Það er ótvírætt, að Gorbatsjov tók við forustu í stórveldi, þar sem margvísleg hrörnunarmerki voru að koma í ljós. Óregla og vinnusvik fóru vaxandi, ekki síst vegna of- neyslu áfengra drykkja. Forusta margra atvinnufyrirtækja var víða orðin duglítil, afturhaldssöm og kredduföst. Sérréttindi leiðtoga í stjórnmálum og atvinnurekstri höfðu færst í aukana. Sitthvað var farið að minna á síðustu áratugi keisarastjórnarinnar. Gorbatsjov og hinir yngri for- ustumenn, sem hafa hafist til valda Þórarinn Þórarinsson: Reykjavíkurfundurinn er mesti stjórnmálaviðburður ársins 1986 Gorbatsjov er öðrum fremur maður ársins ÞAÐ ER óumdeilanlegt, að leið- togafundurinn í Reykjavík verður talinn stærsti stjórnmálaviðburður ársins 1986. Aldrei áður hefur munað eins mjóu, að leiðtogar risaveldanna næðu samkomulagi um stórfellt skref til útrýmingar á kjarnavopnum og öðrum vopnum í framhaldi af því. Hefði slíkt samkomulag náðst, gátu menn látið sig fara að dreyma um, að þeir tímar ættu eftir að koma, að herjum yrði aðeins við- haldið til að tryggja lög og reglu heima fyrir og gæslu landamæra. Draumurinn um þúsund ára frið- arríkið hefði þá ekki þótt eins fjarlægur og hann þykir í dag. Því miður varð niðurstaðan sú, að samkomulag strandaði að lokum. Reagan taldi sig ekki geta gengið svo langt að falla næstum alveg frá stjörnustríðsáætluninni. Að vísu hafði Gorbatsjov gengið langt til móts við hann með því að samþykkja rannsóknir innanhúss í þágu geimvarna næstu 10 árin. Óvíst er, að þessar tilraunir komist lengra á þessum tíma svo máli skipti. En Reagan mun jafnt af persónulegum og pólitískum á- stæðum ekki hafa talið sér fært að mcð honum, eru bersýnilega stað- ráðnir í því að reyna að snúa þessu við og og hefja alhliða sókn til eflingar ativnnulífinu og betri lífs- kjara. Með þeim er að hefjast nýr tími í Rússlandi. Þessar breytingar ná ekki aðeins til efnahagmála. Það eru að gerast jafnhliða ýmsar breytingar í réttar- farsntálum og mannréttindamál- um. Það er þegar hægt að sjá mörg dæmi um þetta. Breytingarnar í þessum efnum geta hins vegar ekki orðið nein leiftursókn. Þá getur þeim, sem vilja viðhalda hinu ríkj- andi kerfi, vaxið ásmegin og Gor- batsjov og félögum hans steypt af stóli. Önnur viðvörun frá hinni hliðinni eru uppþotin í Shanghai í Kína síðustu daga. Spurningin í Kína er, hvort ýmsar breytingar hafa ekki gerst of hratt þar í landi síðustu misserin. Því hvílir nú óvissa yfir Kína, þegar Deng gamli fellur frá. HINN gamli vestræni heimur, ef orða má það svo, fylgist með athygli með því, sem er að gerast í Sovétríkjunum og Kína, ber sér á brjóst og segir oft: Allt er þetta nú betra hér og frelsi og mannréttindi í heiðri höfð „ En er það heimur frelsis og mannréttinda, þegar tugir milljóna manna eru dæmdir til at- vinnuleysis og ungt fólk kynnist í milljónatali ekki öðru lífi en að vera iðjulaus og lifa á fátækra- styrk? Er það heimur jafnréttis og réttlætis, þegar auðkýfingum fjölg- ar og fátæklingum þó margfalt meira og millistéttirnar, sem oft mynda kjarna þjóðfélagsins, rétt berjast í bökkum? Þetta virðist því miður hafa gerst síðustu árin í Bandaríkjunum, og raunar einnig í Vestur-Evrópu þótt í minni mæli sé. Víða í veröldinni hefur verið óróasamt og ófriðlegt í heintinum á árinu, sem er að líða. Rússar hafa haldið áfram hernáminu í Afgan- istan og ísraelsmenn á vesturbakk- anum svonefnda með aðstoð Bandaríkjanna. Þaðan stafar nú mest styrjaldarhætta í heiminum. Alvarlegast af öllu er þó það að bilið eykst milli fátæku þjóðanna í suðri og ríku þjóðanna í norðri. Það gæti greitt fyrir lausn þess máls, ef risaveldin hættu vígbúnað- inum og beindu fjármagninu, sem rennur til hans, til viðreisnar í þriðja heiminum. í heiminum er nú mikið deilt um frjálshyggju og félagshyggju. Báð- ar eiga þessar stefnur rétt á sér að vissu marki. En þær þurfa að geta fundið þann meðalveg, sem ekki aðeins tryggir frelsi hins áræðna og ósvífna, heldur einnig rétt hinna, sem eru minni fyrir sér. Enn hefur ekki fundist hin rétta lausn hvorki í austri eða vestri.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.