Tíminn - 30.12.1986, Page 17

Tíminn - 30.12.1986, Page 17
Þriðjudagur 30. desember 1986 Tíminn 17 llllllliillllllllllllllllllllllllll ÍÞRÓTTAANNÁLL llllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllflllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll Þjálfarar 1. deildarliðanna í knatt- spyrnu spáðu Frömurum íslands- meistaratitlinum í 70. skipti sem keppt er um hann. Víði og Breiða- blik var spáð falli. ívar Webster körfuknattleiks- maður gekk til liðs við Þórsara. Landsliðið í körfu tapaði fyrsta leiknum í B-keppninni, gegn Pól- verjum en unnuTyrki í öðrum leik. Blikarnir byrjuðu með stæl á íslandsmótinu í knattspyrnu og unnu Val en í A og Fram gerðu markalaust jafntcfli. Los Angcles Lakers með Pétur Guðmundsson innanborðs töpuðu fyrir Houston Rockets í undanúr- slitaviðureign í NBA og komust Houston þar með í úrslitin á móti Boston Celtics. Knattspyrnulands- liðið tapaði fyrsta leik sínum á Reykjavíkurleikunum, 1-2 gegn írum. Arnór Guðjohnsen skoraði gott mark. Gegn Tékkunt urðusömu úrslit en þar var það Guðmundur Steinsson sem skoraði. írar tóku Reykjavíkurbikarinn meðsér heim. Ragnheiður Ólafsdóttir setti íslandsmet í 3000 m hlaupi, 9:09,81 mín. og bætti eigið met um heilar 11 sekúndur. Larry Bird var valinn leikmaður ársins í NBA deildinni í körfuknatt- leik. JÚNÍ Sovétmenn skoruðu 6 mörk í fyrsta leiknum á HM í knattspyrnu, það voru Ungverjar sem fengu að finna fyrir því. Danir tóku „show“ á móti Uruguay, 6-1 í stórkostlegum leik. Maradona gekk frá Englend- ingum upp á eigin spýtur og með aðstoð handar Guðs og Brassarnir unnu Frakka á vítaspyrnukeppni í stórleik. KR-Íngar unnu sinn fyrsta leik á Akureyri síðan árið 1977. Þórsarar lágu 1-0 í 1. deildarleik liðanna. Boston Celtics urðu meistarar í bandarísku NBA deildinni í körfu og Larry Bird var valinn leikmaður úrslitakeppninnar. Ragnheiður Runólfsdóttir setti 4 íslandsmet í sundi á stórmóti í Kanada. Hugrún Ólafsdóttir fékk gull í stúlknaflokki á opna skoska meistaramótinu í sundi og einnig brons og Eðvarð Þór Eðvarðsson fékk gull á sama móti. íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu vann Færeyjar 6-0 og síðan 2-0 í seinni leik liðanna á Akranesi. Argentínumenn urðu heims- meistarar í knattspyrnu. Argentínu- menn komust í 2-0, Þjóðverjar jöfn- uðu óvænt 2-2 en lokataölur urðu 3-2 fyrir Argentínu og sanngjarn sigur. Frakkar fengu bronsið eftir sigur á Belgum. Gary Lineker varð markakóngur en Maradona var bestur. Michael Gross setti sitt 11. heimsmet á ævinni í sundi, nú í 200 flugi, 1:56,24 mín. Sundsystkinin úr Þorlákshöfn urðu sigursæl á Sundmeistaramót- inu, scttu fjögur íslandsmet af 7 og Bryndís Ólafsdóttir hlaut Kolbrún- arbikarinn fyrir besta afrek milli Islandsmóta. Eðvarð Þór Eðvarðs- son fékk Pálsbikarinn fyrir besta afrekið á mótinu. Ingrid Kristiansen bætti heimsmetið í 10.000 metra hlaupi um litlar 46 sekúndur. ÍR-ingar unnu flestar greinar á Meistaramóti ís- lands í frjálsum og Stefán Þór Stefánsson ÍR varð þrefaldur Is- landsmeistari. Ben Johnson náði næstbesta heimstímanum í 100 m hlaupi á Friðarleikunum í Moskvu, 9,95 sek. Sergei Bubka bætti heims- metið í stangarstökki á leikunum, 6,01 m. Framarar rétt ntörðu 3. deildarlið Fylkis 1-0 í 16 liða úrslitum Mjólkur- bikarsins. Skagamenn kepptu við Hvergerðinga og unnu 5-0 eftir 0-0 í hálfleik. Eðvarð Þór Eðvarðsson sundmaður úr Njarðvík gerði sér lítið fyrir og setti Norðurlandamet í 200 m baksundi á HM í Madrid. Eðvarð synti á 2:03,03 mín. Hann komst í úrslit og hafnaði þar í 8. sæti á 2:04,22 mín Úlfar Jónsson og Steinunn Sæmundsdóttir sigr- uðu á landsmótinu í golfi sem haldið var á Hólmsvelli í Leiru. Unnur Stefánsdóttir varð þriðja í 400 m hlaupi á Em öldunga í Svíþjóð. Knattspyrnulandsliðið gerði það gott í haust, jafntefli gegn tveimur stórliðum, Frökkum og Sovétmönnum. Bjarni Sigurðsson og Ásgeir Sigurvinsson ganga hér kátir af leikvelli eftir Sovétleikinn. íslenska drengjalandsliðið í knatt- spyrnu varð í 5. sæti á NM drengja- landsliða, unnu aðeins Færeyinga. Jackie Joyner séfti heimsmet í sjöþraut kvenna, 7161 stig. Pétur Pétursson gekk til liðs við Skagamenn að nýju í fótboltanum. Hann skoraði strax í fyrsta leik. Þróttarar sem voru í neðsta sæti 2. deildar knattspyrnunnar burstuðu efsta liðið, KA 5-0 þó KA-menn væru í sókn lengst af. Ragnheiður Runólfsdóttir setti enn eitt fslandsmetið í sundi, nú lækkaði metið í 100 bringu um heila sekúndu. Sundfélagið Ægirbarsigur úr býtum á aldursflokkameistara- mótinu í sundi. Eitt íslandsmet og fjöldi unglingameta féll. ÍR-Íngar unnu 15. bikarsigurinn í röð í frjálsum íþróttum. Austfirð- ingar sigruðu í 2. deild og Skagfirð- ingar í 3. deild. Framarar unnu Keflvíkinga og Skagamenn hrukku í gang í seinni hálfleik og unnu Valsmenn í undan- úrslitum Mjólkurbikarsins. Haukur Gunnarsson fékk brons í 400 m hlaupi á heimsleikum fatlaðra. FH varð íslandsmeistari í 5. flokki í knattspyrnu, Fylkir í 4. flokki og Stjarnan í 3. flokki. Udo Bayer setti heimsmet í kúluvarpi, 22.64 m og Birgitta Guðjónsdóttir og Auðunn Guðjónsson urðu hlutskörpust á Is- landsmeistaramótunum f fjölþraut- um. Kvennalandsliðið í knattspyrnu tapaði fyrir Sviss á Valbjarnarvelli. Úlfur Þorbjörnsson vann þrefalt á íslandsmótinu í tennis og móðir hans, Margrét Svavarsdóttir, vann í einliðaleik og tvenndarleik ásamt Úlfi en varð önnur í tvíliðaleik. Valsmenn duttu hressilega í lukkupottinn, þeir drógust gegn Ju- ventus í Evrópukeppni meistaraliða í knattspyrnu. Maradona tryggði Ameríkuúrvalinu sigur gegn Heims- úrvalinu í góðgerðarleik í knatt- spyrnu til styrktar börnum í Mexíkó. Kvennalandsliðið í fótbolta tapaði tvisvar fyrir V-Þjóðverjum og Blika- stelpur urðu íslandsmeistarar í 2. flokki kvenna. Handboltalandsliðið tapaði fyrir Bandaríkjamönnum í fyrsta skipti f 10 ár á Friðarleikunum í Moskvu. Þeir töpuðu líka fyrir A og B liðum Sovétmanna og Tékkum en unnu Pólverja. Bandaríkjamenn urðu heims- meistarar í körfuknattleik í fyrsta sinn í 32 ár er þeir unnu Sovétmenn 87-85 í úrslitaleik. ÁGÚST Eðvarð Þór Eðvarðsson setti Norðurlandamet í 200 m baksundi á Heimsmeistaramótinu á Spáni. Hann komst í úrslit og varð 8. deild kvenna urðu Stjörnustúlkur efstar. Framarar uröu Islandsmeist- arar í knattspyrnu, gerðu markalaust jafntefli í síðasta leik og það dugði þó Valsmenn sigruöu ÍA, Framarar höfðu betra márkahlutfall. Guð- mundur Torfason var kósinn besti leikmaður deildarinnar og Gauti Laxdal sá cfnilcgasti. Völs- ungar urðu sigurvegarar í 2. deild í fyrsta skipti í sögu félagsins. Fram tapaði 3-0 fyrir Póska liðinu Kato- wice í Evrópukeppninni í knatt- spyrnu á Laugardalsvelli. Ekki fóru Skagamenn betur út úr leiknum gegn Sporting á sama stað, 9-0 tap þar. Og Valsmenn töpuðu 7-0 fyrir Juventus í Torino. Hinsvegar var allt annað uppi á tcningnum þegar Sovétmenn kcpptu á Laugardalsvelli gegn landsliðinu í Evrópukcppni landsliða, þeirfengu náðarsamlegast annað stigið og annað markið. Arn- ór Guðjohnsen skoraði mark íslands. U-21 árs liðið tapaöi aftur í Evrópukeppninni, nú gegn Tékkunt, 3-0 á Akureyri. Guðmundur Tor- fason fékk gullskó Adidas sem markahæsti leikmaður 1. deildar 1986. Torfi Ólafsson varð heims- meistari unglinga í lyftingum í +125 kg flokki, lyfti samtals 790 kg. Valsmenn urðu Reykjavíkur- meistarar í handknattleik, bæði í karla og kvennaflokkum. OKTÓBER Ellefu íslandsmet voru sctt á kraftlyftingamóti KR. Eyjamenn unnu yfirburðasigur í 3. deildinni í sundi. KR-ingar urðu Reykjavík- urmeistarar í körfuknattleik. Valsmenn töpuðu aftur fyrir Ju- ventus, nú 4-0 á Laugardalsvelli í skítakulda. Skaginn tapaði 6-0 gcgn Sporting úti. Fram fór að dæmi hinna og tapaði líka seinni leiknum, að vísu bara 1-0 í Katowice. Einar Bollason og Gunnar Þorvarðarson voru endurráðnir þjálfarar íslenska landsliðsins í körfuknattleik. Stjörnumenn voru álitnir sigur- stranglegastir á íslandsmótinu í handknattleik í upphafi móts. Ómar Torfason skoraði þrennu með Luzern í Sviss í fótboltanum. íslensku landsliðin í handknatt- leik, piltar 20 ára og yngri og stúlkur 18 ára og yngri urðu bæði í 4. sæti á NM. Þróttarar urðu Reykjavíkur- meistarar í blaki, unnu IS í æsispenn- andi úrslitaleik. Mikil þátttaka varð í Reykjavík- urmaraþon, Frakkinn Chaibi vann karlaflokkinn og breska stúlkan Macario kvennaflokkinn. Gífurlcg- ur fjöldi hljóp hálfmaraþon og skemmtiskokk. Atli Hilmarsson handknatt- leiksmaður ákvað að gefa ekki kost á sér í landsliðið framar vcgna meiðsla. Sigurður Einarsson og Einar Vil- hjálmsson komust ekki í úrslit í spjótkastkeppninni á EM í frjálsum og olli það vonbrigðum. KR varð bikarmcistari í 2. flokki í knatt- spyrnu. Fatima Whitbread setti heimsmet í spjótkasti á EM, 77,44 m í fyrsta kasti. Seb Coe vann loksins 800 m á stórmóti og Daley Thontp- son vann tugþrautina eftir hörku- keppni við Júrgen Hingsen. SEPTEMBER Skagamenn urðu bikarmeistar- ar í knattspyrnu, Pétur Pétursson skoraði bæði mörk þeirra en nafni hans Ormslev skoraði eina mark Framara. Valsstúlkur urðu bikar- meistarar kvenna, unnu Breiðablik 2-0. Keflvíkingar urðu íslandsmeist- arar B-liða, unnu Fram 4-1. Lands- liðið í knattspyrnu 21 árs og yngri tapaði fyrir Finnum í Evrópukeppn- inni. GuðmundurTorfason jafn- aði markamet Péturs Péturssonar í 1. deildinni í knattspyrnu, 19 mörk. KR vann Val í 1. deildinni og þar með var allt í járnum í toppbarátt- unni þar. íslenska landsliðið gerði jafntefli við sjálfa Evrópumeistar- ana, Frakka á Laugardalsvelli í 1. leiknum í Evrópukeppninni í knatt- spyrnu. Lokatölur0-0. Leiftur varð Islandsmeistari í 3. deild í knatt- spyrnu og Afturelding í 4. deild. I 2. fslendingar töpuðu naumlega gegn A-Þjóðverjum í landsleik í handknattleik { Laugardalshöll, lokatölur 22-21. Liðin léku aftur og enn naumari var sigur austan- tjaldsmanna þá, 21-20 eftir að ísland var yfir 20-17 rúmri mínútu fyrir leikslok. Kvennalandsliðið var á Spáni. Þær kepptu við heimamenn og var bókstaflega rústað í fyrri leiknum, töpuðu með 16 marka mun en unnu svo seinni leikinn, 20-19! Ólafur Wallevik náði 1. sæti á karatemóti í Skotlandi. I lands- keppni sömu helgi náðu fslendingar öðru sæli. Spánverjar urðu Evrópumcist- arar í flokki leikmanna yngri en 21 árs í knattspyrnu. Billy Abercomby fyrirliði St. Mirren í skosku knattspyrnunni vann það sér til frægðar að vera rekinn þrívegis af leikvelli í sama leiknum. NÓVEMBER Kvennaliðið í handknattleik keppti í C-heimsmeistarakeppni kvenna á Spáni. Þær sigruðu Finna og Portúgali en töpuðu fyrir Dönum og Austurríkismönnum. Þær lcntu í 5. sæti á mótinu, sigruðu Banda- ríkjamenn í úrslitalcik um sætið. Karlalandsliðið lék á móti í Hollandi og vann léttan sigur á ísraelsmönn- um og Bandaríkjamönnum. Kvcnnaliðið spilaði hér heima gegn Könum og tapaði tveimur lcikjum en gerði eitt jafntefli. Juventus féll úr leik í Evrópu- keppni meistaraliða í knattspyrnu eftir framlcngingu og vítaspyrnu- keppni gegn Real Madrid. Ander- lecht og Uerdingen komust álram en Stuttgart datt út. Ásgeir Sigurvinsson meiddist í leik mcð Stuttgart í Evrópukeppn- inni og var búisl við að hann yrði frá keppni í nokkrar vikur. Ron Atkinson framkvæmdastjóri Manchestcr United fékk reisupass- ann eftir aflcitt gengi liðsins í ensku knattspyrnunni. Breiðablik skaust á toppinn í 1. deildinni í handbolta eftir sigur á Víkinguin. Guðmundur Guðmunds- son skoraði 10 mörk og Víkingar unnu St. Ottmar frá Sviss 22-17 í Evrópukeppninni í handknattleik, 2. umferð. Þeir töpuðu útileiknum með eins marks ntun og komust áfram. Stjarnan datt út, tapaði stórt fyrir Dinos Slovan í Júgóslavíu en unnu seinni leikinn með 3 marka mun. Mikael Kjeldsen vann Morten Frost á NM í badminton í Laugar- dalshöll. Kirsten Larsen varð meist- ari í kvennaflokki. Arnór Guðjohnsen skoraði fyrir Anderlecht í Belgíu, það var nær vikulegur viðburður á þcssum tíma. Skagamenn urðu bikarmeistarar í 2. deild í sundi. fslenskir karatemenn fengu þrjú brons á Norðurlandamót- inu. Guðmundur Torfason gerði samning við Belgíska knattspyrnu- liðið Bevercn. DESEMBER Vestri varð bikarmeistari 1. deildar í sundi. Ulf Carlsson og Ásta Urbancic sigruðu á Flugleiðamótinu í borðtennis. Pat Jennings sem stóð í marki Norður-íra í 119 landsleikj- um í knattspyrnu lagði skóna á hilluna. KKÍ fékk tilkynningu um að ívar Webster yrði löglegur með landslið- inu í körfu í júní. Arsenal vann hvern sigurinn á fætur öðrum í ensku knattspyrnunni. Hamburgarar urðu þýskir jólameist- arar í knattspyrnu. Blikarnir urðu aftur á móti íslenskir jólameistarar í handbolta og Fram í kvennaboltan- um, Njarðvíkingar í úrvalsdeildinni í körfu, ÍR-ingi^r í 1. deild og ÍS í 1. deild kvenna.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.