Tíminn - 30.12.1986, Page 12
12 Tíminn
Þriðjudagur 30. desember 1986
ERLENDUR ANNALL
Árið 1986 var viðburðaríkt á alþjúðavettvangi. Lýðræðið
sigraði á Filippseyjum þar sem Corazon Aquino tók við
forsetaembætti eftir “byltingu fólksins“. Það var hins vegar
svartur dagur fyrir lýðræðið þegar Olof Palme forsætisráð-
herra var skotinn til bana á stræti í miðri Stokkhólmsborg.
Samskipti stórveldanna voru í sviðsljósinu, þó aldrei meir en
í október þegar þeir Reagan Bandaríkjaforseti og Gorbatsjov
Sovétleiðtogi áttu fund í Reykjavík. Ekki dró úr stríðrekstri
á árinu og styrjaldir á borð við Persatlóastríðið og borgarastríð
t.d. í Líbanon og á Sri Lanka héldu áfram að plaga venjulegt
fólk víðs vegar um heim. Reykjavíkurfundur, Líbýuárás,
forsetakosningar á Filippseyjum, kjarnorkuslysið í Tsjernóbíl;
þetta er nokkrir þeirra viðburða sem drepið verður á í þessum
erlcnda annál fyrir árið sem er að líöa.
JANUAR
Stórveldin hófu árið með myndrænni
slökunarstefnu. Bandarískar sjón-
varpsstöðvar sýndu nýársávarp Gor-
batsjovs Sovétleiðtoga og sovéska
sjónvarpið sýndi nýársávarp Reag-
ans Bandaríkiaforseta.
Lögreglan í Nýju Delhí á Indlandi
sýndi hinsvegar enga slökun í hand-
tökum sínum á fylliröftum og skipti
engu þótt nýtt ár væri gengið í garð.
Þeir sem voru með skrílslæti og
asnahátt á nýársnótt voru dregnir
skjálfandi þunnir út úr fangageymsl-
urn lögreglunnar á nýársdagog látnir
ríða á ösnum um götur Nýju Delhi.
í Japan tóku verkalýðsfélög upp á
því á nýju ári að birta myndir af
nöktu kvenfólki í félagstíðindum
sínum við hliðina á pólitískum grein-
um og kröfugerðum um hærri laun í
von um að slíkt yrði til að laða fleiri
verkamenn í félögin.
Deilur Bandaríkjastjórnar og Lí-
býumanna jukust enn strax í byrjun
mánaðarins þegar Reagan Banda-
ríkjaforseti fyrirskipaði nýjar efna-
hagsþvinganir gcgn Lýbíumönnum
og hvatti bandamenn Bandaríkj-
anna í Evrópu og annars staðar til
að taka höndum saman um að ein-
angra það sem hann kallaði úrhraka-
þjóð sem stjórnað væri af barbara.
Ríkisútvarpið í Líbýu ásakaði
bandaríska forsetann hinsvegar um
að sýna villimennsku í viðskiptum
sínum við Líbýu. Deilur þessar áttu
cftir að magnast verulcga og setja
svip sinn á atburði ársins.
í Bretlandi neyddist Michael Hes-
eltinc varnarmálaráðherra til að
segja af sér eftir að hafa verið
einangraður í baráttu sinni fyrir
framtíð Westlands, eina þyrlufram-
leiðanda Breta.
í Úganda var hart barist í jan-
úarmánuði. Þar náöi andspyrnuher-
inn loks völdum í höfuðborginni
Kampala og sór Yoweri Museveni
skæruliðaforingi embættiseið sem
forseti Úganda við mikla viðhöfn.
Og meira unt borgarastyrjaldir. í
Suður-Yemen náðu ný kommúnist-
aöfl undir forystu Haider Abubakcr
Al-Attas völdum eftir harða bardaga
við stjórnarher Ali Nasser Moham-
mcds forseta.
í lok mánaðarins varð sorgarat-
burður í Bandaríkjunum þegar
geimferjan Challenger sprakk í loft
upp 72 sekúndum eftir flugtak frá
Canaveralhöfða í Flórída. Enginn
hinna sjö geimfara sem í flauginni
voru lifði af þetta versta geimferða-
slys í sögu Bandaríkjánna.
FEBRÚAR
Febrúarmánuður var einræðis-
herrum óhagstæður og hrökkluðust
tveir þeirra, Jean-Claude Duvalier á
Haiti og Ferdinand Marcosá Filipps-
eyjum, frá völdum.
Duvalier, sjálfskipaður forseti til
lífstíðar á Haiti, flúði frá landinu í
byrjun mánaðarins. Miklar óeirðir
höfðu verið á Haiti áður en „Baby
Doc“ Duvalier flúði frá landi sínu til
Frakklands og reyndar var vitað að
Bandaríkjastjórn var orðin þreytt á
sícndurteknum mannréttindabrot-
um stjórnar lians og myndi fyrr eða
síðar grípa í taumana í þessu fátæk-
asta ríki á vesturhveli jarðar.
Á Filippseyjum gerðust atburðir
hratt í febrúar og raunar stendur
sigur lýðræðisins þar í landi upp úr
scm einn mcrkasti viðburöur síðari
tíma'.
Forsetakosningar fóru framland-
inu sjöunda dag mánaðarins og fljót-
lega fóru að berast tölur frá stjórn-
völduni sem bcntu til að Ferdinand
Marcos forseti hefði unnið mikinn
sigur á mótframbjóðenda sínum
Corazon Aquino.
Flestum varð þó Ijóst að dæmalaus
svik voru í talli í kosningunum.
Mjög mikill órói var í landinu allan
mánuöinn og reyndi hin vinsæla
Aquino að koma Marcosi frá á
friðsamlegan hátt.
í lok mánaðarins gáfu svo banda-
rísk stjórnvöld skýrt í Ijós að þau
vildu að Marcos léti af völdum en
Bandaríkjastjórn hafði stutt hann í
gegnum súrt og sætt síðustu tuttugu
árin. Þcssi yfirlýsing rcyndist hafa
úrslitaáhrif á stjórnarskiptin, Mar-
cos flúði til Hawaii og Corazon
Aquino varð hinn nýi forseti
landsins.
Síðasti dagur mánaðarins var hins-
vegar sorgardagur fyrir lýðræðið. Þá
var Olof Palme forsætisráðherra
Svíþjóðar skotinn til bana á götu í
Stokkhólmsborg og var umsvifalaust
hrundið af stað mcstu morðrann-
sókn í sögu landsins.
Aörir viðburðir febrúarmánaðar
féllu gjörsamlega í skuggann fyrir
þessuni þreniur atburðum. Pó ber
að minnast á Lee Chong frá Suður-
Kóreu. Hann lést af völdum of-
drykkju í nýársfagnaði fyrirtækis
síns. I byrjun febrúarmánaðar fékk
fjölskylda hans hinsvegar sem sam-
svarar um 1,8 milljón íslcnskra
króna í skaðabætur. Dómarinn í
máli þessu sagði Lee hafa látist við
skyldustörf.
Kdiiuali Líbýuleiðtogi var mikið í sviðsljósinu á fyrri hluta ársins
Á leiðtogafundi sjö iðnaðarríkja í
Tokyo voru hryðjuverk mjög í sviðs-
ljósinu. Var þar ákveðið að taka upp
harðari stefnu gagnvart alþjóðlegum
hryðjuverkasamtökum og löndum
sem styddu við bakið á þeim. Líbya
var nefnd á nafn í þessu sambandi.
í Albaníu fóru fram einfaldar
kosningar sem fréttastofa landsins
sagði sýna svart á hvítu að ekki væri
ríkjandi ncin óeining um stefnu
stjórnvalda. Fréttastofan sagði
99,99% af þeim 1,79 milljón manna
sem kosningarétt höfðu, hafa kosið
þá sem í framboði voru.
í Suður-Afríku voru óeirðir og
mótmæli gegn aðskilnaðarstefnu
stjórnar hvíta minnihlutans daglegt
brauð. Her landsins réðist svo á
skotmörk við eða í höfuðborgum
nágrannaríkjanna Zambíu, Zimb-
abwe og Botswana og ríki um allan
heim mótmæltu þessum árásum.
Indland, nánar tiltekið Punj-
abhérað, komst einnig í fréttirnar
fyrir óeirðir og ólgu. Þar mögnuðust
átökin í trúarflokkadeilunum þegar
átta síkhar voru særðir með hníf-
stungum og hindúar gengu berserks-
gang í helgustu borg þeirra. Amrits-
ar. Fyrr í mánuðinum höfðu öfga-
sinnaðir síkhar drepið níu hindúa í
borginni.
Þá ber að minnast kjarnorku-
kvæðisins „Enn einu sinni geng ég
eftir Tsjernóbílgötu" sem birtist í
sovéska vikuritinu Literaternaya
Gazeta. Það var ort ti! heiðurs þeim
sem svo hetjulega stóðu sig er slysið
varð í kjarnorkuvcrinu í Tsjernóbíl.
í kvæðinu voru hetjudáðir óbreyttra
verkamanna dásamaðar og grasið
sagt vera farið að gróa á ný í litlum
bæ á bökkum Pripyatár.
Þjófur í Japan vakti athygli í
byrjun júnímánaðar fyrir lélega
frammistöðu í grein sinni. Hann stal
feitum og fallegum Mercedes Benz í
miðborg Tokyo en lögreglan kom að
honum skömmu síðar þar sem hann
hamaðist sem óður við að reyna að
,losa sig úr öryggisbelti bílsins sem
var bensínlaus í þokkabót.
Heimsmeistarakeppnin í knatt-
spyrnu stóð yfir í Mexíkó í júnímán-
uði og hafði hún víða áhrif. Á Spáni
lá t.d. kosningabarátta fyrir þing-
kosningarnar að mestu niðri eftir að
boltinn byrjaði að rúlla í Mexíkó.
En þrátt fyrir dauflega kosning-
abaráttu fóru fram þingkosningar á
Spáni þann 22. júní og þar hélt
Sósíalistaflokkur Felipe Gonzalez
forsætisráðherra hreinum meirihluta
á þingi þótt fækkað hefði nokkuð í
þingliði flokksins.
í Austurríki fóru fram forseta-
kosningar og þar bar Kurt Waldheim
fyrrum aðalritari SÞ sigur úr býtum
þrátt fyrir ásakanir um að hann hefði
verið viðriðinn stríðsglæpi nasista.
ísraelsstjórn kallaði sendiherra sinn
heim frá Vínarborg í mótmælaskyni
við þetta kjör.
Stjórn hvíta minnihlutans f Suður-
Afríku setti á ný neyðarástandslög
og lét handtaka mörg hundruð
stjórnarandstæðinga. Margir spáðu
blóðbaði í landinu og sannarlega
jókst óróinn meðal kúgaða svert-
ingja í kjölfar nýju laganna.
í lok mánaðarins samþykkti full-
trúadeild Bandaríkjaþings fjárveit-
ingu til handa Contra skæruliðunum
sem berjast gegn stjórn Nicaragua.
Fjárveitingin hljóðaði upp á hundr-
að milljónir dollara og var litið á
samþykkt hennar sem mikinn sigur
fyrir Rónald Reagan Bandaríkja-
forseta.
Norska stjórnin lét undan alþjóð-
legum þrýstingi í byrjun mánaðarins
og tilkynnti um bann við hvalveiðum
í ábataskyni. Noregur var þar með
síðasta þjóðin til að lúta boði Al-
þjóða hvalveiðiráðsins um bann við
slíkum veiðum.
Frjálslyndi lýðræðisflokkurinn
vann sinn stærsta kosningasigur í
þingkosningum í Japan og fagnaði
enginn sem leiðtogi flokksins, Yas-
uhiró Nakasóne forsætisráðherra.
MARS
lngvar Carlsson tók við forsætisráð-
herraembættinu af Olof Palme sem
myrtur var á stræti í Stokkhólms-
borg. Morðið vakli bæði sorg og
óhug í Sviþjóð sem og í öðrum
löndum. Leiðtogar flestra ríkja
heims sendu fjölskyldu Palme og
sænsku þjóðinni allri samúðarkveðj-
ur og var hans minnst sem eins
virtasta og hæfasta stjórnmálaleið-
toga heims.
Austur í Kína fór fyrirtæki eitt í
borginni Shenyang opinberlega á
hausinn og var það fyrsta fyrirtækið
þar í landi til að gera slíkt síðan
kommúnistar tóku völd árið 1949.
í Sovétríkjunum lauk 27. þingi
kommúnistaflokksins á því að
Mikhail Gorbatsjov sagði að kominn
væri tími til fyrir hina fimm þúsund
þingfulltrúa að hefjast handa við
„endurbyggingu okkar sósíalíska
heimalands". Gorbatsjov var talinn
hafa styrkt stöðu sína verulega á
þingi þessu.
Meirihluti kjósenda á Spáni kross-
aði við áframhaldandi aðild að Norð-
ur-Atlantshafsbandalaginu (NATO)
í þjóðaratkvæðagreiðslu sem þar fór
fram um þetta mál. Úrslitin voru
talin sigur fyrir ríkisstjórn sósíalista
undir forystu Felipe Gonzalez.
Franskir kjósendur gengu einnig
að kjörkassanum í marsmánuði er
þar fóru fram þingkosningar. Hægri
flokkarnir sigruðu í þeim kosningum
og Jacques Chirac leiðtogi gaullista
varð hinn nýi forsætisráðherra
Frakklands. Þar með var „sambúð-
arvandamálið" svokallaða að staðr-
eynd því Chirac leiddi hina hægri-
sinnuðu stjórn sína til samstarfs við
sósíalistann Mitterrand, forseta
landsins.
Hin 42 ára gamla Judith Richard-
son Haimes frá Fíladelfíu í Banda-
ríkjunum kvartaði sáran í marsmán-
uði og fór í skaðabótamál. Hún
sagðist hafa misst skyggnigáfu sína
eftir læknismeðferð á sjúkrahúsi
einu og vildi fá sem samsvaraði um
80 milljón íslenskra króna í skaða-
bætur.
Hávær orðrómur um að Kurt Wald-
heim, fyrrum aðalritari Sameinuðu
þjóðanna og forsetaframbjóðandi í
Austurríki, hefði tekið þátt í stríðs-
glæpum nasista breiddist út allan
aprílmánuð. Waldheim neitaði hins-
vegar öllum ásökunum og vinsældir
hans virtust hreinlega aukast í Aust-
urríki eftir því sem ásökunum fjölg-
aði.
í Pakistan kom Benazir Bhutto
leiðtogi stjórnarandstöðunnar aftur
til heimalands síns eftir sjálfskipaða
útlegð í Evrópu. Gífurlegur mann-
fjöldi fagnaði komu þessarar 32 ára
gömlu dóttur Zulfikar Ali Bhuttos
fyrrum forsætisráðherra sem tekinn
var af lífi árið 1979, tveimur árum
eftir að hann hafði verið sviptur
völdum.
Vaxandi ólga var við Líbýustrend-
ur þar sem sjötti floti Bandaríkja-
hers hélt sig. Um miðjan mánuðinn
gerðu svo Bandaríkjamenn loftárás-
ir á tvær stærstu borgir Líbýu, Trip-
ólí og Benghazi, og ollu þær miklu
tjóni og nokkru mannfalli. Fréttir
um að uppreisn hefði verið gerð
gegn Kaddafi Líbýuleiðtoga reynd-
ust hinsvegar ekki á rökum reistar
og hótaði hann hefndaraðgerðum
sem beindust fljótlega gegn Bretum
fyrir stuðning þeirra við loftárásirn-
ar.
Undir lok aprílmánaðar varð vart
við aukna geislavirkni á Norðurlönd-
um og töldu menn hana líklega vera
afleiðingu leka í sovésku kjarnork-
uveri. Síðar tilkynnti svo sovéska
fréttastofan Tass um slys í kjarnork-
uverinu í Tsjernóbíl í Úkraínu. En
síðar kom í ljós að slys þetta vav það
versta í sögu kjarnorkunnar. Geisla-
mengunin frá Tsjernóbíl barst víða
um Evrópulönd og slysið kom af
stað mikilli umræðu um öryggi í
kjarnorkuverum og gildi kjarnorku
í nútímaþjóðfélögum.
Góðu fréttirnar í mánuðinum
voru þær að Hollendingar sömdu
loks frið við yfirvöld á Scillyeyjum
eftir að hafa formlega átt í stríði við
hina 1450 íbúa eyjanna í 335 ár. Á
þeim tíma hljóp ólund í hollensk
stjórnvöld vegna sjóræningjastarf-
semi eyjaskeggja og hafði stríð stað-
ið yfir síðan, reyndar án þess að einu
einasta skoti hefði verið hleypt af.
m
Ríkisstjórnin í Noregi undir for-
ystu Kára Willochs sagði formiega af
sér í byrjun mánaðarins og það kom
í hlut Gro Harlem Brundtland leið-
toga Verkamannaflokksins að
mynda nýja ríkisstjórn.
Heimsins stærsta sýning, Heims-
sýningin EXPO ’86 var opnuð í
kanadísku borginni Vancouver.
Karl Bretaprins og kona lians Díana
settu sýninguna. Pils Díönu olli
nokkrum úlfaþyt í Kanada, það
reyndist nefnilega átta sentimetrum
styttra en tískan segir til unt þar í
landi.