Tíminn - 31.12.1986, Page 3
Miövikudagur 31. desember 1986
Tíminn 3
Lagaannáll Alþingis:
Stórmálin bíða síðari
hluta þinghaldsins
Tuttugu og sex frumvörp samþykkt sem lög
Alþingi á annasama daga fyrir höndum eftir jólafrí enda hefur Steingrímur
Hermannsson forsætisráðherra boðað kosningar 25. apríl n.k.
Tímamynd Svcrrir
Á fyrri hluta þinghaldsins í vetur
voru tuttugu og sex frumvörp sam-
þykkt sem lög frá Alþingi. Einnig
voru tvær tillögur afgreiddar sem
ályktanir Alþingis. Öll utan eitt
lagafrumvarpanna voru stjórnar-
frumvörp.
t>á hafa verið lögð fram og mælt
fyrir á þriðja tug annarra stjórnar-
frumvarpa, auk fjölda þingmanna-
frumvarpa. Mörg stjórnarfrumvörp-
in eru mjög mikilvæg mál, s.s. frum-
vörpin um virðisaukaskatt, tollalög,
umferðarlög, skipulagslög og lækna-
lög, og því ljóst að nóg verður að
starfa á Alþingi eftir jólahlé.
Einnig eiga eftir að koma fram
mörg mikilvæg frumvörp, sem ríkis-
stjórnin hefur boðað flutning á á
yfirstandandi þingi.
Hér verða rakin þau frumvörp
sem samþykkt voru sem lög frá
Alþingi fyrir jól.
Heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytið
Lög um breytingu á lögum nr. 59
frá 1983 um heilbrigðisþjónustu sem
felur í sér frestun á skipulagi heilsu-
gæslu í Reykjavíkurlæknishéraði og
heilsugæsluumdæminu í Garðabæ
þar sem ekki hefur tekist að útfæra
það.
Lög um breytingu á lögum um
almannatryggingar frá 1971. Laga-
breytingin felur í sér heimild til að
greiða mæðralaun til maka elli- eða
örorkulífeyrisþega þegar svo stend-
ur á að bætur bótaþega ganga að
fullu til stofnunar sem bótaþegi er
vistaður á.
Lög um breytingu á lögum um
málefni aldraðra frá 1982. Felur
breytingin í sér hækkun á gjaldi í
framkvæmdasjóð aldraðra í 1.500
krónur, auk þess sem þeir sem hafa
lægri tekjuskattsstofn en 224.100
krónur verða undanþegnir gjaldinu.
Við þessar breytingar er tekið mið af
35% tekjubreytingu milli árana 1985
og 1986 og þá breytingu sem hún
hefur á skattvísitölu.
Lög um sjúkratryggingagjald fyrir
árið 1987 sem er á þá leið að
sjúkratryggingagjald verði innheimt
með sama hætti og verið hefur.
Felur það í sér að skattleysismörk
laganna hækka um 35% (úr 403.000
kr. í 544.100 kr ).
í>á voru gerðar bréytingar á at-
vinnuleysistryggingasjóði, sem
rýmkuðu rétt bótaþega nokkuð.
Dómsmálaráðuneytið
Lög um breytingu á lögum um
Landhelgisgæslu íslands frá 1967,
sem felur í sér að áhafnir á skipum
eða flugvélum Landhelgisgæslunnar
fá sama hlut af björgunarlaunum og
aðrir aðilar sem standa að björgun.
En fram til þessa höfðu áhafnir
gæslunnar borið heldur minna úr
býtum.
Lög um veitingu ríkisborgararétt-
ar, en í þeim lögum var átta einstak-
lingum veittur íslenskur ríkisborg-
araréttur.
Sjávarútvegsráðuneytið
Lög um Ríkismat sjávarafurða,
sem kveða á um að skyldumat á
ferskum fiski á vegum Ríkismatsins
verði afnumið og slíkt mat verði í
höndum viðskiptaaðilanna sjálfra.
Lög um Stofnfjársjóð fiskiskipa,
sem hafa það meginmarkmið að
auðvelda eigendum skipa, sem
standa í skilum eða eru skuldlausir
við Fiskveiðasjóð íslands, að fá
endurgreitt sem fyrst það fé sem
berst inn á reikning þeirra við Stofn-
fjársjóð.
Viðskiptaráðuneytið
Lög um tékka en þar er veitt
heimild til handa Lánastofnun spari-
sjóðanna að gefa út tékka.
Samgönguráðuneytið
Lög um stöðvun verkfalls flug-
virkja og flugvélstjóra í Flugvirkja-
félagi íslands, sem starfa hjá Arnar-
flugi. Er þarna um að ræða staðfest-
ingu á bráðabirgðalögum sama efnis
frá því í júlí s.l.
Lög um stöðvun verkfalls félags-
manna í Skipstjórafélagi íslands svo
og félagsmanna í Sjómannafélagi
íslands, sem vinna á farskipum.
Þessi lög staðfesta bráðabirgðalög
frá því í maí s.l. um sama efni.
Iðnaðarráðuneytið
Lög um breytingu á lögum um
Iðntæknistofnun íslands frá 1978.
Þessi lagabreyting felur í sér að
stofnuninni verður heimilt að eiga
aðild að rannsókna- og þróunarfyrir-
tækjum, sem hagnýti niðurstöður
verkefna sem Iðntæknistofnun vinn-
ur að.
Lög um breytingu á lögum um
Iðnlánasjóð frá 1967 með síðari
breytingum. Þessi lög fela einungis í
sér nafnabreytingu úr Útflutnings-
miðstöð iðnaðarins í Útflutningsráð
íslands sem sett var á fót á þessu ári
og yfirtók starfsemi Útflutningsmið-
stöðvarinnar. En Útflutningsráðið
fær þar með þann hluta af iðnlána-
sjóðsgjaldi sem Útflutningsmiðstöð-
in fékk.
Fjármálaráðuneytið
Lög um ábyrgð vegna norrænna
fjárfestingarlána. Þessi lög heimila
ríkisstjórninni að ganga frá samningi
við Norræna fjárfestingarbankann
um ríkisábyrgðir á hluta íslands, allt
að 5.350.000 SDR gagnvart Norræna
fjárfestingarbankanum vegna fjár-
festingarlána og ábyrgða til verkefna
utan Norðurlanda.
Lög um frádrátt frá skattskyldum
tekjum vegna fjárfestingar manna í
atvinnurekstri, en þar er gert ráð
fyrir að frádráttur þessi hækki í
samræmi við breytingar á skattvísi-
tölu, sem er 35% milli áranna 1985
og 1986
Lög um framhald álagningar og
innheimtu ýmissa tímabundinna
skatta og gjalda á árinu 1987, öðru
nafni „bandormurinn". Fela lögin í
sér áframhaldandi álagningu eftirtal-
inna skatta: skatt á verslunar- og
skrifstofuhúsnæði; húsnæðisgjald;
sérstakt tímabundið vörugjald og
jöfnunarálag á innflutt hús.
Lög um breytingar á lögum frá
1980 um tekjustofna sveitarfélaga,
sem felur í sér að fjárhæðir í 26.
grein laganna, er varðar álagningu
útsvars, breytast í samræmi við
skattvísitölu hvers tíma eða eins og
nú er 35%.
Alþingi samþykkti einnig sem lög
fimm frumvörp er varða kjarasamn-
inga opinberra starfsmanna. Þar eru
mikilvægust lög um kjarasamninga
opinberra starfsmanna, sem fela í
sér mjög aukið svigrúm einstakra
stéttarfélaga opinberra starfsmanna
til samninga, verkfallsheimild færist
til einstakra stéttarfélaga í stað ein-
ungis BSRB. Þá er kjaradeilunefnd
lögð niður, auk þess sem Kjaradóm-
ur gegnir ekki lengur hlutverki í
kjaradeilum stéttarfélaga opinberra
starfsmanna.
í þessu sambandi var einnig sam-
þykkt lagabreyting varðandi lög um
réttindi og skyldur opinberra
starfsmanna ríkisins sem felur í sér
að til viðbótar þeim aðilum sem nú
þegar mega ekki fara í verkfall
bætast starfsmenn stjórnarráðs,
starfsmenn ríkissaksóknara og
starfsmenn ríkislögmanns.
Þá voru í þessum pakka samþykkt
tvenn lög sem banna annars vegar
lögreglumönnum og hins vegar
fangavörðum að fara í verkfall.
Loks var lögum um Kjaradóm
breytt þannig að felld var niður
lögbinding á hlutverki dómsins í
kjaradeilum ríkisins við stéttarfélög
starfsmanna þess.
Tvö frumvörp urðu að lögum,
sem snerta tekjuöflun ríkissjóðs.
Annars vegar var það breyting á
lögum um tekju- og eignaskatt, sem
felur í sér lækkun tekjuskattsins um
300 milljónir kr. Hins vegar voru
samþykkt lánsfjárlög, sem fela í sér
heimildir ríkissjóðs til lánatöku á
nýja árinu.
Síðustu starfsstundir fyrri hluta
109. löggjafarþings íslendinga fóru
síðan í að samþykkja „rúsínuna“ í
pylsuendanum, sjálf fjárlögin.
Seinni hálfleikur!
Það verður vart annað sagt um
fyrri hluta þinghaldsins en að „sagan
endalausa" hafi endurtekiðsig. Mik-
ill hamagangur síðustu daga þingsins
þegar flest ofangreindra frumvarpa
voru samþykkt sem lög. Engin
„stór“ frumvörp voru samþykkt
nema þau sem varða fj árhagsafkomu
ríkissjóðs eins og reyndar venjan er.
Til dæmis má segja að flest samþykkt
frumvörp fjármálaráðherra og heil-
brigðis- og tryggingaráðherra hafi
tilheyrt svokölluðum „rútínumál-
um“, sem ávallt koma upp við af-
greiðslu fjárlaga.
Þá má geta að samþykkt var
breyting á lögum um listamanna-
laun, sem menntamálanefnd stóð
fyrir og felur einkum í sér að neðri
flokkur listamannalauna verði felld-
ur niður.
Aðeins eitt mál stjórnarandstöð-
unnar fékk brautargengi fyrir ára-
mót, en það var þingsályktunartil-
laga Jóhönnu Sigurðardóttur
(A.Rvk.) o.fl. um könnun á tann-
læknaþjónustu hér á landi og kostn-
að neytenda af henni.
Þinghald eftir áramót hefst aftur
19. janúar og stendur vart nema í
rúma tvo mánuði. Það liggur því
fyrir að vinnusemi verður að ein-
kenna það, ef ríkisstjórnin ætlar að
fá einhver hinna stærri mála
samþykkt. ÞÆÓ
Oskum viðskiptavinum okkar
farsældar á
nýja árinu
Þökkum ánægjuleg
viðskipti á liðnum árum
NISSAN
Sll INGVAR HELGASON HF
■ ■■ Sýningarsalurinn/Rauðagerði, simi 33560