Tíminn - 30.12.1986, Page 13
Á Indlandi iétu aðskilnaðarsinnar úr hópi síkha ófriðlega allt árið
Þriðjudagur 30. desember 1986 Tíminn 13
Á Filippseyjum var gerð mis-
heppnuð valdaránstilraun. Það var
hinn 75 ára gamli Arturo Tolentino,
varaforsetaefni Marcosar í febrúar-
kosningunum, og nokkrir óánægðir
hershöfðingjar sem tilraun þessa
gerðu en í stað þess að ráða yfir heilu
landi tókst þeint aðeins að ná völdum
yfir einu hóteli Maniluborg og það
aðeins t stuttan tíma. Tilraun þessi
þótti frekar kátbrosleg.
Háskólastúdent frá eynni Jövu í
Indónesíu stóð eins lcngi og hann
gat staðið, í 15 kukkutíma og 25
sekúndur nákvæmlega. Þá stóðst
hann ekki mátið lengur og settist.
Fyrir þctta komst hann í heimsmeta-
bók Guinness fyrir að standa kyrr
lengur en nokkur annar.
í Thailandi fór fram fullkomlega
óheiðarleg kosningabarátta þar sem
dauðir menn voru settir á kjörskrá
og frambjóðendur fengu byssumenn
til að skjóta helstu andstæðinga
sína. Hinn hófsami Demókrata-
flokkur vann yfirburðarsigur í kosn-
ingunum.
ÁGÚST
Samtök olíuframleiðsluríkja
(OPEC) komu mörgunt sérfræðing-
Sum happdrætti eru öðruvísi en önnur.
Þannig er Happdrætti SÍBS - happ-
drætti bæði fyrir heppna og óheppna.
Happdrætti SÍBS er rekið sérstaklega
fyrir þá sem eru svo óheppnir að
r-
« ft.
^ a slasast eða veikjast og
þurfa endurhæfingu
“^"eða aðstoð til þess að
4 ^takast á við daglegu
— C störfín. Þúsundir og
aftur þúsundir íslendinga
hafa notið þeirrar þjónustu.
En jafnframt er Happdrætti SÍBS
spennandi leikur þar sem 19 þúsund
og þrír heppnir íslendingar
deila með sér hundrað og
tólf milljónum þetta árið.
Það verður margur heppinn
þar enda hafa tugir og
aftur tugir þúsunda hlotið vinning í SÍBS.
En hver er heppinn og hver óheppinn?
Það sér enginn fyrir - þess vegna spilum
við með í SÍBS. Við drögum 13. janúar.