Tíminn - 09.01.1987, Page 1
í STUTTU MÁLI...
FLUGLEIÐIR bjóöa nú upp á
helgartilboö i innanlandsflugi. Boöiö
er upp á flug, gistinau og morgunverö
fyrir mun lægra verö en flugfar kostar
venjulega. Gisting í eina aukanótt
kostar 900 kr. Um er aö ræöa helgar-
feröirtil Reykjavíkurfrá21 áfangastað
Flugleiöa, Flugféiags Noröurlands og
Flugfélags Austurlands, en helgarferö-
irfrá Reykjavík og út á land eru aðeins
til sex staða, þ.e. Akureyrar, Egils-
staöa, Vestmannaeyja, Hornafjaröar,
ísafjaröar og Húsavíkur.
MYNDLISTARSÝNING
veröur haldin aö Hallveigarstööum í
tilefni 80 ára afmælis Kvenréttindafé-
lags íslands þann 23. janúar næst-
komandi. Sýningin mun standa til 8.
febrúar. Sýning þessi er sölusýning og
á henni veröa gömul og ný myndverk,
teikningar, grafík, textíl og málverk.
Konur sem áhuga hafa á aö taka þátt
í sýningunni geta skilaö inn verkum
sinum 12. janúar á mili 17:00 og 19:00
en sýningarnefnd mun velja úr verkum.
Auk sýningarinnar verður síödeg-
isveisla í tilefni afmælisins sunnudag-
inn 18. janúar.
GUNNLAUGUR STEFÁNS-
SON hlaut lögmæta kosningu í Hey-
dals prestakalli í Austfjaröaprófasts-
dæmi í prestkosningum sem fram fóru
sl. sunnudag. Á kjörskrá voru 540 og
þar af greiddu atkvæöi 375, eöa tæp-
lega 70%. Gunnlaugur var áöur starfs-
maður Hjálparstofnunar kirkjunnar.
Kona hans er Sjöfn Jóhannesdóttir,
sem Ijúka mun guöfræöiprófi í vor. Þau
eiga einn son Stefán Má.
Gunnlaugur tekur við af sr. Kristni
Hóseassyni sem lét af störfum fyrir
aldurssakir um áramótin síöustu.
ANNAÐ ÁRIÐ í röö fæddust
aðeins um 3.800 börn í landinu á
síðasta ári, en 1985 fæddust 3856
börn, sem er t.d. um 600 færra en áriö
1983. Svo fá börn hafa ekki fæðst í
landinu síðan áriö 1947, þótt konur á
barnsburðaraldri séu nú rúmlega tvö-
falt fleiri en þá. Haldi sama hlutfall
áfram yröu ófæddar kynslóðir um 8%
fámennari en kynslóð foreldranna,
samkvæmt útreikningum Hagstofunn-
ar.
SAMNINGAFUNDUR
Verkamannafélagsins Dagsbrúnar og
Vinnuveitendasambands íslands/
Vinnumálasambands samvinnufélag-
anna hófst kl. 16:00 miðvikudaa oa
stóö fram til kl. 16:00 í gær. Fundinum
var þá frestað. Engin niöurstaöa
fékkst. Aðilar voru sammála um að
athuga málin hver í sínu lagi í fram-
haldi af fundinum. Næsti samninga-
fundur hefur verið boðaöur kl. 14:00 á
sunnudag.
KRUMMI
„Þýðir þetta að
efnahagsstefna
stjórnarinnar snúist
í suð-suðvestur og
verði þar með í
höfn?"
Þjóðhagsstofnun:
Opinber þjónusta
hækkar um 10,1 %
- meðalhækkun hjá sveitarfélögum 10,7% en 9% hjá ríkinu. Meiri hækkanir en
gert var ráð fyrir, segir Björn Björnsson hagfr. ASÍ
Þjóðhagsstofnun hefur að beiðni
ríkisstjórnarinnar tekið saman yfir-
lit yfir áhrif verðhækkana opin-
berrar þjónustu á vísitölu fram-
færslukostnaðar. Niðurstaðan er
sú að þjónusta ríkisins hækkar að
meðaltali um 9,0%, en þjónusta
sveitarfélaga um 10,7%. Samtals
er því meðalhækkun opinberrar
þjónustu 10,1%, eða vel yfir þeim
mörkum sem sett voru við gerð
kjarasamninganna í desember, en
þar var gert ráð fyrir að verðbólga
yrði um 7,5% og verðhækkanir því
ekki meiri en því nemur. Samtals
hækkar framfærsluvísitala því um
0,67%.
Af hækkunum hjá sveitarfélög-
um vega hækkanir hitaveitnanna
þyngst, eða rúmlega helming á við
aðrar hækkanir.
Voru þessi mál til umræðu á
ríkisstjórnarfundi í gær. Sagði
Steingrímur Hermannsson að hann
teldi hækkanir ríkisins nokkurn
veginn viðunandi cn hækkanir
sveitarfélaga fullháar.
Björn Björnsson, hagfræðingur
ASÍ treysti sér ekki að leggja mat
á þessar tölur, þar scm honum
hefði ckki enn borist samantekt
Þjóðhagsstofnunar. Hins vegar
sagði Björn að hann hefði átt von
á að þessar tölur hefðu jafnvel
verið hærri. Hins vegar væri ljóst
að þessar hækkanir væru meiri cn
gert hefði verið ráð fyrir við gerð
kjarasamninga.
Ekki treysti Björn sértil aðsegja
til um hvort vísitalan færi yfir
rauða strikið í byrjun febrúar
vegna þessara hækkana, en benti á
að nokkuð svigrúm hefði myndast
í desembermánuði, þegar vísitalan
varð hálfu prósentustigi minni en
ráð var fyrir gert.
- phh
Jón Helgason
landbúnaöarráöherra:
Könnun á
áhrifum
fullvirðis-
Ráöherrar funda með deiluaðilum í sjómannadeilunni:
réttar
Aðsnúruþurrka
þvottinn
Þær virðast una scr vd kerl-
ingarnar úr látbragðsleiknum
„Risinn draumlvndi" þar sein
þær standa sitt hvoruin niegin
við skapara sinn, Helgu Steff-
cnsen, og hengja þvott á snúru.
Helga inun sýna leikbrúður
sínar í Gerðubergi nú uin helg-
ina, cn hún hefur búið til fjölda
leikbrúöa sem „komið hafa
frain“ í leikritum eða í sjón-
Varpi. Tíniumynd-Pjetur
Ríkisstjórnin mun
ekki grípa inn í
„Verkfallið ógnar efnahagsstefnunni,“ segir Matthías
Bjarnason
Halldór Ásgrímsson, sjávarút-
vegsráðherra og Matthías Bjarna-
son, viðskipta- og samgöngumála-
ráðherra áttu í gær fund með
deiluaðilum í sjómannadeilunni í
því skyni að kynna sér málið og
reyna að liðka fyrir sáttum.
Halldór Ásgrímsson sagði eftir
fundinn að hann væri ekki bjart-
sýnn á lausn deilunnar, sem nú
þegar væri farin að hafa alvarleg
áhrif á stöðu helstu freðfiskmark-
aða okkar erlendis, þar sem litlar
sem engar birgðir væru fyrir hendi.
Hann kvaðst þó andvígur því að
stjórnvöld gripu inn í þessa vinnu-
deilu á þessu stigi málsins.
Matthías Bjarnason sagði í við-
tali við Tfmann að ekki hefði verið
gert ráð fyrir verkföllum við gerð
kjarasamninganna og þegar loforð
ríkisstjórnarinnar hefðu verið
gefin. „Ef þessi verkföll halda
áfram, erum við auðvitað að kasta
frá okkur allri efnahagsstefnu sem
hér hefur verið mörkuð," sagði
Matthías.
Aðspurður hvort ríkisstjórnin
ætli sér að grípa inn í sjómanna-
deiluna, sagðist Matthías ekki geta
sagt um það á þessu stigi málsins.
Það yrði að sjá til með það.
-phh
{ gangi er athugun á því
hvaða bændur það eru sem
koma til með að fá mesta
skerðingu vegna reglugerðar
um fullvirðisrétt. Ennfremur
er í gangi athugun á því með
hvaða hætti er hægt að koma til
móts við þessa bændur með
tilliti til þeirra eigin afkomu og
einnig með byggðasjónarmið í
huga.
Það er Stéttarsamband
bænda og Framleiðsluráð sem
vinna að þessari athugun.
Jón Helgason landbúnaðar-
ráðherra segir að hann sé og
hafi alltaf verið reiðubúinn að
vinna að framgangi þeirra til-
lagna sem frá Stéttarsambandi
bænda koma.
Sjá viðbrögð Jóns Helgason-
ar við tillögu Páls Péturssonar
um að reglugerð um fullvirðis-
rétt verði dregin til baka og
endurskoðuð á bls. 5.